Tíminn - 02.11.1967, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 2. nóvember 1967
Útgefandi: FRAMSOKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriöi
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tómas Kaxlsson Aug-
lýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Ritstj.skrifstofur i Eddu-
húsinu, símar 18300—18305 Skrifsofur: Bankastræti 7. Af-
greiðslusími: 12323. Auglýsingastmi: 19523 Aðrar skrifstofur,
sími 18300. Askriftargjald kr 105.00 á mán. innanlands. — í
lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f.
Öngþveiti í
íbúðalánakerfinu
Það er nú deginum ljósara, að algert öngþveiti ríkir
í íbúðalánakerfinu á vegum Ilúsnæðismálastjórnar. Þar
munu nú liggja fyrir óafgreiddar fleiri umsóknir en
nokkru sinni fyrr, og það sem verra er, miklar brigðir eru
þegar orðnar á afgreiðslu lána, sem hefur verið
lofað, og hljóta á næstunni að verða enn meiri, og mikið
vantar á, að ákveðið og lögbundið hámark lána hafi
enn náðst.
Það er ekki annað fyrirs.iaanlegt, en margir íbúða-
byggjendur, sem hafizt hafa handa með lánsloforð Hús-
næðismálastjórnar í hendi, verðí- nú að hætta í miðjum
klíðum og hálfbyggð húsin að fara undir hamarinn vegna
þess að lánsloforð, sem treyst var á, að efnt yrði í haust,
hefur alveg brugðizt.
í ræðu sem Einar Ágústsson flutti á Alþingi í fyrra-
dag komu fram athyglisverðar upplýsingar um stöðu
þessara mála: Tölur um fjölda fyrirliggjandi umsókna
hafa ekki verið birtar síðan 15. marz í vor, en þá voru
þeir taldir 800, sem sótt höfðu um en ekkert loforð
fengu, og íá ekki á þessu án, en 600 umsækjendum
var þá lofað lánum til útborgunar eftir 1. maí 1968. Láns
umsóknir, sem síðan hafa bætzt við nema vafalaust mörg-
nm hundruðum- Engar líkur eru til, að þeir menn fái
lán fyrr en svo sem 1970. Þetta er myndin.
Jafnframt þessu er upplýst, að mikið fjármagn úr
hinu almenna íbúðalánakerfi hefur farið í byggingaáætl-
unina í Breiðholti, þótt ríkisstjórnin héti þvi í júnísam-
komulaginu fræga að útvega £e til hennar annars staðar.
Gert er ráð fyrir, að fyrsti áfangi byggingaáætlunarimn-
ar kosti allt að 225 millj. kr. og um 90% þess verði að
koma úr sjóði Húsnæðismálastiórnar en jafnframt vex
hlaði þeirra umsókna einstaKiinga. sem ekki fá lán.
Þá var það og harla athyglisvert, að félagsmálaráð-
herra upplýsti, að líkur bentu t.il. að lækkun bygginga-
kostnaðar yrði ekki sá af áætiunmni sem menn hefðu
gert sér vonir um. ,
Eflum og styðjum Sam-
vmnubyggingafélögin
Frumvarp það, sem þeir flytja a Alþingi Einar Ágústs
son og Ólafur Jóhannesson 'im stuðning við bygginga-
samvinnufélög, er hið athyglisverðasta Eitt hið brýn-
asta í húsbyggingamálum nú er að reyna að lækka bygg-
ingakostnaðinn. Komið hefur i i.iós með órækum dæmum,
að byggingasamvinnufélög komast lengst í þeirri lækk-
un, þar sem vel er að unnið. Auk þess er sá háttur á
íbúðabyggingum að ýmsu öðru leyti hagkvæmastur og
líklegastur til sannvirðis Lítill vafi er á því, að einhver
bezta hjálp, sem unnt er að veita efnalitlum íbúðabyggj-
endum er að veita byggingasamvmnufélögunum eðlileg-
an opinberan stuðning og fyrirgreiðslu.
Frumvarpið gerir ráð fvrir. að byggingasamvinnu-
félög hafi forgangsrétt um úthlulun lóða, og að Seðla-
bankinn kaupi árlega ríkistryggð skuldabréf þeirra fyrir
a.m k. 75 millj. kr. Með þessu mót: mundu félögin, sem
nú hefur mjög verið kreppt að hin síðustu ár, fá nokkurt
ráðrúm til þess að veita félagsmónnum 'sínum þá þjón-
ustu, sem starfsreglur þeirra gera ráð fyrir. Og fátt
mundi stuðla eins mikið að lækkun byggingakostnaðar-
^ TÍMINN
HENRY BRANDON:
Hernaðarsigur vinnst aldrei
Hægja þarf gang styrjaldarinnar, en brotthvarf kemur ekki til greina
ÞEGAR ég lít til baka yfir
allt, sem ég hefi séð og heyrt
á þessum erilsömu þremur vik
um, sem ég hefi dvalizt hér,
hygg ég að hœst beri regin-
muninn á „tímamim", sem til
þarf að áliti hersins, og bið-
lundarskorti bandaríska al-
menningsálitsins. Takist ekki
að samræma þetta tvennt bet-
ur, — eða að endurskoða hern
aðarstefnuna I ljósi hugar-
ástands Bandaríkjamanna
heima fyrir, yfirleitt, — eru
litlar horfur á að farsællega
geti farið, hversu torvelt sem
reynast kann að kyngja þessu
frá sjónarmiði hersins séð.
Bandairíkjamenn eru í fjötr
um sinnar fyrri bjartsýni.
Þetta hefir ekki aðeins skert
verulega trúanleikann heima
fyrir, heldur sennilega einnig
í Hanoi.
Næst þessum mismun, sem
ég drap á, ber í vitund minni
þá áunnu trú, að Bandaríkja-
menn hafi nú í fullu tré við
hernaðarástandið með þeim
afla, sem þegar er að mörkum
lagður. Her þeirra verður ekki
hrakinn úr stöðvum sínum og
Norður-Vietnamar geta heldur
' ekki greitt honum rothögg á
borð við atburðinn, sem forð-
um gerðist í Dien Bien Phu.
JAFNFRAMT hlýt ég þó að
lýsa þvi áliti mínu, að heirnað
arlausn í þessari styrjöld sé
ófhugsandi. Bitur sannleikur
felst í orðatiltækinu um tígris
dýrið sem ekki getur veitt mý-
fluguna. Það verður ekki gert
með öðru en flugnaveiðara,
sem búinn er til heima I Viet
nam.
Bandaríkjamenn hafa allt of
lengi leyft Suður-Vietnömum
að reikna með þvi, að þeir
beri þá fram til sigurs á sín
um breiðu og sterku herðum.
Þetta hefir meira að segja
gengið svo langt, að sú trú er
orðin til, að þetta sé banda-
rísk styrjöld en ekki styrjöld
Vietnama.
Bunker hershöfðingi hefir
veirið að reyna að kveða þessa
trú niður, en andstöðu gegn
hervæðingu gætir enn í rík
um mæli í Suður-Vietnam. að
því er Thieu forseti sagði mér.
ÉG er ekki þeirrar skoðun
ar, eins og sumir embættis-
menn Bandaríkjamanna, að
dreifa beri hermönnuon Suður-
Vieinam innan um Bandaríkja-
menn til að gera þá að betri her
mönnum. Þessi hugmynd var
' fyrir skömmu borin fram í
bandarísku tímariti, og olli
ásökunum um nýlendustefnu,
bæði í blöðum í Suður-Vietnam
og hjá stúdentunum.
Blöðin og stúdentarnir voru
greinilega sama sinnis og
bandaríski hershöfðinginn, sem
lét sér um munn fara þegar
hann heyrði þetta:
„Djöfullinn sjálfur, þetta
þýddi, að við gætum aldrei
komizt héðan á burt.“
Ég beld, að tíminn hafi sjálf
ur hafið endurskoðun á stefnu
Bandaríkjamanna bæði i her-
málunum og stjórnmólunum.
Hvað hið fyrra áhrærir virð-
ist æ fleira benda til, að óvin
urinn kunni að vera í þann
Johnson
veginn að breyta yfir í annað
stigið, eða sbæruhernaðinn,
þar sem hann hefir orðið fyrir
gífurlegu tjóni í átökum fjöl-
mennra hersveita.
ALLVÍÐA heyrði ég bæði
sveitir Bandaríkjamanna og
Ástralíumanna barma sér yfir
því, að framkvæmd skipunar-
innar „leitið og eyðið“ leiði
ekki framar til neins teljandi
árangurs. í öllum öðrum styrj
öldum en þessari væri þetta
glöggt merki um, að verulega
hefði á unnizt. En í þessari
’ styrjöld er öðru máli að gegna
eins og einn stúdentinn í
Vietnam komst að orði við
mig:
,yÞú kannt að komast fram úr
mér í bílnum þínum þar sem
vegurinn er góður, en þegar
út af bregður getur eins vel
farið svo, að ég fari fram úr
þér á mótonhjólinu mínu“.
Vandinn, sem stafar af
mannasendingum suður á bóg
inn, er ekki framar hinn sami
og áður var. Áður var gert ráð
fyrir 7000 mönnum á mónuði
en nú er sú áætlun komin nið-
ur í 3500, og er þó ekki talin
örugg vissa um nema sem svar
ar 2000. Hitt eru hreinar ágizk
anir.
ÞEGAR gætt er alls þess,
sem ég hefi vikið að hér að
Síðari grein
framan, ætti að mega hægja
á gangi styrjaldarinnar alls
staðar annars staðar en á vopn
lausa svæðinu, en þar heldur
her Norður-Vietnam áfram að
fylgja velgengi sinni fast eftir.
Ef hægt væri á gangi styrjald
arinnar kostaði hún minna en
áður, bæði í mannslífum og
fjármunum.
Þetta kynni að draga úr and
spyrnu almenningsálitsins í
Bandaríkjunum. Mjög þarf á
jafnvægi og staðfestu að halda,
einkum þó ef til kæmu tog-
andi og lamandi og langvinnar
samningaumleitanir við Hanoi-
menn. Reynist svo samningaum
leitanirnar árangurslausar ríð-
ur ef til vill enn meira á jafn
vægi og staðfestu.
Hvað snertir stefnuna í
stjórnmálunum yrði efalaust til
CL
góðs að Bandaríkjamenn
ákvæðu og skýrðu að nýju tak
markað stjórnmálamarkmið
sitt í Vietnam. Margt hefir á
dagana drifið síðan að yfir-
lýsingin í Manilla var birt. Við
leitni Bandaríkjamanna hér á I
í vök að verjast. En hún hefir
einnig vakið minnimáttar-
kennd hjá Suður-Vietnömum
og hneigt þá æ meira til þeirr
ar afstöðu , að „láta Bandaríkja
mennina um þetta“ Þeir líta
ekki framar á styrjöldina sem
sína eigin styrjöld, heldur
styrjöld Bandaríkjamanna.
FRAMKVÆMD friðunaráætl
unarinnar er einnig alveg vand
ræðalega fráleit á stundum. í
einu mannfæsta héraðinu til
dæmis hefir héraðsráðgjafinn
bandaríski sér við hlið 120 að-
stoðarráðgjafa frá Bandaríkjun
um, sérhæfða í hinum ýmsu
greinum. Lögmál Parkinssons
hefir sannazt þarna á yfirþyrm
andi hátt og allt er gert í
hinum bezta tilgangi, en árang
urinn verður útundan.
Væri úr styrjöldinni dregið
í stað þess að auka umsviíf
hennar tryðu menn betur tak-
mörkuðum markmiðum Banda
ríkjamanna og staðföstum vilja
þeirra til að heyja hana til
enda, hversu langvinn sem hún
kann að verða. Þetta er auð-
vitað hægara sagt en gert, eink
um þó vegna þess, að sumir
Bandaríkjamenn halda, að sig
urinn beri undan vegna þess
eins, að Johnson forseti standi
gegn aukningu styrjaldarátaks
ins.
En meginkjarni vandans,
sem forsetinn á við að glíma,
felst einmitt í því, að láta
bandarísku hernaðarstefnuna
endurspegla horfurnar á því,
að baráttan verði mjög svo
langvinn en ekki skammvinn.
BROTTHVARF Bandaríkja-
manna hefði hræðilegar sálræn
ar afleiðingar í för með sér
hvarvetna um Asíu, og ósenni
legt er, að útfærsla styrjaldar
innar knýi óvininn til samn-
inga. Hæggeng styrjöld kynni
hins vegar að líðast betur með
al bandarísks almennings, gæti
haft sín áhrif í Hanoi og kynni
með tímanum að auka horfur
á samningum, jafnvel þó að
þessar horfur séu síður en svo
góðar eins nú standa sakir.
Valdamenn í Was'hington
kynnu að hafa hug á að gefa
nýju ríkisstjórninni í Saigon
þriggja tii sex mánaða tima til
að búa um sig og treysta sín
bönd, og Hanoimenn virðist
vilja bíða og sjá, hverju fram
vindur í kosningabaráttunni í
Bandaríkjunum. * Talsmenn
Norður-Vietnama hafa látið svo
um mælt, að þegar þaráttan
fari að verða verulega „tvfsýn"
hefjist það tímabil, þegar sam
tímis sé barizt og reynt að
semja.
Mestu erfiðleikarnir í þess
ari styrjöld eru í því fólgnir,
að hvorugur aðilinn veit, hvað
framundan er. En það er
gamalt sannmæli, að mjög
óráðnar horfur leiði venjulega
til friðarsamninga, sem endist
lengiur en aðrir slíkir samn- |
ingar. 1
.aaaaa