Tíminn - 30.05.1968, Blaðsíða 2
,Ber ai vona ai brestí ei gjald'
Líti ég yfit liðin svið
laus úr gleymsku skorðum
staldrar hugur stundum við
styrjöldina forðum.
Full'hugamh' fóru af stað,
förnuðu háu gjaldi.
Hitlers geymir benja blað
bitra sögn á spjaldi.
Lituðust blóði lönd og flöð
lengi stóð sá fundur.
Hverheit glóðin kólna óð
kurlaði þjóðir sundur.
Huggðu margir hættu þá
heimi myndi farga,
Ohurrhill varð þó ofaná , '
eftir herferð fnarga.
Hræddist hvorki um haf né storð
að hildarleikjum kenndur.
Mun hans geymast máttarorð
meðan heimur stendur.
Svo varð hildarsóknin full
svitaði dreiri lendur
ásamt honum glitti í gull
við gömlu íslandsstrendur.
Trúin flytur fjöll. — Vi8 flytjum allt annað
SENDIBÍLASTÖÐIN HF,
BÍLSTJORARNIR AÐSTOÐA
Lyftust bninir lýðum á
leystir orkubandi
fjármála varð þekking þá
þúsundföid í landi.
Margan fýsti í feitan hupp
svo fæstir lítt við undu
betri kýrnar allar upp
átu á sömu stundu.
Stjórn og ráði ei banka brá
að bjarga þetta árið
gleggst fannst leið að gera þá
gengisfall í sárið.
Ber að vona bresti ei gjald
bjargir margt þó tefur
annars meðal einkavald
ísinn tekið hefur.
Guðjón Jónsson frá
Hcnnundarstööum
Fjórðungsmót hesta-
manna á Austuriandi
Á vegum Búnaðarfélags íslands
og Landssambands hestamanna
verður haldið Fjórðungsmót á
Austurlandi dagana 27. og 28. júlí
í sumar. Eru það hestamannafélög
in á Austurlandi er að mótinu
standa, en Hestamannafélagið
Freyfaxi á Héraði hefur tekið að
sér að sjá um framkvæmd móts-
ins. Hefur félagið kosið eftirtalda
menn i undirbúningsnefnd or
vinnur i samvinnu við stjórn fé
lagsins, en formaður hennar er
Pétur Jónsson Egilsstöðum. Jón-
as Magnússon, Uppsölum, Gunnar
Egilson Egilsstöðum, Jón Bergs-
son Ketilsstöðum, Ástráður Magn
ússon Egil’sstöðum og Sigfús Þor-
steinsson Egilsstöðum sem er for
maður nefndarinnar. Nefndin hóf
undirbúning mótsins s.l. suinar
með byggingu sýningarsvæðis og
hlaupabrauta í námunda við Fé-
lagsheimilið Iðavelli á Völlunu
Sýningarsvæðið var þá einnig
girt með 2.5 km. langri girðingu,
en eftir er að koma upp girðing-
um fyrir langferðahesta og hólf-
um fyrir sýningar- og kappreiða-
hross.
Við sýningarsvæðið eru ágæt
tjaldstæði á bökkum Grímsár.
Ætlunin er að sýningarsvæði
þetta verði framtíðar athafna
svæði hestamanna á Héraði og á
að geta orðið gott þcgar frá þvi
hefur verið gengið til fulls. Til
þess þarf mikið fjármagn og hef
ur nú verið efnt til happdrættis
til fjáröflunar. Vinningar eru 3
hross ’ og verður dregið í því að
kvöldi' síðari mótsdagsins. Nokkr-
ir miðar hafa verið sendir Hesta-
mannafélögum víðsvegar um land
Frámhald á bls. 15.
TIMINN
FIMMTUDAGUR 30. maí 1968
Þátttakendurnlr á húsmæðravikunnj að Bifröst.
42 konur á húsmæðraviku
kaupfélaganna og SÍS
Ilin árlega Húsmæðravika kaup
félaganna og Sambands íslcnzkra
samvinnufélaga var að þessu sinni
haldin í Bifröst dagana 19. til 25.
maí.
Vikuna sóttu 42 konur frá 12
kaupfélögum. Margar húsmæður,
sem sótt höfðu um vikuna gátu
ekki komið vegna vorharðinda og
erfiðra heimilisástæðn’a..
Á Húsmæðravikunni voru flutt
18 erindi um margvísleg efni auk
sýnikennslu í matreiðslu. Farið
var í heimsókn til Húsmæðraskól
ans að Varmalandi, skólinn skoð-
aður ásamt sýnishornum af handa
vinnu nemenda og notið hinna
ágætu veitinga I boði skólans.
Á kvöldin vorn um hönd höfð
ýmis skemmtiatriði og vikunni
lauk með kvöldvöku, sem gestir
vikunnar, húsmæður sjálfar, sáu
uim.
Heiðursgestur Húsmæðravik-
unnar að þessu sinni var frú Guð
ron Árnadóttir skáldkona frá
Lundi.
Dagskrársljórn hafði á hendi
Páli H. Jönsson frá Laugum en
heimilisstjórn í Bifröst frú Þóra
Einar9dóttir, vegna fjarveru frú
Guðlaugar Einarsd’óttur, sem jafn
an_hefur staðið þar fyrir móttök-
um á fyrri Húsmæðravikum.
TIZKUSÝNING
í kvöld, fimmtudagskvöld, gefst
gestum á sýningunni íslendingar
og hafið, kostur á að horfa á
tízkusýningu.
^Sýningin hefst kl. 8,30 í veit-
ingasaln’Um uppi í Laugardals-
höllinni. Sýndur verður kven- og
unglingafatnaður frá Verðlistan-
um, skór frá verzluninni Sólveigu
í Hafnarstræti og Kórónaföt og
Marlshro-frakkar fná Herrahús-
inu, Aðalstræti.
SUMARSTARF-
SEMI ÆSKU-
LYÐSRÁÐS
KÓPAVOGS
ÆskulýSsráð Kópavogs er að
hefja sumarstarfsemi sina þessa
dagana, og munu cftirtaldir klúbb
ar starfa: Stangavciðiklúbbur, en
þar er meðlimum klúbbsins gef-
in kostur á ódýrum veiðiferðum
þrisvar í viku og veitt tilsögn
í meðferð vciðistangaj Ferða- og
skemmtikiúbbur, þar sem meðal
annars er fyrirhugað að fara og
skoða fuglalíf, og í skelja- og
stcinasöfnun, cinnig f kvöld- og
lielgarferðir og stuttar lijólreiða-
ferðir um næsta nágrenni Kópa-
vogs.
Þá mun einnig starfa siglinga-
klúbhur, en sá klúbbur var endur
vakinn í fyrrasumar af1 æskulýðs-
ráðunum í Kópavogi og Reykja-
vík, en klúbburinn hafði verið
stofn’aður af þessum aðilum í
júni 1962 og hefur hann nú yfir
að ráða allgóðum bátakosti, og
unnið hefur verið að því nú í vor
að lagfáera athafnasvæði, bæði
R’eykjavík'urmegin og Kópavogs-
megin í Fossvogi. Klútoburinn
nwn starfa flest kvöld í viku frá
kl. 18—22 og einnig á laugar-
dögum kl. 14—19. Unglingum 12
ára og eldri er heimil þátttaka.
4. júní hefst svo íþrótta- og
ieikjanámskeið fyrir börn 5—13
ára og verður þátttakendum í
leikjanámskeiðinu gefinn kostur
á stuttum ferðalögum bæði göngu
ferðum og bílferðum. Þá verður
einnig efnt til kvikmyndasýninga
og ýmisskonar skemmtiatriða i
æskulýðsheimilinu. Þar verður
einni'g „opið hús“ fyrir . unglinga
á þriðjudagskv. kl. 20—22,30.
Æskulýðsráðið hefur nýverið
eignast mikið af skemmtilegum
leiktækjum. sem ekki hafa áður
þekkzt í slí'kum heimilum hér á
landi.
Skrifstofa Æskulýðsráðs verður
opin alla virka daga, nema laugar
daga, kl. 14—15,30 og þar eru
veittar allar upplýsingar um starf
semi ráðsins, simi 41866.
Æskulýðsfulltrúi Kópavogs er
Sigurjón Ingi Hilaríusson.