Alþýðublaðið - 03.02.1990, Qupperneq 5
Laugardagur 3. febr. 1990
5
FRÉTTASKÝRING
GEORGE BUSH, Bandaríkjaforseti:
Yill fækka hermönnum
stórveldanna í
George Bush, Bandaríkjaforseti hefur lagttil við Míkhaíl
Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna að ríkin tvöfækki herlið-
um sinum staðsettum í Mið-Evrópu verulega. Bandaríkja-
forseti ræddi tillögur um fækkun herafla símleiðis við Gor-
batsjov áður en hann flutti bandarísku þjóðinni stefnuræðu
sína að kvöldi 31. janúar. Bush, tók þó fram í ræðu sinni að
hann teldi veru bandarísks herafla í V-Evrópu nauðsynlega
og að hún skuli ekki háð veru sovésks herafla í A-Evrópu.
Tillögur Bandaríkjamanna um fækkun herafla hljóða upp á
að hvort ríkið fyrir sig fækki hermönnum sínum í Mið-Evr-
ópu niður í 195.000 en tillögur um fækkun hafa til þessa
aldrei farið niður fyrir 275.000.
M-Evrópu
George Bush segir í stefnuræðu
sinni að þessar tillögur byggi á
þeim breytingum sem orðið hafa í
átt til aukins lýðræðis, á undan-
förnum misserum í A-Evrópu. Sú
ógn sem Vestrænum ríkjum hefur
stafað af herveldi Sovétríkjanna
fari minnkandi og því telja Banda-
ríkjamenn nú óhætt að leggja til
aö hefðbundnum herafla í
Mið-Evrópu verði fækkað. Hins
vegar bendir Bush á að sú stað-
reynd standi enn að strúktúr hern-
aðaruppbyggingar Sovétríkjanna
sé óbreyttur. Meðan svo sé geta
Bandaríkjamenn ekki horfið frá
hernaðarstefnu sinni sem byggir á
langdrægum kjarnorkuflaugum.
Ólíkir hagsmunir
Bandaríkjamenn hafa til þessa
gegnt veigamiklu hlutverki í vörn-
um NATO á meginlandi Evrópu.
Kostnaður Bandaríkjamanna af
herafla staðsettum í Evrópu er
mikill. Þær raddir hafa gerst æ há-
værari innan Bandaríkjanna sem
segja að þessi útgjöld verði að
lækka með einhverju móti. Þá
hafa Bandaríkjamenn lengi talið
hlut V-Evrópuríkja allt of lítinn í
uppbyggingu herafla NATO. Til-
lögur Bush um niðurskurð þessa
herafla munu því eflaust falla í
góðan jarðveg meðal Bandaríkja-
manna.
Málin hafa hins vegar horft
öðruvísi við ráðamönnum í ríkjum
NATO í V-Evrópu þar sem allar til-
lögur i þessa veru hafa hingað til
mætt mikilli tortryggni. Hafa þessi
riki hingað til lagt á það ríka
áherslu að Bandaríkjamenn standi
við skuldbindingar sínar um að
tryggja varnir á meginlandi V-Evr-
ópu. Til þessa hefur vera banda-
rískra hersveita í Mið-Evrópu ver-
ið talin stuðla að auknum trúverð-
ugleika þessarar hernaðarstefnu.
Breyttar forsendur í A-Evrópu eru
hins vegar taldar auka líkur á að
ráðamenn í V-Evrópu muni fallast
á þessar tillögur Bandaríkjafor-
seta.
Bush vék í ræðu sinni að innrás
Bandaríkjamanna í Panama.
Hann sagði að þar hefði lýðræði
verið endurreist og nú væri Pan-
ama frjálst ríki. Þá tilkynnti Bush
að í lok febrúar yrði flutningum
umframherafla Bandaríkjanna
heim lokið og fjöldi bandarískra
hermanna yrði þá á ný svipaður
og verið hafði áður en til átaka
kom.
Mestur hluti ræðu Bandaríkja-
forseta fjallaði um stefnumótun í
innanríkismáium. Fjárlagahalli
Bandaríkjanna hefur verið tals-
verður undanfarin ár. A síðasta ári
var hallinn 6% af vergri þjóðar-
framleiðslu en nú mun stefnt að
því að hallinn verði ekki nema
Að fjárfesta í
Bandaríkjunum
Bush lagði áherslu á að við-
Bandaríkjamönnum blasi nú stöð-
ugt harðnandi samkeppni á mörk-
uðum í kringum þá. Til að mæta
þessari staðreynd yrði að gera
ýmsar grundvallarbreytingar. Þar
lagði hann höfuðáherslu á upp-
byggingu innanlands og að fjár-
festing beindist inn á við eða með
hans orðum; „Við verðum að fjár-
festa i okkur sjálfum". í framhaldi
af þessu tilkynnti forsetinn að
hann myndi leggja fyrir þingið
frumvarp um fjölskyldusparnað
„Family Savings Plan“. Þá sagði
forsetinn að efla bæri hvers konar
innlenda framleiðslu og fjárfest-
ingu í rannsóknum og þróun á
sviði iðnaðar. Slíkt skilaði sér í
aukinni atvinnu og öflugra efna-
hagslífi sem myndi leiða til sterk-
ari stöðu Bandaríkjanna á al-
heimsmarkaði. Þá lagði Bush
áherslu á að menntakerfið yrði
eflt og að baráttunni við eiturlyfja-
ánauðina yrði haldið áfram.
1%.
Bush sagði að kominn væri timi til að Bandaríkjamenn biðu fram aðstoð sína við hin ungu lýöræðisríki í austri
og stuðla meö þeim hætti að sameiningu Evrópu.
Góða heigi! Góða heSgi! Góða helgi! Góða helgi! Góða helgi!
Um þessa helgi er fjölmargt
að gerast á hinum ýmsu svið-
um mannlífsins, — engin
ástæða til að láta sér leiðast.
Skoðum nokkur atriði sem
bjóðast til afþreyingar.
Málverkasýningar
um allar jarðir
Mikið framboð er um þessar
mundir af góðri myndlist. Á
Kjarvalsstöðum eru sýningar
Tolla, Þorláks Kristinssonar á
olíumálverkum í vestursal,
Guðnýjar Magnúsdóttur, sem
sýnir leirmuni í vesturforsal, og
Braga Þórs Jósefssonar, sem
sýnir í austurforsal. Meistari
Kjarvai er á sínum stað í aust-
ursal. í Nýhöfn í Hafnarstræti
er sýning Guðrúnar Einars-
dóttur, olíuverk unnin á síðast-
liðnu ári.
í nýju galleríi, Gallerí RV, sem
fyrirtækið Rekstarvörur rekur
að Réttarhálsi 2, er sýning
Daða Guðbjörnssonar. Sýn-
ingin er opin virka daga frá
8—17.
Enn annað nýtt gallerí er að
finna að Logafold 28, líklega
fyrsti sýningarsalurinn í Grafar-
vogshverfi. Þar opnar Gallerí
Graf kl. 3 á laugardaginn með
sýningu á verkum ungrar lista-
konu, Ástu Guðrúnar Ey-
vindardóttur. Gallerí Graf er
opið á laugardögum frá
14—18.
Þá er að geta sýningar vest-
ur á ísafirði í Slunkaríki. Þar er
expressíónisti frá Hollandi á
ferð, Jean-Paul Franssen.
Bellmans minnst
í Norræna húsinu
í Norræna húsið er gott að
koma um helgar, alltaf eitthvað
á seyði þar. Á laugardagskvöld
er dagskrá í tilefni af 250 ára af-
mæli Bellmans, vísnasögvar-
arnir Axel Falk og Bengt
Magnusson verða þar með
söng og gítarspil kl. 20.30. Tón-
leikamir verða endurteknir á
mánudagskvöld kl. 20.30.
Fyrir jazzunnendur er rétt að
benda á jazzkvöldið í Café ís-
land í Hótel íslandi. Þar koma
fram Tómas R. Einarsson og
félagar á laugardagskvöld kl.
23.30. í Duus húsi er Ómar Ein-
arsson og tríó með Guðmundi
Ingólfssyni á ferðinni kl. 21.30 á
sunnudagskvöld.
Fjársjóður
herra Arne í Kvik-
myndaklúbbnum
í Kvikmyndaklúbbnum i
Regnboganum er til sýningar
kvikmynd Maurits Stiller, Herr
Arnes Pengar, frá 1919. Sýn-
ingar Kvikmyndaklúbbsins eru
fyrir félaga eingöngu, — aðild
kostar 1000 krónur, en að:
göngumiðinn 300 krónur. í
klúbbnum eru sýnd ýmis
helstu stórvirki kvikmynd-
anna, myndir sem þú munt lík-
lega aldrei sjá í sjónvarpinu.
Sýningar í Kvikmyndaklúbbn-
um eru á fimmtudögum kl. 21
og 23.15 og á laugardögum kl.
15.
Heimili
Vernhörðu Alba —
síðustu forvöð
að sjá
góða sýningu
Meistaraverkið Heimili Vern-
hörðu Alba eftir Federico Garc-
ia Lorca verður sýnt í síðasta
sinn á stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins á sunnudagskvöldið. Góð
sýning að allra dómi. Heitar,
spánskar ástríður. í sýningunni
koma fram á þriðja tug kven-
leikara, — Kristbjörg Kjeld í að-
alhlutverki. Gamanleikurinn
Lítið fjölskyldufyrirtæki er á
fjölum Þjóðleikhússins á laug-
ardagskvöld, sýningum fækkar
því stóra sviðinu verður lokað
26. febrúar vegna viðgerða.
Efni leikritsins, sem er eftir Al-
an Ayckburn ætti að höfða til
okkar. Spurningin er nefnilega:
Hvernig getur fjölskyldufyrir-
tæki farið á hausinn þegar
eigendur þess virðast moka
inn peningum? Vinsælt leikrit
sem hefur fengið fádæma
góða aðsókn.
Skíðaferðir og
göngutúrar
Áreiðanlega munu margir
reyna að fara á skíði um helg-
ina, — það er spurning um
veður sem ræður hvort af
skíðaferðinni verður eða ekki.
Bláfjöllin eru þegar farin að
draga til sín margmenni, — og
nú tilkynna þeir í Hlíðarfjalli við
Akureyri okkur að þar sé allt til
reiðu. Þar eru fimm lyftur, m.a.
1000 metra stólalyfta sem flyt-
ur 580 manns á klukkutíma.
Lyfturverða opnarfrá 10—17. í
Hlíðarfjalli fást leigð skíði með
öllum búnaði á 1200 krónur
fyrir daginn, — dagurinn í lyft-
ur kostar 630 krónur í heilan
dag.
Frá Kópavogi fáum við þær
fréttir að Hananú fólk gangi á
laugardagsmorgun eins og
endranær, allir velkomnir sem
vilja Samveru, súrefni og
hreyfingu, en það eru einkunn-
arorð göngumannanna.