Alþýðublaðið - 26.04.1988, Qupperneq 6
6
Þriðjudagur 26. apríl 1988
SMÁFRÉTTIR
Maraþonbogfimi i fyrsta skipti á
íslandi um næstu helgi.
Maraþon-
bogfimi
í 24 klst.
í fyrsta sinn á íslandi verö-
ur efnt til maraþonbogfimi i 2
daga um mánaðamótin
næstu. íþróttafélag fatlaöra í
Reykjavík og nágrenni stend-
ur aö keppninni sem stendur
yfir dagana 30. apríl og 1. mai
í 24 kist. samtals.
Áheitasöfnun verður í
gangi þennan sólarhring fyrir
bogfimideild íþróttafélagsins.
Iþróttafélag fatlaðra var
stofnað 1974 og í félaginu
eru á sjötta hundraö félaga.
Bæjarstjórn Ólafsvíkur:
Lýsir þungum
áhyggjum
vegna stöðu
landsbyggðar
Alþýðublaðinu hefur borist
ályktun frá bæjarstjórn Ólafs-
víkur þar sem harðlega er
átalið það „misrétti í lífskjör-
um sem ríkisstjórn íslands
og Alþingi lætur viðgangast
á milli landsbyggðarinnar og
Stór-Reykjavíkursvæðisins. I
ályktuninni er vísað til upp-
lýsinga frá Byggðastofnun
þess efnis „að mjög alvar-
lega horfi með þróun byggð-
ar í landinu“.
Síðan segir í ályktuninni:
„Bæjarstjórn lýsir yfir mikl-
um áhyggjum vegna þess
mikla mismunar, sem orðinn
er á lífskjörum í landinu, þar
sem sífelld; tilfærsla á fjár-
munum á sér stað af lands-
byggðinni, til að halda uppi
betri lífskjörum á höfuð-
borgarsvæðinu, sem lýsir sér
í framkvæmdaþenslu og
launaskriði, m.a. vegna rangr-
ar gengisskráningar þess
fjármagns sem sjávarút-
vegurinn aflartil þjóðar-
búsins.
Bæjarstjórnin telur að þó
leiðrétting hafi verið gerö á
húshitunar-töxtum Lands-
virkjunar nú nýlega til lækk-
unar, sé þar hvergi nærri
nógu langt gengið og algjör
jöfnun húshitunarkostnaðar
um landið allt sé skýlaus
krafa.
Bæjarstjórnin vill benda á
þann mikla mismun orku-
kostnaðar í landinu, þar sem
atvinnuvegum landsmanna er
mismunaö á þann hátt, að
álvers- og járnblendiverk-
smiðjur greiða aðeins brot af
þeim raforkukostnaði sem
fiskvinnslu- og öðrum fyrir-
tækjum er gert að greiða.
Bæjarstjórnin mótmælir
harðlega þeim aðgerðum
stjórnvalda, að skerða enn á
ný framlag til Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga til viðbótar við
þá skerðingu, sem átti sér
stað við gerð síðustu
fjárlaga.
Bæjarstjórnin tekur undir
þá kröfu fulltrúaráðs Sam-
bands ísl. sveitarfélaga, að
framlag til Jöfnunarsjóðsins
verði hækkað til leiðréttingar
á þessu ári, vegna erfiðrar
stöðu margra sveitarfélaga,
m.a. vegna skerðingar á fram-
lagi til Jöfnunarsjóðsins og
lögboðinnar lækkunar á
álagningarhlutfalli útsvars á
þessu ári.
Bæjarstjórnin hvetur
stjórnvöld til að hefja nú
þegar markvissar úrbætur
vegna hins ótrygga ástands í
byggða- og atvinnumálum
þjóðarinnar og skorar á sveit-
arstjórnir í dreifbýlinu að
taka höndum saman til varn-
ar hagsmunum byggðanna."
Öryrkjabanda-
lagið ályktar
um iðgjöld
bifrelða-
trygginga
Á stjórnarfundi Öryrkja-
bandalags íslands hinn 22.
f.m. var samþykkt eftirfarandi
ályktun:
Stjórn Öryrkjabandalags
íslands skorar á hæstvirtan
fjármálaráðherra að beita sér
fyrir því að bótaþegar Trygg-
ingastofnunar ríkisins, sem
eiga bifreiðar, verði undan-
þegnir söluskatti af iðgjöld-
um bifreiðatrygginga.
Rökstuðningur:
Með því að leggja sölu-
skatt á iðgjöld bifreiðatrygg-
inga er í raun um tvisköttun
að ræða þar sem tryggingafé-
lögin greiða söluskatt af
þeirri þjónustu er þau kaupa
vegna bifreiðaviðgerða, svo
sem af varahlutum og við-
gerðaþjónustu. Samkvæmt
áreiðanlegum upplýsingum
eru sambærilegir skattar ekki
t
Eiginkona mín og móðir okkar
Guðrún Lilja Kristmannsdóttir
Stórageröi 13
Reykjavík
lést á Borgarspítalanum 24. þessa mánaðar.
Ásgeir P. Ágústsson
María Ásgeirsdóttir og Guðbjörg Efín Ásgeirsdóttir
lagðir á iðgjöld bifreiðatrygg-
inga á öðrum Norðurlöndum.
Margir öryrkjar geta ekki
án bifreiðar verið þar sem
samfélagið kemur að litlu
leyti til móts við þá með al-
menningssamgöngum. Þá
eru iðgjöld bifeiðatrygginga
að viðbættum söluskatti um-
talsverður hluti tekna fjölda
þeirra sem fá bætur frá
Tryggingastofnun ríkisins og
er þeim gert ókleift með
þessu fyrirkomulagi að starf-
rækja eigin bifreið.
Að lokum skal bent á að
iðgjöld auk söluskatts geta
numiö hærri upphæð en
nemur bensíneyðslu á ári,
þar sem margir öryrkjar verða
vegna fötlunar sinnar að hafa
til umráða rúmgóðar bifreið-
ar, en af þeim þarf að greiða
hærri iðgjöld en af smábif-
reiðum.
Iðnlánasjóður
Árið 1987 var Iðnlánasjóði
hagstætt. Tekjuafgangur varð
263,7 milljónir og eigið fé
sjóðsins var 1.501,2 milljónir
um áramót. í árslok var eigin-
fjárhlutfall sjóðsins 28,9% og
hefur það hækkað úr 27,1%.
Vöxtum sjóðsins var breytt
15. ágúst, en þeir voru hækk-
aðir úr 6,5% á ári af inn-
lendum lánum til vélakaupa í
7,5% og af lánum til bygg-
inga úr 6,5% í 8,5%. Báðir
lánaflokkarnir eru háðir láns-
kjaravísitölu. Vextir af lánum
sem bundin eru gengi í SDR
mynt, voru hækkaðir úr 8,0%
i 8,5% á ári.
Skelltu hvorki
skuld á hálku
eða myrkur.
Það ert ptí sem
situr við stýrið.
ilær"0*" HK}
TILKYNNING
FRÁ VERZLUNARMANNA-
FÉLAGI REYKJAVÍKUR
Þeir sem mega vinria í verkfalli V.R. í
apríl 1988.
Einkafyrirtæki
Þeirsem megavinnaeru: Eigandi, maki og börn sem
eru undir 16 ára aldri, þó má maki ekki vinna ef hann
hefursannanlegaekki framfærslu af fyrirtækinu, t.d.
ef eiginkona rekur verslun, en eiginmaöur er í fullu
starfi annarsstaðar eöa vinnuveitandi.
Starfsmenn á skrifstofum:
Þeir sem mega vinna eru: Framkvæmdastjórar,
starfsmannastjórar og skrifstofustjórar, ef þeir eru
ekki félagsmenn í V.R.
Sameignarfélög:
í sameignarfélögum gildasömu reglurog í einkafyrirtækj-
um, en eigendur geta verið fleiri.
Hlutafélög:
Hluthöfum er óheimilt aö vinna í verkfalli, nema arð-
greiðslur til þeirra nemi hærri upphæð en launagreiðslur
frá hlutafélaginu til þeirra.
Verslunarstjórar:
Verslunarstjórum í stærstu verslunum er heimilt að
framkvæma eftirlit og/eöa gæslu, að fenginni undanþágu
frá verkfallsstjórn.
STOKKHÓLMUR
-fyrirþig- 1^*' '