Alþýðublaðið - 27.01.1989, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 27.01.1989, Blaðsíða 5
Föstudagur 27. janúar 1989 5 ingar olíuhækkana í heimin- um, tvisvar sinnum á stjórn- artíma hans. Honum tókst aö halda efnahagslegu jafnvægi í landinu en varaði Vestur- lönd viö hættunni sem fylgdi uppbyggingu Sovétríkjanna á meðaldrægum eldflaugum og hvatti Vesturlönd til aö sýna krók á móti bragði. FRIÐARVERÐLAUN NÓBELS Willy Brandt, fæddist áriö 1913. Hann var leiötogi þýska jafnaðarmannaflokksins ár- um saman og er nú heiðurs- formaöur flokksins. Hann hefur um langan tima verið i forsvari „Socialist Internat- ional“, sem er alþjóðlegt samband jafnaðarmanna. Honum voru veitt friðarverð- laun Nobels, fyrir „Ostpolitik" sína, sem varðaði veginn til slökunarstefnu og málamiðl- unar. Konrad Adenauer, sem var fyrsti kanslari Sambands- Willy Brandt t.v. og Hel- mut Schmidt eru fyrrver- andi kanslarar í V- Þýskalandi. Þeir eru báðir jafnaöarmenn, þó þeir ha- fi ekki alltaf verið á sama máli i pólitíkinni. lýðveldisins I V-Þýskalandi, sagði að „ungi maðurinn frá Berlín" hefði með sínu eigin frumkvæði, fengið NATO-rík- in, til að standa sman um málefni Berlínar. NJOSNARAMAL Brandt, sem fæddist í Lubeck gekk í flokkinn á síð- ustu dögum Weimar-lýðveld- isins, en yfirgaf Þýskaland árið 1933, þegar nasistar und- ir forystu Adolf Hitler komust til valda. Hann sigldi til Noregs með fiskibáti. Eftir heimsstyrjöldina síðari, hélt hann heim til Þýskalands. Hann vann sig upp í flokki þýskra jafnaðarmanna, hægt og sígandi. Hann bauð sig fram til kanslaraembættisins gegn Konrad Adenauer í kosningunum 1961. Það var þó ekki fyrr en „stóra sam- steypustjórnin" (Grand Coal- ition) var mynduð, þegar Brandt var utanríkisráðherra, sém honum tókst að leggja grunninn að naumum þing- meirihluta jafnaðarmanna og frjálsra demókrata. Hann sigraði glæsilega í kosning- unum árið 1972, en sagði af sér embætti árið 1974. Þá uppgötvaðist, að njósnari frá Austur-Þýskalandi, að nafni Gunter Guillaume, hafði verið náinn samstarfsmaður Brandt. DEILUR Varamaður Willi Brandt sem leiðtogi jafnaðarmanna, Helmut Schmidt, fyrrverandi varnar- og fjármálaráðherra, tók við kanslaraembættinu nokkrum dögum síðar. Hann var þá 55 ára. Helmut Schmidt, var kjörinn með 267 af 492 atkvæðum í v-þýska þinginu, en áhuginn sem var hvatinn að fyrstu samsteypu- stjórn jafnaðarmanna og kristinna demókrata, hafði dregist saman. Helmut Schmidt, sem var raunsær maður i stjórnmálum, var kosinn úr embætti I október 1982. Hann átti i deilum við suma samflokksmenn sína og eftirmaður hans varð Helmut Kohl, úr flokki kristi- legra demókrata, sem nýtur enn stuðnings sinna flokks- manna og ennfremur kristi- legra demókrata í Bæjara- landi og frjálsra demókrata. Sjálfsvíg unglinga í Japan METNAÐUR FORELDRA DÆMIR BÖRN ÚR LEIK Það þarf varla að taka það fram að það teldist þjóðar- hneyksli, svo að segja hvar sem er í heiminum, ef tólf börn sviptu sig lífi í einni og sömu vikunni í einhverju landi. Fjölmiðiar og þingmenn myndu án efa krefjast rann- sóknar og stjórnvöld yrðu taf- arlaust að fjalla um málið og gripa til aðgerða. Ekki síst ef í Ijós kæmi að sjáifsvigin væru tengd áhyggjum barn- anna vegna skóla. Engum yrði hlíft þar til fundin væri lausn á slíkum óhugnanleg- um vanda. Allsstaðar — nema í Japan. Þar gerist ekk- ert, og sjálfsvíg barna halda áfram, og þótt líf hverrar fjöl- skyldu, sem hlut á að máli, sé lagt í rúst, þá hefur þetta engin áhrif á gang lands- mála. Þvl hagfræðilega séð eru heildaráhrifin góð, skólamir eru harðir og samkeppni nemendanna er mikil. Þess vegna berjast börnin fyrir því að komast i hóp úrvalsnem- endanna, en mörg þeirra falla í valinn á leiðinni þangað. í haust er leið, þegar skólarnir voru nýhafnir þar i landi, gripu 11 ungmenni áaldrin- um 11-14 ára til þessa óyndis- úrræðis. SJÁLFSVÍG: ÞJÓÐARHEFÐ Það eru einkum tvær ástæður fyrir langlundargeði japönsku þjóðarinnar i þess- um efnum; annars vegar gömul hefð fyrir sjálfsvígum — sem lengi vel var óumflýj- anleg leið til að verja heiöur manns eða ættar — og hins vegar skólakerfið og sam- keppnin sem þar rfkir. í fyrra bundu 69 unglingar undir 14 ára aldri enda á líf sitt, f upp- gjöf fyrir kröfuhörku og sam- keppni skólakerfisins. Þrjú þeirra voru undir nfu ára aldri. Börnin erfa það viðhorf foreldra sinna og eldri kyn- slóöa að sjálfsvfg sé heiöar- legur flótti úr annars óumflýj- anlegum vanda. Þannig sé heiöri einstaklingsins og heiöri fjölskyldunnar borgið. Slíkt hefur sennilega verið raunin með 13 ára stúlku, Miyoko Sayama, sem var í hópi hinna 11, sem gáfust upp í fyrstu viku yfirstand- andi skólaárs. Hún hafði áhyggjur af þvf að hafa ekki komist yfir alla heimavinn- una, sem börnunum var sett fyrir í sumarfríinu. Og þar í landi er sumarfrí skólabarna varla það langt að taki þvf að setja þeim fyrir mikil verk- efni. Það er þó gert. Þó eru 240 kennsludagar í Japan á ári, samanborið við 180 daga almennt í Vestur-Evrópu. LÍTIL FRÍ OG STUTT Sumarleyfi í Japan getur ekki orðið nema örfáar vikur, og þær vikur verða börnin að nota til að læra heima, séu þau ekki meðal hinnar fremstu í bekknum. Nær helmingur japanskra skóla- barna sundar aukanám í kvöldskólum að jafnaði tvö og hálft kvöld f viku. Þar er einkum keppst um að ná góðum árangri í japönsku og ensku. Og eins og fyrr segir eru hin fáu frf dyggilega not- uð til heimanáms. Þaö er þvf yfirleitt ekkert sumarfrf, held- ur aðeins tvær til þrjár vikur til heimalestrar og aukatíma. Markmiðið er auðvitað það að komast í sem bestan há- skóla. Slfkt getur verið lykill- inn að velgengni í atvinnulíf- inu, og er kannski eina leiðin til að geta fengið starf hjá stórfyrirtæki eða ríkinu. Vinnuálagiö vex þvf jafnt og stöðugt ár frá ári og nær há- marki fyrir jafngildi stúdents- prófs. ÁHYGGJUR YFIRVALDA Yfirvöld menntamála virð- ast hafa gert sér grein fyrir þeim vandamálum, sem hljót- ast af þessu keppikerfi, og í blööum má af og til lesa greinar þar sem þetta er gagnrýnt. En ekkert gerist. Ekki sfst vegna þess að jap- önsk fræðsluyfirvöld eru að framkvæma það sem þau kalla þriðju byltinguna í menntamálum. Sú bylting miðast við að örva einstakl- inginn til skapandi starfa í stað þess að móta alla í sama farið. Þetta er ekki síst að kröfu japansks iðnaðar, sem finnur fyrir þvf að ný- sköpun í iönaði verður meiri á Vesturlöndum. Japanir eru hins vegar betri við að fram- fylgja þvf sem þegar hefur veriö skapað. Ekki eru þó allir á eitt sátt- ir um að valin hafi verið rétta leiðin til að örva sjálfstæði og skapandi hugsun, með námsálagi og gffurlegum prófum. En eitt eru menn sammála um, að Iftilla breyt- inga sé að vænta. MÁLiN SKOÐUD i BANDARÍKJUNUM Og á meðan umræða fer fram um bakhlið hinnar miklu keppnishörku f japönskum skólum, þá eru sérfræðingar að kanna áhrif þess á banda- rfsk börn ef of mikils er af þeim ætlast í námi strax á unga aldri. En þar þykir ýms- um full mikilla áhrifa vera far- ið að gæta frá japönskum skólum, enda líta menn þangað austur (eða vestur eins og nær væri að segja) meö samblandi af undrun og ótta. Japanska efnahagsundrið hefur nefnilega komið illa við bandarfskan iðnað, og ýmsir hafa oröið til þess að benda á, að eigi Bandaríkjamenn að endurheimta forystu sína f iðntækni, þá verði að endur- bæta skólakerfið og koma af stað meiri samkeppni meðal nemenda. Þetta hefur svo leitt til þess að of viða hafa foreldrar og kennarar lagt ot mikið álag á of ung börn f skólum. Skýrsla um rannsóknir á þessu sviði var lögð fram á ráöstefnu fræösluyfirvalda f Chicago fyrir skömmu. Þar mátti lesa þá meginniður- stöðu að ung börn hlytu af þvf meira tjón en gagn að þeim væri hrundiö út í stíft nám strax á unga aldri. Jafn- framt var komist að þeirri niðurstöðu að keppnisharka og milliríkjasamkeppni á við- skiptasviðinu væri ein megin ástæða þess að nú væru geröar meiri kröfur til skóla- barna en fyrr. Þar segir meðal annars, orðrétt: „Ef menntun á að verða keppni bar na við jafningja sína eða beinn und- irbúningur að baráttu við er- lenda keppinauta á viðskipta- sviðinu, þá er verið að inn- ræta börnunum rangar að- feröir og jafnframt verið að sá ótta meðal foreldra og þeim beitt fyrir keppnisvagn- inn.“ ÁHYGGJUEFNI Höfundar þessarar skýrslu lýsa áhyggjum slnum af vax- andi notkun prófa og alls kyns mælinga á árangri ein- stakra nemenda. Það er að segja afturhvarfs til mælan- legra einkunna í stað þess að veita almenna umsögn eða jafnvel gera, eins og byrjað var víða á norðurlöndum síð- asta áratug, að veita aðeins þá umsögn hvort nemandi hefði Staðist próf eða ekki. Þetta leiðir til mikillar innri samkeppni innan bekkjanna strax frá forskólaaldri, á þeim tfma þegar mikilvægt sé aö geta innrætt börnunum skiln- ing, samúð og hjálpsemi, þannig að þau læri að um- bera þau börn sem ekki hafa sama námshraða, og jafnvel veita þeim aðstoð. Þess f stað stefna skólarnir nú meira f það að koma strax af stað metnaði og keppnis- anda, sem leiði afturtil Iftils- virðingar á þeim sem ekki standa sig. Foreldrarnir verða svo þátttakendur I þessari keppni og beita börn sín þrýstingi heima fyrir. Þau börn, sem ekki standa sig í þessari keppni og finna ekki stuöning heima fyrir gef- ast einfaldlega upp, eins og dæmin frá Japan sýna. Það var 26 manna hópur sem geröi þessa rannsókn á skólum f fjórum borgum Bandarfkjanna, Atlanta, Boston, Chicago og San Fransisco. Gagnrýnd var vax- andi notkun prófa strax á for- skólaaldri, og bent á að f borgunum Atlanta og Minne- apolis væri jafnvel farið að krefjast þess að börn stæð- ust lokapróf úr forskóla áður en þau gætu hafið nám með jafnöldrum sfnum (fyrsta bekk grunnskóla.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.