Alþýðublaðið - 05.09.1989, Side 2
MMÐUBLMIIÐ
Útgefandi: Blaö hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson
Dreifingarstjóri: Siguröur Jónsson
Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36
Prentun: Blaöaprent hf.
Áskriftarsíminn er 681866
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 75 kr. eintakiö.
INNGANGA BORGARAFLOKKSINS
Flokksstjórn Borgaraflokksins samþykkti um síöustu helgi aö
ganga til liðs viö ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. í þessari
viku veröur væntanleg innganga Borgaraflokksins lögðfyrir miö-
stjórnir og flokksstjórnir ríkisstjórnarflokkanna þriggja. Veröi inn-
ganga Borgaraflokksins samþykkt af framangreindum stjórnum,
mun breytt ríkisstjórn væntanlega taka viö völdum næstkom-
andisunnudag.
Ljóst er aö tveir þingmenn Borgaraflokksins taka viö ráöherra-
embættum. Formaður Borgaraflokksins, Júlíus Sólnes, tekur viö
embætti umhverfismálaráðherra um áramótin og verður jafn-
framt samstarfsráöherra Norðurlanda. Jafnframt mun Júlíus
vinna aö uppstokkun stjórnarráösins og mótun atvinnustefnu
ríkisstjórnarinnar. Óli Þ. Guöbjartsson mun gegna embætti
dóms- og kirkjumálaráðherra. Mjög hefur veriö um þaö deilt,
hvort ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar heföi átt að semja
viö Borgaraflokk um inngöngu í ríkisstjórnina eða mæta örlögum
sínum á Alþingi. Það hefur legiö fyrir, aö ríkisstjórnin er komin í
minnihluta á Alþingi og sem slík í stöðugri hættu aö frumvörp
stjórnarinnar veröi felld eöa þvæld af sterkari stjórnarandstööu.
Slík ríkisstjórn heföi ekki veriö starfhæf og stöðugt átt líf sitt und-
ir stjórnarandstöðunni. Þaö er því mikill styrkur og nauðsynlegur
fyrir ríkisstjórn Steinmgríms Hermannssonar aö fá Borgaraflokk-
inn til liðs viö sig.
Alþýöublaöiö hefur gagnrýnt hugsanlega inngöngu Borgara-
flokksins í ríkisstjórnina á þeim nótum, að hún mætti ekki verða
til þess aö Alþýðuflokkurinn keypti of dýru verði aðgöngumiða
flokks sem í raun getur varla talist lengur heilsteyptur flokkur.
Þaö eru því gleðitíðindi, aö veröiö fyrir Borgaraflokkinn er mun
lægra en menn óttuðust í upphafi. Alþýðuflokkurinn hefur ekki
þurft að láta nein ráðuneyti af hendi. Samstarfsráðherra Noröur-
landaráðs var vissulega áöur í höndum Alþýðuflokksins en telst
ekki til ráðuneyta. Það er rangt, sem komið hefur fram í fréttum,
aö Borgaraflokkurinn hafi fengið í sinn hlut forsetastól neöri
deildar. Hann er áfram sem áöur í höndum Alþýðuflokksins. Það
ereinnig mikilvægt, að ekki hefur verið hróflað viö málefnasamn-
ingi ríkisstjórnarinnar. Fyrri málefnasamningurinn stendur
óbreyttur, nema að við. hann hefur komiö viðbót sem kveöur á
um lækkun fjármagnskostnaöar og framfærslukostnaðar. Hin
stórfelldu heróp Borgaraflokksins um að „lækka matarskattinn"
og „skera niður skatta" hafa þagnað. Niðurstaðan er hins vegar
sú, að innlent grænmeti verði í lægri hluta virðisaukaskatts og að
hæsta þrep eignarskattsins verður lækkað með samræmdri
skattlagningu fjármagnseigna og tekna. Alþýðublaðið fagnar því,
að innganga Borgaraflokksins hafi styrkt ríkisstjórnina í sessi og
gert hana starfhæfa fyrir komandi þing án þess að þessar breyt-
ingar hafi haft í för með sér nein umskipti á stefnu ríkisstjórnar-
innar.
"að mikilvæga í dag er, að ríkisstjórn Steingríms Hermannsson-
ar hefur hlotið olbogarými í þinginu og fengið stóraukna sóknar-
möguleika. Þessa stöðu á ríkisstjórnin að nýta sér. Nú verður að
hefjast handa við að stokka upp atvinnulífið, byggja upp nýjar at-
vinnugreinar og treysta undirstöður þeirra sem fyrir eru til að
tryggja þjóðartekjur og skapa næga atvinnu í landinu. Ríkis-
stjórnin verður að taka sjávarútvegsmál og landbúnaðarmál föst-
.um tökum. Þar getur stjórnin ekki sagt pass líkt og Sjálfstæðis-
flokkurinn. Ríkisstjórnin verður ennfremur að leggja fram stór-
felldaráætlanir um stóriðju og orkumál, fjármagnsmarkað, aukin
tengsl íslands við umheiminn á öllum sviðum, draga stórlega úr
ríkisumsvifum og lækka framfærslukostnað með opnari við-
skiptaháítum og verslun. Innganga Borgaraflokksins má ekki
verða framlenging á lífi ríkisstjórnartil þess eins að halda í henni
lífinu. Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar verður nú að
sanna, að hún sé þess verð, að líf hennar hafi verið framlengt.
Þriðjudagur 5. sept. 1989
ÖNNUR SJÓNARMIÐ
LANDBÚNAÐURINN á íslandi tek-
ur á sig æ undarlegri og sérkenni-
legri mynd. Málgagn bænda, Tím-
inn, birti frétt á laugardaginn þar
sem lesa má um hin skrýtnu hlut-
skipti bænda í dag, m.a. að fara í
göngur þótt ekkert fé sé til reksturs.
Lesum Tímann:
„Menn verða víst að fara þó
engin sé kindin,samkvæmt regl-
unum,“ sagði Árni Steingríms-
son bóndi á Ingvörum í Svarfað-
ardalshreppi og gangnaforingi í
Sveinsstaðaafrétt. Sem kunnugt
er var allt fé skorið í Svarfaðar-
dal og nágrenni sl. haust vegna
riðuveiki, sem þar kom upp.
Hann sagði að reyndar ættu
menn að fara að minnsta kosti
tvisvar í göngur á hverju hausti,
en líklega yrði bara farið einu
sinni, enda hefði fengist undan-
þága frá ráðuneytinu þess efnis.
„Það verða þá bara teknar kind-
ur síðar ef þær þá sjást,“ sagði
Árni. Aðspurður sagði hann að
ekkert væri eftir af rollum í daln-
um, en hins vegar gætu þær allt-
af komið annarstaðar frá, þó svo
að enginn hafi séð kind í dalnum
i sumar, svo hann vissi.
Árni sagði, að vissulega væri
það skrýtið að þurfa að fara í
göngur, þegar enga rollu vant-
aði. Hvað ef einhverjar rollur
finnast? „Ætli þeim verði þá
ekki slátrað hér. Þær fara ekki
til baka,“ sagði Árni.
Tungurétt er aðalréttin í
hreppnum og sagði Árni að þar
yrði réttað þann 17. september.
„Reynt verður að hafa þetta
svipað og venjulega, þó um fjár-
laust ár sé að ræða og enginn bil-
bugur á mönnum í því efni. Það
verður þá bara meiri tími fyrir
pelann,“ sagði Árni. Þeir sem
koma til með að fara um Sveins-
staðaafrétt leggja upp laugar-
dagsmorguninn 16. september.
Að ári verða réttir hins vegar
með hefðbundnu sniði í dalnum,
þar sem fyrirhugað er að kaupa
370 lömb í hreppinn."
Það verður væntanlega ferð til
fjár.
MARGIR hrukku í kút þegar forsæt-
isráðherra lét að því liggja, að erlent
fjármagn væri að baki kaupum Stál-
víkur hf. á Sigurey BA frá Patreks-
firði. Morgunblaðið, sem gjarnan
kafar dýpra en önnur blöð en þó
ævinlega með fæturna upp úr og á
þurru, fer í rannsóknarblaða-
mannastellingar sl. sunnudag og
reynir að komast að hinu sanna.
Morgunblaðið leitaði m.a. til Sverris
Hermannssonar forsætisráðherra
um málið.
Blaðið skrifar:
Hvers vegna er þá hvíslað eins
og nú síðast um Stálskiphf.?
Sverrir Hermannsson banka-
stjóri og fyrrverandi alþingis-
maður er gagnkunnugur þess-
um málum. Hann segir Stálskip
hf.: „Það var hávaðaumræða á
kajanum í gamla daga. Þannig
var að Ágúst Sigurðsson, maður
Guðrúnar Lárusdóttur, kaupir
skip sem strandaði held ég í Arn-
arnesinu, Boston Wellvale, norð-
ur á Isafirði. Það reyndist bara
skínandi skip sem hann gerði
upp fyrir lítið verð og gerði út og
þénaði peninga. Svo skeður það
næst að þau kaupa gamalt skip
frá Bretlandi. Og, kerfið, sem vill
nú vita af öllu, varð afskaplega
stromphissa og allir á kajanum,
því að enginn vissi af tilvist
þessa skips eða að það væri yfir-
leitt væntanlegt fyrr en það kall-
aði á lóðs í mynni Hafnarfjarðar.
Þess vegna sögðumenn: Noh!Nú
er einhver frá Boston Deep Sea
eða Helleyers að senda hingað
inn á miðin okkar! Ég held að
þetta útgerðarfólk hafi alltaf
klárað sig afbragðsvel, eins og
dæmin sanna núna, verið mjög
sniðug og séð og gengið vel.
Hann rótfiskaði þessi Boston
Sverrir: Maðurinn með stálhnefana
segir sögur af kerfisköllum með kald-
ar lúkur.
Wellvale og allt hefur gengið
ljómandi vel á lágmarkskostnaði
og í miklum kyrrþey hjá þessari
stórséðu bissnesskonu. Ég
minnist aldrei annars en orð-
rómsins, kvitts sem gekk á kaj-
anum, og svo frá þessum kerfis-
mönnum, sem helst vilja halda
að ekki sé allt með felldu ef það
gengur ekki í gegn um þeirra
náðarsamlegustu lúkur.“
Sjálfs er höndin hollust, Sverrir!
Einn með kaffinu
Maður sótti um vinnu en fékk
neitun vegna þess að engin
staða var laus hjá fyrirtækinu.
Umsækjandinn gafst ekki upp
og sagði: „Það gerir ekkert til,
ég vinn svo illa og lítið, að það
tekur enginn eftir því hvort
sem erl!"
DAGATAL
Mildi og mannúð og meira til
t*á er Borgaraflokkurinn kominn
í ríkisstjórn. Þeir eru búnir, að
sögn formanns flokksins, að
standa í erfiðum slag og talsverð-
um mannraunum við að komast í
stjórnina. Ekki vissi ég að það
væri svona eftirsóknarvert að
komast í ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar.
En það er greinilegt að formað-
ur Borgaraflokksins er tilbúinn að
svitna talsvert til að komast í ríkis-
stjórnina.
Gamli formaður Borgaraflokks-
ins sem nú er sendiherra Islands í
Frakklandi, sagði hins vegar á
beinni línu frá París, að Borgara-
flokkurinn væri orðinn vinstri
flokkur og ætti enga framtíð fyrir
sér. Það getur vel verið rétt, en
hins vegar er það nú Borgara-
flokknum að þakka að ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar á
framtíð fyrir sér. Og er það ekki í
gömlum anda Borgaraflokksins
að sýna mildi og mannúð? Sendi-
herrann í París þarf að fara að
hressa upp á minnið.
Landsbankinn er búinn að kaupa
Samvinnubankann. Þeir á DV
.segja að banki samvinnumanna
hafi kostað 880 milljónir króna.
Það er eitthvað upp í skuldir SÍS í
Landsbankanum. Það er sniðugt,
að hægt sé að taka SÍS upp í skuld-
ir. Áður fyrr tók SÍS aðra upp í
skuldir. Landsbankinn hefur verið
nokkuð grimmur við skuldunauta
sína að undanförnu. Menn minn-
ast aðfararinnar gegn OLÍS. Þá átti
að taka olíufélagið upp í meinta
skuld. En Óli í OLÍS þekkir sína
menn, sneri á bankastjórana og
fékk TEXACO í lið með sér. Og um
leið og Ijóst var að Bandaríkja-
menn voru komnir í spilið, búkk-
aði bankdirektör Hermannsson
og sagði: „Jess. Ókei."
Og Öli glotti við ríkisbankastjór-
anum. Bankastjórar Samvinnu-
bankans glotta hins vegar ekki að
bankdirektör Hermannsson. Það
verður hins vegar ekki aftur snúið
Eða eins og Mikki refur segir á
frummálinu í norska barnaleikrit-
inu um dýrin í Hálsaskógi: „Spist
er spist!"
t*eir á Dv eru alltaf jafn frumlegir.
Stundum raða þeir þúsund köllum
upp í súlur og láta þær ná marg-
faldri hæð Hallgrímskirkju ef
sanna á svimandi ríkisútgjöld. Og
stundum gera þeir eitthvað ennþá
sniðugra svo að ólæsir lesendur
DV geta haft gagn og gaman af
lestrinum.
Ég rakst á DV í gær og sá að
blaðið hafði slegið því upp að níu
ráðherrar hefðu fimmtán aðstoð-
armenn á sínum snærum. Og að
þetta tiltæki kostaði ríkissjóð um
25 til 35 milljónir á ári. Nú halda
auðvitað DV-menn að það eigi
ekki að kosta neitt að reka ráðu-
neyti og að ráðherrar eigi að gera
alla vinnuna sjálfir. Að eigilega
ætti eini starfskrafturinn í hverju
ráðuneyti að vera ráðherrann.
Frumleg hugsun.
Ég hugsaði bara með sjálfum
mér: Hvað skyldu vera margir að-
stoðarmenn í kringum tvo rit-
stjóra DV? Ef blaðamennirnir eru
taldir sem aðstoðarmenn, svo og
prófarkalesarar, Ijósmyndarar og
eitthvað skrifstofulið, þá má ætla
að um 25 manns séu í kringum
hvorn ritstjórann.
Hvað skyldi það kosta okkur les-
endur?
Friðrik Sophusson (þessi í Sjálf-
stæðisflokknum) segir í DV í gær
að sjálfstæðismenn séu þeir einu
sem geti leyst landbúnaðarmálin
en hins vegar hafi frekari stefnu-
mörkun í landbúnaðarmálum ver-
ið frestað.
Það sem Frikki á við, er að Sjálf-
stæðisflokkurinn er eini flokkur-
inn sem getur endalaust frestað
málunum.