Alþýðublaðið - 05.08.1988, Qupperneq 3
Föstudagur 5. ágúst 1988
3
FRÉTTIR
Framkvœmdastjórn Landakotsspítala
FJARFRAMLOG ORAUNHÆF
segir Logi Guðbrandsson framkvœmdastjóri Landakotsspítala
Óttar Möller fyrrv. forstjóri, Logi Guðbrandsson framkvæmdastjóri Landakotsspitala og Ólafur Örn Arnarson yfirlæknir spitalans. Framkvæmda-
stjórnin gerði grein fyrir helstu athugasemdum sínum varðandi Landakotsskýrsluna á fréttamannafundi i gær.
Framkvæmdastjórn Landa-
kotsspítala hefur ýmislegt að
athuga við gagnrýni þá sem
ríkisendurskoðandi og Fjár-
laga- og hagsýslustofnun
hafa gert á rekstri sjúkra-
hússins. Orsök rekstrarhalla
spitalans telur stjórnin að sé
fyrst og fremst sú að framlög
á fjárlögum hafi ekki verið í
samræmi við þá starfsemi
sem ætlast hefur verið til af
spítalanum. Þá telur stjórnin
að helstu niðurstöður Fjár-
laga- og hagsýslustofnunar
varðandi skýrslu rikisendur-
skoðanda eigi sér ekki stoð í
veruleikanum. Á það sérstak-
lega við um tölur varðandi
rekstrarhalla spítalans sem
séu mjög villandi og yfirlýs-
ingar um að stjórnendur
breyti áformum sinum ekki í
samræmi við fjárlög. Fullyrð-
ingar um taprekstur á hús-
eignum spitalans segja þeir
rangar, og einnig meintur
halli á rekstri þvottahúss
Landakotsspítala. Þá sé um
rangfærslur að ræða varð-
andi rekstur rannsóknarstofu
spitalans og launatölur til
yfirlæknis hennar. Einnig
hafi starfsemi styrktarsjóðs
Landakotsspítala verið gerð
mjög tortryggileg í fjölmiðl-
um að undanförnu.
Þá gagnrýnir stjórnin einn-
ig að trúnaðarskýrslum
skyldi dreift til fjölmiðla án
þess að hún fengi að koma
athugasemdum sinum á
framfæri.
Framkvæmdastjórn Landa-
kotsspítala sagði á frétta-
mannafundi í gær aö nauö-
synlegt sé að leiörétta
stærstu missagnir varðandi
rekstur spítalans. Helsta or-
sök rekstrarhallans sé fólgin
í því aö spítalinn hafi farið
fram úr í launagreiðslum til
starfsfólks og öörum rekstr-
arkostnaði. Þarna sé einung-
is um yfirvinnu að ræða en
ekki föst laun, og stafi þeSsi
halli af óraunhæfum fjárfram-
lögum ríkisins til spítalans ef
hann á að sinna þeirri starf-
semi sem ætlast er til af
honum. Allar aðrar sjúkra-
stofnanir hafi einnig farið
fram úr fjárlögum í þessum
kostnaðarlið. Þá hafi Landa-
kotsspitali sent heilbrigðis-
ráðherra bréf í mars sl. þar
sem segir að spítalinn standi
frammi fyrir svo miklum fjár-
hagsörðugleikum að Ijóst er
að hann getur ekki haldið
áfram óbreyttum rekstri án
þess að úr veröi bætt. Nauð-
synlegt sé því að hætta
bráðavöktum á lyfjadeild og
handlæknisdeild og taka úr
rekstri tvær legudeildir ef
ekki yrði úr bætt. Heilbrigðis-
ráðherra svaraði því til að
sþítalinn ætti að fresta öllum
samdráttaraðgerðum á þjón-
ustu sinni.
Stjórnin telur kaup á hús-
eignum sem styrktarsjóður
spítalans hefur staðið fyrir á
undanförnum árum og síðan
leigt spítalanum undir starf-
semi séu í alla staði mjög
hagkvæm fyrir reksturinn.
Húseignirnar munu ganga í
eigu ríkisins er hann yfirtekur
rekstur spítalans, og leiga
húsnæðis gengur alveg upp í
kaupverð, en spítalinn hefði
annars þurft að leigja þetta
húsnæöi út í bæ. Varðandi
kaup á Marargötu 2 var hús-
eignin keypt árið 1982 en
Landakotsspítali komst ekki
á fjárlög fyrr en árið 1983.
Kaup hússins voru því í
fyllsta máta lögleg því ekki
þurfti að leita heimilda til
kaupanna. Þá mun leigan af
húsinu standa undir öllu
kaupverði með lánum og
vöxtum af þeim. Hefur spftal-
inn reynt að eignast þau hús
sem standa á lóðum í næsta
nágrenni við hann til að eiga
umráðarétt yfir þeim ef byggt
verður við hann.
Útreikningar Stefáns Ing-
ólfssonar verkfræðings hjá
Eignamati sf. á óhagkvæmni
þvottahúss Landakotssþítala
telur stjórnin að sé byggð á
misskilningi sem auðvelt hafi
verið að leiðrétta ef skýrslan
hefði verið borin undir spítal-
ann áður en hún var gerð
opinber. Segja þeir rekstur-
inn vera hagkvæman hvort
sem miðað sé viö fyrri rekst-
ur eða þvottahús Rikisspítal-
anna.
Varðandi rekstur á rann-
sóknarstofu Landakots-
spítala og launagreiðslur til
yfirlæknis hennar hefur ríkis-
endurskoðandi leiðrétt þann
misskilning sem gætir í túlk-
un Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnunar. Spítalinn greiðir
yfirlækninum aðeins föst
laun en aðrar greiðslur koma
frá Tryggingastofnun ríkisins
samkvæmt samningum, og
af þeim greiðir læknirinn
samtals 74% til spítalans.
Þessar greiðslur standa undir
84% af rekstrarkostnaði
rannsóknarstofunnar og er
þannig mjög hagstæður af
spítalans hálfu. Töluverður
kostnaður dregst síðan frá
því sem læknirinn heldur
eftir og reiknast því ekki sem
laun til hans.
Þá hefur starfsemi styrkt-
arsjóös spítalans verið gerð
tortryggileg. Styrktarsjóður-
inn hefur tekjur sínar af fram-
lögum lækna, gjöfum og sölu
minningarkorta. Sjóðurinn
hefur auk kaupa á fasteign-
um gefið spítalanum rann-
sóknatæki sem ekki hefur
tekist að fá framlög fyrir á
fjárlögum. Framlög á fjárlög-
um til tækjakaupa og stofn-
kostnaðar hafa engan veginn
verið fullnægjandi til að spít-
alinn geti starfrækt viðund-
andi þjónustu. Styrktarsjóð-
urinn var því stofnaður til að
styrkja spítalann á þann hátt
sem fært væri, og hefur spít-
alinn ávallt skuldað sjóónum
fé. Veröi sjóðurinn svo lagður
niður munu eigur hans renna
til spítalans og ríkisins, og
hefur hann því alls ekki verið
neinn baggi á spítalanum.
Framkvæmdastjórn Landa-
kotsspítala vildi þó ekki tjá
sig hver framtíð spítalans
yrði fyrr en hún hefði átt við-
ræður við bæði fjármálaráð-
herraog heilbrigðisráðherra,
þar sem leiðréttar væru
helstu missagnir í skýrslu-
gerð ríkisendurskoðanda.
Reykjavikurborg hefur látið rífa gamla Burfell við Skúlagötu en á þeirri lóð er fyrirhugað að byggt verði griöar-
mikið hús fyrir bílageymslur og stór bygging með þjónustuíbúðum fyrir aldraða að sögn Gunngeirs Péturs-
sonar, skrifstofustjóra Borgarverkfræðings. A-mynd/Róbert.
Vöruskiptin við útlönd jan — apríl
Vaxandi vöruinnflutningur
í aprilmánuði voru fluttar
út vörur fyrir 5.276 millj. kr
og inn fyrir 3.958 millj. kr fob.
Vöruskiptajöfnuðurinn i apríl
var því hagstæður um 1.318
millj. kr en i apríl í fyrra var
hann hagstæður um 2.308
millj. kr á föstu gengi.
Fyrstu fjóra mánuði þessa
árs voru fluttar út vörur fyrir
16.402 millj. kr og inn fyrir
16.779 millj. kr fob. Vöru-
skiptajöfnuöurinn var á þess-
um tíma því óhagstæður um
377 millj. kr en á sama tíma í
fyrra var hann hagstæður um
948 millj. kr á sama gengi.
Fyrstu fjóra mánuöi þessa
árs var verðmæti vöruútflutn-
ings 2% meira á föstu gengi
en á sama tíma í fyrra. Sjávar-
afurðir voru um 74% alls út-
flutnings og voru um 2%
minni að verðmæti en á
sama tíma í fyrra. Útflutning-
ur á áli var 16% meiri, og út-
flutningur kísiljárns 9%
minni en á sama tíma í fyrra.
Útflutningsverömæti annarr-
ar vöru var 21% meira fyrstu
fjóra mánuði þessa árs en á
sama tíma í fyrra reiknað á
föstu gengi.
Verðmæti vöruinnflutn-
ingsins fyrstu fjóra mánuði
ársins var 11% meira en á
sama tíma í fyrra. Innflutn-
ingur til álverksmiðjunnar var
nokkru meiri en í fyrra og
sama máli gegnir um olíuinn-
flutning sem kemur á skýrsl-
ur fyrstu fjóra mánuöi ársins.
Innflutningur skipa var einnig
, miklum mun meiri en I fyrra..
Innflutningur til stóriðju og
olíuinnflutningur ásamt inn-
flutningi skipa og flugvéla er
jafnan breytilegur frá einu
tfmabili til annars. Séu þessir
liðir frátaldir reynist annar
innflutningur (85% af heild-
inni) hafa orðið um 8% meiri
en í fyrra, reiknað á föstu
gengi.