Tíminn - 10.05.1968, Blaðsíða 5

Tíminn - 10.05.1968, Blaðsíða 5
FOSTU&AGUR 10. maí 1968. TIMINN Innan sbamms á að fara að kvikmynda tvö af verkurn brezka ritböfundariins D. H. Lawrence. Verður það gert í sumar og standa tvö kvik- myndafélög að gerð kvikmynd anna, sem verða gerðar eftir sfcáldsögunum The Virgin and The Gipsy og Women in Love. Það hefur þegar verið gerð kvikmynd eftir einni skáldsögu hans, The Fox og verður hún frumsýnd innan skamms. Verk D. H. Lawrence eru mjög vin- sæl í Bretlandi um þessar : mundir í Bretlandi og eþu vin- sældirnar taldar eiga mikið rót sína að rekja til þess að hið fræga brezka forlag Penguin gaf út bókina Lady Ohatterly’s Lover í fyrsta sinn og útgáfa bókarinnar olli málaferlum og miklum skriífum. Kvikmyndin Dr. Glas, sem Mai Zetterling stjórnar og að mestu hefur verið tekin í Dan mörku, verður eina kvikmynd- in fhá Niorðurlöndunum, sem sýnd verð-ur á kvikmyndahátíð inni í Cannes nú í vor. Aðal- leikendurnir í kvikmyndinni eru þau Per Oscarson, sem var frægur fyrir leik sinn í Sultur, og Lone Hertz, ein efnilegasta unga leikkona Dana. Brezka leikkonan Julie Andrews mun korna fram í sjónvarpsþáttum í Bandaríkj- unurn á næsta ári. Fær hún um fimmtíu milljónir króna fyrir þátttöku sína í þessum þátt- um og verða .þessir þættir dýr- ustu sjónvarpsþættir, sem gerð ir hafa verið í Bandarikjunum. Konan til hægri hér á mynd- inni er tuttugu og níu ára gömul og er yngsta ammá á ítalíu. Á myndinni með henni Svo sem kunnugt er, eru Bretar að breyta myntkerfi sínu, þannig að í einu pundi verði hundrað pennies. Eru þessi nýju penny smám saman sett í umferð og gengur það ekki of vel fyrir Bretana að venj-ust þessari nýju mynt. Þegar afgreiðslufólk í búðum fór að sjá þessa mynt fyrst, tilkynnti það viðskiptavinum sínum, að það vildi ekki sjá þessa erlendu mynt, sem þeir væru með og á einum stað gekk þetta svo langt að verzl- unareigandinn hótaði að ná í lögregluna. Luigi Vicari, þrjátiu og sjö ára gamall ítali sat þrjá mán- uði í fangelsi vegna innbrots. Þegar honum var sleppt úr fangelsinu fór hann og barði lögreglumanninn, sem handtók hann. Han.n var þegar í stað sendur í fangelsi og í þetta sinn í einn mánuð. Þegar hann kom út í annað sinn, kveikti hann í húsi lögregluþjónsins. Leizt þá yfirvöldunum ekki á blikuna og er hann í fangelsi núna, og verður sennilega um óákveðinn tíma. Marja Soupidor býr í mjög afskekktu fjallahéraði í Grikk landi. Ein.n góðan veðurdag veiktist hún hastarlega og var náð í lækni. Hann ætlaði að mæla hana, en hún hafði aldrei séð hitamælir fyrr, þótt hún væri orðin fimmtiu og fimm ára gömul, og hélt, að hann væri meðal og gleypti hann. Hún var flutt í ofboði á sjúkra hús til þess að láta skera hana upp og fjarlægja mælirinn. er dóttir hennar Giuseppina, sextán ára og dóttir hennar, sem er þriggja mánaða. Hér sjáum við tvær systur,. þær Jacqueline Kennedy og Lee Radziwill. Þær hafa báðar va'kið gthygli á sér fyrir smekk legan klæðaburð og eru taldar bezt klæddu konur heims. Fyr- ir nokkru síðan kom Lee Radzi- will fram í bandariska sjón- varpinu í eins manns skemmti þætti sem sýnduv var meira að segja í litsjónvarpi. Fékk þátturinn mjög léíega dóma að öðru leyti en því að prinsessan var talin óaðfinnanlega klædd. En meðan Lee var í Amerík unni var Jacqueline í Ítalíu og birtist þar í veizlu hjá Borg- hesi greifa í svokölluðum kvöldnáttfötum, og vakti mikla athygli. Jacqueline notar hvert tækifæri, sem henni gefst til þess að komast frá Bandaríkjunum, þar sem vakað er yfir hverri hreyfingu henn- ar, og bregður sér mjög oft til Evrópu. Á VÍÐAVANGI Bændur og óvsnnu- fært fólk Gunnar Guðbjartsson, form. Stéttarsambands bænda, ger- ir rökstudda grein fyrir því t Tímanum 4. maí hve bændur landsins eru hart leiknir. Vitn ar hann þar í Hagtíðindi og önnur opinber gögn, sem ekki verða véfengd. Aðeins beir sem ekki geta unnið eru tekju lægri í okkar þjóðfélagi en bændur. En hvers vegna? f lögum segir, að bændur skuli hafa sambærilegaf- tekj ur og sjómenn, verkamenn og iðnaðarmenn — við það á verðlagsgrundvöllurinn að miðast hverju sinni. — En viðmiðunarstéttirnar hafa 235 þús. kr. lægst en upp í 317 þús. kr. hæst — miðað við 1966. Bændur vantar nú 50— 60% tekna til að ná rétti sín- um. Það kemur m. a. til af því, að verðlagsgrundvöllurinn er rangur t. d. stórlega vantaldir þýðingarmiklir liðir í búrekstr inum: Tilbúinn áburður og kjarnfóður vantalið, tilbúinn áburður um 48.68% og kjarn fóður um tæp 30%. En þessar tölur eru miðaðar við raun- verulega notkun sl. 3 ár og hins vegar tölur verðlagsgrund vallarins á yfirstandandi ári. Hvað myndu launþeg- ar seaia? Hvað myndu launþegar segja, ef 50—60% vantaði í launaumslögin, frá umsömdu kaupi? Nýlega fóru 20 þúsund menn í verkfall út af nokkr um prósentum. Ekki skal lítið úr tilefninu gert. En hvað mætti þá segja um bændur, sem, cnga leiðréttingu sinna hafa fengið? (Dagur). Tertubotna- ráðherrann. Höfundur vísunnar um „Tertubotnaráðherrann" sem prentuð var hér í dálknum eftir Magna á Akranesi, hefur beðið blaðið um að leiðrétta vísuna, hún hafi ekki verið alveg rétt eftir höfð. Ekki vill höfundur láta nafns síns getið en sagt var í Magna, að hann væri útvegsmaður á Suðurnesj um. Rétt er vísan svona: Glaður, reifur verk sín vann. Vísur, lögin semur hann. Tungulipur, tölur kann tertubotnaráðlierrann. Annarri vísu um tertubotna ráðherrann hefur verið smeygt inn á borð hjá okkur. Hún er svona: Það er nautn að horfa á hann halda úr landi - sléttgreiddan. En trauðla mun ég trúa á hann tertubotnaráðherrann.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.