Alþýðublaðið - 03.02.1990, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 03.02.1990, Qupperneq 1
til þess að ná þessu markmiði þurfi allir að standa saman og þeir kjarasamningar sem enn er eftir að gera verði í samræmi við þá sem nú hefur verið skrifað undir. Stéttarsamband bænda var meðal þeirra fjölmörgu aðila sem eiga aðild að samningnum og á forsíðumynd- inni siturformaðurStéttarsambandsins, Hauk- ur Halldórsson ásamt formanni Vinnuveit- endasambandsins, Einari Oddi Kristjánssyni. Alþýðublaðið fjallar í dag um samningana út frá ýmsum sjónarmiðum. Þeireru umfjöllunar- efni íheilsíðuleiðara á bls. 2. Rætt er við fulltrúa helstu samningsaðila á bls. 3 og í opnunni er fólkið á götunni spurt um álit. I fyrrakvöld og um hádegisbilið í gær var skrifað undir kjarasamninga fyrir stærstu launþegasam tök landsins, ASÍog BSRB. Þess- ir kjarasamningar byggjast á mjög víðtæku samkomulagi margra aðila og markmið þeirra m.a. að koma verðbólgunni svo rækilega niður að hún nemi ekki meiru en 6—7% á þessu ári. Það er þó samdóma álit samningsaðilanna að Samningar hjá Reykjavíkurborg: llndirskrif frestað vegna stiómarkjörs Bodið fram gegn formanni starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar. Kosið fyrir helgi Ekki verður skrifað undir kjarasamning milli Reykjavík- urborgar og starfsmanna hennar fyrr en að afstöðnu stjórnarkjöri í Starfsmannafé- lagi Reykjvíkurborgar. Borist hefur mótframboð gegn for- manni félagsins, en ný stjórn verður kjörin fyrir næstu helgi. Það er Guðmundur Vignir Ósk- arsson, brunavörður sem er í framboði gegn sitjandi formanni, Haraldi Hannessyni. Haraldur sagði í samtali við Alþýðublaðið í gær að rétt þætti að fresta undir- skrift kjarasamninga þar tii að stjórnarkjörinu afstöðnu. Harald- ur kvaðst þó ekki eiga von á að úr- slit stjórnarkjörsins myndu hafa áhrif á kjarasamninginn sjálfan að öðru leyti. Ríkissjóður: Utgiöldin skorin niður um milliarð Ríkisútgjöldin verða skorin niður um nálægt milljarði króna til að mæta fyrirsjáan- lega auknum fjárlagahalla vegna nýgerðra kjarasamn- inga. Þetta kom fram í ummæl- um fjármálaráðherra og for- sætisráðherra í sjónvarpi í gærkveldi. Hvorugur ráðherr- ann vildi þó tilgreina nánar hvar skorið yrði. Reiknað er með að skuldbind- ingar þær sem ríkissjóður tekur á sig vegna kjarasamninganna muni kosta um 1,2—1,3 milljarða króna. Munar þar mestu um áframhaldandi niðurgreiðslur matvæla en sá kostnaður er áætl- aður á bilinu 700—750 milljónir. Aðrir mikilsvérðir kostnaðarliðir eru hækkun svokallaðs frítekju- marks lífeyrisþega og frestun á hækkunum ýmissa opinberra gjalda. Fjármálaráðherra hyggst leggja fram tillögur um niðurskurð ríkis- útgjalda eftir viðræður við aðra ráðherra en að lyktum mun þó málið koma til kasta Alþingis.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.