Alþýðublaðið - 03.03.1990, Síða 8
8
Laugardagur 3. mars 1990
ÆSIFREGNASÍÐAN
Harðfenrti mannlífsins!!
MIÐBORGIN: Róstur hafa orðið í miðborg Reykjavíkur að undan-
förnu. M.a. ku leigubílstjóra hafa verið ógnað með byssu og hér sést
ung kona nýkomin af skemmtistað þar sem leitað hafði verið á hana
á óviðurkvæmilegan hátt. Til að hafa vaðið fyrir neðan sig í leigubíln-
um dró hún þegar upp byssu og samanbitnum vörum skipaði hún
bílstjóranum að aka sér i Hlíðahverfiö. Þar hvarf konan sporlaust en
leigubílstjórinn hefur tekið sér viku frí.
NORÐURLANDARÁÐSÞINGIÐ: Kvittur hefur verið á kreiki um að
þingfulltrúar á Norðurlandaráðsþinginu láti ekki við það sitja að
sækja fundi ráðsins heldur sæki sömuleiöis stíft hvor á annan. Nokkr-
ir fulltrúar á þinginu festust á mynd í villtum gleðskap þegar þeir
reyndu að flýja herbergi eitt á hóteli hér í bæ eftir að lögreglan hafði
verið kölluð til.
Ljósmyndir:
Auöunn J. Kúld
yngri
m
FÉLAGSMÁLASTOFNUN: Um sextíu fjölskyldur eru nú á framfæri félagsmálastofnun-
ar í Reykjavik samkvæmt því sem komið hefurfram í fjölmiðlum. Fólk þetta ku illa statt
og berst í þvílíkum bökkum að ekki sér fyrir endann á stritinu. Hér má sjá fulltrúa félags-
málastofnunar (með hattinn) gera skjólstæðingum grein fyrir fjárhagsáætlun borgar-
innar fyrir árið i ár.
VEÐURTEPPTIR: Nokkrir austfirðingar hafa verið veðurtepptir í Loömundarfiröi siðan
í haust. í samtali við fréttamenn Alþýöublaðsins höföu þeir á orði mannskaöaveöur og
litla aðstöðu til hreinlætisiðkana. Sagan segir að þeir hafi gert sér klæönað úr hreindý-
raskinni og lifi einanagraðir sem fornmenn væru til orðs og æðis. Snjóalög eru með ólik-
indum og nærri liggur að menn verði úti.
Góða hefgi! Góða helgi! Góða heigi! Góða helgi! Góða helgil
Málverka- og aðrar
myndasýningar
Laugardaginn 3. mars verður opnuð í
Listasafni íslands sýningin UPPÞOT OG
ÁREKSTRAR, NORRÆN LIST1960—1972.
Hér er um að ræða samnorræna farandsýn-
ingu sem hefur göngu sina í Reykjavík , en
fer siöan til annarra höfuðborga Norður-
landa. Á þessari sýningu er listsköpun sjö-
unda áratugarins í brennidepli og verður
einkar athyglisvert að bera íslenska listsköp-
un þessa áratugar saman viö það, sem gert
var á sama tíma annars staðar á Norðurlönd-
unum. Fulltrúar fslands á þessari sýningu
eru m.a. Erró, Jón Gunnar Árnason og fleiri.
Laufey Helgadóttir listfræðingur hefur ann-
ast val verka. Listasafn íslands er opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 12—18.
í Gallerí 11, Skólavöröustig 4a laugardag-
inn 3. mars kl. 15.00 byrjar sýning á skúlptúr-
likönum og pappírssamfellum eftir Jóhann
Eyfells. Sýningin stendur til 15. mars.
Á Kjarvalsstööum stendur enn yfir sýn-
ingin Kjarval og landiði í vestur forsal eru
verk eftir Svavar Guðnason. Og í vestur sal
stendur yfir sýning á formleysisverkum úr
safni Riis. Verkin eru eftir ýmsa listamenn og
eru frá árunum 1950—1970.
í menningar- og listastof nun Haf nafjaröar,
Hafnarborg, verður opnuö málverkasýning-
in Nonaginta. Þessi sýning er samsýning
nokkurra listamanna. Þeir eru Björn Roth,
Daði Guöbjörnsson, Eiríkur Smith, Kjartan
Guöjónsson og Ómar Skúlason. Sýnendur
eru ungir og gamlir og má það heita nýjung
að slíkur hópur taki sig saman um sýningu.
Sýningin opnar 3. mars og verður opin frá kl.
14.00—19.00 alla daga nema þriðjudaga.
Dagana 3 mars til 1. apríl n.k. mun Birgitta
Jónsdóttir halda sína fyrstu einkasýningu
hér á landi. Sýningin fer fram í Listamanna-
húsinu, Hafnarstræti 4, efri hæð. Birgitta
hefur áður sýnt myndir sínar i Kaupmanna-
höfn, Osló og Lundi. Á sýningunni verður
aðal áherslan lögö á þurrpastelmyndir og ol-
iumálverk, auk þess sem Birgitta mun sýna
punktamyndir úr nýjustu bók hennar
„FROSTDINGLUM". Sýningin er opin á
verslunartímum nema annaö sé auglýst.
Húsið opnar kl. 16.00 þann 3 mars.
Á laugardag þann 3 mars verður opnuð
sýning á verkum Sigurjóns Jóhannssonar
leikmyndateiknara og málara í GAMLA
LUNDI á Akureyri. Sýningin sem hér kemur
fyrir sjónir almennings er byggð á lífs-
reynslu Sigurjóns sjálfs frá bernskuárunum,
en Sigurjón er fæddur og uppalinn á Siglu-
firði. Sviðið sem lýst er í þessum myndum,
er lífiö sjálft umvafið dýröarljóma sildarár-
anna. Sýningin er opin virka daga kl. 16—18
og aðgangur að sýningunni er ókeypis.
Tónleikahald
Sunnudaginn 4. mars kl. 15.30 verða
haldnir tónleikar í Hafnarborg á vegum Tón-
listarskóla Hafnarfjaröar og Hafnarborgar.
Á tónleikunum koma fram þau Ester
Helga Guðmundsdóttir sópran og Guðni Þ.
Guðmundsson píanó og flytja nokkur lög úr
velþekktum söngleikjum m.a. Porgy og
Bess, Showboat, Sound of music, Cats o.fl.
Laugardaginn 3. mars heldur KATLA,
samband sunnlenskra karlakóra, upp á 15
ára afmæli sitt með söngmóti í íþróttahús-
inu að Varmá i Mosfellsbæ. Þar syngja eftir-
farandi átta karlakórar: Karlakórinn Jökull frá
Höfn í Hornafirði, Karlakór Selfoss, Karlakór
Keflavikur, Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði,
Karlakórinn Fóstbræður i Reykjavik, Karla-
kórinn Söngbræður í Borgarfirði og Karla-
kórinn Stefnir í Kjósarsýslu. Mótiö hefst kl.
15.00 og fyrst syngja kórarnir átta 1—2 lög
hver. Eftir hlé syngur sameinaður hátíðarkór
Kötlu (um 320 karlar) 4—5 lög við undirleik
Sinfóníuhljómsveitar íslands undir stjórn
Ragnars Björnssonar og Páls P. Pálssonar.
Aðgöngumiöar verða seldir viö innganginn.
Mánudaginn 5. mars kl. 20.30 halda Rann-
veig Friða Bragadóttir og Jónas Ingimund-
arson Ijóðatónleika í íslensku óperunni á
vegum Tónlistarfélagsins í Reykjavík. Rann-
veig Friða er nú fastráðin við Ríkisóperuna í
Vinarborg. Á efnisskránni á mánudagskvöld
verða gamlar ítalskar aríur, þýsk þjóðlög og
svo lög eftir Scubert, Schönberg, Ravel og
Rossini. Miðasala stendur yfir í íslensku
óperunni.
Stefnumót í
Þjóðleikhúsinu
Síðasta sýning á stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins fyrir lokun verður dagskráin STEFNU-
MÚT með smáverkum erlendra afbragðs-
höfunda. Stefnumót er byggt upp á örstutt-
um leikritum eftir nokkra merkishöfunda,
sem sumir hafa aldrei verið kynntir fyrir ís-
lenskum leikhúsgestum. Leikarareru meðal
annars Bessi Bjarnarson, Rúrik Haraldsson,
Herdís Þorvaldsdóttir, Arnar Jónsson og
fleiri góðir leikarar. Leikstjórar eru fjórir tals-
ins, allt ungt fólk sem nýlega hefur lokið sér-
námi í leikstjórn. Þeir eru Hlín Agnarsdóttir,
Ásgeir Sigvaldason, Ingunn Ásdisardóttir
og Sigríður M. Guðmundsdóttir. Frumsýn-
ingin var í gær og næsta sýning verður
sunnudaginn 3 mars kl. 20.00.
„ Líf og friður" á
Æskulýðsdegi
Yfirskrift Æskulýðsdagsins í ár er „LÍF OG
FRIÐUR". Hún tekur mið af tímabærri um-
ræöu um umhverfismál, ábyrgð manna i
sköpunarverkinu og framtiöarsýn til lífsins á
jörðunni. Efni það, sem Fræösludeild Þjóð-
kirkjunnar gaf út i tilefni af Æskulýðsdegin-
um byggir á frásögn Biblíunnar af Nóaflóð-
inu. Guöþjónustur Æskulýösdagsins eru i
flestum söfnuðum með þátttöku, eða að
stærstum hluta í umsjá ungmenna. i tengsl-
um við Æskulýösdaginn sýnir Æskulýðs-
samband kirkjunnar í Reykjavíkurprófasts-
dæmi söngleikinn LÍF OG FRIÐUR eftir Per
Harling og Lars Collmar í Langholtskirkju kl.
20.30. Leikurinn gerist meðal dýranna i örk-
inni hans Nóa, eftir að mannkynið hefur
eyðilagt lifsskilyrðin á jörðinni. Hann ein-
kennist mjjög af lifandi og aðgengilegri tón-
list og kímni, en undirtónninn er timabær og
alvarleg skilaboð til okkar, sem nú byggjum
jöröina. Það eru félagar úr æskulýðsfélögum
safnaðanna í Reykjavík, sem leika og syngja.
Leikstjóri er Rúnar Reynisson og Gyða Þ.
Halldórsdóttir stjórnar kór og hljómsveit.
Góða helgil