Alþýðublaðið - 21.12.1988, Qupperneq 11
Miðvikudagur 21. desember 1988
Okkar styrkur felst í
þekktum og góðum merkjum
— segir Pálmi Guðmundsson markaðs- og sölustjóri Japis
Almenningseign á mynd-
og hljómflutningstækjum
hefur aukist gífurlega á síö-
ustu áratugum, svo mikið aö
ekki er fjarri lagi að tala um
byltingu í þeim efnum. Með-
alfjölskyldan, sem fyrir
tuttugu árum átti eitt út-
varpstæki og ef til vill eitt
svart-hvítt sjónvarpstæki, á
nú fullkomin hljómflutnings-
tæki, litasjónvarp og mynd-
bandstæki og ekki er
óalgengt að unglingarnir á
heimilinu, jafnvel börnin, eigi
sín eigin hjómflutningstæki.
Þessi bylting er fyrst og
fremst tilkomin vegna jap-
anskra tækja sem voru ódýr-
ari og fyrirferðarminni en áð-
ur þekktist, án þess að gæð-
unum væri fórnað.
Japansk-fslenska verslun-
arfélagið, betur þekkt sem
Japis, hóf starfsemi sína í
Lækjargötunni fyrir réttum
tfu árum. Á þessum tfma hef-
ur fyrirtækinu vaxið fiskur
um hrygg og nú rekur Japis
fjórar verslanir, f Brautarholti
2, Kringlunni, Keflavík og á
Akureyri. Frá upphafi hefur
fyrirtækið haft umboð fyrir
þekkt japönsk vörumerki eins
og Sony,.Technics og Pana-
sonic.
„Við leggjum áherslu á
samstæður frá Technics og
Sony sem eru mjög vinsælar
og á viðráðanlegu veröi,“
sagði Pálmi Guðmundsson,
markaðs- og sölustjóri Japis.
„Fyrir þá sem vilja sjálfir
velja saman sin hljómtæki
bjóðum við m.a. Denon
hljómtæki. Við teljum okkar
styrk felast i því að bjóða
mjög þekkt og vönduð vöru-
merki sem hafa hlotið ótví-
ræða viðurkenningu á mark-
aðnum. Það hljóta alltaf að
vera bestu kaupin i tækjun-
um sem reynast best og fólk
getur treyst.“
Auk hljómtækja eru á boð-
stólum i verslunum Japis
sjónvörp frá ofangreindum
fyrirtækjum og kóreanska •
fyrirtækinu Samsung. Sam-
sung er stærsta fyrirtækið i
Kóreu og framleiðir m.a. fyrir
mörg heimsþekkt vörumerki.
Kórea stendur að mörgu leyti
f sömu sporum nú og Japan
gerði fyrir tíu árum, þar er
mikil þróun ( iönaöi og vegna
lægri framleiðslukostnaðar
geta þeir boöið hagstæðari
verð en aörir. KEF hátalarar,
myndbandstæki og upptöku-
vélar, örbylgjuofnar, ryksugur
og ferðatæki auk ýmissa
smávara.
Vídeómyndavélar
framtíðarinnar
í myndbandstækjum býður
Japis upp á mikið úrval og í
upptökuvélum eru á boðstól-
um öll kerfin sem eru í notk-
un, þ.e. VHS, VHS-c og 8mm,
bæði fyrir almenna notkun
og atvinnumenn. VHS-töku-
vélarnar eru frá Panasonic og
þess má geta að Panasonic
M-7 tökuvélin var nýlega kjör-
in bestavélin i sínum flokki í
tímaritinu What Video.
Frá Sony er Japis aftur á
móti með 8 mm tökuvélar, en
8 mm kerfinu hefur veriö
mjög vel tekið. „Við erum
mjög hreyknir af því að bjóða
upp á það besta á markaðn-
um, 8 mm kerfiö virðist vera
að ná yfirhöndinni. Mynd-
gæðin eru mun meiri en f
öðrum kerfum, enda urðu 8
mm fökuvélar framleiddar af
Sony í þremur efstu sætun-
um þegar 8 stærstu mynd-
bandatímarit í Evrópu völdu
bestu vídeótökuvélarnar.
Þetta kerfi er það sem koma
skal.“
Sony video-8 vélarnar eru
bæði upptökuvélar og afspil-
unartæki sem hægt er að
tengja við hvaða myndbands-
tæki eða sjónvarp sem er til
afspilunar. Sony CCD-F330 er
sannkölluð fjölskylduvél, al-
sjálfvirk, einföld og hand-
hæg. Hægt er á einfaldan
hátt að setja inn titil eða
tímasetningu inn á upptöku
og hægt er að velja um átta
liti á letrið. Eftir að einu sinni
er búið að stilla dagsetningu
og tíma er alltaf hægt að
kalla þessar upplýsingar fram
því klukkan gengur þó að
slökkt sé á tækinu.
Við höfum tekið eftir því
að eftir að umræðan um
vörugjaldið hófst hefur salan
aukist og við getum ekki ann-
að sagt en að við séum
ánægðir með söluna hjá okk-
ur. Fólk notar tækifærið og
kaupir hluti sem það hefur
langað í áður en þeir
hækka.“
TÖLVUR OG BRAUÐGERÐARVÉL
Japis selureinnig mjög
mikið til hljóð- og myndvera
og sagði Pálmi stóran hluta
sölunnar vera til atvinnu-
manna, sem væri að sjálf-
sögðu ákveðin gæðaviður-
kenning. Hljómkerfi í kvik-
myndahús í skemmtistaði,
Ijósabúnaður fyrir dansstaði
og hljóðblandarar eru meðal
þess tækjabúnaðar sem boð-
ið er upp á í þessum flokki.
Tölvudeild Japis er með
BBC heimilistölvur, en þær
eru mest notuðu heimilistölv-
urnar I grunnskólum hérlend-
is. Um þessar mundir er verið
að kynna nýja 32 bita tölvú
sem heitir Archimedes. Hún
er með nýju stýrikerfi sem
nefnist Risk og gefur meðal
annars möguleika á fjölnota-
kerfi, þannig að hægt er að
vera að vinna í fleiri en einu
verkefni í einu og hafa þau á
skjánum samtímis. Einnig er
hægt að breyta tölvunni i PC-
vél með einfaldri skipun.
í verslun Japis eru einnig
rafmagnstæki frá Panasonic
og Sony í miklu úrvali, svo
sem örbylgjuofnar og ryksug-
ur. Ein nýjung frá Panasonic
er brauðgerðarvél. í hana eru
sett venjuleg hráefni til
brauðgerðar, vélin sér síðan
um að hræra, hnoða og baka.
Það tekur vélina um 4 tíma
að baka brauð og sagði
Pálmi tilvalið að stilla brauð-
vélina að kvöldi til að fá ilm-
andi og ylvolg brauð með
morgunkaffinu.
MIKIÐ ÚRVAL AF SMÁVÖRU
Mikið úrval er af smávöru í
Japis, ferðatækjum, útvarps-
vekjurum og vasatölvum. Hin
vinsælu Walkman vasadiskó
frá Sony eru að sjálfsögðu til
í mörgum gerðum, einnig
vasageislaspilarar og ferða-
útvörp og kassettutæki í öll-
um stærðum. Athygli vekur
mikið úrval af geisladiskum
með klassiskri tónlist, enda
hefur Japis hafið innflutning
á geisladiskum og eru þeir
flestir innan við eitt þúsund
krónur sem er talsvert lægra
verð en býðst annars staðar.
Fyrir íþróttaáhugamenn
eru til dæmis vatnsheld vasa-
útvörp og örlítið útvarp frá
Sony til að hafa á handlegg í
skíðaferðinni eða fjallgöng-
unni. Af smávörum má einnig
nefna skeggsnyrta og rakvél-
ar frá Panasonic og hljóð-
nema frá Audio Technica.
„ Frá upphafi höfum við
lagt áherslu á góða og fag-
lega þjónustu og niðurstöður
nýlegrar könnunar Neytenda-
blaðsins eru okkur vissulega
hvatning. Þar eru notendur
sjónvarpstækja spurðir um
reynslu sína af þeim og af
þeim 19 algengustu eru okk-
ar tæki þau einu sem enginn
er óánægður með, hvorki
með tækin sjálf né þjónust-
una. Sömu viðskiptavinirnir
koma til okkar aftur og aftur,
jafnvel heilu fjölskyldurnar
kynslóð eftir kynslóð. Það
hlýtur að vera viðurkenning á
því að við séum á réttri leið.
Við leggjum áherslu á gæða-
merki og að vera með það
nýjasta og besta hverju sinni,
. það virðist falla fólki vel í geð
og við erum bjartsýnir á fram-
tíðina," sagði Pálmi Guð-
mundsson að lokum.
FYRIR ÞIG OG ELSKUI\A ÞÍNA.
Bjóddu henni í heimsókn,
settu ljúfa tónlist á fóninn, dempaðu
ljósin og leyfðu rómantíkinni að blómstra.
Á rétta augnablikinu skaltu
bjóða henni PARÍS.
PARÍS er rjómaís með banana- og
súkkulaðisósu og hnetum. í einum pakka:
Tveir ísbikarar með loki sem jafnframt
er fótur og tvær iangar skeiðar.
AUK/SlA