Alþýðublaðið - 27.01.1989, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 27.01.1989, Qupperneq 4
4 Föstudagur 27. janúar 1989 ALDARÁRTÍÐ GUÐBRANDS í tilefni af aldarhátíð Guð- brands Vigfússonar verður efnt til sýningar á helstu verkum hans i Landsbóka- safni íslands. Þá hafa Háskóli íslands og Landsbókasafn boöiö dr. Benedikt Benedikz bókaverði við Háskólabókasafniö í Birmingham til íslands, og mun hann flytja fyrirlestur um Guðbrand Vigfússon í boöi heimspekideildar Há- skólans á ártíöardaginn, þriöjudaginn 31. janúar kl. 17.15 í stofu 101 í Lögbergi. Fyrirlesturinn veröur flutt- ur á islensku, og er öllum heimill aögangur. Dr. Benedikt Benedikz hef- ur kynnt sér Guöbrand Vig- fússon sérstaklega og þá ekki síst ævi hans og störf á Englandi. Af verkum Bene- dikts má nefna þýðingu, er hann gerði ásamt John McKinnell á Völuspárútgáfu Sigurðar Nordals, er út kom í Durham 1978, en Benedikt var þá bókavörður viö ,Há- skólabókasafnið þar. Á sama ári kom út á vegum Cam- bridge University Press rit hans um Væringja, The Varingians og Byzantioum, er reist var á Væringjasögu Sig- fúsar Blöndals. Benedikt annast nú um sérsöfn (Special Collections) Háskólabókasafnsins í Birm- ingham. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs Verðlaunin veitt í dag Á fundi dómnefndar um bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs í Kaupmannahöfn i dag verður tekin ákvörðun um það, hver hljóti bók- menntaverðlaunin árið 1989 og verður sú ákvörðun kynnt á fréttamannafundi í danska þinghúsinu, Christiansborg, kl. 12 að dönskum tíma. Af hálfu íslands sitja rithöfund- arnir Jóhann Hjálmarsson og Sveinn Einarsson í dóm- nefndinni en af íslands hálfu voru tilnefnd verkin „Dagur vonar" eftir Birgi Sigurðsson og „Tengsl“ eftir Stefán Hörð Grímsson. Verðlaunin, sem eru 150.000 danskar krónur, veröa nú veitt i 28. sinn. Þau veröa afhent viö hátíðlega athöfn i tengslum viö 37. þing Norð- urlandaráðs í Stokkhólmi 28. febrúar nk. Þorsteinsvaka í Kópavogi Lista- og menningarráð Kópavogs heldur Þorsteins- vöku, dagskrá um Þorstein Valdimarsson skáld, sunnu- daginn 29. janúar 1989 kl. 20.30 í Félagsheimili Kópa- vogs að Fannborg 2. Aðgang- ur er ókeypis og öllum heim- ill meðan húsrúm leyfir. Helstu dagskrárliöir eru þeir, aö Eysteinn Þorvaldsson bókmenntafræöingur fjallar um skáldskap Þorsteins og félagar úr Leikfélagi Kópa- vogs flytja samfellda dagskrá úr Ijóöum hans og limrum undir stjórn Guðrúnar Þ. Stephensen. Einnig veröur sungin fjölbreytt tónlist viö Ijóö skáldsins eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Martin Hunger Friðriksson, Mari- anne Meystre og Jón S. Jóns- son. Flytjendur eru Ellsabet Erlingsdóttir við undirleik Kristins Gestssonar, skólakór Kársness undir stjórn Þór- unnar Björnsdóttur og Sam- kór Kópavogs, sem Stefán Guömundsson stjórnar. Þorsteinn Valdimarsson var fæddur 31. október 1918 að Brunahvammi í Vopnafirði, en lést 7. ágúst 1977, 59 ára að aldri. Hann var guöfræð- ingur að mennt, en stundaði einnig tónlistarnám bæði hér heima og erlendis. Aðalstarf hans var lengst af kennsla við Menntaskólann i Reykja- vík og Styrimannaskólann, en einnig fékkst hann mikið við þýðingar á söngtextum og óperum. Eftir hann liggja átta Ijóðabækur: Villta vor (1942), Hrafnamál (1952), Heimhvörf (1957), Heiðnuvötn (1975) og loks Smalavísur sem kom út i október 1977, tveimur mánuð- um eftir andlát skáldsins. Þorsteinn Valdimarsson bjó i Kópavogi um tveggja áratuga skeið og setti svip sinn á menningarlíf bæjarins. Hann hefði orðið sjötugur síðastliðið haust og í tiiefni af því heldur Lista- og menn- ingarráð Kópavogs Þorsteins- vöku til að heiöra minningu hans. FRÉTTASKÝRIWG INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR SKRIFAR Helmuth Schmidt 70 ára og Willy Brandt 75 ára STÓRAFMÆLI TVEGGJA FYRRVERANDI KANSLARA Willi Brandt og Helmut Schmidt, báöir fyrrverandi kanslarar í V-Þýskalandi, telj- ast óneitanlega til áhrifa- mestu stjórnmálamanna þar i landi undanfarna áratugi. Willi Brandt varð 75 ára þ. 18. desember sl. Hann var kanslari i V-Þýskalandi frá 1969-1974. Eftirmaður hans, Helmut Schmidt varð 70 ára þ. 23. desember. Hann var kanslari frá 1974-1982. Brandt og Schmidt eru báðir í flokki þýskra jafnaðarmanna og voru við völd samanlagt i rúm 13 ár. Að mati fréttaskýrenda í Þýskalandi og öðrum ríkj- um, hafa þeir skapað sér sér- stakan sess, í tiltölulega ungri sögu Sambandslýð- veldisins. ,,0STP0LITIK“ Willy Brandt, var aðalborg- arstjóri í Berlín frá 1957 til ársins 1966. Hann var aðstoð- ar-kanslari í Bonn frá 1966- 1969. Sem fyrsti kanslari samsteypustjórnarinnar í Bonn, kom hann á ýmsum þjóðfélagsbreytingum til hins betra í heimalandi sinu. Hon- um þótti takast sérstaklega vel til, þegar honum tókst, þrátt fyrir töluverðan mótbyr, að koma á tiltölulega eöli- legu sambandi milli V-Þýska- lands annars vegar og Sovét- ríkjanna og annarra ríkja i Austur-Evrópu hins vegar, með því sem kallað var „Ost- politik". Eftirmanni Willy Brandt, Helmut Schmidt tókst, þrátt fyrir að aðstæður í V-Þýska- landi færu versnandi, frá ár- inu 1974, að stjórna landinu á farsælan hátt, gegnum afleiö- Kjarvalsstaðir Sýníng á teikningum Kristjáns Guömundssonar Laugardaginn 28. janúar n.k. opnar að Kjarvalsstöðum sýning á verkum eftir Krist- ján Guðmundsson, sem ber yfirskriftina „Teikningar 1972- 1988“ Kristján var á sínum tíma einn helsti fulltrúi SÚM-hóps- ins og einna fyrstur til að til- einka sér myndmál og að- ferðir konseptlistarinnar f byrjun 8. áratugarins. Kon- septlist Kristjáns hefur ávallt verið með einkar fræðilegu sniði og stuðst við skýrar og afgerandi forsendur. Allt frá upphafi virðist list Kristjáns Guðmundssonar fjalla um lístina með stóru L-i, hvort sem það er með jákvæðum eða neikvæðum formerkjum. í fyrri verkum listamannsins miðast allt við að gera listina ekki list I hefðbundnum í Listasafni íslands standa nú yfir sýningar á íslenskum verkum í eigu safnsins. í sal 1 eru kynnt verk Jó- hannesar Kjarvals, Jóns Stef- ánssonar og Gunnlaugs Schevings. Landslagsmálverk Þórarins B. Þorlákssonar og Ásgríms Jónssonar eru sýnd í sal 2. Á efri hæð safnsins eru sýnd ný aðföng, málverk og skúlptúrar eftir Islenska lista- menn. Leiðsögn um sýningar „STEINN Grimur M. Steindórsson heldur sýningu í Listastofu Bókasafns Kópavogs 20. jan.-28. feb. 1989. A sýning- unni eru 20 verk, sem unnin eru á síðustu 2 árum og hafa ekki áður komið fyrir almenn- ingssjónir. Þau eru úr stáli og steini, bæði vegg- og skilningi, heldur hefta hana og loka frá allri löngun, ímyndun og hillingum, sem annars gæfu henni vængi. Verkin voru lokuð utan um eigin kenningar og klifun. Á síðustu árum hefur Kristján hins vegar opnað fyrir þátt- töku áhorfandans i verkum sinum, líkt og fleiri konsept- listamenn áttunda áratugar- ins, og boðið honum að njóta fagurfræðilegra unaðsemda myndverksins. Merkingar- kjarnanum hefur verið sundr- að og i stað hans er komið, svo aö notuð séu orð lista- mannsins sjálfs, „buðrarafl hráefnisins — staðbundinn orka þess“. Sýning Kristjáns að Kjar- valsstöðum er opin daglega frá kl. 11.00 til kl. 18.00 og stendur til 12. febrúar. í húsinu í fylgt sérfræðings fer fram á sunnudögum kl. 15 og eru auglýstar leiðsagnir ókeypis. Leiðsögnin „Mynd mánað- arins“ fer fram á fimmtudög- um kl. 13.30. Mynd janúar- mánaðar er „Hjartað" eftir Jón Gunnar Árnason. Lista- safn íslands er opiö alla daga, nema mánudaga kl. 11-17 og er aðgangur ókeypis. Veitingastofa hússins er opin á sama tfma. OG STÁL“ standmyndir. Grímur M. Steindórsson hefur fengist viö myndlist frá unga aldri, sótt námskeið i Myndlistaskóla Reykjavikur og meðal annars notiö hand- leiðslu Ásmundar Sveinsson- ar, Kjartans Guðjónssonar og Þorvaldar Skúlasonar. Sum myndverk Halldórs Ásgeirs- sonar eru samsett úr ólikum efn- um og spanna bæói vegg og gólf. Halldór Ásgelrsson sýnir á Kjarvalsstöðum Halldór Ásgeirsson, mynd- listarmaður, opnar einkasýn- ingu í Austursal og á gangi Kjarvalsstaða á laugardag. Myndlist Halldórs byggist á sjónrænu hugarflæöi sem hann skráir ósjálfrátt niöur. Efniviðurinn er tekinn úr um- hverfi og lifsreynslu lista- mannsins hverju sinni og eru m.a. ferðalög ríkur þáttur í hinni sjónrænu upplifun hvort sem auga og penni ferðist um óbyggðir íslands eða sigli upp ána Nil. — Þeg- ar kemur að úrvinnslu hug- myndanna staldarar Halldór við, igrundar efni og form gaumgæfilega þar til teikn- ingarnar sem hann skeytir saman á ólíkan hátt falla inn I efnið. Verkin eru máluð á pappír eða léreft, skorin út eða höggvin i tré, þar finnast bein og sviöin hurð, svart flauel og brotin gler o.fl. Sum myndverkin eru samsett úr ólíkum efnum og spanna bæði vegg og gólf. „Sögusmiðurinn" er mætt- ur í salinn þakinn myndum og frásögnum úr undirheim- um, þetta eru hugarbrot og örstutt Ijóð úr draumi og veruleika sem áhrofendum ber að túlka að eigin vild. Halldór Ásgeirsson er fæddur 1956 og nam mynd- list við Parlsarháskóla nr. 8 á árunum 1977;80 og 1983Í86. Þetta er 6. einkasýning Hall- dórs á íslandi en hann hefur sýnt og starfað að myndlist undanfarin ár bæði heima og erlendis. Gömlu meistararnir í Listasafni íslands

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.