Alþýðublaðið - 16.07.1988, Side 3

Alþýðublaðið - 16.07.1988, Side 3
Laugardagur 16. júlí 1988 JT--—r—,—h, I i.J J . ;3 FRÉTTIR Jón Sigurðsson um deiluna um þjóðhagsspá FULL STÓR ORÐ HAFA FALLID Jón Sigurösson viðskipta- ráðherra telur aö of stór orö hafi farið á miili fjármálaráð- herra og Þjóðhagsstofnunar vegna nýútkominnar þjóð- hagsspár. Alvarlegast sé að ríkisfjármál standi ekki eins vel og til hafi staðið, hins vegar hafi Þjóðhagsstofnun hugsanlega gert fullmikið úr því. Hann vildi ekki gera of mikið úr þessu sem deilu- máli. Eins og kunnugt er, hefur Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráöherra gagnrýnt tölur Þjóöhagsstofnunar um stöðu ríkisfjármála í nýbirtri þjóöhagsspá. Jón Sigurðs- son viðskiptaráðherra sagði í samtali við Alþýðublaðið að erfitt væri að meta þróun rík- isfjármála inni á árinu, og fannst sem full stór orð hefðu fallið af báðum aðilum í þessu máli. „Það sem er auðvitað alvarlegt í málinu, er að okk- ur hefur ekki tekist jafn vel og við ætluðum okkur í þró- Jón Sigurðsson: Erfitt að meta þróun rikisfjármála á miðju ári un ríkisfjármála, og ég veit að Jón Baldvin hefur af því áhyggjur. En hitt er svo ann- að mál, að það kann að hafa verið málað of sterkum litum, og ef til vill ekki á réttum rök- um reist í öllum greinum, sem Þjóðhagsstofnun sagði um þetta.“ Viðskiptaráðherra Síé'gði að kjarni málsins væri, ao sínu mati, sameiginlegar áhyggjur fjármálaráðherra og Þjóð- hagsstofnunar af því aö ríkis- fjármálin séu veikari en vera skyldi. „í því felst að minum dómi engin gagnrýni á Jón Baldvin, nema síður sé. Hann hefur unnið það stórvirki við endurskipulagningu tekju- hliðar fjárlaganna, og er að búa sig undir endurbætur í útgjaldahliðinni líka. Ég vil þess vegna ekki gera allt of mikið úr þessu sem deilu- máli,“ sagði Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra. Afturvirk vaxtahækkun á 16 og 24 mánaða innstæður. Engu að síður er Kjörbókin algjörlega óbundin. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Þessier öðruvísi enallir hinir Bónusreikningur gefur þér möguleika sem ekki hafa þekkst áður á óbundnum bankareikningi. Þú f ærð hærri vexti eftir því sem innstæðan vex. Vaxta- þrepin eru 4 talsins: Að 50 þúsundum kr., 50 - 200 þúsund kr., 200 - 500 þúsund kr. og upphæðir yfir 500 þúsund kr. Vextir umfram verðbólgu fyrirhæsta þrepa.m.k. 7%. Þú færð alltaf betri kjörin þegar verðtryggð og óverðtryggð kjör hvers vaxtaþreps eru borin saman á 6 mánaðafresti. Peningarnir eru alltaf lausir hvenær sem þú þarft að grípa til þeirra. Kostnaði við úttekt er haldið í lágmarki, en vexti má taka út kostnaðarlaust. Ellilífeyrisþegar fá vexti 2. þreps strax þó upphæðin sé undir þeim mörkum, sama gildir um hluthafa bankans. Þú færð afslátt hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum með því að framvísa Bónuskorti sem fylgir reikningnum. Auk þess færðu möppu fyrir pappíra reikningsins o.fl. ©iðnaðarbankinn

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.