Alþýðublaðið - 10.01.1990, Síða 5
Miðvikudagur 10. jan. 1990
5
Sá virdist skodun
meirihluta þjódar-
innar samkvæmt
niöurstööum skod-
anakönnunará
vegum vidskipta-
bankanna. Meiri-
hluti er þó
ánœgdur med
þjónustu bank-
anna en allmargir
viröast óánœgöir
meö opnunar-
tímann.
»ll? ^ **
íflHB 1 » » . ■~m.Æ mWTm
Fjórir bankastjórar kynntu niöurstööur skoðanakönnunarinnar fyrirfréttamönnum igaer. Frá vinstri: Geir Magnusson Samvinnubanka, Tryggvi Pálsson
Islandsbanka, Valur Arnþórsson Landsbanka og Stefán Pálsson Bunaöarbanka, sem jafnframt er formaður Sambands íslenskra viðskiptabanka.
Bankarnir græða of mikið
Talsverður meírihluti landsmanna telur bankakerfið
rekið með of miklum hagnaði og langf lestir eru þeirrar
skoðunar að stjórnmálamenn hafi of mikil áhrif á
starf semi bankanna. Fólk virtist á hinn bóginn nokkuð
ánægt með þjónustu bankanna, samkvæmt niður-
stöðum skoðanakönnunar sem birtar voru í gær.
Þekking almennings á ýmsum algengum hugtökum í
bankastarfsemi virtist vera af skornum skammti og
meirihluti fólks sagði bankana ekki upplýsa nægilega
skýrt um þau kjör sem í boði væru.
Það vekur raunar sérstaka at-
hygli í sambandi við þessa könn-
un, sem framkvæmd var af Félags-
vísindastofnun Háskólans fyrir
Samband íslenskra viðskipta-
banka, að auglýsingastofa var
fengin til að vinna úr niðurstöðun-
um áður en þær voru kýnntar fjöl-
miölum. Urvinnsla auglýsinga-
stofunnar virðist hafa haft nokkur
áhrif á framsetninguna og má sem
dæmi nefna svör við spurningu
um hvort fólk teldi bankana gegna
hlutverki sínu vel, sæmilega eða
illa. Svörin voru á þá leið að 27,3%
töldu bankana gegna hlutverki
sínu vel, 60,8% sæmilega og 11,9
illa. I meöförum auglýsingastof-
unnar voru fyrri tölurnar tvær
dregnar saman í eina, þannig aö í
skýrslunni sem fjölmiðlafólk fékk í
hendur í gær, sagði að 88,1% teldu
bankana gegna hlutverki sínu vel
eöa sæmilega en aðeins 11,9%
teldu þá gegna því illa.
Hagnaðurinn of mikill
Yfirgnæfandi meirihluta að-
spurðra í könnuninni, 63,2%, var
þeirrar skoöunar aö hagnaöur
bankanna væri of mikill. Tæpur
þriðjungur, 32,3% álitu hagnaðinn
hæfilegan en 4,6% voru aftur á
móti þeirrar skoðunar að hagnaö-
urinn væri of lítill. I þeirri skýrslu
sem kynnt var á blaðamannafund-
inum í gær kemur ekki fram
hversu stórum hluta þótti hagnað-
ur bankanna allt of mikill, eða
hvort sá svarmöguleiki var gefinn
i könnuninni.
Þess ber að geta í þessu sam-
bandi að langflestir töldu að
banka ætti að reka með hagnaöi.
Rúmlega 87% voru þessarar skoð-
unar. I þeim niðurstööum sem birt-
ar voru í gær er úrtakið ekki klofiö
eftir t.d. aldri, kyni, búsetu eöa
stjórnmálaskoöunum en fram
kom á fundinum að talsverður
munur var á afstöðu fólks til hagn-
aöar bankanna eftir stjórnmála-
skoðunum. Aðeins rétt ríflega
80% kjósenda Alþýðubandalags-
ins töldu rétt að bankar, væru
reknir með hagnaði. Litlu fleiri
kjósendur Kvennalistans voru
þessarar skoðunar. Yfir 90% af
kjósendum Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks vildu láta reka
banka meö hagnaði en kjósendur
Framsóknarflokksins voru nálægt
meðaltali.
Áhrif stjórnmálamanna
Þaö viröist útbreidd skoðun
meöal almennings aö stjórnmála-
menn hafi meiri áhrif í bönkum en
góðu hófi gegnir. I könnuninni var
spurt hvort fólk teldi áhrif stjórn-
málamanna í bönkum of mikil,
hæfileg eða of lítil. Ríflega 84%
sögðu áhrif stjórnmálamanna of
mikil, 14,5% hæfileg en l,4%voru
þeirrar skoðunar að stjórnmála-
menn hefðu of lítil áhrif í bönkum.
Bankastjórarnir sem kynntu
niöurstööur könnunarinnar í gær,
virtust þeirrar skoðunar að bank-
arnir og bankakerfiö hafi að und-
anförnu veriö fórnarlamb mjög
neikvæðrar umræðu í fjölmiðlum.
Knappur meirihluti (50,9%) þeirra
sem afstööu tóku í könnuninni
reyndist einnig þeirrar skoðunar.
39,6% töldu fjölmiðlaumræöuna
sanngjarna en 9,5% fannst bank-
arnir hafa fengið of jákvæða unj-
fjöllun í fjölmiðlaumræðu. /
Áberandi hugtakaruglingur
í niðurstööum könnunarinnar
kemur greinilega fram að almenn-
ingur er ekki tiltakanlega vel aö
sér um merkingu ýmissa algengra
hugtaka sem notuð eru í peninga-
málum. Hér má nefna hugtök eins
og nafnvexti, raunvexti og verð-
tryggingu. Réttir tveir þriðju hlut-
ar aðspurðra kváðust ekki vita
hvað þessi hugtök þýddu og innan
við 6% voru þeirrar skoðunar að
almenningur þekkti merkingu
þessara hugtaka nægilega vel.
I öllu auglýsingaflóði bankanna
á undanförnum árum og aukinni
samkeppni virðist einnig sem al-
menningur hafi ekki náð aö fylgj-
ast meö framvindu mála, því tölu-
verður meirihluti (60,9%) reyndist
á þeirri skoöun að bankarnir upp-
lýstu ekki nægilega skýrt, hvaða
kjör þeir bjóða.
Ánægja með þjónustu
Samkvæmt niðurstööum þess-
arar könnunar viröist sem allur al-
menningur sé ánægður með þjón-
ustu bankanna. Nærri þrír fjórðu
hlutar töldu ennfremur aö þjón-
ustan heföi almennt batnaö á síð-
ustu 5 árum. Enn fleiri eða því sem
næst fjórir af hverjum fimm töldu
þjónustuna góða. Yfir 80% sögöu
starfsfólk bankanna nægjanlega
lipurt í þjónustunni. Ríflega níu af
hverjum tíu töldu sinn viðskipta-
hanka veita mjög góða þjónustu.
Spurt var um traust fólks á bönk-
um og reyndust 71,4% bera mikiö
eða mjög mikiö traust til bank-
anna almennt en 18,2 kváðust
bera lítið traust til bankanna eða
jafnvel mjög lítiö.
Hvað opnunartíma bankanna
viðvíkur virðist sem tæpur fjórð-
ungur þeirra seni afstöðu tóku hafi
taliö að opnunartíminn hentaði
sér illa. Þetta er að vísu ekki nefnt
beinlínis í skýrslunni sem frétta-
mönnum var afhent í gær en þar
kemtir fram að 76,8% liafi sagt að
opnunartimi bankanna hentaöi
sér vel eöa sæmilega.
Samkeppni eða sameining
Allverulegur meirihluti þjóðar-
innar viröist sammála þeirri sam-
einingu banka sem átti sér stað
um áramótin. Ríflega þrír af hverj-
um fjórum sem afstööu tóku voru
á þeirri skoöun að bankasamein-
ing væri æskileg en um 15% töldu
þessa þróun ekki æskilega.
í könnuninni var einnig spurt
um samkeppni milli banka og
töldu 21,4% að samkeppnin væri
of mikil, 41,8% fannst hún hæfileg
en 36,8% þótti samkeppni milli
bankanna vera oí lítil.
Könnun þessi var gerð í byrjun
september i haust og náði til 1.500
manna úrtaks á aldrinum 18—75
ára. Tekiö skal fram að allar hlut-
fallstölur eru byggðar á svörum
þeirra sem tóku afstöðu til hverrar
spurningar fyrir sig. í |)eirri
skýrslu sem dreift var á blaða-
mannafundi i gær kemur ekki
fram hversu margir gáfu ekki upp
afstöðu við hinum ýmsu spurning-
um. Töflur eru ekki birtar og
flokkar svara að því er viröist all-
víða dregnir saman.
JD
5GX
40- ■
30--
20--
ÍO- ■
Samkeppnl of mlkil/
haefll©g/of lítll?
41, Bx
]
36, BX