Alþýðublaðið - 27.01.1989, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 27.01.1989, Blaðsíða 8
Hótel fminiiíinnii Föstudagur 27. janúar 1989 SAS HELDUR SIG VID HÓTEL SÖGU Ekkert hefur enn frést af samningum Hoiiday Inn hót- elsins viö erlendar hótelkeðj- ur um kaup eöa rekstur hót- elsins viö Sigtún. Ef marka má nýjustu auglýsingu SAS flugfélagsins er þaö ekki á leið með aö gera Holiday Inn að SAS-hóteli. í heilsiöu auglýsingu, sem birt er mánaðarlega í öllum helstu dagblööum á Noröur- löndum og greint er frá helstu nýjungum í starfi og þjónustu SAS er nú á dögun- um vakin athygli á þvi aö Hótel SAGA í Reykjavík sé eitt af nýjustu SAS þjónustu- hótelunum, þeim sem kallast „SAS Business Hotels“. Þetta er í þriðja sinn á stuttum tíma, sem SAS vekur athygli á Reykjavík sem nýjum við- komustað og Hótel Sögu sem SAS-hóteli. ,.A RAUÐU LJÓSI í HAFNARFIRÐI UM HELGINA Fundaherferð formanna A-flokkanna „Á rauðu ljósi“ verður fram haldið um helg- ina. Á laugardag, klukkan 14, hefst fundur i Bæjarbiói i Hafnarfirði. Ekki hefur verið ákveðinn fundartimi á þeim stöðum þar sem þurft hefur að fresta fundum vegna veð- urs, en ætlunin var í upphafi að Ijúka fundaherferðinni í Hafnarfirði. Útvarpsstöðin Rót 1 árs Kökubasar og rokktónleikar Útvarpsstöðin RÓT — stöðin sem stundum hefur verið nefnt útvarpsstöð gras- rótarinnar, er eins árs um þessar mundir. í því tilefni munu aöstendendur stöðvar- innar efna til ýmissa hátíðar- halda, m.a. kökubasars, rokk- tónleika og afmælishátíðar. Útvarpsstöðin efnir til plötu- og kökubasars á morg- un, 28. janúar í aðsetri út- varpsstöðvarinnar að Mjölnis- holti 14. Basarinn hefst kl. 14.00. RÓT efnirtil rokktónleika í Tunglinu þ. 2. febrúar n.k. þar sem ýmsar hljómsveitir munu koma fram, þar á með- al Síðan skein sól, Bless, Ný- dönsk, auk þess sem tónlist- armenn sem HilmarÖrn Hilmarsson og Bjartmar Guð- laugsson koma fram. Daginn eftir, eða þ. 3. febr- úar n.k. mun útvarpsstöðin RÓT halda afmælishátíð í Risinu, Hverfisgötu, og hefst hún kl. 20.00. Þar mun ýmsar uppákomur vera á ferðinni, fjöldasöngur, Ijóðaupplestur, djassleikur, ávörp og dans. Fundarmenn á Spástefnu Stjórnunarfélags íslands hlustuðu grannt á boðskap Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra. A-mynd/Magnús Reynir. Spástefna ’89 Steingrímur ekki á móti gengislækkun Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra segist ekki vera á móti gengisfelingu, en slík aðgerð megi þó ekki verða eingöngu með þeim hætti að fært verði fjármagn frá launafólki til fyrirtækj- anna. Forsætisráðherra lýsti þessu yfir á Spástefnu ’89 sem Stjórnunarfélag íslands gekkst fyrir á Hótel Loftleið- um i gær. „Gengisfelling er tilflutn- ingur á tekjum yfir til útflutn- ingsatvinnuveganna. Þess vegna segi ég, að við verðum að flytja fjármagn yfir til at- vinnuveganna frá mörgum öörum aðilum. Ég get ekki hugsað mér að hér séu fyrir- tæki sem ekki herða mittisól- arnar þegar þetta er gert. Það verður Landsvirkjun að gera. Það verður Póstur og sími að gera. Eg er alls ekki að segja að gengisfelling komi ekki til greina. Vitanlega verðum við að skrá gengið rétt. Við verð- um þá að hafa tryggt að það hafi þau áhrif sem við ætlum okkur á öllum sviðum þjóðfé- lagsins. En ekki bara til- færsla frá launafólki yfir til atvinnuvega," sagði Stein- grímur Hermannsson forsæt- isráðherra. Hjálparstofnun hefur þegar varið hluta at söfnunarfé til matvælaflutn- inga á hungursvæðunum í suður Súdan. „Brauð-handa-hungruöum heimi“ 20 MILU0NIR HAFA SAFNAST í söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar „Brauð handa hungruðum heimi“ hafa bor- ist tæplega 20 milljónir króna. Hluta fjárins hefur þegar verið ráðstafað til mat- vælaflutninga í suður Súdan, jaröskjálftasvæðanna í Arm- eníu og til flóðasvæðanna í Bangladesh. Juba er stærsta borg suð- ur Súdans og þar búa um 100 þúsund manns auk 150 þús- und flóttamanna, sem flúið hafa heimili sin vegna borg- arastriðsins. Þetta fólk býr al- gjörlega einangrað og ríkir þar hungursneyð. Mikill skortur er á matvælum og öðrum hjálpargögnum. Vegir til borgarinnar eru lokaðir og þess vegna er flugleiðin eina leiðin til að koma hjálpar- gögnum til þessa fóiks. Kirkjulegar hjálparstofnanir standa sameiginlega að „loft- brú“ milli Nairobi til Kenýa og Juba. Daglega eru flutt 50 tonn af matvælum og eru það einu matvælin sem fáan- leg eru ( borginni. Hjálpar- stofnun kirkjunnar mun halda áfram að taka þátt í þessu hjálparstarfi. 5 tonn af niðursoðnum matvælum og 3.400 islensk ullarteppi að verðmæti nærri 4 milljónir króna voru send fyrir jólin til jarðskjálfta- svæða Armeníu. Matvælin og ullarteppin voru gefin af fyrir- tækjum hér á íslandi, sem hafa viðskipti við Sovétrikin. Flugleiðirog skipadeild Sam- bandsins fluttu hjálpargögn- in endurgjaldslaust. í samvinnu við Alkirkjuráð tekur Hjálparstofnun kirkj- unnar þátt í uppbyggingar- starfi í Bangladesh eftir flóð- in þar sl. haust. Eitt af helstu verkefnum er að hreinsa vatnsbrunna og grafa fyrir nýjum. Á næstu mánuðum mun Hjálparstofnun kirkjunnar byggja skóla fyrir 400 börn í Andra Pradesh héraðinu á Indlandi og einnig heimili fyr- ir vangefin börn í Tamil Nadu héraðinu á Indlandi. Áætlað er að þessum byggingum verði lokið á þessu ári.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.