Alþýðublaðið - 28.12.1989, Side 6
6
Fimmtudagur 28. des. 1989
• Krossgátan
□ 1 3 n 7““
5 □
6 □ 7
r 9
10 □ 11
□ 12
13 □ H
Lárétt: 1 megnar, 5 eyðing, 6 ílát,
7 umdæmisstafir, 8 hópur, 10 til,
11 komist, 12 haf, 13 lágfótan.
Lóðrétt: 1 glennt, 2 friður, 3 eins,
4 sönglir, 5 skart, 7 stöngin, 9
kvenmannsnafn, 12 heiftúöug.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 sveik, 5 skör, 6 kal, 7 há,
8 jullan, 10 óp, 11 áma, 12 ónar,
13 iðkar.
Lóðrétt: 1 skaup, 2 völl, 3 er, 4
kánar, 5 Skjóni, 7 hamar, 9 lána,
12 ók.
_Til vióskiptamanna_________
banka og sparisjóóa
Lokun
2. janúar
og eindagar
vócla.
Vegna áramótavinnu veröa
afgreiðslur banka og sparisjóða
lokaðar þriðjudaginn
2. janúar 1990.
Leiðbeiningar um eindaga víxla
um jól og áramót
liggja frammi í afgreiðslum.
Reykjavík, 12. desember 1989.
Samvinnunefndbankaog sparisjóóa —-
SMÁFRÉTTIR
Hringur sýnir
á Egilsstöðum
Á sunnudag, gamlársdag,
þann 31. desember kl. 14.00,
verður opnuð sýning á málverk-
um Hrings Jóhannessonar í húsi
Rafmagnsveitna ríkisins á Egils-
stöðum.
Nýlega kom út bók Aöalsteins
Ingólfssonar um listamanninn á
vegum Listasafns ASÍ og Lög-
bergs.
Málverkasýningarnar á verkum
Hrings í Reykjavík og á Akureyri
hafa verið fjölsóttar.
I umfjöllun um sýningu Hrings
í Reykjavík segir Bragi Asgeirs-
son í Morgunblaðinu m.a.: „Sýn-
ingin í heild er annars mjög ein-
kennandi fyrir Hring sem lista-
mann og þann gróðurreit í list-
inni, sem hann hefur ræktað
mest og best.
Hringur er einmitt málari
hinna einföldu aðstæðna, og
þegar sá hæfileiki hans fær að
njóta sín til fulls og án nokkurra
háleitra vangaveltna, nær hann
langsamlega svipmestum ár-
angri."
I formála eftir Björn Th.
Björnsson í bókinni um Hring
segir m.a.:
„Rétt eins og himinninn getur
speglazt í tærum vatnsdropa,
þannig getur og smáveröldin í
myndum Hrings vísað langt út
fyrir sjálfa sig. Örlítið mýrarauga,
grónar götur eftir hófatraðk ald-
anna, reipi og hagldir í hlöðudyr-
um, biðukolla á móti bláum
himni, allt er það í senn sjónræn
lifun, uppgötvun augans, sem og
hluti lands, náttúru og þjóðar í
víðum skilningi."
Hringur Jóhannesson er fædd-
ur í Haga í Aðaldal 1932. Hann
nam við Handíða- og myndlista-
skólann í Reykjavík 1949—52.
Hringur hefur haldið tugi
einkasýninga og tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýningum heima
og erlendis. Með List um landið
gefst fólkinu vítt um land gott
tækifæri til að njóta hinna litríku
og einstöku málverka Hrings Jó-
hannessonar. Að sýningunni á
Egilsstöðum standa verkalýðsfé-
lag Fljótdalshéraðs og bæjar-
stjórn Egilsstaðabæjar. Á sýning-
unni á Egilsstöðum verða til sölu
árituð eintök bókarinnar um
Hring og er bókin seld á lista-
safnsverði.
Aðgangur að sýningunni er
ókeypis.
RAÐAUGLYSINGAR
Lausar stöður
Nokkrar stöður lögregluþjóna við embættið eru
lausar til umsóknar. Umsóknum sé skilað til starfs-
mannastjóra á þar til gerðum eyðublöðum fyrir 1.
feþrúar 1990.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
Það er þetta með
bilið milli bíla...
yUMFERÐAR
I '
RÁÐ
Forval verktaka vegna
dypkunar innsiglingarrennu
í Sandgeröishöfn
Hafnarstjórn Sandgerðishafnar mun á næstunni
þjóða út meðal valinna verktaka verkefni við dýpk-
un innsiglingarrennunnar í Sandgerðishöfn.
Verkefnið er að dýpka um 800 m langa rennu frá
hafnarmynninu í Sandgerði og út á -5.5 m dýpi. Það
felst í að þora og sprengja klöpp og fjarlægja
sprengt grjótið ásamt þeim lausu jarðefnum sem
ofan á kunna að liggja.
Magntölur í verkinu verða um það bil eftirfarandi:
Sprengingar 36,000 m2
Gröftur 60,000 m3
Verktími er áætlaður fram til hausts 1992.
Verktökum sem hafa áhuga á að gera tilboð í verk
þetta, er hér með boðið að senda inn skriflega ósk
þar um. Gögn þar að lútandi fást á skrifstofu Hafna-
málastofnunar ríkisins, Seljavegi 32, Reykjavík.
Upplýsingar um verktaka þurfa að hafa borist eigi
síðar en þriðjudaginn 30. janúar, 1990 til
Hafnamálastofnunar ríkisins
Seljavegi 32,
101 Reykjavík,
Sími 27733 Telefax 27767
Hafnarstjórn Sandgerðishafnar og Hafnamála-
stofnun ríkisins áskilja sér rétt til að velja þá aðila
sem verður gefinn kostur á að bjóða í verkið án þess
að þurfa að rökstyðja val sitt.
Hafnamálastofnun ríkisins
Hafnarstjórn Sandgeróishafnar
Viö mætingar og
framúrakstur á mjóu
(einbreiðu) slitlagi þarf
önnur hliö bílanna að
vera utan slitlagsins.
ALLTAF ÞARF
AÐ DRAGA ÚR FERÐ!
ll
UMFERÐAR
RÁÐ