Alþýðublaðið - 10.01.1990, Qupperneq 7
Miðvikudagur 10. jan. 1990
7
UTLOND
Við fyrir-
verðum okkur
Knut Hamsun var aldrei meðlimur norska nasistaf lokksins
en samt er hann enn í dag stimplaöur sem nasisti. Honum
var ókunnugt um gyðingaofsóknirnar og sárnaði að enginn
sagði honum frá þeim.
Nafniö Knut
Hamsun er nafn
sem oft hefur
komiö af stad
kappræöum í
Noregi og sýnist
þar sitt hverjum
og finnst mörgum
Nordmönnum illa
hafi verið farið
með gamla
manninn.
Það verður að viðurkennast að
örlög Knut Hamsun eru skammar-
blettum á heilli þjóð, skrifar blaöa-
maður Arbeiderbladet. Enginn
getur og ekki allir vilja leiðrétta
það óréttlæti sem Hamsun varð
fyrir eftir heimsstyrjöldina síðari
vegna blaðagreina sem voru vin-
samlegar í garð Þjóðverja. Ham-
sunfjölskyldan var rúin inn að
skinni fjárhagslega og hlaut miklu
verri örlög heldur en ýmsir sem
voru ekki yfirlýstir nasistar en not-
færðu sér stríðsárin til þess að
græða á ýmsu sem ekki kom land-
búnaði við en þeir voru margir
bændur. Knut Hamsun var aftur á
móti settur inn — ekki í fangelsi —
það vildum við ekki hafa á sam-
viskunni skrifar blaðamaðurinn.
Við fórum gömlu Austur-Evrópu
leiðina — sálgreining um geðræn
vandamál . . . urskurður sérfræð-
ings: Andlega ekki með á nótun-
um og það vissu þeir sem lásu bók
hans Grónar götur. Fljótlega eftir
að heimsstyrjöldin siðari hófst
fékk Hamsun tvisvar sinnum
heilablæðingar og hann var orð-
inn heyrnardaufur löngu áður og
þetta lagðist á eitt um það að hann
fékk ekki þær upplýsingar sem
hann hefði þurft til þess að gera
sér Ijóst um hverslags ódæðisverk
af hálfu nasista var að ræða. Þetta
kom fram í réttarskjölunum en
enginn vildi sjá það, skrifar blaða-
maðurinn. Það hefur komið í Ijós
að hann gerði allt sem í hans valdi
stóð til þess að fá lausa landsmenn
sína sem áttu dauðadóm yfir höfði
sér. Hann gaf peninga út og suður
og hjálpaði mörgum í smáu og
stóru. Hann var ekki þeirrar gerð-
ar að auglýsa sjálfan sig vegna
þessa, jafnvel ekki þegar hann að
lokum stóð fyrir réttinum og var
dæmdur 90 ára gamall maður-
inn . . . Blaðamaður Arbeider-
bladet lýkur greininni með því að
vona og óska að allar góðar vættir
komi í veg fyrir að 90 ára gamal-
menni sé stillt upp fyrir rétti eða
þurfi að gangast undir „sálrænar
geðrænar rannsóknir".
Knut Hamsun er níræður á þessari mynd. Komið hefur i Ijós að hann barðist
fyrir frelsi dauðadæmdra Norðmanna á striðsárunum.
SJÓNVARP
Sjónvarpið kl. 20.35
A TALI HJÁ
HEMMA GUNN
Enn á ný er Hermann Gunnarsson
mættur í sjónvarpssal þar sem hann
tekur á móti gestum og gangandi og
hlær við öðru hverju — eftir því sem
fregnir herma. í þessum þætti verða
gestir hans m.a. Barkabræður,
söngvararnir Astrid Vilhelmsen og
Kolbeinn Ketilsson. Söngvara-
keppnin verður formlega sett af
stað og að auki verða afhent verð-
laun fyrir besta íslenska tónlistar-
myndbandið sem gert var á síðasta
ári að mati sérstakrar dómnefndar,
verðlaunin hlaut myndband eftir
Óskar Jónsson við lag Sykurmol-
anna.
Stöð 2 kl. 21.00
í SLAGT0GI
Umsjón hefur að venju sjónvarps-
stjórinn Jón Óttar Ragnarsson sem
lent hefur í slagtogi við hvern ráð-
herrann á fætur öðrum að undan-
förnu, að þessu sinni verður það
Halldór Ásgrímsson, kletturinn í
sjávarútvegsráöuneytinu.
Sjónvarpið kl. 21.40
ARFURINN
(Dedichina)
Júi>óslavnesk bíómynd, gerd 19S4,
leiksljóri Pavlo Kogoj, Adalhlulverk
Poldo Bibic, Milena Zupanicic.
Dramatísk mynd um slóvenska fjöl-
skyldu sem upplifir þrjú róstursöm
en gjörólík tímabili, frá 1914 og
framyfir síðari heimsstyrjöld, í sögu
Júgóslaviu og Slóveníu.
Stöð 2 kl. 21.40
ÓGNIR UM ÓTTUBIL
(Midnight Caller)
Vilji menn ekki horfa á hina júgó-
siavnesku bíómynd í ríkissjónvarp-
inu geta menn skipt á Stöð 2, hafi
menn afruglara það er að segja, og
horft á lokaþáttinn um útvarps-
manninn .lack Killian sem er sér-
kennilegur útvarpsmaöur en mikill
töffari, blessaður maöurinn.
Stöð 2 kl. 22.30
ÞETTA ER ÞITT LÍF
(This is your Life)
Michael Aspel tekur á móti gestum
í sjónvarpssal. Ef til vill er saman-
burðurinn við hinn íslenska þátt
sömu tegundar, í slagtogi, nokkuð
svo óhagstæður. Aspel þessi er þaul-
reyndur í að taka á móti frægu fólki,
einkanlega kvikmyndastjörnum og
skapast oft mikiö fjör hjá honum.
0 ^jjjísröÐa
17.50 Töfraglugginn 15.35 Travis McGee 17.05 Santa Barbara 17.50 Fimm félagar
1800 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Poppkorn 18.15 Klementina 18.40 í sviðsljósinu
1900 19.20 Hver á að ráða? 19.50 Bleiki pardusinn 20.00 Fréttir og veður 20.35 Á tali hjá Hemma Gunn 21.40 Arfurinn Júgó- slavnesk biómynd frá árinu 1984. Myndin fjallar um slóvenska fjólskyldu, sem upplifir þrjú róstur- sóm en gjörólik tima- bil 19.1919.19 20.30 Af bæ i borg 21.00 1 slagtogi 21.40 Ognir um ottu- bil (Midnight Caller) 22.30 Þetta er þitt lif Breskir viólalsþættir
2300 23.00 Ellefufréttir 23.10 Arfurinn Framhald 23.45 Dagskrárlok 23.00 Oliubor- pallurinn (Oceans of Fire). Ævintýraleg spennumynd um nokkra fanga sem láta sér fátt fyrir brjósti brenna 00.35 Dagskrárlok