Alþýðublaðið - 17.03.1990, Qupperneq 3
Laugardagur 17. mars 1990
3
Hreint og gott vatn úr krananum er ekki lengur sjálfsagt mál víða um lönd —
gott vatn fæst aöeins í kjörbúðinni. Nú er það spurningin hvort íslendingar
geti haslaö sér völl á kjörbúðamarkaðnum meö vatnið okkar, sem nóg er af.
Fá uppamir íslenskt
ttndarvatn
í stað franska
Perrier-vatnsins?
Flugleiðir töpuðu
375 milliónum
— svartar sídustu vikur ársins
Tap af rekstri Flugleiða hf.
varð mikid á síðasta ári, — um
375 milljónir króna, eða um 4%
af veltu fyrirtækisins. Einkum
myndaðist tapið síðustu 2-3
mánuðina. Á þessu tímabili
brugðust áætlanir um tekjur, en
fram til þess tíma höfðu áætlanir
staðist.
Skýringuna á þessu telur yfir-
stjórn fyrirtækisins efnahagsástand-
ið á íslandi, auk þess sem nokkrir
erlendir markaðir gáfu ekki af sér
eins og vonast var til. Vonbirgðum
veldur líka afkoma innanlandsflugs-
ins, sem flugfélög bítast um þessa
stundina. Tapið þar varð 146 millj-
ónir króna.
Rekstur gömlu DC-8 flugvélanna
reyndist félaginu dýr á síðasta ári.
Þótt kaup á nýjum þotum hafi áhrif
til hækkunar á vöxtum og afskrift-
um, komu kaupin félaginu til góða
þar eð rekstarkostnaður nýrra flug-
félaga lækkaði meira en sem nam
hinum auknu útgjöldum.
Flugleiðir fluttu í fyrra 733 þús-
und farþega, — 106 þúsund færri en
árið á undan, — fækkunin að mestu
leyti á N-Atlantshafsflugleiðinni.
Áfall franska Perrier-vatns-
ins, vatnsins sem uppar heims-
ins hafa dáð og dýrkað, hefur
greinilega orðið til þess að ís-
lenskir aðilar hafa vaknað aft-
ur og hyggja á útfiutning á
hreinu íslensku lindarvatni.
Þar við bætast fréttir um súr
vatnsból víða í hinum vest-
ræna heimi. Þykir mörgum því
Engir ókeypis
sendibilar
fró danshúsum
Um helgina geta danshúsa-
gestir ekki treyst á ókeypis
heimkeyrslu sendi- og greiða-
bíla.
Viðræður hafa komist á milli
leigubílstjóra og sendibílstjóra við
samgönguráðuneytið um lausn á
deilu um verkaskiptingu aðilanna.
Þess vegna hafa sendibílstjórar
frestað frekari aðgerðum sem
beinst hafa gegn leigubílstjórum.
Biðin eftir leigubíl að balli loknu
kann því að verða löng um þessa
helgi og þær næstu.
sennilegt að neytendur á Vest-
urlöndum vilji gjarnan kaupa
hreint og klárt drykkjarvatn
frá íslandi. Þessi iðngrein hef-
ur átt erfitt uppdráttar hér á
landi til þessa, en eitthvað hef-
ur verið flutt út .
í það minnsta fimm aðilar eru að
þreifa fyrir sér með þennan út-
flutning, þar á meðal Sól hf., KEA,
— og að sjálfsögðu frumkvöðull-
inn og hugmyndasmiðurinn,
Hreinn Sigurðsson, prentari á
Sauðárkróki, sem um áratuga
skeið hefur barist fyrir þessari
hugmynd sinni.
I blaðinu Feyki á Sauðárkróki
segir frá því að nú verði dustað
rykið af áformunum um útflutning
sauðkræska vatnsins. Búið var að
gera húsgrunn fyrir væntanlega
átöppunarverksmiðju á Króknum,
en hlé orðið á framkvæmdum í
mörg ár.
Undirritað hefur verið sam-
komulag Hreins við Iðnaðarráðu-
neyti, Sauðárkróksbæ og Byggða-
sjóð um að rannsaka til þrautar
hagkvæmni þess að flytja vatnið á
erlenda markaði til sölu. Trúlegt
er talið að lönlánasjóöur muni
taka þátt í þessu verkefni, — aðil-
arnir leggja fram 200 þúsund
krónur hver.
er lokadagur pantana í næstu afgreiðslu á Macintosh-tölvubúnaði með
verulegum afslætti, samkvæmt ríkissamningi þeim, sem gerður var á
milli Innkaupastofnunar ríkisins og Radíóbúðarinnar hf.
Pantanir berist til Kára Halldórssonar, Innkaupastofnun ríkisins,
Borgartúni 7, sími 26844, fyrir 28. mars 1990.
Radíóbúðin hf.
Apple-umboðið
I