Alþýðublaðið - 21.12.1988, Page 5
Miðvikudagur21. desember 1988
5
FRÉTTIR
A tvinnutryggingasjóður
Óvenjumargir
árekstrar í gær
Fyrsta lánsumsókn iön-
fyrirtækis var samþykkt á
fundi stjórnar Atvinnutrygg-
ingasjóðs í gær. Alls voru
afgreiddar 9 lánsumsóknir á
fundinum, samtals að upp-
hæð um 290 milljónir króna.
Alls hafa rúmlega 20 fyrir-
tæki fengið afgreiðslu sjóös-
ins, en 10 umsóknum hefur
verið hafnað. Að sögn Gunn-
ars Hilmarsson formanns
sjóðsins eru 20-30 umsóknir
til frekari skoðunar.
Ríkisendurskoðun hefur
beint spurningum til Atvinnu-
tryggingasjóðs um hvort lán-
veitingar standist fyllilega
ákvæði reglugerðar sjóðsins.
Svar við fyrirspurninni var
samþykkt á fundinum og
verður sent Rikisendurskoð-
un í vikunni. „Við værum ekki
að afgreiða lánsumsóknir ef
við teldum okkur ekki vera að
gera rétt,“ sagði Gunnar
Hilmarsson aðspurður um
innihald bréfsins.
Að sögn Gunnars var
stjórn sjóðsins og samstarfs-
nefndin, sem er stjórninni
innan handar í umfjöllun um
lánveitingar, sammála um
svarið til Ríkisendurskoðun-
ar. Gunnar sagði ekkert at-
hugavert við fyrirspurn Ríkis-
endurskoðunar. „Það er reynt
að gera hana tortryggilega,
en það er ástæðulaust. Þetta
ereingöngu upplýsingaöflun
svo þeir geti metið störfin."
Vegna frétta um bréf Rikis-
endurskoðunar sendi stofn-
unin frá sér upplýsingar til
fjölmiðla í gær. Þar segir að
fyrirspurnin hafi einungis
verið til að undirbúa árlega
skýrslu sem Ríkisendurskoð-
un er falið að gera um starf-
semi Atvinnutryggingasjóðs
útflutningsgreina. í fréttatil-
kynningu Ríkisendurskoðun-
ar segir rangt að lagt hafi ver-
ið mat á framlegð Granda hf.
á næstu árum, en frétt þess
efnis birtist í Morgunblaðinu
í gær.
Fundir Atvinnutrygginga-
sjóðs eru haldnir a.m.k. einu
sinni í viku. Næsti fundur
verður á milli jóla og nýárs.
Að sögn Gunnars er stefnt að
afgreiðslu a.m.k 9 umsókna á
hverjum fundi.
Stjórn Atvinnutryggingasjóðs við upphaf fundar síns í húsnæði Byggðastofnunar í gær. 9 fyrirtæki fengu náð fyrir augum stjórnarinnar að þessu
sinni og þar með var séð fyrir tæpiega 300 milljónum kr. A-mynd/Magnús.
20 árekstrar urðu í Reykja-
vík í gær frá klukkan 6-16.
Aðeins í einu tilvikanna var
sjúkrabíll sendur á árekstrar-
stað. Að sögn lögreglunnar
eru þetta töluvert fleiri
árekstrar en tilkynnt hefur
verið um undanfarna daga,
enda færð og skyggni slæmt.
Ekki eru allir árekstrar kynnt-
ir til lögreglunnar eftir að
tryggingafélögin hafa tekið
að sér skýrslugeróir, en það
má búast við að árekstrar-
tíðnin hafi verið heldur í
hærri kantinum í gær.
FYRSTA UNFYRIRTÆKID
FÉKK JÁKVJETT SVAR
Ríkisendurskoðun sent
svar við fyrirspurn um
lögmœti lánveitinga.
„Vœrum ekki að lána, ef
við teldum okkur ekki
vera að gera rétt, “ segir
Gunnar Hilmarsson
formaður sjóðsins.
Miklar þreifingar á Alþingi
Borgaraflokksmenn til liðs við stjórnina
Störf Alþingis i gær ein-
kenndust fyrst og fremst af
baktjaldaviöræöum stjórnar-
flokkanna viö Borgaraflokk-
inn og í minna mæli við
Kvennalistann annars vegar
og málþófi Sjálfstæöisflokks-
ins hins vegar. Þegar blaðið
fór í prentun í gærkvöldi voru
taldar miklar likur á því að
stjórnarflokkunum myndi tak-
ast að ná samkomulagi við
Borgaraflokkinn eða hluta
hans um hjásetu í atkvæða-
greiðslum um bráðabirgða-
lögin og hugsanlega um
vörugjaldsfrumvarpiö gegn
ákveðnum breytingum.
Öruggt var talið að atkvæða-
greiðsium um þessi mál yrði
frestað til dagsins í dag.
Hér og þar á göngum og í
hliðarsölum Alþingis mátti
sjá þingmenn á óformlegum
fundum. Það voru hins vegar
hlutskipti meirihluta fjár-
hags- og viðskiptanefndar
neðri deildar að taka saman
og útfæra breytingatillögur
við bráðabirgðalögin frá því I
september, þar sem komið
var til móts við tillögur Borg-
araflokks og Kvennalista. Þar
kveður mest á breytingum á
hlutverki Atvinnutrygginga-
sjóðs. í fyrsta lagi stendur til
að fjölga stjórnarmönnum
sjóðsins um 3 og yrðu það
þá fulltrúar stjórnarandstöðu-
FRIÐRIK ÞÓR
GUÐMUNDSSON
flokkanna. í öðru lagi að er
að nefna ákvæði um að ríkis-
sjóðurtryggi Atvinnuleysis-
tryggingarsjóði 400 milljónir
króna á árunum 1989 Og 1990.
í þriðja lagi að við Byggöa-
stofnun skuli starfa hlutafjár-
sjóður sem afli sér fjár með
sölu hlutdeildarskírteina, hafi
sjálfstæðan fjárhag og stjórn
þriggja manna sem skipuð er
af forsætisráðherra. Sjóðnum
á að vera heimilt að kaupa
hlutabréf í tengslum við fjár-
hagslega endurskipulagn-
ingu fyrirtækja. Þá á sam-
kvæmt þessum lið að stofna
hinn 1. janúar 1991 Atvinnu-
tryggingardeild við Byggða-
stofnun sem hafi það mark-
mið að treysta fjárhagsstöðu
fyrirtækja í útflutnings- og
samkeppnisgreinum. í fjórða
lagi að forsætisráðherra setji
nánari reglugerðir um sjóði
og deild þessa.
Þessar breytingatillögur
fela I sér tillögur frá bæði
Borgarafiokki og Kvennalista.
Ákvæðið um Atvinnuleysis-
tryggingasjóð mun einkum
hafa orðið til þess að Aðal-
heiður Bjarnfreösdóttir ákvaö
aö ganga stjórninni til liðs
með hjásetu. Þá er talið lík-
legt að Borgaraflokksmenn,
einstakir þeirra eða allir, veiti
eldri bráðabirgðalögunum
um kjarasamningsákvæðin
brautargengi í Ijósi sérstakrar
yfirlýsingar forsætisráðherra
um að ríkisstjórnin muni
beita sér fyrir viðræðum við
aðila vinnumarkaðarins strax
eftir áramót og samráði um
fyrirhugaðar efnahagsaðgerð-
ir.
Ekki hafði verið rætt sér-
staklega um skattafrumvörp-
in um vörugjaldið og tekju-
og eignaskattinn, en greini-
legt var á stjórnarliðum að
þeir gerðu sér vonir um
stuðning úr röðum Borgara-
flokksins viö vörugjaldsfrum-
varpið með hjásetu eins eða
fleiri þingmanna hans. Að öll-
um líkindum er þá verið að
ræða um 9% vörugjald á lín-
una utan sérstaks álags upp
á samtals 25% á sælgæti,
gosdrykki og fleiri slíkar vör-
ur. Meiri óvissa var um tekju-
og eignaskattinn.
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins er í dag von á
sérstakri yfirlýsingu frá for-
sætisráðherra um áhuga rík-
isstjórnarinnar á nánara sam-
starfi við Borgaraflokkinn í
byrjun næsta árs. Heimildir
blaðsins greina frá því að á
mjög óformlegan hátt sé byrj-
ígœrkvöldi voru taldar líkur á því að
hluti eða allur Borgaraflokkurinn sitji
hjá í atkvæðagreiðslum um
bráðabirgðalögin og jafnvel um
vörugjaldsfrumvarpið. Kvennalistinn er
einnig inni í myndinni. Varkárar
þreifingar um stjórnaraðild
Borgaraflokks í gangi.
að að viðra atriði eins og
stjórnaraðild flokksins og þá
viðkomandi ráðuneytaskipt-
ingu. í þvi sambandi hefur
heyrst nefnt að flokknum
verði í fyrstu að minnsta
kosti boðið upp á samgöngu-
ráðuneytið, dómsmálaráðu-
neytið og nýtt umhverfis-
málaráðuneyti. Heimildar-
menn innan Borgaraflokksins
vildu ekki staðfesta að þreif-
ingar væru svo langt komnar,
en einn þingmaður flokksins
sagði að báðir aðilar hefðu
beðið hvor annan um tillög-
ur. Um leið kemur fram að
áhugi einstakra Borgara-
flokksmanna er misjafn og
rætt um að Albert Guð-
mundsson, Ingi Björn
Albertsson og Hreggviður
Jónsson hafi uppi mestu efa-
semdirnar um hversu langt
eigi að ganga til móts við
stjórnarflokkana um mál
þeirra og nánara samstarf.
Deildarfundir voru nánast
formsatriði á meðan á öllum
þessum samningaviðræðum
stóð og einkenndust fyrst og
fremst af málþófi og þing-
skapaumræðum að frumvæði
sjálfstæðismanna og svo
áhyggjum landsbyggðar-
manna yfir því hvenær að
jólaleyfinu kæmi og þá hvort
þeir kæmust til slns heima
tlmanlega fyrir jcrl.