Tíminn - 30.05.1968, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.05.1968, Blaðsíða 3
FEMMTUBAGlíít 30. maí 1968 TLMINN Samningur um kaup á laudbúnaðarvörum MiðvikiUdaginn 29. maí 1968 var gerður samningur milli rík isstjórna Bandarikjanna og ís- lands um kauip á bandarískúm landjbúnaðarvörum með láns kjörum. Samninginm undirrit uðu- Karl F. Rolvaag, sendi- herra Bandaríkjanna, og Ernil Jómsson, u'tanríkisráðherra. Samningar um kaup á banda riskum landbúnaðarvörum 'hafa verið gerðir árlega við Bandaríkjastjórn síðan 1957. í nýja samningnum, sem gild- ir fyrir árið 1968, er gert ráð fyrir kaupum á hveiti, maís og tóbaki. Samningurinn er að fjárhæö 2.143.000 dollarar, sem er jafn vrði um 122 milljón króna. Vörukaupin eru með þeim kjörum, að 30% greiðist fljót lega í dollurum, en 70% er lán til 18 ára með 5Vz% vbxt- um. í ár er samningurinn nokkru hærri en í fyrra, þar sem á ný er gert ráð fyrir að kaupa maís frá Bandaríkjunum með slíkum lánskjörum. Lánsfc, sem fengizt hefur með þessum hæfti, hefur und- anfarin ár verið varið- til ým- issa innlendra framkvæmda. Utanríkisráðu n eytið, iReykjayik, 29. maí, 1968. Ökukennarafélag íslands opnar fræðslumiðstöð BKH-Reykjavík, föstudag. Ökukennarafélag fslands opnaði á fimmtudag að Stiga- hlíð 45 fræðslumiðstöð um um ferðarmál auk^ skrifstofu. Öku- kennarafélag íslands var stofn að í fyrra og er arftaki Öku- kennarafélags Reykjavíkur. í félaginu eru nú um 300 öku kennarar af öllu landinu og starfar ein undirdeild á Akur- eyri. Ökukennarafélagið er ný orðið aðili að Ökukennarasam bandi Norðurlanda og hefur tekizt hin bezta samvinna milli félagsins hér og ökukennara- félaga á öðrum Norðurlöndum. Með stofnun fræðslumiðstöðv arinnar breytist ökukennsla hér í borg allmjög. Fyrst í stað er gert ráð fyrir að hver ök-ukennari taki nemendur sína í fjóra til fimm bóklega tíma í fræðslumiðstöðinni, en siðar er gert ráð fyrdr að mið- stöðin muni þróast upp í að verða fuilkominn skóM. Félagið hefur nýverið gefið út kennslubók í akstri, sem nefnist „Akstur og umferð“. Þettá er þriðja útgáfa bókar- innar og er hún nú aukin og endurbætt með tilliti til vænt- anlegrar H-akstursbreyting ar og miðar að því að undir- búa menn sem bezt undir þá breytingu. í bókina, sem er vönduð að allri gerð skrifa m a. lögreglustjórinn í Reykja- vík um umferðarmál, Bjarni Kristjánsson, vélaverkfræð- ingur, ritar kaflann um vélina, Henry Hálfdánarson, skrif- stofustjóri, um 'slysavarnir og loks Runólfur Ó. Þorgeirsson um tryggingamál. Ökukennarar hafa búið sig á ýmsan hátt undir Il-breyt inguna. í fyrra fór 24 manna hópur ökukennara til Svilþjóð- ar til þess að fylgjast með breytingunni þar yfir í hægri akstur og einnig til þess að sækja ýmis konar námsskeið. Híér á landi er nú staddur í boði félagsins sendikeinnari Sænska ökukennarasambands ins, Bent Lindgren, og mun hann leiðbeina á nám'skeiðum, sem þ'að gengst fyrir. Fyrsta inámskeiðið verður á Akureyri á laugardag kl. 1.30, að Hótel KEA. í Reykjavík hefst svo námskeiðið sunnudaginn 19. að Hótel Sögu. Á námskeiðum þessum verða flutt fræðsluer- indi, auk þess, sem fram fer verkleg sýnikennsla. Sem kennslubók á þessum nám- skeiðum hefur félagið gefið út tvo bækMnga að sænskri fyrir mynd og eru í þeim leiðbein ingar til ökukennara í sam- bandi við H-umferð. Að lokn um námskeiðunum munu öku- kennarar, sem þau só'ttu, fá sérstaklega útbúið viðurkenn- ingarskjal fyrir þátttöku sína. Ökukennarar munu gera nokkurt hlé á ökukennslu með an H-brcylingin fer fram hér á tandi. Fyrstu 5—6 dagana myni þeir æfa sig sjálfir í hinni breyttu umferð, tveir og tveir saman. í stjórn Ökukennarafé- lags íslamds eru eftirtaldir menn: Guðjón Hanssön, form. Rvík, Halldór Auðunsson, Rvdk Trausti Byjólfsson, Rvík, Kjartan Jónsson, Rvík, Ólafur Guðmundsson, Hafnarf., og Þóroddur Jóhannessoin, Akur- eyrL Formaður Verzlunarráðs London staddur hér Hingað til lands er kominn, í boði Verzlunarráðs íslands og Félags iblenzkra stórkaup- manna, fo'rmaður Verzlunar ráðsins í London, Lord Eroll of Hale, fyrrverandi viðskipta- málaráðherra. í för með hoin- um er kona hans, Lady Eliza- beth Ero'll. Á mánudagsmorgun ræddi Lord Erroll við stjórn Verzlun arráðs um skipulag og starf- semi Verzlunarráðsins í Lond- on, og á hádegisfundi sama dag, á Hiótel Sögu í tilefni 40 ára afmæMs Félags . í$lenzkra stórkaupmanna, flutti hanri ér indi um EFTA. Lord Erroll of Hale er 54 ára, verkfræðingur að mennt, og hefur setið á þingi fyrir í- haldsflokkinn síðan 1945, en árið 1964 tók hann sæti í Lá- varðadeildinni. Lord Erroll hefur gegnt ýms um mikilvægum nefndarstörf- um, og árin 1959—61 var hann ráðuneytisstjóri í viðskiptamálaráðuneytinu.Hann v.ar viðskiptamálaráðhgrra 1961 —63 og orkumálaráðherra 1963—64. \ Formaður Vcrzlunarráðs- ins í London hefur Lord Err- O'll verið síðan 1966. Hann hef ur víðtæka reynslu á sviði ef'nahags- og viðskiptamála og nýtur mikils trausts í landi sínu. WODtCZKO STJÚRN- AR I SÍÐASTA SENM GÞE-Rcykjavík, miðvikudag. Á morgun, fimmtudag, flytur Sinfóníuhljómsveit íslands loka tónleika sína á þessu starfsári, og eru þetta jafnframt síðustu tón- leikur hennar, sem hinn mikil- hæfi hljómsveitarstjóri Bohdan Wodiczko stjómar, en hann læt- ur nú af störfum hcr og hverfur til heimalands síns, Póllands. Á efnisskrá tónleikanna á morg un eru þrjú gamalkunn verk, for leikur Webers að óperunni Eury- anthe, Píanókonsert nr. 1 eftir Tsjaikovsky og sinfóníska svítan Sjerherasad eftir Rimsky-Korsa- koff. Einleikari er liinn heims- frægi brezki píanósnillingur John Ogdon. Hann hefur farið í tón leikaferðir víðs vegar um heim, en þetta er í fyrsta skiptið, sem hann kemur hingað til lands. Bohdan Wodiczko kom fyrst hingað til lands árið 1960 og var aðals'tj'órna.ndi Sinfóniuhljóm- sveitar íslands starfsárið 1960— 61. Frá haustinu 1965 hefur hann einnig verið aðalstjórnandi hljóm sveitarinnar og fullyrða kunnugir að bún hafi tekið miklum fram- förum undir handleiðslu hans. Það ber sízt að undra, því að Wodiczk'o er með fremstu hljóm- sveitarstj'órum Evrópu, og ferill hans er mjög glæsilcgur. Hann hefur verið stjómandi ríkisfí'l- h a rmóníuhl j óm s ve itar in n ar í Lodz og Krakow og yfir- st jónn andi rikisf'ílharniópíu- hljómsveitarinTiar í Varsjá. Árið 1956 var hann skipaður prófessor í hljómsveitarstjórn við músík- akademíuna í Warsjá. Hann hef- ur farið víða og stjórnað fjöl- miörgum tónleikum erlendis. Blaðamenn ræddu stundarkorn FRÆGASTB MÁLMBLÁS- ARAKVINTETT í HEIMI KEM- UR HINGAÐ Á þriðjudaginn kemur, 4. júní mun Lúðrasveit Reykjavikur efna til nýstárlegra hljómleika í Súlna sal Hótel Sögu. Lúðrasveitin kló- festi ein.n frœgasta málmblásara- kvintett hcimsins, The Los Angei es Brass Quintet, á leið hans yfir hafið. á tónleikaför til Ev rópu. Kvintettinn skipa trompet- leikararnir Thomas Stevens og Maro Guarneri, hoi-nleikarinn Ralph Pyle og básúnuleikarinn Miles Anderson, allt frábærir hlj'óðfæraleikarar og ■ þekktir ein- leikarar í heimalandi sínu. Hér á landi mun sá fimmti, túbuleikar- inn Roger Bobo kunnastur. Hann ■ hefur tvívegis haldið námskeið hér á vegum Sambands íslenzkra lúðrasveita, og hefur það aflað honum vinsælda meðal íslenzkra hljóðfæraleikara sérstaklega, auk þess, sem Bobo hefur tvívegis leik ið í túbuna í útvarpið og vakti leikur hans. verðskuldaða athygli. Á tónleikum þessum verður fjöiibreytt efnisskrá með verkum frá ýmsum tímum. Tónleikarnir hefj'ast kl. 21, og er öllum tón- listarunnendum bent á það, að þetta er einstakt tækifæri til að heyra vandaðan málmblásturs- hljóðfæraleik, þvi að The Los Angeles Brass Quintet leikur að eins í þetta eina sin.n hér. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. við Wodiczko í dag og kvaðst hann 'hafa kunnað einstaklega vel við sig hér á landi, og ef syrti í á,- inn fyrir sér ú'ti, gæti han.n alltaf snúið hingað aftur, ísland væri orðið sitt annað heimaland. Hins vegar fer þvd fjarri, að hann sé yifr sig ánægður með allt hér á landi, og hann var ómyrkur í .náli um það, sem honum þykir aflaga 'fara. M.a, talaði hann langt og mikið mál um „hinn hrœðilega hljómburð" í Háskólabíói, sem hvorki væri bjóð'andi hljómsveit- inni né áheyrendum. Fullyrti hann, að unnt væri að bæta hér úr með li'tlum tilkostnaði, m.a. væri hægt að fá sérstaka burðar veggi til að hafa á sviði, bak við hljómsveitina, og myndi það bæta mikið úr skák. Hins vegar lauk hann miklu lofsorði á Sinfóníuhljómsveit ís- lands og fullyrti að hún stæði lít- ið sem ekkert að baki s'tórum hljiómsveitum í Skandinaviu. Wodiczko verður hérlendis ú* júnímánuð við ýmis störf, upp- tökur o.fl. og eins má gera ráð fyrir því að hann komi hingað og stjórni hljómisveitinni sem gestur í framtíðinni. ÁLYKTUN NÁTTÚRU- VERNDAR- RÁÐS Á fundi Náttúruverndarráðs hinn 17. þ.m. var með samhljóða atkvæðum ■ gerð svofelld ályk'tun: Með bréfi dags. 9. nóv. 1966 tjáði Náttúruverndarráð Þing- vallanefnd þá skoðun sína, að ráð ið teldi, að fyrirhuguð úthlutun lóða til byggingar sumarbústaða í Gjáhakkalandi hlyti að trufla frið helgi þjóðgarðsins og lét jafn- framt í Ijós þá skoðun, að frem- ur bæri að stækka hið friðaða svæði en kreppa að því með bygg- ingu sumarbústaða á nefndu land svæði. ' Nátlúruverndarráð vill nú að gefnu tilefni taka fram, að fyrri afstaða þess til þessa máls er ó- breytt, enda miðast afstaða ráðs ins að sjálfsögðu við þau megin- sjónarmið, sem það samkvæmt hlutverki sínu á að *áka tillit til. í þessu samhandi leggur Nátt- úruverndarráð áherzlu á, að það telur brýna nauSsyn á því, að sett verði almenn lög um bygg- ingu sumarbústaða hér á landi, svo sem víða hefur verið gert er- lendis. Bohdan Wodiczko 30tímameð fóðurbæti frá Djópavogi JK-Egilsstöðum, miðvikud. í gærkvöldi komu fóðuir- vörur til Egilsstaða ,en hér hefur verið fóðurvörulaust um nokkurt skeið. Vörun- um var skipað upp á Djúpa vogi og voru 12 tonn flutt til Egilsstaða landleiðina með fjórum bílum frá Kaup félagi Héraðsbúa. Lentu bíl arnir í miklum erfiðleikum sökum aurbleytu, og voru 30 tíma frá Djúpavogi til Egilsstaða. Vitaskipið Ár- vakur tók afganginn af vörunum, 130 tonn, pg mun freista þess að komast inn á Reyðarfjörð. f morgun var Árvakur út af Hafnarnesi og sóttist ferðin sæmilega, og reiknað var með, að hann yrði út af Reyðarfirði kl. 1. Strand ferðaskipið Blikur er nú á Reyðarfirði en hann er með ýmsar neyzluvörur á Aust- fjarðahafnir. Hér á Héraði hefur verið gott veður að undanförnu Klaki er nú sem óðast að fara úr jörð. og gróðri hef- ur farið mikið fram síðustu dagana. Vorannir eru hafn- ar hjá bændum, en margir eru áhyggjufulMr vegna áburðarkaupanna, sem munu verða mörgum þung í skauti á þessu vori. i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.