Alþýðublaðið - 27.01.1989, Síða 1

Alþýðublaðið - 27.01.1989, Síða 1
STOFNAÐ 1919 Rifta lífeyrissjóöirnir samningi við Húsnœðisstofnun? GAMLA VÍSI- TALAN Á AB GILDA — segir Sigurður E. Guðmundsson for- stjóri Husnœðisstofnunar — telur annað geta haft alvarlegar afleiðingar. Sigurður E. Guðmundsson forstjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins sagði í samtali við Alþýðublaðið i gær að hann lliti persónulega svo á, að samningur stofnunarinnar við lifeyrissjóðina um skulda- bréfakaup fyrstu þrjá mánuði þessa árs skyldi miðast við desembervísitölu — gömlu lánskjaravísitöluna — og að það gæti haft alvarlegar af- leiðingar ef nota ætti aðra vísitölu. Jóhann Ólafsson, stjórnarformaður Lifeyris- sjóðs verslunarmanna, lang stærsta skuldabréfakaupand- ans, segir málið mjög alvar- legt. „Það er slik óvissa kom- in í rnálið að það þarf að taka öll þessi mál til endurskoð- unar. Staðan er gjörbreytt, en á þessari stundu vil ég ekkert segja til um hvort af riftun verður á samningnum við Húsnæðisstofnun. Skuldabréfakaup lífeyris- sjóðanna af byggingasjóöun- um námu samkvæmt áætlun fyrir nýliðiö ár 7.340 milljón- um króna og áætlun fyrir yfir- standandi ár, þar sem reikn- að er meö 13% hækkun láns- kjaravísitölunnar á milli ára, gerir ráö fyrir kaupum upp á 8.825 milljónir króna. Reikna byggingasjóöirnir meö aö fá frá lífeyrissjóóunum fyrstu 3 mánuöi ársins alls um 2,2 milljarða króna samkvæmt samningnum frá síöasta mánuði. Fjármögnun lánveitinga byggingasjóðanna fer að mestu leyti fram með sölu á skuldabréfum þessum. Sem fyrr segir eru kaupin áætluð um 8.825 milljónir króna á þessu ári. Samkvæmt B-hluta fjárlaga 1989 er ætlunin að lántaka Byggingasjóðs ríkis- ins verði í heild 6.925 milljón- ir og lántaka Byggingasjóðs verkamanna 2.130 milljónir eða samtals um 9 milljarðar króna. Nær öll lántaka sjóð- anna er því til komin frá líf- eyrissjóðunum. Það er því geysilega mikið í húfi fyrir byggingasjóðina. Stjórn Húsnæðisstofnunar hefur ekki fjallað um málið enn sem komið er, en Sigurð- ur E. Guðmundsson forstjóri stofnunarinnar sagði í sam- tali við Alþýðublaðið að hann hefði þungar áhyggjur af skuldabréfakaupum lífeyris- sjóðanna á þessum ársfjórð- ungi ef meiningin er að þau gerist á grundvelli nýju láns- kjaravísitölunnar. „Persónulega tel ég að samningurinn sem gerðurvar í desembermánuði hafi kveð- ið á um að skuldabréfakaupin til marsloka skyldu gerast á grundvelli desembervísitölu. Ef ætlunin er að notast við einhverja aðra vísitölu en þá var samið um að skyldi gilda getur það leitt til truflunar á skuldabréfakaupunum sem síðan getur haft alvarlegar af- leiðingar. En við höfum ekki fengið neina orðsendingu frá ríkisvaldinu að það eigi að bjóða skuldabréf með öðrum kjörum en þeim sem gilt hafa, né heldur höfum við fengið orðsendingu frá lífeyr- issjóðunum. Þess vegna vona ég að þetta fari vel“, sagði Sigurður. Ekki náðist i Jóhönnu Sig- urðardóttur félagsmálaráö- herra í gær. Tónleikar í kerskála Píanóleikarinn Diedre Irons og fiðluleikarinn Miha Pogac- nik hófu hljómleikaför um Evrópu í gær, með því að leika fyrir starfsmenn ís- lenska álfélagsins í einum kerskálum fyrirtækisins í Straumsvík. Þau Irons og Pogacnik munu halda nokkra tónleika hér á landi. Miha Pogacnik er frumkvöðull að stofnun alþjóðasamtaka, sem árlega halda listahátíöir utan hins vestræna heims til að auka tengsl á milli austurs og vesturs, norðurs og suð- urs. í apríl verður m.a. hátíð í Tbilissi í Georgíu sunnarlega í Sovétrikjunum. A-mynd/Magnús Reynir. Nýmœli í stefnumótun MenntamálaráðKerra biður um óskalista Svavar Gestsson mennta- málaráðherra bryddar upp á nýmælum við stefnumótun i skólamáium. Menntamála- ráðuneytið leitar til ýmissa aðila innan og utan skóla- kerfisins um þeirra óskir og hugmyndir um verkefni á sviði skólamála, sem þeir telja að leggja þurfi áherslu á næstu 10 árin. Leitað verður til starfsmanna skóla, fræðslustjóra, fræðsluráða, sveitarstjórnarsamtaka, þingflokka og ýmissa fé- lagasamtaka og beðið um ábendingar um áhersluatriði. Könnunin fer fram í tveim- ur hlutum. Þess er farið á leit að viðkomandi geri lista yfir 4-10 mikilvægustu verkefni á sviði skólamála á næstu 10 árum, á grunnskóla- og fram- haldsskólastigi. Málin þurfa ekki að vera í forgangsröð. Óskað er eftir því að hverjum lið verði lýst lauslega og rökstutt (fáum orðum á sér- stöku eyðublaði. Listan á síð- an að sendatil menntamála- ráðuneytisins, skólaskrif- stofu, fyrir 20. febrúar næst komandi. Úrvinnsla verður á vegum Félagsvísindastofnun- ar Háskóla Islands og hefst hún 1. mars og er ætlað að henni verði lokið um mánaða- mótin apríl-maí. í maímánuði verðursiðan sömu aðilum sendur listi yfir þau mál sem oftast verða nefnd í fyrstu lotu og þeir nú beönir um að raða þeim í for- gangsröð. Úrvinnsla fer síðan fram i júni. Stefnt er að útgáfu skýrslu um niðurstöður óskalistanna. Með þessu móti vill ráðu- neytið stuðla að víðtækri um- ræðu um stöðu og framtiðar- sýn í íslenskum skólamálum og virkja sem flesta til stefnumótunar. Fiskverði sagt upp Óvíst um 1,25% hækkun 15. febrúar Almennu fiskveröi var sagt upp á fundi Verðlagsráðs sjávarútvegsins i gær, frá og með 15 febrúar. Að sögn Sveins Finnssonar hjá Verð- lagsráði þýðir þetta að 1,25% hækkun sem taka átti gildi 15. febrúar kemur ekki til að óbreyttu. Óskar Vigfússon formaður Sjómannasam- bands íslands segist lita svo á að hækkunin sé inn i myndinni þar til semjist um nýtt fiskverð. Núgildandi fiskverð var ákveðið með bráðabirgðalög- um ríkisstjórnarinnar frá 28. september I fyrra, með heim- ild til uppsagnar frá 15. febr- úar næst komandi. Seljendur, sjómenn og útgerðarmenn ákváðu I gær að segja verð- inu upp.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.