Alþýðublaðið - 17.03.1990, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 17.03.1990, Blaðsíða 1
Rússinn sést sjaldnar — í kjölfar þídunnar hefur ferdum sovéskra herflugvéla vid Islandsstrendur fœkkað úr 170 í 65 á ári. Stórlega hefur dregid úr sovéskum hernaðar- umsvifum í kringum Is- land á undanförnum ár- um í kjölfar þíðunnar í Evrójju. I nýlegu frétta- bréfi Oryggismálanefnd- ar er t.d. greint frá því að bandarískar orrustuþot- ur af Keflavíkurvelli hafi aðeins 65 sinnum flogið í veg fyrir sovéskar vélar í grennd við ísland. Þetta má bera saman við árið 1985 þegar flogið var í veg fyrir 170 sovéskar vélar. Svipað mun gilda um ferðir sovéskra kafbáta um hafsvæðin nálægt Islandi. Þannig kom fram í vitnis- burði yfirmanns Atlants- hafsherstjórnar Bandaríkj- anna fyrir hermálanefnd bandarísku oldungadeild- arinnar að ferðir sovéskra kafbáta út á Atlantshaf væru orðnar mjög fáar. Að því er fram kemur i fréttabréfi Öryggismála- nefndar hefur þetta ásamt einhliða fækkun í herliði Sovétmanna í Aust- ur-Evrópu og breyttum þjóðfélagsaðstæðum þar, gert það að verkum að sú áhersla sem Natórikin hafa fram að þessu lagt á að geta brugðist við árás með skömmum fyrirvara, er nú óþörf. Sovétríkin gætu ein- faldlega ekki hafið árás í vesturátt nema með löng- um fyrirvara eins og mál- um er nú háttað. I áætlunum Nató hefur hingaö til jafnan verið mið- að við að tveggja vikna tóm gæfist til undirbúnings hernaðaraðgerða. Nú mun hins vegar talið að þessi frestur lengist í a.m.k. tvo til þrjá mánuði. um Vorið er ekki komiö — en það er á leiöinni. A-Mynd E.ÓI. Boð sem slökkviliösmenn gátu ekki hafnaö: Kaffi og kleinur þegar slökkvi- starfinu lauk Venja að gefa köldum og hröktum mönnum kaffi Eftir að slökkviliðs- menn höfðu átt kalda og blauta tíma við að ráða niðurlögum elds að Kleppsvegi 134 á dögun- um, fengu þeir boð, sem þeir gátu ekki hafnað. Ein af íbúum hússins, Guðrún Magnúsdóttir, fyrrum stöðvarstjóri pósts og síma í Mosfellssveit, bauð upp á kaffi og kleinur í íbúð sinni í háhýsinu. Var það vel þegið af mönnum og veitti ekki af. ,,Ég er vön |jví að gefa köld- um og hrjáðum mönnum heitt kaffi, þetta gerði maöur i gamla daga. Mér fannst sjálf- sagt að gera slökkviliðs- mönnunum og lögregluþjón- unum þaö sama. Þegar þeir sögðu mér aö þetta væri að verða búiö, fór ég inn til mín, kveikti á kerti og hellti upp á könnuna og gaf þeim svo kaffi og kleinur. Þeim veitti ekki af, þeir voru hríðskjálf- andi," sagði Guðrún. Jón Sigurðsson hampar Brúttótekjurnar sem nýja álver- ið kemur til með að draga í þjóðarbúið munu nema um 80 þúsund krónum á hvert mannsbarn i landinu á ári hverju. Sjá viðtal i opnu blaðs- ins við Jón Sigurðsson iðnað- arráðherra sem i vikunni náði i höfn mikilvægum áfanga i ál- málinu. Grimmileg barótta fyrir sjólfstæði Sjá bls. 7. sjálftm sig Ótrúlegt baðævintýri Fólk sem fékk inni í or- lofsheimilum verslunar- manna að Flúðum nýlega varð fyrir leiðinlegri reynslu. Þannig háttar til að þar eystra eru utan dyra heitir pottar, sem mikið eru notaðir. Hjónin sem hér um ræðir fóru nakin í pottinn, sem fylgdi þeirra húsi, og nutu þess um hríð að dvelja í pottin- um. Ævintýrið fór farsællega og ekki varð neinum meint af. Sérkennilegt mál fyrir Hæstarétti: VIII sjá gögnin Telur félagsmálaráðuneytiö hafa safnað um sig persónulegum upplýsingum með leynd. Þegar halda álti inn í húsið kom babb í bátinn, — þau höfðu lokað sig úti og ekkert fólk annað, sem leita mátti til. Að lokum varö fólkið að ganga eins og það var, klæð- laust með öllu, upp á veginn í næsta nágrenni og bíða þess aö bíll ætti leið hjá. Afar sérkennilegt mál verður tekið fyrir í Hæsta- rétti á fimmtudaginn í næstu viku. Þetta er mál Bjarna Jónssonar í Vest- mannaeyjum gegn félags- málaráðherra, en Bjarni telur að félagsmálaráðu- neytið hafi safnað um sig upplýsingum sem síðan hafi verið notaðar til að víkja sér úr starfi. Bjarni gerir kröfu til að fá að sjá skýrslur, varðveittar í ráðuneytinu, sem hann telur innihalda persónulegar upp- lýsingar um sig og segir ráðu- neytið hafa safnað leynilega. Bjarni kveðst ekki sjálfur hafa getað fengið aðgang að þessum upplýsingum þótt hann hafi leitað eftir því. I bréfi sem Bjarni skrifaði Al- þýðublaðinu til að vekja at- hygli á þessum málaferlum vitnar hann m.a. í umboðs- mann Alþingis og segir: ,,Um- boðsmaður Alþingis telur að skýrslurnar innihaldi stað- hæfingar sem séu þess eðlis að mér hefði átt að vera veitt- ur kostur á að fá þeim hnekkt eða fá að gefa skýringar af minni hálfu'

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.