Alþýðublaðið - 16.03.1990, Síða 4

Alþýðublaðið - 16.03.1990, Síða 4
4 Föstudagur 16. mars 1990 Stórveldaslag lauk í gær: Yusupov tryggði nauman sigur Jafnt í síðustu umferö og þegar staðið var upp frá síðustu skákinni skildu aðeins fjórir vinningar efstu og neðstu sveit. 36. Dd5 - Hh7 37. Kgl - Dh5 38. Dg2 - Hh6 Síðasta umferðin í stórvelda- slagnum var æsispennandi og úrslit mótsins réðust ekki fyrr en á lokamínútum umferðar- innar þegar Sovétmaðurinn Yusupov sigraði Bandaríkja- manninn Gulko á fyrsta borði. Það tók Yusupov þó 60 ieiki að innbyrða sigurinn. Þetta var sú skák sem síðast lauk. Með sigr- inum náði Yusupov að tryggja sovéska Iiðinu jafntefli við Bandaríkjamenn og þar með sigur í mótinu. Sigur Sovétmanna var þó í naumara lagi. Aðeins hálfur vinn- ingur skildi þá frá Bretum sem lentu í öðru sæti. Úrslit mótsins urðu mun jafnari en menn áttu von á um það bil sem mótiö var hálfnað. Aðeins fjórir vinningar skildu á milli efstu og neðstu sveita. Raunar má segja að nor- ræna liðið hafi að nokkru bjargað Sovétmönnum með því að ná jafntefli við Breta í síðustu umferð. Lokastaðan í stórveldaslagnum varð þessi: Sovétríkin 31 'A Bretland 31 Bandaríkin 30 Norðurlönd 27>/2 Bandaríkjamaðurinn Walter S. Browne hefur vakið nokkra at- hygli á þessu skákmóti eins og raunar oft áður fyrir sérkennilega hegðun við skákborðið. Browne lendir gjarna í skelfilegu tíma- hraki og rær sér þá fram og aftur á stólnum meðan hann nuddar gagnaugun og ennið ákaflega með báðum höndum. Þetta setur andstæðinga hans iðulega úr jafn- vægi og nefna má að Jón L. Árna- son fór illa út úr viðskiptum sínum við hann í fimmtu umferð. Þegar nær tuttugu leikir voru eftir að fyrri tímamörkunum átti Browne innan við fimm mínútum eftir en Jón L. meira en hálftíma. Viður- eign þeirra lauk þó svo að það var Jón L. sem féll á tíma og var þá með gjörtapaða stöðu. Browne féll hins vegar á eigin bragði í gær þegar hann átti í höggi við hinn hægláta og dag- farsprúða Sovétmann, Sergey Dol- matov. Hinum síðarnefnda varð hvergi haggað og hann lék tiltölu- lega hratt eftir að Bandaríkjamað- urinn var kominn í tímahrak. Þeg- ar þeir höfðu leikið þrjátíu leiki átti Browne ekki nema um mínútu eftir af tíma sínum. Hann lék að vonum hratt en láðist hins vegar að ýta nægilega fast á klukkuna og mátti að þessu sinni sætta sig við þau örlög að falla sjálfur á tíma. Danski alþjóðameistarinn Lr- ling Mortensen hefur staðiö sig býsna vel á þessu móti. Við birtum hér vinningsskák hans viö Banda- ríkjamanninn Dmitry Gurevich úr 5. umferð sem var tefld í fyrradag. Hvítt: Dmitry Gurevich Svart: Erling Mortensen 1. d4 - Rf6 2. c4 — g6 3. Rc3 - - Bg7 4. e4 — d6 5. Be2 - - 0-0 6. Rf3 - - e5 7. 0-0 - Rc6 8. d5 - Re7 9. Bg5 - - h6 10. Bxf6 - Bxf6 11. b4 - Kg7 12. c5 — Rg8 13. Rd2 - - Be7 14. c6 - bxc6 15. dxc6 - f5 16. Rd5 - - Bg5 17. Bc4 - - Bxd2 18. Dxd2 fxe4 19. a4 — Be6 20. De2 - - Bxd5 21. Bxd5 - Rf6 22. Bxe4 - d5 23. Bc2 - - Dd6 24. b5 - d4 25. Hfel - Hae8 26. Be4 - - Rxe4 27. Dxe4 - He7 28. Hadl - Hf4 29. De2 - -g5 30. g3- H4f7 31. De4 - -Dg6 32. Kg2- - g4 33. h3 - h5 34. hxg4 — hxg4 35. He2 - - Kf6 39. Hed2 - Heh7 40. Kfl - Df5 41. Dd5 — Df3 42. Dd8+ - Kg6 og hvítur gafst upp. Sú skák sem áhorfendur fylgd- ust með af hvað mestum ákafa í gær var skák Jóhanns Hjartarson- ar við Bretlandsmeistarann Mi- chael Adams. Jóhann sótti stift til vinnings en kóngssókn hans skil- aði þó ekki tilætluðum árangri og um tíma virtist hann kominn með tapað tafl. Jóhann var hins vegar ekki á því að tapa og tókst að halda jafntefli. Skákin kemur hér: Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Michael Ádams 1. e4 — e6 2. d4 - d5 3. Rc3 — Bb4 4. e5 - Dd7 5. Dg4 - f5 6. Dg3 - b6 7. Rh3 — Ba6 8. Bxa6 — Rxa6 9. 0-0 - c6 10. Rf4 — Rc7 11. Rce2 — Df7 12. b3 — Be7 13. h4 - Rh6 14. c4 — 0-0 15. Rxd5 — exd5 16. Bxh6 — dxc4 17. bxc4 - Kh8 18. Be3 - Dxc4 19. Rf4 - Ba3 20. h5 - Hf7 21. Df3 — Rd5 22. Rg6+ - Kg8 23. e6 - Hf6 24. Bg5 - Hxe6 25. Dxf5 - Rf6 26. Rf4 - Hd6 27. h6 - Dxd4 28. hxg7 - Dc5 29. Dxc5 - Bxc5 30. Hael - Rd5 31. Rh5 — Bd4 32. He4 - Bxg7 33. Hfel - Bc3 34. He6 - Hd7 35. Hdl - c5 36. Hd3 - Bd4 37. Be3 - Rb4 38. Hd2 - Hd5 39. Bxd4 — Hxd4 40. Hxd4 — cxd4 41. He7 — Hd8 jafntefli. Þótt Stórveldaslagurinn sé nú á enda, er ekkert lát á skákviðburð- um því á morgun hefst 14. Reykja- víkurskákmótið og þar keppa flestir erlendu stórmeistararnir sem tóku þátt í stórveldaslagnum. Alls eru um 80 keppendur skráðir í mótið, þar af um 30 íslendingar. Fyrsta umferðin hefst klukkan 14 á morgun og verður teflt í húsa- kynnum Skáksambands íslands að Faxafeni 12. Það væri synd að segja að ekki væri nóg um að vera í leikhúslifi bæjarins þessa dagana. Leikfélag Fjölbrautaskólans er með sýning- ar í K.K.-húsinu og Leikfélag Kefla- víkur í Félagsbíói. Á ýmsu hefur gengið í starfsemi Leikfélags Keflavíkur síðan það varstofnað 1961. Starfsemin hefur oft verið mikil en félagið hefur líka gengið í gegnum öldudali. Undan- farin ár hefur félagið risið úr ösku- stónni og sýnt hvert verkið af öðru sem hefur aukiö veg þess og virð- ingu. Er þar skemmst að minnast Keflavíkurreviunnar sem sýnd var á síðasta ári í tilefni 40 ára afmælis bæjarins og söngleiksins Grettis sem sýndur var fyrr í vetur. Nú er félagið enn komið á kreik, með sitt annað verkefnj á þessu leikári. Fyrir valinu varð Týnda teskeiðin eftir Kjartan Ragnars- son. Týnda teskeiðin er annað leik- verk Kjartans sem L.K. setur á svið. Ýmsir muna sjálfsagt eftir söngleiknum Saumastofunni, sem leikin var hér árið 1982. Sú upp- færsla fékk mjög góða dóma, enda verkið gott og frammistaða leik- énda með ágætum. í Týndu teskeiðinni er slegið á ólíka strengi. Verkið er „svört komedía", eins og segir i leikskrá. Hjón eiga von á gestum sem þeim jer í mun að gera vel við, enda á ;maðurinn mikið undir sér. Slys verður, sem fyrir taugaveiklun Sviðstaddra snýst upp í glæp. Allt snýst nú um að bjarga sér út úr klípunni meö öllum tiltækum ráð- um. Þau ráð leiða e.t.v. til annars glæps — um það eru áhorfendur skildir eftir á báðum áttum. Höfundur teflir fram ólíkum per- sónum með mismunandi bak- grunn og ólík lífsviðhorf. Auð- mjúkri undirgefinni húshjálp (Rak- el Garðarsdóttir), snobbuðum ný- ríkum hjónum (Súsanna Fróða- dóttir og Hólmgeir Hólmgeirs- sviði og gætir þess dálítið í sýning- unni. Framsögn var stundum ábótavant. Hraðmælgi var áber- andi, einkum í upphafi sýningar, sem e.t.v. má skýra að hluta til með taugaóstyrk, en annars skrif- ast á reikning leikstjórans. öll áttu þau mjög góða spretti og þá helst þegar mest á reyndi. sannarlega reyndi oft á hina ungu leikendur, því mikið var um átök í orðaskipt- um. Gamansemi leiksins komst vel til skila, en gamansemi er ein- mitt áberandi einkenni leikrita Kjartans Ragnarssonar, þrátt fyrir alvarlegan undirtón. Þetta mun vera fyrsta leikstjórn- arverkefni leikstjórans Halldórs Björnssonar og ber sýningin þess merki. a ég þar einkum við fram- sögn leikaranna, eins og áður hef- ur komið fram. Góðar leiðbeining- ar í framsögn eru einmitt mikil- vægar fyrir lítt reynda áhugaleik- ara. „Rennsli" leiksins var lipurt og hvergi á því hnökrar. Leikmynd var góð, skemmtilega unnin og hið óhentuga svið Fé- lagsbíós mjög vel nýtt. Hana hann- aði einn af þúsund þjala smiðum leikfélagsins, Jóhann Smári Sæv- arsson, sem auk þess lék hlutverk í verkinu, hannaði forsíðu leik- skrár og „plakat" og tók þátt í smíði leikmyndar. Það eru einmitt slíkir þúsund þjala smiðir, sem starfsemi áhuga- mannaleikhúsa byggist svo mikið á. Ekki er nóg að manna hlutverk, ótal margir aðrir koma við sögu til að ein sýning geti orðið að veru- leika. Svo er einnig að þessu sinni, þvi um 20 manns leggja á einn eða annan hátt hönd á plóginn. Allt þetta duglega fólk á heiður skilið. Það á líka skilið að við hin — al- menningur á Suðurnesjum — leggjum leið okkar í Félagsbíó og eyðum einni kvöldstund í að sjá af- rakstur margra vikna vinnu þeirra. Þórdís Þormóðsdóllir. Leikfélag Keflavíkur: Týnda teskeiðin eftir Kjartan Ragnarsson son), lögfræðingnum og millanum (Hafsteinn Gíslason) og teprulegu konunni hans (Guðný Kristjáns- dóttir), hortugu heimasætunni (Sigrún Sævarsdóttir), unnusta hennar „kommastráknum" (Ómar ólafsson), fyllibyttunni (Jóhann Smári Sævarsson) og löggunni (Gísli Gunnarsson). Spilað er á snobb og sýndar- mennsku þeirra sem betur mega sín í efnahagslegu tilliti, frasa- kenndar róttækar skoðanir sem oft eru auðseldar þegar Mammon er annars vegar og vináttu sem reynist brotgjörn þegar eitthvað bjátar á. Ekki er vert að spilla ánægju væntanlegra leikhúsgesta með því að rekja efnisþráðinn nánar. Leikendur eru misreyndir á Leiklist

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.