Alþýðublaðið - 10.01.1990, Page 1
Óskar Vigfússon um deilu sjómanna fyrir austan:
Reynt er að koma í veg
fyrir sanngjarna lausn
,,Við viljum leysa þessi mál,“ segir Óskar Vigfússon, for-
maður sjómannasambands Islands, ,,en það virðast ekki
vera mikil líkindi til þess í dag og koma þar margir að
máli, bœði skyldir og óskyldir. Pað er reynt að koma í veg
fyrir að sanngjörn lausn finnist á þessu máli. “
Óskar Vigfússon, formaöur Sjómannasambands íslands.
Flótti einvaldsins í
Rúmeníu:
Ceausescu-
hjónin
rændu bíl og
bílstjóra
Hingað til hefur litlum
fregnum farið af því hvern-
ig Ceausescu-hjónin í
Rúmeníu reyndu að flýja
áður en þau voru handtek-
in, yfirheyrð, dregin fyrir
rétt og loks lífiátin á jóla-
dag.
Franska dagblaðið Libera-
tion hefur nýverið birt viðtal
við rúmenskan mann sem
Ceausescu-hjónin rændu og
neyddu til að aka sér um
þjóðvegina í nálægð Búka-
rest. Ceausescu og Elena eig-
inkona hans komust að þeim
bitra sannleik að þau voru
vinalaus og hötuð þegar dag-
ar ógnarstjórnar einvaldsins
voru taldir. Alþýðublaðið
birtir í dag samantekt af frá-
sögn Libertion af þessum
sögulega flótta Ceausescu-
hjónánna.
SJÁ BLS. 4.
Deila sjómanna og
fiskkaupenda fyrir aust-
an hefur komið róti á
viðraeðuaðila ASÍ og VSÍ
og er talið hugsanlegt að
verði samið fyrir austan
um annað og hærra fisk-
verð kunni það að eyði-
leggja þann grundvöll
sem ASI og VSI ræða.
Oskar Vigfússon for-
maður Sjómannasam-
bandsins heldur því
fram að reynt sé að koma
í veg fyrir sanngjarna
lausn deilunnar.
Deilan fyrir austan stend-
ur um það hvort og þá
liversu mikið verð á fiski
skuli taka miö af markaös-
verði á fiskmörkuöum. í
gildi er ákveðið verðlags-
ráðsverð um flestar fiskteg-
undir og er þar um að ræða
láfmarksverð. Það verð
sem hefur fengist fyrir fisk
á fiskmörkuöum hérlendis
er talsvert hærra en verð-
lagsráðsverðið segir til um
og fiskvinnslan víða um
land hefur verið ófús að
greiða meira fyrir fiskinn
en það segir til um.
Ari Skúlason hagfræö-
ingur hjá ASÍ sagði aö-
spuröur þaö af og frá að Al-
þýðusambandiö stæði
gegn því aö samiö yrði um
hærra fiskverö til sjó-
manna fyrir austan. Hann
sagöi að bann vissi ekki
betur en landverkafólk fyr-
ir austan stæði fyllilega
með sjómönnum. ..Hér
væri ekki veriö að ræða uni
aö bækka grunnverö til sjó-
manna heldur einungis um
samninga milli einstaka að-
ila. Sjómenn eru aðeins að
reyna aö fá fyrir fiskinn
svipað verð og gildir víða
annars staöar."
EinarOddur Kristjánsson
formaður VSÍ sagði að það
Itefði ótal sinnum komið
frant hjá sér aö við yröum,
„vegna þess efnahags-
ástands sem er í þessu
landi, að reyna aö finna
heildarlausn á kjaramál-
um, a.m.k. yfir þetta ár og
reyna að koma okkur út úr
þessum hryllilega vita-
hring sem getur ekki endað
með öðru en að allir tapi.
Þá tala ég um heildarlausn
og hún er fyrir alla. ()g þeg-
ar ég segi alla, þá meina ég
alla."
Kristján Ragnarsson
framkvæmdastjóri LIU
taldi deiluna hafa verið í
hnút frá upphafi. Honum
fannst fráleitt að einhver
tvö fiskvinnslufyrirtæki á
Austfjöröum fari að semja
sérstaklega. ,,Eg sé hins
vegar ekki hvers vegna
menn ættu að fara að
blanda fiskverösmálum inn
í þessi kaup- og kjaramál
vegna þess að við erum að
taka á okkur verulega afla-
skeröingu og við erum að
fá á okkur olíuhækkun sem
nemur 75% frá ársbyrjun til
ársloka. Margbreytilegar
aöstæður hjá sjómönnum
og útgeröinni er ekki hægt
að bera saman viö kjör
landverkafólks. Að því leyt-
inu erum við sammála sjó-
mönnum."
Óskar Vigfússon formað-
ur Sjómannasambandsins
sagðist ekki vita hvort það
væri almennur vilji fyrir
þvi úti á landi aö koma þar
á fót fiskmörkuöum. „En
sjómenn vilja að eitthvert
samræmi sé á milli þess
sem þeir fá fyrir fiskinn og
þess sem fæst fyrir hann á
fiskmörkuöum. Fiskmark-
aðir og fiskmiðlun gera það
aö verkum aö verkendur
geta sérhæft sig í ákveöinni
vinnslu og borgað hærra
verð fyrir fiskinn, en til
þess að koma slíku kerfi á
þarf áhugi að vera til staöar
en hann viröist ekki vera."
Iðnaðarráðherra rœddi við fulltrúa Alumax:
Alumax hefur áhuga á Atlantal samstarfinu
Fundur Alumax, Hoogovens, Gránges
og íslendinga í lok nœstu viku.
Jón Sigurðsson iðnaðar-
ráðherra og fulltrúar
Landsvirkjunar hafa síð-
ustu daga átt viðræður hér
Bankarnir
qræda of
mikið
Bankarnir græða meira en
góðu hófi gegnir aö áliti
meirihluta þjóðarinnar ef
marka má niðurstöður skoð-
anakönnuar sem birtar voru í
gær. Meirihluta þeirra sem af-
stöðu tóku í könnuninni virt-
ust hins vegar ánægðir meö
þjónustu bankanna og yfir-
gnæfandi meirihluti hefur
traust á bönkunum. Frá nið-
urstöðum könnunarinnar er
sagt á bls. 5.
Jón Sigurösson
á landi við fulltrúa banda-
ríska álfyrirtækisins Al-
umax um hugsanlega þátt-
töku fyrirtækisins í áliðn-
aði hér á landi. Svo er að
sjá sem Alumax-menn hafi
nokkurn áhuga á því að
koma inn í samstarf Atl-
antal-hópsins svo kallaða.
„Þetta voru mjög gagnleg-
ar viðræður og þær leiddu í
Ijós mjög greinilegan og
gagnkvæman áhuga á þvi að
halda áfram viöræðum. Fyrst
og fremst um hugsanlega
þátttöku Alumax í Atlan-
tal-verkefninu, en á því hafa
þeir augljósan áhuga. Það
varð að ráði að stofna til fund-
ar með þeim og fulltrúum
Grnges og Hoogovens þegar í
næstu viku. Islenskir við-
ræöuaöilar verða meö og ég
reikna meö því aö fundurinn
verði hér á landi í lok næstu
viku" sagði Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra i samtali við
Alþýðublaðið i gær.
Einnig var rætt viö þá um
áhuga Alumax á öðrum ál-
iönaöarfjáríestingum á ís-
landi. „En það veröur þá að
ræða nánar síðar, með þvi að
þeir hafa sýnt þennan áhuga
á Atlantal-verkefninu."
Aðspurður nánar um fyrir-
tækið, áherslur þess og hve-
nær þaö væri reiðubúið til aö
taka ákvörðun sagði Jón:
„Þetta er mjög álitlegur sam-
starfsaöili og öflugt fyrirtæki.
Þetta eru raunsæismenn,
þeir vilja líta á allt máliö, stað-
setningu, þátttökuhlutfall og
þar fram eftir götunum. Mér
sýnist aö þeir séu tilbúnir til
að komast aö niðurstööu
frekar fljótt og það tel ég já-
kvætt" sagði Jón.
Samningamál sveitarfélaga:
Nýtt samræmt starfsmat
Samningaviðrœður skammt á veg komnar en taki mið af öðrum samningum
,,Það er útilokað annað
en að taka mið af þeim
kjarasamningum sem eiga
sér stað í kringum okkur,“
sagði Páll Guðjónsson for-
maður launanefndar sveit-
arfélaga við Alþýðublaðið
í gær. Ekki er enn ljóst
hvort aðilar munu stefna
að langtíma samningi eða
semja til skemmri tíma.
Samningaviöræður launa-
nefndar sveitarfélaga og
samflots bæjarstarfsmanna
eru skammt á veg komnar.
Aðilar ætluöu að hittast í gær
að sögn Páls en veðurguðirn-
ir heföu komið í veg fyrir það.
Samningsaðilar koma alls
staðar frá af landinu og því
talsvert undir veðri komiö
hvenær hægt er að hittast.
Þá kom fram hjá Páli að í
haust hafi fariö fram talsverö
vinna í aö samræma starfs-
mat hinna ýmsu sveitarfé-
laga og inn í myndinni væri
m.a. að semja til skamms
tíma meðan aðilum gæfist
kostur á að láta fara fram nýtt
samræmt starfsmat. Það tæki
hins vegar nokkurn tíma og
reyndin af slíkri samræmingu
væri sú að menn hækkuð í
launum frekar en hitt. Veru-
leg samræming átti sér stað
meö „Akureyrarsamningn-
um" en enn gætti þó nokkurs
misræmis milli einstaka sveit-
arfélaga.