Tíminn - 31.01.1968, Page 16
25. tbl. — Miðvikudagur 31. jan. 1968. — 52. árg.
40% VORUFLUTNINGAA UKN
ING VARÐ HJÁ LOFTLEIÐUM
i FYRSTU 11 MÁNUÐI SÍÐASTA ÁRS
Brak úr brezkum togara rekur á fjörur við Axarfjörð
TOGARINN FÓRST
VID MÁNÁREYJAR
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Allar líkur benda til að tog-
arinn Kingston Peridot frá Hull
hafi farizt í ofviðri við Mánár.
eyjar 26. janúar s.l. í dag var
skipulögð leit og var gengið á
fjörur á svæðinu milli Húsa-
víkur og Raufarhafnar.' Önn-
uðust björgunarsveitir Slysa.
varnarfélagsins leitina. Hríð
var fyrir norðan í dag og
skyggni ekki yfir 200 metrar
og torveldaði það leitina mjög.
Ekki var flugveður og því ekki
hægt að leita úr lofti. Einnig
var gengið á fjörur í Grímsey.
Þegar hafa fundizt þrír bjarg.
hringir úr togaranum reknir á
fjörur og einnig gúmmíbjörg-
unarbátur sem staðfest er að
hafi verið um borð í Kingston
Peridot. Fullvíst þykir einnig
að olían sem flýtur á Axarfirði
sé úr togaranum.
Seint í gærdag var Slysa-
varnarfélaginu tilkynnt að fund
izt hafi gúmmíbátur í fjörunni
innan við Kópasker. Einnig
barst fregn um að fuglar sem
voru löðrandi í olíu hafi rekið
á fjörur í nágrenni Kópaskers.
Sagði Hannes Hafstein hjá
Slysavarnarfélagin'U Tímanum
í dag, að þegar þessar frétir
bárust hafi verið óttazt að eitt-
hvert óhapp hafi skeð. Var þá
þegar leitað til strandstöðva til
að ganga úr skugga um hvorf
skip hafi sent frá sér beiðni
um aðstoð. Ekki voru tök á að
leita í gær vegna hríðarveðurs
og myrkurs. Með birtingu í
morgun var farið að kanna
gúmmíbátinn og ganga á fjör-
ur. Um svipað leyti barst Slysa
varnarfélaginu tilkynning um
að togarans væri saknað.
Hófst leit að honum þegar
í morgun. Gerðar voru út björg
unarsveitir frá Húsavík og Þórs
höfn og á svæðinu þar á milli
Tóku fjölmargir bændur þátt
í leitinni og gengu á fjörur
í landareignum sínum. For-
menn slysavarnardeildan-na
stjórnuðu leitinni og skiptu
með sér leitarsvæðum.
Slysavarnarfélagið fékk mjög
nákvæma lýsingu- á gúmmí-
bátnum sem fannst í gær. í
hönum fannst einkennisnúmer-
ið 991 og fékkst í dag stað-
festing á því frá Englandi að
gúmmíbáturinn væri úr Kings
ton Peridot.
Síðast heyrðist til togarans
kl. 10 að morgni 26. janúar.
iíafði skipstjórinn þá samband
við togarann Kingston Sardius,
sem er í eigu sama útgerðar-
félags. Var Kingston Peridot
þá að veiðum vestan Grímseyj-
ar og var á austurleið.
Þegar staðfesting fékkst á
að gúmmíbáturinn væri úr tog
aranum þótti sýnt að hann hafi
farizt og var leitin hert að
mun. Tryggvi Helgason flug-
maður á Akureyri var til taks,
Framhald á bls. '4
ÁRSREIKNINGUR BÚNAÐARBANKANS:
Snnlánaaukn ingin tæpar
200 milljónir áriö 1967
Stofnlánadeild og veSdeild lánuSu 146í7 milljónir á árinu.
IGÞ-Reykjavík, þriðjudag.
Tímanum hefur borizt reiknings
yfirlit Búnaðarbanka íslands en
bankastjóramir Stefán Hilmarsson
og Þórhallur Tryggvason Iögðu
fram reikninga bankans og allra
útibúa lsans fyrir árið 1967 á
fundj bankaráðs fimmtudaginn 25.
janúar 1968. Rekstrarhagnaður
viðskiptabankans í Reykjavík varð
rúmar 3.3 milljónir, en séu úti-
búin talin með varð hagnaðurinn
10,1 milljón árið 1967. Heildar-
aukning innlána í bankanum með
útibúum, varð samtals 190,2 mill
jónir og er það um 13.4% liækk
un frá árinu áður. Heilda^innstæð
ur námu í árslok rúmum einum
og hálfum milljarði.
Búnaðarbankinn starfrækir nú
I fimm útibú í Reykjavík og átta
| úti á landi. Á árinu varð hagnað
| tfr af rekstri þeirra allra. Bank
! inn setti á stofn eitt útibú á ár-
inu. Er það fyrir Árnessýslu og er
staðsett í Hveragerði. Það tók til
starfa 11. ágúst, en um leið hætti
Sparisjóður Hveragerðis og ná-
grennis að starfa og sameinaðist
útibúimu. Innlán útibúsins námu
44,5 millj. í árslok og höifðu auik
izt frá stofnun þess um 35,3 millj.
eða um 382.%.
Aðalbankinn í Reykjavík býr nú
við mikil þrengsli í húsi sínu við
Austurstræti og Hafnarstræti, og
starfar þar fleira fólk miðað við
fermetratölu hússins en forsvar
anlegt þykir og almennt tíðkast
um skrifstofuihúsmæði.
Sömiu sögu er að segja um Aust
urbæjarútibú, enda leigutími senn
á enda í húsi Tryggingarstofnunar
[ ríkisins að Laugavegi 114.
j Af þessum ástæðum var á síð
| asta ári hafizt handa um nýbygg
í ingu yfir Austurbæjarútibú og
j nokkrar aðrar deildir bankans að
| Laugavegi 120. Áformað er. að
i flutt verði í þetta nýja húsnœði
I á næsta ári.
Stíersta útibú bankans er Aust
urbæjarúti-bú í Reykjavík, sem
geymir um 175 milIjMkr. í innlán
um.
Stærstu útibú úti á landi eru á
Sauðárkróki 91,2 millj. kr. aukn I
img 1967 varð 9,5 millj. kr. eða |
11,7% , á Akureyri 84,5 millj., i
kr„ aukning varð 4,6 millj., kr. j
eða 5,7% og á Hellu 70,5 millj. ;
kr. aukning varð 20.8 millj. kr j
eða 40,9%
Stofnlánadeild landbúnaðarins
Framhald á bls. 14
Þórhallur Tryggvason
FB—Reykjavík, þriðjudag.
Geysileg aukning varð á vöru-
flutningum hjá Loftleiðum 11 mán
uði ársins 1967, en tölur þær sem
birtast í fréttabréfi félagsins ná
fram til nóvemberloka. Þar kem
ur fram, að aukningi var 40% á
þessu tímabili, niiðað við árið á
undan. Mest varð aukningin á
leiðinni milli Luxemborgar og
New York, hvorki meira né minna
en 1782%, eða úr 4 tonnum í
70 tonn. Þessi mikla aukning mun
eiga rætur að rekja til þess að
í júlí síðastliðnum var tekin upp
flutningaþjónusta frá ýmsum stöð
um á meginlandi Evrópu til Lux
emborgar á vegum Loftleiða.
Fyrstu 11 mánuði síðasta árs
jukust farþegaflutningar Loft-
leiða um 12,1% og voru þá flutt
ir 175.246 farþegar. Aukning sæta
kílómetra varð 9.9% og farþega
kílómetra 11,2%.
Árið 1967 urðu gistinætur í
Hótel Loftleiðum 34.605 talsins.
Nýting hótelsins var frá'39,4% í
febrúar upp í 94. 2% í ágúst, og
er meðaltalið því 65,3%. Gistinæt
ur síðuistu tvo mánuði ársins urðu
2.592 í nóvember og 1829 í des
ember og nýtingin þessa sömu
mánuði 58,8% og 42,4%.
Tala hinna svökölluðu SOP far
þega Loftleiða varð 10.240 á ár-
inu. Þar af voru 2499 hér í tvo
sólaríhringa, eða 24.4%. Árið 1966
voru flestir SOP-fanþegar hér í
ágústmánuði, en þessu var öðru
vísi farið síðasta ár, þegar flestir
farþegar stoppuðu hér í október,
eða samtals 1375. í nóvember
voru SOP farþegarnir 815 og I
desember 644.
Framsóknar-
vist á
Hótel Sögu
Framsóknarfélag Reykja
víkur heldur framsóknar
vist að Hótel Sögu
fimmtudaginn 8. febr.
næstkomandi. Er þetta
annað kvöldið í fjögurra
kvölda keppni, en aðal-
vinningarnir eru flugför
til Evrópu fyrir þá tvo
einstaklinga, sem hæstir
verða í allri keppninni.
Auk þess éru veitt ,sér-
stök kvöldverðlaun fyrir
hverja vist. Aðgöngu-
miða er vissast að panta
sem fyrst í síma 24480.
Leitaði landvistarleyfis á Islandi
til að þurfa ei að berjast í Vietnam
Stefán Hilmarsson
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Rúmlega tvítugur Bandaríkja
maður bað í gær um hæli hér
á landi sem pólitískur flótta-
maður. Maður þeSsi er kyænt
ur íslenzkri konu og komu þau
til íslands s. 1. sunnudag. í
gær sneri hann sér svo tjl
útlendingaeftiriitsins og bað
um landvist hér. Ástæðuna seg
ir maðurinn að hann sé á móti
hernaði Bandaríkjanna i Viet
nam, en búið var að tilkynna
honum að þangað ætti að senda
hann. Ilerskyldutíma flótta-
mannsins lýkur í september
1968.
Hjóniin komu með Loftleiða
flugvél frá New York, en
þau voru búsett í Kaliforníu.
Fóru þau fyrst til Kanada og
þaðan til New York. Útlend
ingaeftiriitið sendi beiðni flótta
mamnsins til dómismálaráðu-
neytisins 02 verður tekin þar
ákvörðun um landvistarleyfi
hans.
Þegar Tíminn talaði í dag
við Bald-ur Möller, ráðuneyt
isstjóra, sagði hann að viðbúið
væri. að það tæki nokkurn
tíma að afgreiða málið. Það
dregst í sjálfiu sér ekki á
langinn að leyfa manninum
landvist. En aftur á móti er
Framhald á bls. 15