Alþýðublaðið - 01.07.1988, Qupperneq 5
Föstudagur 1. júlí 1988
5
Vestfart systurskip Miðvings við
bryggju i Færeyjum.
Floti Fœreyinga
SÍFELLD ENDURNÝJUN
Þaö er mikið rætt um að
íslendingar fjárfesti mikið í
nýjum fiskiskipum, en ef litið
er á nýsmíðar fiskiskipa í ná-
grannalöndunum er þvi alls
ekki til að fara. Færeyingar
halda sifellt áfram að endur-
nýja fiskiskipaflota sinn og
gildir einu hvort um er að
ræða togara eða linubáta.
Fyrir nokkru lauk skipa-
smióastöðin i Vági i Fær-
eyjum vió smiöi á 40.6 metra
löngum linuveiðara, sem
nefnist „Midvingur" og er
eigandi bátsins Vörduklettur
i Miðvogi.
Miðvingur er tveggja þil-
fara bátur og er sagður 380
rúmlestir. Aðalvélin er af
Deutz gerð og er tengd Volda
skrúfbúnaði. Rými er fyrir 21
manna áhöfn á Miðvingi, en
gert er ráö fyrir að aflinn
verði nýttur sem mest um
borö.
Þess má geta að Miðving-
ur er systurskip Vestfart, sem
Vága skipasmiðja lauk við
smíði á síðasta ári.
Helgu
hleypt af
stokk-
unum
Um siðustu helgi var
hleypt af stokkunum i Noregi
nýju fiskiskipi fyrir íslend-
inga. Er það nýja Helgan og
er skipið væntanlegt til
landsins í september.
Eigandi Helgu er Ingi-
mundur hf. i Reykjavík. Helga
er samskonar skip og Pétur
Jónsson og Hákon, nema
hvað Helga er nokkru styttri.
Helga mun halda til loðnu-
veiða við heimkonuna, en
skipinu hefur þegar verið
tryggður 36 til 38 þúsund
tonna kvóti miðað við að
heimilað verði að veiða í mill-
jón tonn af loðnu á komandi
loðnuvertið. Ekkert annað
loðnuskip mun hafa jafn stór-
an loðnukvóta og nýja Helga.
Myndin sýnir Fugltúgvuna á sigl-
ingu.
FUGL-
TÚGVAN
Greiðslur almennings
fyrir læknishjálp og lyf
(skv. reglugerð útg. 22. júní 1988)
1. Greiðslur hjá heimilislÆkni og heilsugæslulækni
165 kr. — Fyrir viðtal á stofu læknis. Innifalin er ritun lyfseðils.
300 kr. — Fyrir vitjun læknis til sjúklings.
Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir, og má læknir ekki krefja sjúkling. um viðbótargjald, nema
vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér.
2. Greiöslur fyrir serfræðilæknishjálp, rannsoknir
og röntgengreiningu
550 kr. — Fyrir hverja komu til sérfræðings.
185 kr. — Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrstu 1 2 skiptin hjá sérfræðingi á hverju almanaksári, síðan ekkert.
(Sjá nánar hér að neðan).
Aldrei má krefja sjúkling um nema eina greiðslu fyrir hverja komu ásamt rannsókn/röntgengreiningu í fram-
haldi af henni. Til nánari skýringar er eftirfarandi tafla:
Skýringar: Taflan lesist frá vinstri
til hægri og sýnir samskipti við
a.m.k. tvo lækna. Dæmi 4: Sjúkl-
ingur leitar til heimilislæknis og
greiðir þar 165 kr. Heimilislæknir
vísar síðan sjúklingi til sérfræð-
ings, og þar greiðir sjúklingur 550
kr. Þessi sérfræðingur sendir
sjúkling í röntgengreiningu, og
þarf sjúklingur ekki að greiða
sérstaklega fyrir hana, þar sem
hún er í beinu framhaldi af komu
til sérfræðings.
Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir, og má læknir ekki krefja sjúkling um viðbótargjald, nema
vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér.
Allir eiga að fá kvittanir fyrir greiðslum sínum hjá sérfræðingum.
Elli- og örorkulífeyrisþegar, sem leggja fram hjá sjúkrasamlagi sínu kvittun fyrir 1 2 greiðslum á sérfræði-
læknishjálp á sama ári, fá skírteini, sem veitir þeim rétt á þessari þjónustu ókeypis það sem eftir er ársins.
3. Greiðslur fyrir lyí
440 kr. — Fyrir lyf greidd af sjúkrasamlagi.
140 kr. — Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrir lyf greidd af sjúkrasamlagi.
Greiðslur almennings fyrir sérfræðilæknishjálp, nokkur dæmi.
TAFLA
Við segjum frá færeyskum
línuveiðara á öðrum stað hér
á siðunni og hér er sagt frá
öðrum línuveiðara, sem Fær-
eyingar hafa fengið, nefnist
hann „Fugltúgvan“ og er
gerður út frá Eidi.
Fugltúgvan er 27.45 metrar
að lengd og er smíðaður hjá
Strandby Skibsværft í Dan-
mörku. Báturinn er 164 rúm-
lestir, búinn Callesen aðalvél,
sem er 575 hestöfl og er
ganghraðinn 11 sjómílur.
I Fugltúgvunni er rými fyrir
16 manna áhöfn. Flest sigl-
inga- og fiskileitartæki eru af
Furuno gerö.
Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfjaskammt, eða brot úr honum.
Gegn framvísun sérstaks lyfjaskírteinis T lyfjabúð fást ákveðinn lyf,
við tilteknum langvarandi sjúkdómum, ókeypis.
Læknar gefa vottorð til sjúkrasamlags í þeim tilvikum,
sem réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi.
Greiðslur þessar gilda frá og með 1. júlí 1988.
PJ| TRYGGINGASTOFNUN
Ml RÍKISINS