Alþýðublaðið - 26.04.1988, Page 3
Þriðjudagur 26. apríl 1988
3
FRÉTTIR
Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins:
HÓGVÆRAR ÁBENDINGAR
Á miðstjórnarfundinum voru settar fram tillögur um ýmsar aðgerðir í efnahagsmálum en
ráðherrum og þingflokki falið að semja um leiðirnar. Stjórninni var ekki ógnað.
Niðurstaða af miðstjórnar-
fundi Framsóknarflokksins
um helgina varö öllu hóg-
værari en búist hafði verið
við. Ríkisstjórninni voru ekki
sett ákveðin skilyrði um að-
gerðir í efnahagsmálum
heldur fól miöstjórn Fram-
sóknar ráðherrum flokksins
og þingflokki „að hefja nu
þegar viðræður við sam-
starfsflokkana um leiðir, sem
ná þeim markmiðum, sem
um var samið við myndun
ríkisstjórnar,“ eins og það er
orðaö í stjórnmálaályktun
fundarins.
í ályktuninni segir að
Framsóknarflokkurinn telji að
ráðast eigi I róttækar aðgerð-
ir, sem duga til þess að
skapa framleiðsluatvinnu-
vegunum rekstrargrundvöll,
draga verulega úr viðskipta-
halla, stöðva byggðaröskun
og draga úr verðbólgu, en
standa vörð um kjör þeirra
sem lægstu launin hafa.
I ályktun miðstjórnarinnar
eru settar fram ábendingar
um aðgerðir. Til að draga úr
þenslu verði aflað heimilda
til að leggja tímabundið gjald
á öll ný mannvirki önnur en
íbúðarbyggingar og dregið úr
erlendum lántökum til fjár-
festinga. Dregið verði úr
niðurgreiðslu vaxta, en hús-
byggjendum veitt aðstoð
gegnum skattakerfið. Þá
segir í ályktuninni að öll
stjórn peningamála verði
tekin til endurskoðunar og
eftirfarandi ábendingar settar
fram: „Lög verði sett án tafar
sem tryggi að fjármagns-
markaðurinn allur lúti sam-
ræmdri stjórn og reglum.
Lánskjaravísitala á nýjum
fjárskuldbindingum afnumin
en stuðlað að hóflegum raun-
vöxtum með hliðsjón af þeirri
stefnu í gengismálum sem á
er byggt. Vaxtamunur og há-
marksvextir fyrst um sinn
ákveðnir af Seðlabanka ís-
lands.“
Lagt er til að vísitöluvið-
miðun við verðlag og gengi
verði afnumin. Sköttum fyrir-
tækja að verulegu leyti breytt
úr veltutengdum sköttum í
tekjutengda skatta og tekju-
skattur lagður á fjármögnun-
arfyrirtæki. Raforkuverð verði
lækkað með lengingu er-
lendra lána Landsvirkjunar til
samræmis vió afskriftartíma
mannvirkja og með yfirtöku
rikissjóðs á lánum Raf-
magnsveitna ríkisins og
Orkubús Vestfjarða. Sjálfvirk
viðmiðun raforkuverðs frá
Landsvirkjun við gengi og
verðlag verði óheimil og
unnið markvisst að jöfnun
orkuverðs í landinu.
í kaflanum um vanda at-
vinnulífs á landsbyggðinni
segir að Byggðastofnun verði
stórefld og gert kleift að
skuldbreyta skuldum fyrir-
tækja á landsbyggðinni til
samræmis við afskriftatíma
Sykurmoli sýnir átta myndir í Bókakaffi:
„ÞETTA ER SVONA AMATÖRISIVll
Á sama tima og Sykur-
molar klifra upp vinsælda-
lista i útlöndum og gagnrýn-
endur virtra popprita vantar
lýsingarorö yfir afuröir þeirra,
heldur einn Sykurmolanna,
Einar Melax, litla myndlistar-
sýningu í Bókakaffi i Garöa-
stræti. Einar sýnir þar 8
myndir, teikningar og vatns-
litamyndir.
„Það má segja að þetta sé
svona amatörismi hjá mér,“
sagði Einar þegar Alþýðu-
blaðið leit inn á sýninguna
hjá honum í gær. „Það gefst
auðvitað lítið tóm þessa
dagana, en myndirnar eru
allar málaðar þegar ég var i
útlöndum á síðasta ári, við
Miðjarðarhaf, á Kýpur og í
segir Einar Melax.
ísrael."
Það er eðlilegt að spyrja
hvernig standi á þvi að Sykur-
moli á þröskuldi frægðar-
innar haldi sýningu á 8 vatns-
litamyndum í litlu kaffihúsi í
Garðastræti?
„Það má segja að meðlimir
Sykurmolanna hafi staðið
fyrir ýmsu öðru en bara spila
í Sykurmolunum. Við höfum
verið með Ijóðaútgáfu og
ýmsa uppákomu. Starfsemi
okkar fer því töluvert út fyrir
það, að vera eingöngu í popp-
bransa."
— En hvers vegna sýniröu
litlar vatnslitamyndir, þegar
allir aörir eru aö mála stór
skrímsli á striga sem ná
helst frá gólfi upp i loft?
„Já... Vatnslitirnir eru
náttúrlega handhægir, ef
menn eru ekki með vinnu-
stofu. Svo hef ég áhuga á
vatnslitum, byrjaði að fikta
með þá fyrir tveimur árum.
Það má segja að þetta sé af-
raksturinn af því.“
Sýning Einars heitir
„Stemmur að vestan.“ Af-
hverju? „Það máeiginlega
segja um myndirnar að þær
séu hálfgeróar stemmur. Því
ekki að vestan? Einhvers
staðar að eru þær.“
Þaó er fyrirtækið Smekk-
leysa s/f h.f. sem stendur
fyrir sýningunni. „Þú mátt
bæta því við að það eru allir
beónir um að kíkja inn,“
sagði Einar Melax.
eigna, hraða verði úttekt og
tillögum Byggðastofnunar til
að stöðva þá byggðaröskun
sem við blasir og þær tillög-
ur sem samþykktar verða,
verði framkvæmdar án tafar.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
í auknum mæli nýttur til aö
jafna aðstöóumun og sá að-
stöðumunur m.a. jafnaður
með verðlagningu á opinberri
þjónustu.
í ályktun miðstjórnarinnar
er tekið fram að þessum
ábendingum sé ekki ætlað
að vera tæmandi. Orðrétt
segir: „Framsóknarflokkurinn
er reiðubúinn til þess að
ræða allar leiðir til að skaþa
framleiðsluatvinnuvegunum
rekstrargrundvöll og draga úr
viðskiptahalla og byggða-
röskun. Hins vegar er það
ófrávíkjanleg krafa miðstjórn-
arinnar að slíkt verði gert.“
Fundurinn fól fram-
kvæmdastjórn flokksins að
fylgjast með framvindu mála
og boða miðstjórn til fundar
að nýju svo fljótt sem
ástæða þyki til.
Aukafundur miðstjórnar
Framsóknarflokksins hefur
augljóslega ekki orðið til
þess að ógna stjórnarsam-
starfinu. Fæstar þær ábend-
ingar sem settar eru fram
virðast liklegar til að mæta
andstöðu samstarfsflokk-
anna. Miðstjórn hefur falið
ráðherrum flokksins að
ákveða í samráði við sam-
starfsráðherrana til hvaða að-
geróa skuli griþið gagnvart
stærstu vandamálunum sem
við blasa í efnahagslífinu;
rekstrarvanda samkeppnis-
greinanna og viðskiptahalla.
Engar kröfur eru gerðar um
gengisfellingu enda forðast
ráðherrar nú allar yfirlýsingar
um yfirvofandi gengisbreyt-
ingu þar sem slikt veldur aö
venju spákaupmennsku með
erlendan gjaldeyri.
Einar Melax: „Vatnslitir eru náttúrlega handhægir" A-mynd/Róbert.
Efnahagsráðstefna fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík:
GENGISFELUNG EKKI ALLSHERJARLAUSNIN
Ríkjandi landhúnaðarstefna endurskoðuð og varað við höftum í utanríkisverslun
Fulltrúaráö Alþýöuflokksfé-
laganna i Reykajvík hélt efna-
hagsráðstefnu s.l. sunnudag
undir kjörorðunum landið,
þjóöin, lífskjörin. í áiyktun
ráðstefnunnar er m.a. varað
við áróðri um gengisfellingu
sem allsherjarlausn á aö-
steðjandi vanda í efnahags-
málum, varaö viö hugmynd-
um um höft i utanríkisviö-
skiptum og lögð rik áhersla á
að frumvörp um kaupleiguí-
búðir, virðisaukaskatt, banka
og sparisjóði og bifreiðaeftir-
lit verði samþykkt sem lög
frá Alþingi fyrir þinglok í vor.
Ályktunin hljóðar orðrétt:
Fulltrúaráð Alþýðuflokks-
félaganna í Reykjavík
• Varar við áróöri um gengis-
fellingu sem allsherjar-
lausn á aðsteðjandi vanda í
efnahagsmálum og bendir
á að gengislækkun ein sér
er ávísun á verðbólgu,
kaupmáttarskerðingu og
þyngri greiðslubyrði af lán-
um.
• Minnir á, að nýlega gerðir
kjarasamningar verkalýðs-
félaganna voru undirritaðir
í trausti þess að við verð-
hjöðnunarstefnu yrði stað-
ið af rikisstjórninni.
• Varar við hugmyndum um
höft í utanríkisviðskiptum,
hvort sem þeim er beint
gegn innflutningi eða út-
flutningi og minnir á þörf-
ina fyrir aukiö útflutnings-
frelsi og raunhæfa löggjöf
gegn hringamyndun í við-
skiptalífinu.
• Leggur ríka áherslu á að
frumvörkp um:
a) kaupleiguíbúðir
b) virðisaukaskatt
c) banka og sparisjóði
d) bifreiðaeftirlit
verði samþykkt sem lög frá
Alþingi fyrir þinglok í vor.
• Telur að hraða verði endur-
skoðun banka og sjóöa-
kerfis til að mjnnka kostn-
að af banka- og fjármála-
starfsemi og draga úr þeim
mun sem er á milli innláns-
og útlánsvaxta.
• Leggur ríka áherslu á, að
frumvarp um fullkominn
aðskilnað dómsvalds og
framkvæmdavalds veröi
samþykkt sem lög á þessu
ári.
• Telur nauðsynlegt, aö fram-
hald verði á samanburðar-
athugunum á veröi vöru og
þjónustu og rækilegri
kynningu á niðurstöðum til
þess að bæta markaðs-
stöðu heimilannaog drýgja
kjör þeirra.
• Leggur ríka áherslu á að
áfram verði ötullega unnið
að umbótum í skattkerfinu
og uþþrætingu skattsvika.
• Fagnar skipan nefndar til
þess aö endurskoða fyrir-
komulag verðtryggingar
fjárskuldbindinga og láns-
kjaravísitölu.
• Leggur áherslu á, að hafist
verði handa um endurskoð-
un ríkjandi landbúnaðar-
stefnu og án tafar verði
hafin framkvæmd á einföld-
un milliliða- og sjóöakerfis
landbúnaðarins, endur-
skoöun skipulags á vinnslu-
stöðvum land búnað-
arins og verómyndurnar-
kerfi búvöru.
• Leggur áherslu á, að hlut
landsbyggðarinnar ber að
efla með framkvæmd á til-
lögum um verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga, aukn-
um hlut byggðarlaga lands-
byggðarinnar ( Jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga, með
bættri fjármagnsþjónustu á
landsbyggðinni, með byggi-
ngu kaupleiguíbúða.
• ítrekar stefnumörkun ríkis-
stjórnarinnar i jafnréttis- og
fjölskyldumálum og bendir
á, að endurskipulagning og
raunhæfar umbætur i hús-
næðiskerfinu eru undir-
stööur farsællar fjölskyldu-
stefnu.
• Lýsir yfir eindregnum
stuðningi við þá stefnu
ríkisstjórnarinnar aö efla
fjárhag ríkissjóðs sem
undirstöðu velferðarríkis á
íslandi meö endurbættu
skattkerfi, hertu skatteftir-
liti og endurskipulagningu
ríkisútgjalda með sparnað
og ráðdeild fyriraugum.
• Leggur ríka áherslu á það,
að jafna verður aðstöðu
þjóðfé fagsþegnanna m.a.
með sámræmdu lifeyris-
kerfi fyrir alla landsmenn.
Á íslandi má aldrei skapast
það ástand að segja megi
að íbúarnir skiptist í tvær
þjóðir — aðra sem býr við
auðsæld og hina sem býr
við kröpp kjör. Hér skal búa
ein þjóð í einu landi um
ókomna tíð og það þlýtur
rikistjórn með þátttöku Al-
þýöuflokksins að hafa að
leiðarljósi.