Tíminn - 30.11.1967, Blaðsíða 7
FBCMETimAGUR 30. nóvember 1067.
TÍMINN
Kynþátta-
vandamálin
í Englandi
æ örðugri
viðfangs
Kynþáttavandamálin á leiksvlði. Dæminu snúið við á I eiksviðinu. Þar eru lögreglumennirnir þeldökkir og
Þeita kylfunum óspart gegn hvíta manninum. Leikritið var sýnt í London.
— Kannski sýður upp úr hér
Mka einn góðan veðurdag, hver
veit?
Þessu hafa margir Bretar velt
fjrrir sér að undanförnu, meðan
allra augu hafa beinzt að kyniþátta
óeirðunum viða í Bandaríkjun-
um. Sumir fullyrða jafnvei. að
áetandið sé svo slæmt, að ekki
verði langt - að bíða, unz hol-
skeflan ríður yfir. Hvort sem til
tíðinda mun draga eða ekki, bend-
ir margt til þess að kynþáttavanda
málin í Bretlandi verði æ ugg-
vænlegri. Bilið milli hvítra manna
og litaðra verður stöðugt breið
ara, og víða hefur myndazt vísir
að hreyfingum litaðra manna sem
sporna vilja gegn þessari þróun,
og kunna ef til vill áður en langt
um líður að grípa til einhverra
aðgerða í mótmælaskyni.
Nú í haust varð dálítið atvik til
þess að vekja mjög mikla athygli
um gjörvallt Bretland. Smáatvik.
að visu, en sýnir glöggt, hvert
stefnir. Hjón nokkur frá Vestur-
Indíum með fjögur börn á fram-
færi, prýðisfjölskylda í alla staði,
hafði mikinn hug á að kaupa !ag-
legt einbýlishús í einu af út-
hverfum Lundúna. Það var aðeins
eftir að undirrita kaupsamninginn,
þá skeði dálítið, sem gerði strik
í reikninginn. Nokkrir húseigend
ur í grenndinni tóku sig saman,
buðu miklu hærra verð fyrir
umrætt hús og keyptu það í sam-
einingu. Þeir sögðust á engan
hátt vera andvígir lituðu fólki,
en ef ein slík fjölskylda flytt.ist
rnn í hverfið, myndu þeirra eigin
hús falla í verði, og þá væri ekki
ólíklegt, að hverfið fylltist af
fólki af ýmsum kynþáttum. Einnig
sögðu þeir, að það mundi sjálf
sagt henta fjölskyldunni betur, að
búa í hverfi með sinum líkum.
Talið er, að um 800 þúsund lit-
aðra manna frá ýmsum löndum
brezka samveldisins búi nú á
Bretlandi. Fyrir fimm árum voru
gerðar ráðstafanir til að stemma
stigu við þessum geysilega inn-
flutningi, en ekki hefur enn tek-
izt að gera hinum aðfluttu viðun-
»ndi úrlausn, og leysa þau þjóð-
félagslegu vandamál, sem orðið
hafa þessum innflutningi samfara.
Flestir hinna aðfluttu búa i stór
borgunum á Suður- og Mið-Eng-
landi. í London er urmúll af
þeim, einkum fólki frá Vestur-
Indíum, Indlandi og Pakistan.
hverfi og halda hópinn, nýir inn-
flytjendur slást í hóp með löndum
sínum, sem fyrir eru. Þeir búa
oftast í skuggahverfunum, og lifa
við þröngan kost. Að jafnaði búa
5—6 manns í einu herbergi í
gömlum fjölbýlislhúsum og meðal
þeirra ríkir nokkurs konar bræðra
lag, þótt stundum slettist upp á
vinskapinn og óeirðir og handa-
lögmál séu tíð. í flestu tilliti
stendur fólk þetta á fremur lágu
stigi. Það er sóðalegt og sinnu-
laust, það á erfitt með að fá sóma
samlega vinnu, og ýmis þjóðfélags
leg mein blómstra og dafna meðal
þeirra. Sjúkdómar herja á börn
sem full-orðna í hverfum þeirra er
barnadauði miklu meiri en í öðr
um borgarhlutum, glæpahneigð er
mikill og þannig mætti lengi
telja. í Lundúnarhverfinu Nott-
ing Hill, er aðskilnaður kynþátt-
anna mjög áberandi. Sumar knæp
urnar eru eingöngu sóttar af hvít
um mönnum, aðrar af lituðum,
samneyti kynlþáltanna er alls ekki
bannað, en það mælist illa fyrir,
ef reynt er að brjóta niður þann
múr, sem hvítir og svartir hafa
komið upp sín á milli.
Brezka útlendingaeftirlitið hafði
í sumar í haldi Pakistana nokkurn
sem kom með skipi í enska höfn
Hann hélt því fram, að hann hefði
undanfarin 12 ár búið ( Englandi.
en eftirlitsmennirnir trúðu honum
ekki, þar eð hann <unni varla
stakt orð í ensku. Við nánari eftir
grennsian kom þó í Ijós. að mað-
urinn hafði rétt fyrir sér. Þetta
gefur góða mvnd nf ásf-'vlinu.
Fjölmargir innflvtj ^nrlur blánda
á engan hátt geði við Englendinga
þurfa þes-s varla með. Þeir byggja
ríki í ríkinu, halda hópinn bæði
á vinnustað og í tómstundum sin-
um, hinir hvítu sækja heldur ekki
eftir félagsskap þeirra, en reyna
eftir megni að sneiða hjá þeim.
— Þeim er hollast, að halda sig
5 sínum líkum, segja þeir.
Brezkir ráðamenn hafa yfirleitt
verið þeirrar skoðunar, að þegar
fram líði stundir, muni allt falla
í ljúfa löð milli hvítra manna og
litaðra. Þeir hafa lýst jyví yfir, að
lagabókstafur geti litlu breýtt um
afstöðu kynþáttanna, heldiir' verði
björninn unninn smát og smátt,
þegar hvítir og litaðir taki að
venjast nábýlinu. Eiginlegar kyn-
þáttaóeirðir h-afr. ekki orðið í
Bretiandi hátt á annan áratug, eh
víðtækar rannsóknir sýna fram á,
að aðskilnaður kynþáttanna hefur
aukizt fremur et- minnkað.
Fyrir skömmu voru gerðar skoð
anakannanir um afstöðu hvítra
BÆNDUR
manna til litaðra. Einkum var
spurt um, h-vorr þeir væru Itivnnt
ir því, að hvítir menn og litaðir
byggju í sölnu hverfum, og störf
uðu saman. Yfiignæfandi meiri-
hluti þeirra sem leitað vav til,
svaraði þes-su neitandi.
Þá voru athugaðir möguleikar
litaðra manna í vinnumarkaðnum.
Fcngnir voru rí- menn með ná-
lcvæmlega sömu menntun og starfs
reynslu, og voru þeir látnir sækja
um atvinnu hja 50 fynrræ'cjúm.
Einn þeirra var Englendingur, an.n
ar Ungverji, rem búið hafði í
Bretlandi um langt skeið, og sá
þriðji var innflytjandi frá Vestur-
Indiíum. 30 fyrirtæki vildu ráða
Englendinginn, Ungverjinn kom
til greina á 17 stöðum, en Vestur-
Indíumaðurinn gat aðeins fengið
ráðningu hjá þremur fyrirtækjum.
Litaðir menn voru látnb sækia
um biíreiðatryggingar á 20 stöð-
um. Aðeins þrjú try 1 ‘ingarfélög
settu þeim enga skilmála, en á 17
stöðum urðu þeir að hlíta hinum
og þe-s-sum kvöðum, greiða hærra
iðgjald, o. fl. og sum félögin neit
uðu algjörlega að tryggja bifreið
ir þeirra. Svipað kom í ljós, þeg
ar um var að ræða bílalei-gu.
Um-sækjendurnir voru oft beðn
ir afsökunar. þegar þeir fengu
syn.,un. Yfirleitt fengu þeir að
heyra sömu ræðuna. — Ég hef
ekkert á móti lituðu fólki, en
— grannarnir mundu mótmæla,
Seðnð saithungur búfi'árins
og látið allar skepnur hafa
frjálsan aðgeng að K N Z
saltsteir, allt árið.
K N Z saltsteinninn inni-
n» dur ýmis snefilefni t.d
magnesium. kopar. mang-
an kabolt og joð.
(gntineníal
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, með okkar full-
komnu sjálfvirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó ög
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eftir óhöppum, en setjið
C0NTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nagla, .undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.