Alþýðublaðið - 28.12.1989, Blaðsíða 8
jiffinuiD
Fimmtudagur 28. des. 1989
Nemendur í 7. bekk Foldaskóla:
Sviknir um hluta af
lögboðinni kennslu
Unglingar í 7. bekk
Foldaskóla njóta ekki
lögboðinnar kennslu.
Samkvæmt grunnskóla-
lögum er kennsluskylda
hins opinbera 36—37
stundir á viku en í Folda-
skóla mun kennslu-
stundafjöldinn einungis
vera um 32 stundir. Þetta
kemur fram í nýút-
komnu hefti tímaritsins
Nýrra menntamála.
Grunnskólalögin mæla
svo fyrir aö kennslustundir
í 7. bekk grunnskóla skuli
vera sem næst 36—37
stundir á viku. Kftir sparn-
aöarráðstafanir ríkisstjórn-
arinnar á þessu ári gaf þó
menntanálaráðuneytið út
auglýsingu þar sem
kennsluskyldan er lækkuö
niður í 35 stundir.
I Nýjum menntamálum
er birt stundaskrá einnar
bekkjardeildar í 7. bekk
Foldaskóla. ístundaskránni
má samtals telja 35
kennslustundir, en í hand-
mennt, myndmennt og
heimilisfræði er bekknum
skipta þannig aö hver nem-
andi nýtur ekki kennslu í
þessum greinum nema
hluta úr vetri.
Þegar tekið hefur veriö
tillit til þessa, lætur nærri
aö hver nemandi njóti 32
kennslustunda á viku.
Aljódarádstefna um umhverfisuernd:
Réttindi og skyldur
ríkja til umræðu
Kettindi og skyldur sem
rikja á svidi umhverfis-
mála verða til umfjöllunar
á alþjóðaráðstefnu í Bras-
ilíu árið 1992. Akvörðun
um ráðstefnuna var tekin
á allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna nú fyrir jól-
in.
I umfjöllun þingsins um
undirbúning þessarar ráð-
stefnu var sú tillaga lögð fram
af Islands hálfu að eitt af
markmiðum ráöstefnunnar
yrði aö ganga frá alþjóöleg-
um sáttmála um réttindi og
skyldur rikja á sviði umhverf-
ismála.
Mikill ágreiningur kom
hins vegar í Ijós milli iðnríkj-
anna og þróunarríkjanna um
Launauísitalan:
ráöstefnuna í heild og í frétt
frá utanríkisráðuneytinu seg-
ir að í Ijósi þess verði þaö að
teljast viöunandi árangur að
fulltrúar Islands skyldu ná því
fram að á ráöstefnunni verði
athugað hvort mögulegt sé
að setja reglur um réttindi og
skyldur ríkja á sviöi umhverf-
ismála.
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra geröi það
aö tillögu sinni í ræðu sem
hann hélt á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna í haust,
að gerður yröi sérstakur alls-
herjarsáttmáli um umhverfis-
mál, þar sem sérstaklega yröi
kveðið á um réttindi og skyld-
ur ríkja á þessu sviði.
Hækkar um 2,2% í desember
Samkvæmt útreikning-
um Hagstofu Islands
hækkar launavísitala í
desember miðað við með-
allaun í nóvember um
2.2%. Um leið hækkar
launavísitalan fasteigna-
veðlán sem taka sömu
hækkun.
Launavísitalan er sem
kunnugt er einn þriðji hluti
lánskjaravísitölu og því
hækka allar skuldir manna.
sem tengdar eru lánskjara-
vísitölu, sjálfkrafa um rúm-
lega 0.7% við það að launa-
vísitalan hækkar um 2.2%
milli mánaðanna nóvember
og desember. Sem dæmi má
nefna að milljón króna skuld
hækkaði um 7.300 krónur
um síðustu mánaðamót.
Húsaleiga, sem fylgir láns-
kjaravísitölu, hækkar sömu-
leiðis frá og með 1. janúar
1990 um 2.5%, miðað við þá
leigu sem gildir í desember.
Horfur á sæmilegri
færð næstu dagana
Helstu þjóövegir ruddir fyrir helgi eftir því sem þörf krefur.
Veðurstofan spáir hlýnandi veöri a.m.k. fram að áramótum
Helstu þjóðvegir lands-
manna ættu að geta orðið
sæmiliega færir flestum
bilum næstu daga og jafn-
vel fram yfir áramót. Færð
var víða annmörkum háð í
gær, einkum af völdum
skafrennings, en nú spáir
Veðurstofan hlýnandi
veðri næstu daga og ekki
eru taldar horfur á að færð
spillist aftur að marki fyrr
en í fyrsta lagi eftir nýár.
Heiðavegir voru viða erfiö-
ir yfirferöar i gær. Þannig var
t.d. skafrenningur á öllum
heiðavegum milli Akureyrar
og Keykjavíkur og þeir sein-
farnir af þeim sökum. Fann-
fergi mun hins vegar ekki
hafa veriö neitt aö ráði. Sunn-
anlands var sæmileg færö og
allt austur á land og á Héraöi
var allþokkalega fært um
flesta vegi.
Samkvæmt upplýsingum
Vegagerðar ríkisins veröa
helstu leiðir mokaðar á morg-
un og laugardag eftir því sem
þörf verður á. Þetta gildir t.d.
um leiðina frá Akureyri til
Reykjavíkur og helstu vegi út
frá Akureyri, svo sem leiðina
þaðan til Húsavíkur. Á
Reykjavíkursvæðinu og þar í
kring eru vegir hins vegar
ruddir daglega. Að því er
hringveginum viðvíkur er
þannig leiðinni frá Borgar-
nesi og austur í Vík haldið op-
inni. Undantekning er þó
nýársdagur þegar vegagerð-
armenn hyggjast taka sér frí.
Á föstudag og laugardag
stendur til aö moka Stein-
grimsfjarðarheiði þannig aö
fært verði til ísafjarðar.
Varðandi snjómokstur að
vetrariagi fer því annnars
fjarri að landsmenn allir sitji
að sömu kjörum. Fjölmargir
fáfarnir vegir eru alls ekki
opnaðir frá því að snjóa festir
þar á haustin og fram á vorið.
Þetta gildir m.a. um hluta af
hringveginum, nefnilega
Möðrudalsöræfin. Breiðdals-
heiðin fyrir austan er heldur
ekki rudd að vetrarlagi og á
Vestfjörðum má nefna
Hrafnseyrarheiði, sem nokk-
uð var í fréttum sl. vor þegar
íbúar sveitarinnar greiddu
mokstur úr eiginn vasa,
vegna þess hve þeim þótti
Vegagerðin sein til.
Þær veðurspár sem Veður-
stofan hefur sent frá sér um
næstu daga, ná fram til laug-
ardagsins 30. des. Þegar Al-
þýðublaðið hafði samband
viö Veðurstofuna í gær, var
gert ráð fyrir að veður gengi
niður í nótt og í dag snerist
vindur til suðlægrar áttar og
veður færi hlýndandi. Á
morgun, föstudag er gert ráð
fyrir sunnan eða suðvestan
átt víðast á landinu og skúr-
um eða slydduéljum suðvest-
anlands. Á laugardaginn er
gert ráð fyrir að veður verði
áfram eitthvað svipað þessu.
Þegar spurt var um horfur yf-
ir áramótin voru svör heldur
tregari, enda orðið erfitt að
spá svo langt fram í tímann.
Þó var ekki taliö aö nein
merki um norðanátt eða
versnandi veður á gamlárs-
dag eða nýársdag væru enn
sjáanleg.
Ef þetta reynist rétt virðast
sæmilegar horfur á að færð
geti orðið með þokkalegasta
móti víða um land næstu
daga og jafnvel fram yfir ár-
mót. Þeim sem kunna að
hyggja á feröalög um áramót-
in er þó trúlega ráðlegt að
fylgjast vel með veðurfrétt-
um þegar nær dregur ára-
mótunum.
VE0RI0
I DAG
Þykknar upp með vax-
andi sunnan- og suðaust-
anátt, fyrst suðvestan-
lands. Sunnan- og suð-
austanhvassviðri og
slydda eða rigning siðdeg-
is. Hlýnar aðeins i veðri.
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag
ÍSLAND
Hitastig
i borgum
Evrópu
kl. 12
i gær
aö íslenskum
tima.
Fólk
Þá er snjórinn kominn
á Akureyri og leggur
skaparinn á þann hátt sitt
af mörkum til undirbún-
ings Vetraríþróttahátíöar-
innar sem senn mun
verða haldin á Akureyri.
Undirbúningur hátíðar-
innar er í fullum gangi og
hefur Þröstur (íudjóns-
sun formaöur undirbún-
ingsnefndar veg og
vanda af þeim undirbún-
ingi.
★
Stjórn Upplýsingaþjón-
ustu landbúnaðarins hef-
ur samþykkt að ráða
Helgu Gudrúnu Jónas-
dóttur í starf forstöðu-
manns Upplýsingaþjón-
ustunnar. Umsækjendur
um starfið voru 15. Helga
Guðrún tekur við starfi
Ólafs H. Torfasonar sem
lét af störfum l. október
si., eftir þriggja ára starf
sem forstöðumaður Upp-
lýsingaþjónustunnar.
Helga Guðrún Jónasdótt-
ir er fædd árið 1963. For-
eldrar hennar eru Jónas
Elíasson prófessor við
Háskóla Islands og Ást-
hildur Erlingsdóttir lekt-
or við Kennara- háskóla
íslands.
Helga Guðrún hefur
starfað við tímaritið
Heimsmynd og hjá Ríkis-
útvarpinu við dagskrár-
gerð og á fréttastofu þess.
Hún veitir nú forstöðu
upplýsingaþjónustulínu
sem starfrækt er á vegum
Miðlunar og Pósts og
síma. Auk þess kennir
hún fjölmiðlafræði við
Menntaskólann við Sund.
Jón Baldvin Hannibals-
SQn, utanríkisráðherra,
og Bryndís Schram fara í
ppinbera heimsókn til
ísrael dagana 3.H=Tö7gán-
úar nk. í boði Moshe
Arens, utanríkisráðherra
ísraels og eiginkonu
hans.