Alþýðublaðið - 10.01.1990, Síða 4
FRÉTTASKÝRING
Miðvikudagur 10. jan. 1990
^^^mmmmmm^^^mmm
Ævintýralegur flótti Ceausescu-hjónanna:
Rændu bíl og
Nicholae Ceausescu, fyrrum einvaldur Rúmeníu,
flúði ekki aðeins í þyrlu þegar honum var velt úr sessi
i fyrra mánuði: Einvaldurinn rændi ennfremur bifreið
og lenti í miklum ævintýrum áður en hann var endan-
lega handtekinn ásamt eiginkonu sinni Elenu. Hjónin
voru tekin af lífi nokkrum dögum síðar eftir stutt rétt-
arhöld eins og kunnugt er.
Það hefur hins vegar verið á
huldu hingað til hvernig flótta ein-
valdsins bar að og hvernig hann
var handsamaður. Franska blaðið
Liberation hefur nýverið birt við-
tal við bílstjórann sem ók einvald-
inum og konu hans um sveitarveg-
ina í nágrenni Búkarest áður en
þau voru tekin höndum.
Bíl og bílstjóra rænt
Hin ótrúlega flóttasaga Ceaus-
eseu — hjónanna er eitthvað á
þessa leið: Einvaldurinn og frú
hans flúðu um borð í þyrlu frá þaki
forsetahallarinnar. Þyrlan lenti
fyrir utan höfuðborgina Búkarest
og hjónin fóru úr vélinni. Hvað
síðan gerðist er óljóst þangað til
að við tekur hin merkilega frá-
sögn Nicholae Petrisor.
Petrisor segir við franska blaðið
Liberation að hann hafi verið að
þvo bílinn sinn þann 22. desember
sl. fyrir framan húsið sitt í þorpinu
Vacaresci sem liggur um 70 kiló-
metra fyrir utan höfuðborgina.
Petta var um tvöleytið eftir há-
degi.
Skyndilega hvín í dekkjum og
bremsum bifreiðar sem snarstans-
ar við hiiðina á Petrisor. Ur bílnum
stekkur maður sem veifar með
skammbyssu og skipar Petrisor aö
setjast undir stýri á bíl sínum. Eftir
nokkurra mínútna ökuferð er Pet-
risor skipað aö stöðva bifreiðina
við hliðina á kyrrstæöri bifreið.
Dyrnar eru opnaðar á þeirri bif-
reiö, út koma maöur og kona og
setjast upp í bílinn hjá Petrisor.
Yfirgefinn eínvaldur
Þaö er enginn annar en Nicolae
Ceausescu sem sest í framsætiö
við hliðina á Petrisor, og frú Elena
klifrar upp í baksætiö. „Ef þú vilt
halda lífinu, þá skaltu aka," segir
frú Elena við hinn skelkaöa Petris-
or.
Nicolae Petrisor ekur af staö.
Hann finnur kalt hlaup í Imakk-
ann og gerir ráð fyrir því að frúin
Nicolae Ceausescu fyrir rétti:
Taugaslitinn og örvæntingarfullur
eftir margra daga varðhald í bryn-
vörðum bfl. Þegar dagar hans voru
taldir uppgötvaði einvaldurinn að
vinir hans voru einnig horfnir.
haldi skammbyssu að höfði hans.
Hjónin ræða æst sín á milli hvert
sé best að halda. Elena telur að
best sé aö fela sig í skóginum, en
eiginmaður hennar er á öðru máli
og heldur að mesta öryggiö sé aö
Skil á staðgreiðslufé 1990:
EINDAGINN
ER 15.
HVERS MÁNAÐAR
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reikn-
uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin
skulu gerð eigi síðar en 15. hvers mán-
aðar.
Með skilunum skal fylgja greinar-
gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila-
greinum“, blátt eyðublað fyrir greidd
laun og rautt fyrir reiknað endurgjald.
Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó
svo að engin staðgreiðsla hafi verið
dregin af í mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera í heil-
um krónum.
Gerið skil tímanlega
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI
bílstjóra
finna í verksmiðjunum. Vilji eigin-
mannsins verður ofan á.
Petrisor er skipað að aka aö
næstu verksmiöju.
Þegar þangaö kemur, hafa verk-
anmennirnir nýhafiö verkfall til
aö mótmæla aðstæðum, kjörum
og öllu öðru milli himins og jarðar.
Þegar verkamennirnir þekkja aft-
ur Ceausescu — hjónin er þeim
ekki fagnaö eins og gömlum vin-
um í líkingu við væntingar hjón-
anna. Þvert á móti dynja skammir
og svíviri Tgar á einvaldinum og
frú hans. „Drepum glæpahyskiö!"
hrópa verkamennirnir og hjónin
sjá ekki annað vænna en að skipa
Petrisor að aka af stað í hasti.
Ceausescu fer aö skæla viö
þessa uppákonm: ,, í æsku minni
var þessi staður bara auönin ein.
Ég gaf þeim allt, ég gaf þeim allt,"
endurtekur einvaldurinn milli
ekkasoganna.
Flokksskrifstofan
negld aftur
Það er opið fyrir útvarpið í bíln-
um. Skyndilega heyrast raddir
hinna nýju valdhafa í útvarpinu
þar sem þeir lesa upp ýmsar til-
kynningar.
„Skrúfaðu fyrir, skrúfaðu fyrir!"
öskrar Ceausescu.
Bifreiðin er nú komin í þorpið
Tirgoviste, sjö kilómetra frá höfuð-
borginni. Ungmenni á götunni
bera kennsl á Ceausescu-hjónin í
bílnum og gera hróp að bílnum.
Ceausescu tekur þá ákvörðun að
leita hælis á flokksskrifstofunni í
þorpinu og skipar Petrisor að aka
þangað. Þar tekur ekki betra við.
Dyrnar eru negldar aftur og ein-
hver embættismaður hrópar til
þeirra að koma sér í burtu. Petris-
or ekur aftur út úr þorpinu.
Eftir þriggja tíma akstur á mis-
góðum sveitarvegum, ákveöur
Petrisor að aka að gróðrarstöð þar
sem hann þekkir til staðarhátta og
Ceausescu — hjónin samþykkja þá
fyrirætlan.
Þegar þangað kemur, fer Petris-
or úr bílnum og gengur inn í skól-
ann. Þar sitja um tugur manns og
horfir á sjónvarp. Það er veriö aö
sjónvarpa beint frá atburðunum í
Búkarest.
Petrisor stynur upp að hann sé
með Ceausescu — hjónin í bílnum
sínum fyrir utan.
Handtekin i gróðrarstöð
Fyrstu viðbrögð fólksins er al-
mennur hlátur. Síðan segir einn í
hópnum að sjónvarpið hafi verið
aö tilkynna að búið sé aö hand-
taka hjónin. Það sé óþarfi fyrir Pet-
risor að vera að segja svona lyga-
sögur.
En menn hætta að hlæja þegar
þeir sjá hið náföla andlit Petrisors,
afmyndað af skelfingu. Loksins
tekur fólkiö mark á honum. Petris-
or er gert aö ná i hjónin og á með-
an er hringt i nærstaddar herdeild-
ir. Petrisor segir hjónunum að
ganga inn i skólann. Nokkru síðar
koma hermenn brunandi og
handtaka hjónin í skyndingu og
fara með þau á brott.
Eftirminnilegustu ökuferö í lífi
Nicolae Petrisor frá Vacaresci er
lokið.
Þrjá sólarhringa í
brynvörðum bíl
Kapteinn einn í rúmenska hern-
um, Mihai Lupoi sagði umheimin-
um niðurlagiö á þessari sögu um
áramótin í viðtali við breska sjón-
varpið BBC. Kapteinninn sagði, að
eftir að Ceausescu-hjónin heföu
verið handtekin i gróðrarstöðinni,
hefðu þeim verið haldið í bryn-
vörðum bíl í þrjá sólarhringa áöur
en þau voru leidd fyrir rétt.
Þar er kannski skýringin fundin
hvers vegna hjónin voru svona
rytjuleg þegar þau voru fyrir rétt-
inum. Það er alla vega víst aö Ce-
ausescu-hjónunum hefur ekki ver-
ið svefnsamt þær nætur áöur en
þau voru dregin fyrir rétt, dæmd
og líflátin.
INGÓLFUR
MARGEIRSSON
„Ég held
ég gangi heim“
Eftir einn -ei aki neinn
yUMFERÐAR
RÁÐ
Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi
Guðjón B. Baldvinsson
fv. deildarstjóri
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík,
föstudaginn 12. janúar kl. 10.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast
hins látna er bent á hjúkrunarheimilið Skjól.
Anna Guðmundsdóttir
Baldur F. Guðjónsson
Hilmar G. Guðjónsson
Baldvin L. Guöjónsson
Valgerður J. Guðjónsdóttir
Jóhannes Þ. Kristinsson
Lolo M. Guðjónsson
Þórunn Kristjansdottir
Halla E. Stefánsdóttir
Ingvar Bjarnason
Anna Jóhannsdóttir
og barnabörn