Alþýðublaðið - 28.12.1989, Qupperneq 1
Norrœni menn-
ingarsjóöurinn:
Þrír styrkir
til íslands
Meðal þeirra sem fengu
úthlutad úr Norræna
menningarsjóðnum, en út-
hlutunin var kunngerð nú
skömmu fyrir jól, eru Sin-
fóníuhljómsveit Islands,
sem fær 150.000 danskar
krónur, eða tæpar 1.4
milljónir íslenskra króna,
til tónleikaferðar um
Norðurlönd. Jazzvakning
fær rúmar 800.000 ís-
lenskar krónur krónur til
að standa fyrir norrænum
útvarpsjassdögum og
íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur fær um
460.000 krónur til að
halda ráðstefnu fyrir fólk
á Norðurlöndum sem
starfar með unglingum.
Norræni menningarsjóður-
inn hefur til úthlutunar rúm-
ar 4 milljónir danskra króna
eða sem samsvarar tæplega
37 milljónum íslenskra
króna. Hæsti styrkurinn að
þessu sinni var að upphæð
400.000 danskar krónur, eða
um 3.7 milljónir íslenskra
króna, og fór hann til Pomp-
idou safnsins í París en safnið
ráðgerir að nota féð til að
kynna norræna kvikmynda-
sögu, halda sýningu og gefa
út bók í tengslum við efnið.
Rúmenía:
Ceausescu-
hjónin
tekin
af liii
Ingólfur Margeirsson ritstjóri
fjallar um fall Ceausescus í
fréttaskýringu í Alþýðublaö-
inu í dag. Ennfremur eru at-
burðirnir í Rúmeníu um há-
tíðarnar til umfjöllunar í ieið-
ara Alþýöblaðsins í dag.
Sjá bls. 2 og 5
Virðisaukinn hækk-
ar suntar tryggingar
Kostnaöur tryggingafélaganna eykst í allmörgum tiluik-
um. Tjónakostnadur vegna húseigendatryggingar hœkk-
ar um 11%.
Sum tryggingaiðgjöld
munu hækka vegna til-
komu virðisaukaskatts-
ins um áramót. Skattur-
inn leggst á ýmsan
kostnað tryggingafélag-
anna sem áður var und-
anþeginn söluskatti og
hefur þannig óbein áhrif
til hækkunar. Þyngst
koma þessar breytingar
niður á húseigenda-
tryggingum, en talið er
að tjónakostnaður félag-
anna vegna þeirra muni
hækka um allt að 11%.
Fram aö þessu hefur kast-
Ijósi fjölmiöla einkum
verið beint að niðurfell-
ingu skatts af bílatrygg-
ingaiðgjöldum. Þessi iö-
gjöld ásamt iðgjöldum ým-
issa annarra trygginga
munu vissulega lækka sem
núgildandi söluskatti nem-
ur, að frádregnum árviss-
um verðbólguhækkunum.
'I'ryggingafélögin eru í
sjálfu sér ekki undanþegin
virðisaukaskatti og hann
hefur því áhrif á ýmsa
kostnaðarliöi í starfsemi
þeirra.
Viðgerðarkostnaöur
vegna tjóna, mun t.d. bera
virðisaukaskatt. Petta gild-
ir m.a. um ýmsan kostnaö
sem fram aö þessu hefur
verið undanþeginn sölu-
skatti, svo sem vinna viö
hús og húsbyggingar á
byggingarstað. Á slíka
vinnu leggst nú virðisauka-
skattur, nema í þeim tilvik-
um sem viðgeröin eða end-
urbæturnar fara yfir 7% af
heildarverðmæti eignar-
innar.
Aö sögn Sigmars Ár-
mannssonar hjá Sambandi
íslenskra tryggingafélaga
eru tryggingafélögin þessa
dagana að reikna þessi
áhrif, en útkoman getur
verið talsvert misjöfn eftir
félögum. Sigmar sagði enn-
fremur að reikna mætti
með aö viröisaukaskattur-
inn hækkaði almennan
rekstrarkostnað félaganna
um 1%. Svo dæmi væru
tekin um hækkun tjóna-
kostnaðar, nefndi Sigmar
að tjónakostnaður trygg-
ingafélaganna vegna heim-
ilistrygginga gæti hækkað
um 4% og vegna húseig-
endatrygginga um allt aö
11%.
Af hálfu tryggingafélag-
anna hefur enn ekkert ver-
ið ákveöiö um það á hvern
hátt þessi kostnaöarauki
birtist í hækkuðum iðgjöld-
um en Sigmar Ármannsson
kvaðst þó telja nokkuö Ijóst
að þar hlyti hann að sjást
að lokum.
Snjódekkin loksins undir!
Fyrsti almennilegi snjórinn i Reykjavik sá dagsins Ijós i gær og eins og viö var aö búast yfir-
fylltist allt á dekkjaverkstæöum höfuöborgarsvæöisins. Eins og oft áöur er skýringin ein-
föld: Æðimargir biöa fram á siöustu stund og fram yfir hana —■ kannski i von um að snjórinn
láti ekki sjá sig þennan veturinn— A-mynd/E.ÓI.
Umfangsmikill samningur um
orlofsferöir í buröarliönum:
Til Hafnar fyrir
rúmar 16.000 kr.
Allar líkur virðast á því
að umfangsmiklir samn-
ingar takist milli laun-
þegahreyfingarinnar,
Samvinnuferða/ Lands-
sýnar og Flugleiða um or-
Iofsferðir á næstkomandi
sumri. Samkvæmt heim-
ildum Alþýðublaðsins
hljóðar tilboðið til laun-
þegahreyfingarinnar
uppá 4.500 sæti til ýmissa
áfangastaða í Evrópu.
Samkvæmt heimildum AI-
þýðublaðsins er verka-
lýðshreyfingin mjög sátt
við þau verð sem í boði
eru, sem dæmi má nefna
að í boði er fargjald til
Kaupmannahafnar fyrir
rúmar 16.000 krónurog til
Lúxemborgar fyrir rúmar
17.000 krónur. Að auki er
boðið upp á barnaafslátt,
um 5.000 krónur af fullu
verði.
Engir samningar liggja enn
fyrir eftir því sem næst verð-
ur komist en talið er að ekki
verði langt að bíða þess að
þeir takist. Heimildamenn
Alþýðublaðsins fullyrða að
þau verð sem í boði eru séu
afar hagstæð og að auki er
hægt að komast víða um álf-
una í þessum orlofsferðum.
Þar hafa verið nefndir til stað-
ir, auk þeirra sem þegar er
getið, t.d. London og Salz-
burg.
Utanríkisráöherra um aftöku Ceausescu-hjóna:
Öfullnægjandi réttarhald
Island tekur ekki afstööu til bráöabirgöaríkisstjórnarinnar
uegna grunduallarreglunnar um aö uiöurkenna ríki en ekki
stjórnir.
„Eg hef gert ráðstafanir
til þess að afla upplýsinga
um myndun þessarar
stjórnar, samsetningu og
fleira. Niðurstaða okkar á
þessu stigi er að við höfum
þá grundvallarreglu að við
viðurkennum ríki en ekki
ríkisstjórnir og teljum því
ékki ástæðu til að lýsa yfir
sérstakri viðurkenningu á
ríkisstjórn sem reyndar er
í eðli sínu bráðabirgðarík-
isstjórn. Málið verður reif-
að og rætt í ríkisstjórn-
inni, en ég geri ekki ráð
fyrir að við víkjum frá
grundvallarregiunni,“
sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráð-
herra í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær um afstöðu Is-
lands til nýrra valdhafa í
Rúmeníu.
,,Við sem búum við réttar-
ríki hefðum kosið að efnt
hefði verið til opinberra rétt-
arhalda þar sem að sakborn-
ingur hefði ailan rétt á að
bera hönd fyrir höfuð sér og
standa fyrir máli sínu. í þessu
tilviki var það ekki. Jafnvel
stríðsglæpamönnum nasista
gafst kostur á réttarhöldum. í
landinu hefur ríkt borgar-
styrjöld og bráðabirgða-
stjórnin segir að hjónin hafi
verið leidd fyrir herrétt, en
auðvitað er þetta ófullnægj-
andi réttarhald. Á hinn bóg-
inn er á þaö að líta að þeir ótt-
uðust að górillur leyniþjón-
ustunnar reyndu að frelsa
þau og við getum ekki lagt
mat á það, en ef það hefði tek-
ist er líklegt að blóðbaðið
hefði haldið áfram. Þetta
verður -að vega og meta"
sagði Jón um réttarhöldin yf-
ir og aftöku Ceausescu-hjón-
anna.
Það er ýmislegt á huldu
með þessa bráðabirgðaríkis-
stjórn, hversu mikils stuðn-
ings hún nýtur og ef hún
stenst sem bráðabirgðaríkis-
stjórn er hlutverk hennar
fyrst og fremst að standa fyrir
kosningum sem eiga að
verða í apríl og jafnvel þótt
þær væru afstaðnar myndum
við samkvæmt þessari reglu
ekki lýsa yfir sérstakri viður-
kenningu, en erum reiðubún-
ir til samstarfs við stjórnvöld
í Rúmeníu, segir Jón. „Það
væri hræsni af minni hálfu ef
ég ekki viðurkenndi ánægju
með fall harðstjórans. Hins
vegar harma ég að þessi
breyting hafi ekki gerst eins
og annars staðar í A-Evrópu.
Blóðbaðið er búið að vera of-
boðslegt og frelsi Rúmeníu
því dýru verði keypt."