Alþýðublaðið - 28.12.1989, Page 3
Fimmtudagur 28. des. 1989
3
viðuncmdi lausn
FRETTASKÝRING
Skipan bankaráds Landsbankans:
Valur vill
Kosning Kristínar Siguröardóttur í bankaráð Landsbank-
ans hefur sætt haröi gagnrýni. Hún er fulltrúi Kvennalistans
í bankaraöinu, kosin á vegum stjórnarandstöðunnar á Al-
þingi en hún starfar sem innheimtustjóri hjá Kaupþingi.
Ymsir telja aö stórf hennar hjá Kaupþingi og seta í banka-
ráöi Landsbankans geti leitt til hagsmunaárekstra.
Valur Arnþórsson, einn af
bankastjórum Landsbankans
sagði, í samtali við Alþýðublaðið
að hann teldi að störf hennar hjá
Kaupþingi og seta í bankaráöi
Landsbankans samræmdust illa
og ,,að þessi fulltrúi í bankaráði sé
settur i mjög óþægilega aðstöðu
með því að vera kjörin í þetta
bankaráð á sama tíma og hún
gegnir ábyrgðarstöðu hjá fyrir-
tæki sem er í beinni og óbeinni
samkeppni við bankann og dótt-
urfyrirtæki hans. Mér finnst þess
vegna nauðsynlegt að fundin
verði lausn á þessu máli sem við
verði unað, þannig að ekki þurfi
að koma til hagsmunaárekstra,
þannig að ekki þurfi að ríkja sífelld
tortryggni."
Siöferðileg en ekki lagaleg
spurning?
I lögum er ekkert sem kveður
sérstaklega á um haefi þeirra sem
veljast til setu í bankaráðum ríkis-
bankanna. Alþingi er sá aðili sem
ber hina siðferðileg ábyrgð á þeim
fulltrúum sem það velur til slíkra
starfa. Hins vegar voru í vor sett í
lög skýr ákvæði sem kveða á um
að bankaráðsmenn víki sæti þeg-
ar fjallað er um mál er varði þá
eða einhverja sem þeir eru í hags-
munatengslum við. í þessum nýju
lögum, sem sett voru fyrir frum-
kvæði Jóns Sigurðssonar við-
skiptaráðherra, er hins vegar ekki
að finna varanlegt ákvæði um
hæfi bankaráðsmanna eins og t.d.
bankastjóra.
Jón Sigurðsson sagöi við Al-
þýðublaðið vegna þessa máls að
„auövitað gefur það auga leið að
ef einhver er valinn í bankaráð
sem er svo tengdur bankarekstri
hjá öðrum eða á einhvern hátt
stundar slík viðskipti eða atvinnu
að það hamli honum í starfi, þá er
það vægast sagt ekki heppilegt."
Þá sagði Jón að hann hefði tekiö
eftir því í blaöaviðtali við formann
þingflokks Kvennalistans að hún
hygðist láta kanna hvort þetta fæli
í sér hagsmunaárekstur sem at-
hugaverður væri. ,,Ég bíð að sjálf-
sögðu eftir að slík athugun fari
fram."
Valur vill lög
Valur Arnþórsson telur brýnt að
sett verði lög sem kveði á um hæfi
bankaráðsmanna. Hann segir:
„Þótt ótrúlegt megi virðast þá
mun ekkert vera í lögum eða regl-
um sem kemur í veg fyrir það að
svona kjör geti átt sér stað og það
má reyndar merkilegt teljast þar
Telur setu fulltrúa
Kuennalista í banka-.
ráöi Landsbankans
illa samrœmast starfi
hans hjá Kaupþingi.
Kemur máliö til
kasta Alþingis?
sem mjög strangar reglur gilda t.d.
um þá sem sitja í bankastjórn sam-
anber bankastjórana. Þar eru ítar-
leg ákvæði sem koma í veg fyrir
aö þar geti verið um hagsmuna-
árekstra að ræða en hins vegar
þegar kemur að bankaráðunum
sem hafa mjög mikil völd lögum
samkvæmt þá eru engar slíkar
reglur fyrir hendi. Þannig að mat-
ið verður fyrst og fremst að vera
siðferðilegt meðan reglur eru ekki
settar."
Jón Sigurðsson sér ekki ástæðu
til að setja frekari lög en þau sem
kveða á um hæfi bankaráðs-
manna til að sitja einstaka fundi
og bendir á að nýju ákvæðin um
þetta í lögum hljóti að vera leið-
beinandi og þingið taki mið af
þeim þegar það velur fólk til um-
ræddra starfa. „Ég tel ekki þörf á
sérstökum lagafyrirmælum enda
hlíti þingið þessum eðlilegu og al-
mennu starfsreglum sem þessi
ákvæði og heilbrigð skynsemi
hljóta að bjóða. Ég vona að þing-
flokkarnir líti til þessara þátta þeg-
ar þeir velja fólk í þessi störf."
Augljósir
hagsmunaárekstrar?
Það er engin nýbóla að rætt sé
um hagsmunaárekstra í okkar litla
samfélagi. Ymsir aðilar hafa gegnt
störfum tveimur eöa fleiri átölu-
laust þó að færa mætti rök að bein-
um og ótvíræðum hagsmuna-
árekstrum milli viðkomandi
starfa. Það er og hefur verið erfitt
að þjóna tveimur herrum í einu og
vera báðum trúr. Hvað varðar
hagsmunaárekstra varöandi setu
umrædds starfsmanns Kaupþings
i bankaráði Landsbankans hafði
Valur Arnþórsson eftirfarandi um
málið að segja: „Bankaráð fjallar
um allar vaxtaákvarðanir og um
gjaldtöku bankans og fjallar einn-
ig um meginstefnu dótturfyrirtæk-
is sem Landsbréfa og hlýðir á og
ræðir skýrslur um starfsemi þess."
Þó svo að ekkert væri við setu
fulltrúa Kvennalistans i bankaráð-
inu í sjálfu sér að athuga, hlýtur
það að verða nokkuö erfitt hlut-
skipti fyrir bankaráöið að meta
það í hverju og einu tilviki hvort
og hvenær umræddum fulltrúa
beri að víkja af fundi og hvenær
ekki. Þá hlýtur það að vera vafa-
samt að fullur trúnaður geti mynd-
ast innan ráðsins og milli ráðsins
og starfsmanna bankans þegar
þar situr aðili sem vinnur íyrir
samkeppnisaðila úti í bæ.
Alþingi kanni málið
Það hlýtur að teljast seinheppni
hjá Kvennalistanum að þegar
hann loksins féllst á að skipa full-
trúa í bankaráð ríkisbankanna þá
skuli sá fulltrúi sem þær tilnefna
og síðan Alþingi kýs til setu í
bankaráði, lenda í slíku stappi.
Hér er ekki deilt á persónu við-
komandi fulltrúa né í neinu vegiö
að hæfni hans eða heiðarleika.
Hér er um siðferðilegt mat að
ræða, um hvort og hvernig það
samræmist aö starfsmaður eins
fyrirtækis sem á í samkeppni við
annað sitji í stjórn þess og öfugt.
Það er Ijóst að stjórnendur
Landsbankans sætta sig ekki við
málið eins og það liggur fyrir,
þ.e.a.s. að umræddur fulltrúi
Kvennalistans sitji í stjórn bank-
ans. Það er því ekki óeðlileg krafa
að Alþingi athugi sérstaklega i
framhaldi af því sem undan er
gengið hvort um hugsanlega hags-
munaárekstra geti orðið að ræða
og þá hvernig skuli við bregðast
komi slíkt í Ijós.
Alþýduflokksfélag Kópavogs 40 ára
Baejarstjórarnir Kristján Guö-
mundsson Kópavogi og Guð-
mundur Árni Stefánsson Hafnar-
firöi glaöværir á góöri stund.
Kristinn Ó. Magnússon verkfræö-
ingur, Ásgeir Jóhannesson for-
stöðumaöur og Bjarni Pálsson
kennari rifja upp minningar úr
baráttunni. Því miöur berum viö
ekki kennsl á konuna i forgrunnin
um.
Alþýöuflokksfélag Kópavogs hélt í gær
upp á 40 ára afmæli sitt í Félagsheimili
Kópavogs. í hófiö mætti fjöldi manna og
var glatt á hjalla er Alþýöublaöiö leit inn. 40
ár eru ekki ýkja langur tími í pólitík, en
Kópavogskratar hafa sýnt svo ekki verður
um villst aö þeir eru forystuafl í bænum
Alþýöublaöiö óskar Kópavogskrötum inni
lega til hamingju meö áfangann.
Guömundur Oddsson forseti bæj-
arstjórnar, aöalkratinn i Kópavogi,
ræðir hér viö hjónin Þórdisi Þor-
móösdóttur og Karl Steinar
Guönason alþingismann.
Jón H. Guömundsson, til hægri,
var sérstaklega heiöraður i hófinu
í gær. A-myndir/E.ÓI.