Alþýðublaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 10
10
Laugardagur 29. aprll 1989
Hilma af Klint lét
eftir sig 1200 lista-
verk. Hún var
sögð mála í and-
legri vímu.
Myndirnar eru teknar í Listasafni íslands.
Einstœð syning í Listasafni íslands
HULUNNI LYFT
EFTIR DflUÐfl
Nú er búið að lyfta hulunni af leyndardómsfullum mynd-
heimi Hilmu af Klint. Hún lést 1944 og hafði þá bannað
sýningar á málverkum sínum í tuttugu ár eftir dauða sinn.
Nú er litið á þessa sænsku listakonu sem einn af brautryðj-
endum nútimalistar. Hún málaði óhlutbundnar myndir
löngu á undan frægum málurum eins og Kandinsky og
Mondian. Hún var í leiðslu þegar hún málaði merkilegar
opinberanir sínar. Síðar sagði hún að hún hefði orðið
skyggn. Sýning á verkum hennar var opnuð í Listasafni ís-
lands fyrir skemmstu.
fæddist I862í Karlbergs höll, for-
eldrar hennar voru Fredrik Viktor
af Klint, háttsettur herforingi, og
kona hans Andrietta Mathilda.
Strax á barnsaldri hafði hún yf-
irnáttúrulega hæfileika. Hilma
Iitla taldi sig sjá og heyra það, sem
aðrir urðu ekki varir við. Þegar
hún var 17 ára varð hún fyrst fyrir
Þegar Hilma af Klint andaðist
haustið 1944 lét hún eftir sig um
1200 listaverk sem engin óvið-
komandi hafði séð. í erfðaskrá
hennar stóð að ekki mætti sýna
nokkra þessara mynda fyrr en 20
árum eftir dauða hennar. Hún
vonaði að ókomin kynslóð gæti
skilið þessar leyndardómsfullu
myndir. Sjálf skildi hún þær ekki.
Nú er þessi sænska listakona
talin frumherji abstraktlistar
ásamt frægum málurum á borð
við Kandinsky, Malevitj, Mondri-
an og Kupka.
Óhlutbundin málverk Hilmu af
Kling voru í fyrsta sinn sýnd opin-
berlega á sýningunni The Spiri-
tual in Art. Abstract Painting
1890-1985 sem opnuð var í Los
Angeles í nóvember 1986.
Háspekileg list hennar vakti
þegar feikilega athygli. Ekki að-
eins í Los Angeles heldur einnig í
Chicago og í Haag þar sem sýn-
ingin var sett upp í haust. Það er
óneitanlega stórmerkilegt að
óþekkt sænsk kona skyldi, án
þess að nokkur vissi, mála óhlut-
bundnar myndir mörgum árum á
undan hinum frægu brautryðj-
endum.
Yfirnáttúrulegir hæfileikar
Þessi merkilega listakona
2D ARUNI
HENNAR
miðilsreynslu og gekk þá í sálar-
rannsóknafélag. Um það leyti dó
ein systir hennar og gæti það skýrt
áhuga hennar á að komast í sam-
band við annan heim.
Eftir samtöl við ættingja
Hilmu af Klint sjáum við fyrir
okkur fíngerða, smávaxna konu
með skærblá, hreinskilnisleg
augu. Hún var mjög ákveðin og
teinrétt í baki.
„Hilma frænka var harðdugleg
kona sem vissi hvað hún vildi,“
segir bróðursonur hennar, Björje
af Klint. Að loknu námi við Lista-
háskólann varð Hilma þekkt fyrir
að mála myndir úti í náttúrunni,
einkum af landslagi og vötnum.
Hún málaði einnig andlitsmyndir
eftir pöntunum.
Þegar Hilma af Klint var ung
varð hún ástfangin af lækni og
hann bað hennar. En hún vildi
ekki giftast. Hún taldi sín bíða
merkilegri viðfangsefni en bú-
sýslu í hjónabandi.
Hún var kosin ritari í félagi
sænskra listamanna árið 1912.
Um það leyti vissu fáir að hún
hafði lengi málað undir dulræn-
um áhrifum. Það hafði farið
mjög leynt.
Hilma af Klint var síður en svo
einræn. Hún hafði um sig hóp af
vinkonum og um tíma deildi hún
íbúð með Önnu Cassel, sem hún
hafði kynnst í kvennaskóla Lista-
háskólans.
„Hilma var í alla staði eðlileg, “
segir Ulla af Klint sem oft bauð
föðursystur bónda síns í mat. Það
gat sópað að henni, en hún var
aldrei skrýtin á nokkurn hátt.
Hún hafði áhuga á börnunum og
var grænmetisæta af trúarástæð-
um.“
Miðilsfundir
Hilma og nókkrar vinkonur
hennar, þar á meðal Anna Cassel
félagi hennar úr Akademíunni,
mynduðu saman trúarhóp. Þær
kölluðu sig „Hinar fimm“ eða
„Föstudagshópinn“. Þær hittust
einu sinni í viku og héldu miðils-
fund. Þá komust þær I samband
við anda sem hétu nöfnun eins og
Clemens, Gregor, Amaliel og
Ananda. Það var ekki nóg með að
Föstudagshópurinn gæti túlkað
boðskap þeirra um miðilinn með
„andapenna"; þegar konurnar
voru í leiðslu gátu þær einnig
teiknað þau skilaboð sem andarn-
ir fluttu sjónum þeirra. Fyrsta
andatrúar-teikning þeirra varð til
1892.
Miðilsfundir af þessu tagi voru
alls ekki fátíðir í lok 19. aldar.
Áhugi á dulrænum málum var í
tísku, ekki síst meðal myndlistar-
manna og rithöfunda.
Ernst Josephson fór t.d. að
teikna ósjálfráðar teikningar fyrir
innblástur anda árið 1888. Hann
tók þátt í miðilsfundum á eynni
Bréhat í Bretagne, upp frá því var
hann gripinn trúarangist og varð
síðar ólæknandi geðveikur.
Örlög þessa listamanns vöktu
skelfingu í Föstudagshópnum.
Það var bara Hilma af Klint, sem
ekki lét deigan síga. Hún var nógu
þrákelkin og sterk til þess að þora
áfram að teikna í leiðslu.
Guðspekilegir þankar
Undir lok 19. aldar varð hún æ
hugfangnari af guðspekikenning-
um um yfirskilvitlegan raunveru-
leika. Hún las t.d. rit rússneska