Alþýðublaðið - 19.09.1989, Síða 8
Forsœtisráö-
herra gagnrýnir
seölabankastióra:
Meiri þörf
ó breyttu
inntaki en
umgjörð
segir Jón Sigurdsson
viöskiptaráöherra.
„Eg á ekki neinn hlut að
þeim yfirlýsingum," sagði
Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra þegar Alþýðu-
blaðið ræddi við hann í
gær í tilefni ummæla
Steingríms Hermannsson-
ar forsætisráðherra um
starfsemi Seðlabankans
og seðlabankastjóra.
Steingrímur hefur m.a.
lýst þeirri skoðun sinni að
skipta beri um seðlbanka-
stjóra þegar nýjar ríkis-
stjórnir taki við völdum.
Forsætisráðherra hefur
ennfremur varpað fram
þeirri hugmynd að endur-
vekja okuriögin svoköll-
uðu.
,,Ég heid að það sé meiri
þörf fyrir breytingar á inntaki
peningamálastjórnarinnar,
en fyrir breytingar á um-
gjörðinni. Ég vil nálgast
þannig málið og held að
stjórnskipulag sé ekki það
sem mestu máli skiptir í
þessu sambandi," sagði við-
skiptaráðherra.
— Ertu með þessu að gagn-
rýna yfirstjórn efnahagsmál-
anna frá hendi forsætisráð-
herra?
„Nei. Ég tel mig ekki vera
að því. Eg sakast ekki við
einn þátttakanda í þessu
margþátta viðfangsefni,"
sagði Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra.
Bankastjórar ó
fund róðherra
Bankastjórar Landsbank-
ans hitta Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra að máli í dag
vegna fyrirhugaðra kaupa
Landsbankans á Samvinnu-
banka, en ráðherrann tekur
ákvörðun þegar álit Banka-
eftirlitsins og Ríkisendur-
skoðunar liggur fyrir.
VEDRIÐ
ÍDAG
Allhvöss norðaustanátt
með rigningu á Norður- og
Austurlandi, en þurrt og
sums staðar bjart verður
Suðvestanlands. Hiti
verður á bilinu 4—12 stig.
Hlýjast á Suðausturlandi.
Þriðjudagur 19. sept. 1989
Bankaeftirlitiö áminnir bankaráösmenn og bankastjóra:
HARRETT VARNAÐARORÐ
segir viöskiptaráöherra
„Stundum þarf að
segja það sem virðast
kann sjálfsagt. — Að
menn eigi ekki að vera
að fleipra á opinberum
vettvangi með viðkvæm
viðskipta- og peninga-
mál af þessu tagi,“ sagði
Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra þegar
Alþýðublaðið innti hann
álits á þeirri ákvörðun
Seðlabanka að senda
bankaráðsmönnum og
bankastjórum Lands-
bankans bréf þar sem
þeir eru minntir á þagn-
arskyldu í starfi. í bréf-
inu er einnig áminning
um að hér eftir verði
gripið til viðeigandi ráð-
stafana verði menn upp-
vísir af því að brjóta
bankaleynd.
Aðspurður sagði Jón Sig-
urðsson að ákvæði í banka-
lögunum væru nógu skýr.
„En það þarf náttúrlega að
sýna að þau séu ekki dauð-
ur bókstafur. Þess vegna tel
ég þessi varnaðarorð
bankaeftirlitsins hárrétt,"
sagði viðskiptaráðherra.
Umfjöllun Bankaeftirlits-
ins er m.a. til komin vegna
ummæla Lúðvíks Jóseps-
sonar bankaráðsmanns
vegna viðskipta Lands-
bankans og Samvinnu-
bankans.
Yfirmaöur Atlantshafsflota NATO í opinberri heimsókn:
Keflavíkurstöðin jafn mikil-
væg og áður fyrir NATO
Yfirmaður Atlantshafs-
flota Atlantshafsbanda-
lagsins, Frank B. Kelso yf-
irflotaforingi, var staddur
hér á landi í gær í opin-
berri heimsókn í boði
Jóns Baldvins Hannibals-
son utanríkisráðherra.
Heimsóknin hingað til
lands var fyrsta embættis-
för Kelso eftir að hann
varð einn af þremur yfir-
flotaforingjum Atlants-
hafsflotans.
Jón Baldvin og Kelso rædd-
ust við í gærmorgun. Á stutt-
um blaðamannafundi í ráð-
herrabústaðnum sagði utan-
ríkisráðherra að viðræðurn-
ar hefðu fyrst og fremst snú-
ist, samskipti íslendinga við
Varnarliðið og hefði verið far-
ið yfir býsna mörg mál. Meðal
annars var rætt um fram-
kvæmdir Varnarliðsins, upp-
byggingu ratsjárstöðvanna,
hlut Islendinga að því er
varðar hugbúnað i ratsjár-
stöðvunum, nýju vatnsveit-
una á Suðurnesjum og niður-
stöður æfinganna á sl. vetri.
Þá var m.a. rætt um varaflug-
vallarmál.
Utanríkisráðherra sagði
ekki ástæðu til að skýra frá
neinurh niðurstöðum eftir
viðræðurnar, því hér hefði
fyrst og fremst verið um
gagnlegan vinnufund að
ræða.
Kelso sagði aðspurður að
hlutverk stöðvarinnar í Kefla-
vík væri jafnmikilvægt fyrir
Nato og áður, þrátt fyrir betri
samskipti á milli austurs og
vesturs.
Frank B. Kelso, yfirflotaforingi, og Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra ræddu stutt við
blaðamenn í ráðherrabústaðnum. A-mynd/E.ÓI.
Fyrirframsala á síld:
Svíar og Finnar með
60—70 þúsund tunnur
Erró gaf borginni um
tvö þúsund listaverk
Korpúlfsstaðir ný listamiðstöö
Samningar hafa tekist
við fulltrúa helstu saltsíld-
arinnflytjendur I Svíþjóð
og Finnlandi um söluverð
og aðra söluskilmála í fyr-
irframsölu á síld. Með fyr-
irvara um staðfestingu á
endanlegu samnings-
magni liggur fyrir að um
svipað magn verður og í
fyrra eða samtals 60—70
þúsund tunnur.
Samkvæmt hinum nýja
samningi við þessa aðila
hækkar söluverðið á hefð-
bundnum tegundum um 6—
7% frá fyrra ári, en söluverð-
ið er í sænskum krónum og
finnskum mörkum.
Samningaumleitanir um
fyrirframsölu á saltaðri síld til
Sovétríkjanna eru þegar
hafnar, en formlegar samn-
ingaviðræður hafa enn ekki
hafist og ennþá liggur ekki
Ijóst fyrir hvenær sovétmenn
verða tilbúnir til viðræðna.
Við opnum málverka-
sýningar Errós á Kjarvals-
stöðum á laugardaginn,
skýrði borgarstjórinn,
Davíð Oddsson, frá því í
ræðu við opnunina að
listamaðurinn hefði
ákveðið borginni um 2000
iistaverk. Verkinn spanna
allan listamannsferil Err-
ós, allt frá æsku fram á
daginn í dag. Gjöfinni
fylgdi einnig fyrirheit um
fleiri verk í framtíðinni.
Borgarstjórinn í Reykjavík
sagði að fyrirhugað væri að
koma verkum Errós fyrir á
listamiðstöð að Korpúlfsstöð-
um. Auk þess að húsa lista-
verk Errós er fyrirhugað að
vera með ýmiss konar menn-
ingarstarfsemi að Korpúlf-
stöðum svo sem leiklist,
höggmyndalist, tónlist og rit-
list.
Gjöf Errós er mikil fengur
fyrir höfuðborgina og reynd-
ai alla landsmenn. Erró er án
efa þekkasti myndlistarmað-
ur sem þjóðinn hefur eignast
og er það órpetanlegt að
hann skuli hafa kosið að lista-
verkasafn hans iverði varð-
veitt hér á landi dn hann hef-
ur lengst af starfað erlerjdis
eins og alþjóð er 'jcunnuglj.