Tíminn - 30.11.1967, Qupperneq 12
12
ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 30. nóvember 19G7.
Landsliðsnefndiii í handknattleik varpar stóru sprengjunni:
Gunnlaugur Hjálmarsson
ekki meðal 11 beztu!
Landsl. að mörgu leyti skynsamlega byggt upp, en fráleitt að halda Gunnl. frá því
Alf - Rvík. — Landsliðið í hand
knattleik var tilkynnt í gær. Og
mesta athygli í sambandi við valið
vekur, að Gunnlaugur Hjálmars
son, fyrirliði landsíiðsins í undan
förnum leikjum, er ekki valinn.
Með öðrum orðum, landsliðsnefnd
hefur komizt að þeirri niður-
stöðu, að hann sé ekki meðal 11
beztu leikmanna okkar.
ísl. landsliðið, sem mæta á Tékk
um á sunnudaginin, verður þanniá
skipað: Markverðir Þorsteinn
Björnsson, Fram og Logi Kristj
ánsson, Haukum. Langskyttur: Örn
Halls'beinsson, FH, Geir Hallsteins
Real Madrid
vann 4:1
Real Madrid sigraði danska lið
ið Hvidovre í síðari leik liðanna 1
Evrópubikarkeppninnar, sem háð
ur var í Madrid í gær, 4:1. Og þar
með er Real Madrid komið í 3.
umferð. Fyrri leik liðanna lauk
með jafntefli 2:2.
son, FH, Ingólfur Óskarsson, Fram
fyrirliði, Guðjón Jónsson, Fram
og Einar Magnússon, Víking. Línu
menn: Sigurður Einarsson, Fram
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram
Stefán Sandholt, Val og Hermann
Gumnarsson, Val.
Að því undanskildu, að Gunn-
laugi skuli vera haldið fyrir utan
liðið, sem er í einu orði sagt frá
leitt, er liðið skynsamlega byggt
upp. Jafnvægi á milli Iínumanna
og langskyttna er gott, góðir varn
armenn eru í hópnum — og lauds
liðsnefnd gerði rétt með því að
velja Guðjón Jónsson með tilliti
til línusendinga. En hvers vegna
í sköpunum er Gunnlaugur ekki
valinn? Að vísu hefur hann oft
verið betri en núna, en hann á
tvímælalaust meiri rétt á lands
liðssæti en Einar Magnússon, Her
mann Gunnarsson (sem öðrum
þræði er einnig valinn sem lang
skytta) og jafnvel Ingólfur Ósk
arsson, sem nú tekur við fyrirliða
stöðu. Hingað til hefur Gunnlaug
ur ekki brugðizt í landsleik —
og jafnan verið sá leikmaður,
sem maður hefur sett mest traust
á, því að hann er einn af þeim, I hefur tekið sána áifcvörðun. Nú
sem getur bætt við sig, þegar mik ríður á því, að menn standi sam-
ið liggur við- an um landsliðið, en þess bíður
En hvað um það. Landsliðsnefnd I Framhald á bls. 3
Það voru flestir, .ef ekki all
ir, sammála um það á sínum
tírna, að það væri til bóta \
að fela einum manni að velja
landslið í stað þriggja manna,
eins og skeði, þegar Sigurði
Jónssyni var falið að velja
landsliðið í handknattleik og
leika hlutverk „einræðisherr-
ans“. Sá, sem þessar línur skrif
ar, deildi oft á Sigurð og var á
öndverðri skoðun við hann um
margt, en það breytir því ekki,
að miklu heppilegra er að láta jj
Framhald á bls. a [
VELSLEÐINN1968
Vér getum nú boðiS yður hina margreyndu
STEETER EVINRUDE vélsleða, sem henta okk-
ar erfiðu staðháttum mjög vel.
☆ 16 ha 2ja stroklka vél ☆ Tvöfalt hljóðkútakerfi
☆ Örugg gangsetning ☆ Há og lág aðalljós
☆ Sjálfvirk gírskipting ☆ Afturljós
☆ Afturáhakgír ☆ Fullkomið mælaborð
☆ Hljóðlátur gangur ☆ Benzínmælir á tank
Tvö fjaðrandi skíði að framan, að aftan 52 cm.
breitt, þrískipt belti, sem gefa sleðanum mikinn
stöðugleika. Hámarkshraði yfir 60 km.
Leitið nánari upplýsinga.
Leggur ekki
árar í bát
Það er ekki til siðs hjá blaða
mönnum að fara á fund leik-
manna og hafa viðtal við þá
í tilefni af því, að þeir séu
EKKI valdir í landslið. En i
þetta skipti gerum við undan
tekningu, því að vissulega sæt
ir það tíðindum, að Gunnlaug
ur Hjálmarsson, fyrirliði lands
liðsins undanfarin ár, skuli
ekki vera valinn í landsliðið
gegn Tékkum á sunnudaginn.
—Áttir þú von á því að vera
settur út úr liðinu Gunnlaugur?
—Já, vegna þeirra manna,
sem skipa landsliðsnefnd.
—En ekki getunnar vegna?
— Ja, ég hef lýst yfir, að
ég myudi með glöðu geði yfir
gefa landsliðið og víkja fyrir
yngri mönnum, sem erindi eiga
í liðið, en þvi er ekki til að
dreifa í þessu tilviki. Þama
ráða önnur sjónarmið, en um
þau vil ég ekki rœða.
— Og það á ekki að leggja
árar í bát?
—Nei, það er langur vegur
frá. Þvert á móti ætla ég að
auka æfingarnar og reyna að
vinna sæti í landsliðinu á nýj
an leik. Maður verður að taka
þessu með jafnaðargeði. Og ég
ætla að vona, að strákarnir
standi sig vel í leiknum á
sunnudaginn. Annars hugsa ég
að það verði hálfskrýtið að
standa á áhorfendastæðinu og
fylgjast með. Bara að maður
verði ekki of æstur, sagði Gunn
Iaugur brosandi að lokum.
Já, Gunlaugur verður meðal
átoíorfenda á sunnudaginn. Það
kann ýmsum að þyíkja einkenni
legt. Víst er um það, að það
Gunnlaugur — meðal áhorfenda
á sunnudaginn.
er ekki minni atburður, að
Gunnlaugi skuli haldið fyrir
utan landsliðið í handjknattleik,
en þegar Albert Guðmunds-
syni var haldið fyrir utan lands
liðið í knattspyrnu á sínum
tíma og frægt varð.
- alf.
Tékkar senda alja sína
beztu menn til íslands
Landsleikirnir við heimsmeistarana á sunnudag og mánudag
Alf - Reykjavík, — Tékkar,
heimsmeistaramir i handknatt-
leik, eru væntanlegir til Reykja
víkur á laugardaginn, en á sunnu
dag og mánudag leika þeir lands
leiki gegn íslendingum- Tékkar
hafa sent HSÍ lista yfir þá leik
menn, sem hingað koma. Og í
ljós kemur, að Tékkar munu
senda sitt allra sterkasta lið hing
að. Nöfn eins og Bruna, Duda,
Benes, Mares, Skarvan og fl. eru
þekkt í handknattleiksheiminum.
Og sumir af þessum leikmönnum
hafa reyndar komið hingað með
ÞOR HF
REYKJAVIK SKOLAVORÐUSTIG 25
Þurftu ekki
neina forgjöf
* frásögn ai haustmóti TBR á
síðunni í gær, varð meinleg villa.
Sagt var, að íslandsmeistararnir
í tvíliðaleik, þeir Jón Ámason og
Viðar Guðjónsson hefðu fengið 10
í forgjöf, en það er á misskilningi
byggt. Þeir þurftu ekki á forgjöf
að halda!
tékknesku félagsliðinum Dukla
Prag og Karviná.
Eins og fyrr segir, koma Tékk-
arnir á laugardaginn. Fyrri lands
leikurinn verður háður 1 Laagar
dalshöUmni á sunnudaginn og
hefst kl. 16, en síðari leikurinn
fer fram á mánudagskvöld og
hefst kl. 20.15. Dómari í báðum
leikjunum verður Svíinn Lennart
Larson. en markdómarar í fyrri
leiknum þeir Magnús Pétursson
og Valur Benediktsson, en- í síð
ari leiknum þeir Björn Kristjáns
son og Reynir Ólafsson.
íslendingar hafa tvívegis áður
leikið gegn Tékkum. f fyrra skipt
ið í HM 1958 og sigruðu Tékkar
þá með nokkrum yfirburðum, 27:
17, en í öðrum leiknum, sem var
í HM 1961, varð jafntefli. 15:15.
í peiiT' keppni hrepptu Tékkar
silfurverðlaun og þótti frammi
staða íslenzka liðsins mjög góð.
fslend verður fyrsti viðkomustað
ur Tékkanna í keppnisferðalagi
þeirra núna — hinu fyrsta eftir að
þeir urðu heimsmeistarar. Héðan
halda þeir til Noregs og leika
gegn Norðmönnunu, en fara þaðan
til Danmerkur.
14 liðsmenn koma til íslands, 2
fararstjórar, læknir og þjálfari.
Þess má geta, að þjálfarinn, Kön
ing mun halda námskeið fyrir ísl.
þjálfara. Þá mun sænski dómar
inn halda fyrirlestur fyrir ísl.
handknaitleiksdómara í Valsheim
ilinu kl. 10 n. k. sunnudagsmorg
un.
Tveggja dóm-
arakerfið senni
lega ofan á
Á dómararáðstefnu, sem haldin
verður í Hollandi innan skamms,
verður „tveggja dómara kerfið"
svonefnda væntanlega samþykkt
— og yrði það þá alls staðar tek
ið upp I ársbyrjun 1969.
Vel getur farið svo, að kerfið
verði reynt í 2. deild á íslandi
á mótinu, sem hefst eftir áramót.