Alþýðublaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 8
MMÐUBIÍBIÐ Þriöjudagur 26. apríl 1988 KAUPFELAG REKID NIEÐ GÓDUM GRÓDA 16 milljóna króna hagnaður af rekstri Kaupfélags Fáskrúðsfjarðar á síðasta ári. Ríflega helmingur bœjarbúa á launaskrá hjá fyrirtœkinu. 1250 þúsund greidd í stofnsjóð félagsmanna Hagnaöur af rekstri fyrir- tækja Kaupfélags Fáskrúðs- fjaröar á árinu 1987 var 15.9 milljónir króna. Siðustu ár hefur rekstur kaupfélagsins skilað umtalsverðum hagn- aði. Aöalfundur kaupfélagsins var haldinn í félagsheimilinu Skrúö um helgina. Hagnaöur af rekstri kaupfélagsins var 3.4 milljónir króna, en hagn- aður af rekstri Hraðfrystihúss Fáskrúðsfjarðar sem er í eigu kaupfélagsins var 12.5 milljónir. Samtals var því hagnaður fyrirtækjanna 15.9 milljónir. Samanlögð fjármunamynd- un fyrirtækjanna var 31.7 milljónir. Fyrirtækin greiddu í vinnulaun 160.6 milljónir til 452 starfsmanna sem komu á launaskrá, en íbúar á félags- svæðinu eru um 880. Afskriftir félaganna námu um 38 milljónum en heildar- velta var liólega 600 milljónir. Stærsta fjárfestingarverk- efnið var endurbygging togar- ans Hoffells, en skipið var frá veiðum hálft árið vegna end- A félagssvæði Kaupfélags Fáskrúðsfjarðar eru um 880 íbúar. 456 komust á launaskrá kaupfélagsins á síðasta ári. urbyggingarinnar sem fram fór í Póllandi. Kostnaður við verkið var um 109 milljónir. Það er mat manna að skipið sé sem nýtt fyrir verð sem er um einn þriðji af verði nýs togara. Annar togari fyrirtækisins, Ljósafell, fer í endurbyggingu í Póllandi í sumar. Vegna þessarar góðu af- komu samþykkti aðalfundur- inn að leggja 1250 þúsund krónur í stofnsjóð félags- manna. Þá samþykkti aðal- fundurinn traustsyfirlýsingu við Gísla Jónatansson kaup- félagsstjóra fyrir vinnubrögð hans og afstöðu f stjórn lce- lanþ Seafood Corporation. Úr stjórn að þessu sinni átti að ganga Gunnar Jóns- son, en hann var endurkjör- inn. Varamaöur í stjórn var kosinn Lars Gunnarsson. Formaður stjórnarinnar er Björn Þorsteinsson kaupfé- lagsstjóri á Berunesi. Kaupfélag Fáskrúðsfjarðar rekur tvo togara, hraðfrysti- hús, fiskimjölsverksmiðju, saltfiskverkun, sláturhús og verslun. Gísli Jónatansson kaupfélagsstjóri: REYNT AÐ VARAST OFFJARFESTINGU Fyrirtœki kaupfélagsins hafa skilað hagnaði mörg undanfarin ár „Það sem á stærstan þátt i þessari afkomu í fyrra er hagur útgerðarinnar. Það hallaði verulega á vinnsluna bæði með hækkuðu fiskverði og lækkun á dollar, en hann lækkaði um 11% á meðan kostnaður innanlands hækk- aði um 30%. Uppistaðan í þessu er þvi hagur útgerðar- innar,“ sagði Gísli Jónatans- son kaupfélagsstjóri á Fá- skrúðsfiröi við Alþýðublaðið aðspurður um ástæður þess- arar góðu afkomu kaupfé- lagsins. Mikið hefur verið rætt um slæma stöðu fyrirtækja, sér- staklega kaupfélaganna víða um land. Alþýðubiaðið spurði Gísla hvernig stæöi á því að hægt væri að reka eitt fyrir- tæki með góðum hagnaði ár eftir ár á meðan önnur ættu í miklum þrengingum: „Það er sjáltsagt ýmislegt. Við erum með fjölbreyttan rekstur og gott starfsfólk. Við höfum reynt að vara okkur á offjárfestingunni. Ég held reyndar að það sé erfitt að finna eitthvað eitt öðru fremur." Gísli sagðist hafa áhyggjur af þróun mála, sérstaklega hvað varðaði fiskvinnsluna. Verð hafi lækkað á bæði salt- fiski og freðfiski auk þess sem stöðugt sig hafi verið á dollar. Á aðalfundi kaupfélagsins um síðustu helgi var sam- þykkt sérstök traustsyfirlýs- ing á Gísla fyrir vinnubrögð hans og afstöðu í stjórn lce- land Seafood. En í stjórninni var Gísli í minnihluta vegna afstöðu sinnar til brottrekst- urs Eysteins Helgasonar og Geirs Magnússonar, og síðan mála sem fylgdu í kjölfar upþsagnanna. „Þessi yfirlýs- ing kom þarna fram og var samþykkt einróma. Ég kann enga sérstaka skýringu á sjónarmiðum sem liggja að baki,“ sagði Gísli aöspurður. 1 2 3 4 5 ■ 6 □ 7 F~~ 9 tö □ 11 B 3 13 I ■ Krossgátan Lárétt: 1 gramur, 5 bindi, 6 ker, 7 þyngdareining,8veikur, 10 skóli, 11 ásaki, 12 fætt, 13 bjálfar. Lóðrétt: 1 fátækar, 2 fjas, 3 sam- stæðir, 4 úrkoman, 5 hindrar, 7 röskir, 9 slæma, 12 bardagi. Lausn á siðustu krossgátu Lárétt: 1 kópur, 5 sarp, 6 kná, 7 út 8 riðaði, 10 ál, 11 lin, 12 sinu, 13 Spánn. Lóðrétt: 1 kanil, 2 óráð, 3 pp, 4 rit- inu, 5 skráðs, 7 úðinn, 9 alin, 12 leit. Gengii Gengisskráning 77 - 25. april 1988 Bandarikjadollar Sterlingspund Kanadadollar. Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Finnskt mark Franskur franki Belgiskur franki Svissn. franki Holl. gyllini Vesturþýskt mark ítölsk lira Austurr. sch. Portúg. escudo Spanskur peseti Japanskt yen Kaup 38,780 72,926 31,443 6,0241 6,2878 6,5992 9.7120 6,8107 1,1069 27,9970 20,6414 23,1522 0,03113 3,2947 0,2832 0,3507 0,31040 Sala 38,900 73,151 31,540 6,0427 6,3073 6,6196 9,7420 6,8318 1,1103 28,0836 20,7053 23,2239 0,03123 3,3049 0,2840 0,3528 0,31136 Ljósvðfopunktar RUV StSS 2 Kl. 20.35. I skuggsjá. Ingimar Ingimarsson (án Ingva Hrafns) fjallar um hvort íslenskir bankar taki áhættu á alþjóða peningamarkaðn- um. Þjóðin fær að spyrja sér- fræðingana. Bylgjan Kl.12.10. Pétur Steinn stýrir „menningarþætti". Kl. 18.05. Denni dæma- lausi. Ekki fréttir af mið- stjórnarfundi Framsóknar- flokksins. • Rás 1 Kl. 10.30. Ég man þá tíð. Hermann Ragnar þrætir fyrir minnisleysi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.