Alþýðublaðið - 01.07.1988, Qupperneq 8
fimiiiiíifiiii)
Föstudagur 1. júlí 1988
Fleiri kærur eru væntanlegar vegna fyrirhugaðs ráðhúss.
Ráöhúsiö viö Tjörnina
#
STRIDINU
EKK LOK D
Kærum vegna ráðhússins
er ekki lokið þrátt fyrir að
félagsmálaráðherra hafi stad-
fest byggingarleyfi þess. Ingi
Gunnar Jóhannsson einn
þeirra sem kærðu byggingar-
leyfið segir aö framhald verði
á málinu, stríðinu sé ekki lok-
iö. Hann segist harma niður-
stöðu ráðherra sem hann
teiur ranga, og ráðherra hafi
brugðist skyldu sinni sem
æðsta yfirvald skipulags-
mála. Bilageymsluhús sem
stungið hefur verið upp á sé
aðeins hugmynd, og því ekki
hægt að heimila byggingu
ráðhússins á þeim forsend-
um. Svo virðist sem hægt sé
að byggja heila hæð ofan á
hús án þess að vera í sam-
ræmi við skipulag.
„Að sjálfsögðu hörmum
við þessa afgreiðslu, að ráð-
herra skuli ekki hafa tekið í
taumána, þar sem öll vopn
voru í hennar hendi, heldur
kastar hún þein yfir til Davíðs
og hann byrjar á því að slá
hana utan undir i fjölmiðl-
um“, segir Ingi Gunnar í sam-
tali við Alþýðublaðið. Segir
hann mat þeirra sem að kær-
unni stóðu, vera það að ráð-
herra komist að rangri niður-
stöðu, endavíti hún borgaryf-
irvöld fyrir að fara ekki í einu
og öllu að lögum og reglu-
gerðum. ,,Ef það er ekki
ástæða til að nema úr gildi
byggingarleyfi, þá veit ég
ekki hvað lögin eru að tala
um það yfirhöfuð. Ég hallast
helst að þvi að þetta hafi
verið prentvilla hjá henni, það
hafi átt að nema það úr
gildi."
Benti Ingi Gunnar á, að
mánuður sé eftir af kæru-
fresti og víst sé að framhald
verði á þessu máli, en ekki
sé Ijóst í dag hvert það verði.
„Okkur þykír ráðherra hafa
brugðist skyldu sinni sem
æðsta yfirvald skipulags-
mála. Einni orrustu er lokið,
en ekki stríðinu."
Hann segir að það sé eins
og félagsmálaráðherra noti
þá hugmynd sem stungið
hefur verið upp á varðandi
bílageymsluhús, sem for-
sendur fyrir því að haldið
verði áfram með byggingu
ráðhúss. „Það er ekki hægt
að gefa grænt Ijós á áfram-
hald á forsendum sem ekki
er búið að samþykkja og
hefur ekki fengið neina með-
ferð í borgarkerfinu. Það á
fyrst að huga að þeim vanda-
málum sem bygging mun
hafa í för með sér, og ef að
lausnir fást ekki á þeim
vandamálum, á ekki að
byggja húsið. Það er ósköp
einfalt."
Ingi Gunnar segir að svo
virðist sem menn geti hagað
seglum eftirvindi í þessu
landi. „Ef menn eru nógu
frekir komast þeir upp meö
hvað sem er gagnvart lögum
virðist vera. Að Jóhanna
nemurekki byggingarleyfið
úr gildi á þeim forsendum
sem eru í þessari kæru þýðir
það, að hér með er lögð
blessun yfir það að hús
stækki og bólgni út um 28%
að rúmmáli án þess að það
skipti neinu máli, og hús
hækki um eina hæö án þess
að þaö skipti neinu máli, það
er sú ályktun sem maður
dregur af þessu. Þannig að
nú getur hver og einn að því
er virðist, byggt heila hæð
ofan á hjá sér, án þess aö
þurfa að vera í samræmi við
skipulag," segir Ingi Gunnar
Jóhannsson.