Alþýðublaðið - 17.03.1990, Side 10
10
Laugardagur 17. mars 1990
Góða heigi! Góða hetgii Góða helgi! Góða helgi! Góða helgi!
Mynd marsmánaðar i Listasafni íslands — „Matarlandslag" (Foodscape) eftir
Erró.
Styrkirtil rannsókna í
kvennafræðum
Á fjárlögum fyrir yfirstandandi ár var einnar
milljónar þrjú hundruð og fimmtíu þúsund króna
- kr. 1.350.000 - fjárveiting færð til Háskóla
íslands til rannsókna í kvennafræðum.
Áhugáhópur umn íslenskar kvennarannsóknir
auglýsir hér með, í umboði Háskólans, eftir um-
sóknum um styrki til rannsókna í kvenna-
fræðum, en til kvennafræða teljast allar þær
rannsóknir sem á einhvern hátt varða konur,
eru unnar á forsendum kvenna og frá þeirra
sjónarhóli.
Veittir verða launastyrkir fyrir rannsóknir í
minnst þrjá mánuði og skulu þeir miðast við
byrjunarlaun lektors. Þó getur nefndin veitt
styrki til skemmri tíma ef sérstaklega stendur á.
Ekki verða veittir styrkir til sama verkefnis oftar
en tvisvar sinnum.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi
sem svarar til meistaraprófs eða kandidats-
prófs og / eða sýnt fram á hæfni sína til rann-
sóknastarfa með öðru móti.
í umsókn skal grelna ítarlega frá þeim rann-
sóknum sem sótt er um styrk til og fjáröflun til
þeirra frá öðrum. Við lok styrktímabils skal
styrkþegi senda úthlutnamefnd framvindu-
skýrslu.
Áhugahópurinn vill vekja athygli á því að hægt
er fyrir fólk á ólíkum fræðasviðum að sameinast
um rannsóknarverkefni og vill hvetja til sam-
starfs sem gæti orðið upphaf að röð rita um líf og
stöðu íslenskra kvenna frá sjónarhóli mis-
munandi fræðigreina.
Umsóknum skal skila á sérstökum eyðu-
blöðum, sem fást á aðalskrifstofu Háskóla ís-
lands.
Umsóknarfrestur er til 1. maí n.k.
Umsóknir sendist til:
Áhugahóps um íslenskar kvennarannsóknir
b.t. Guðrúnar Kvaran, orðabókarritstjóra
Orðabók Háskólans
Árnagarði
101 Reykjavík
Málverka- og
myndasýningar
ÚR HUGARHEIMI nefnist sýning á verk-
um fatlaöra í Listasafni ASÍ að Grensásvegi
16. Þaö eru Landssamtökin Þroskahjálp og
Öryrkjabandalag íslands sem standa aö
þessari sýningu. Þau hafa leitaö til þeirra
sem eru mikiö hamlaöir og skoðað hvaö list-
sköpum hefur gert fyrir þá, m.a. sem tján-
ingar miöill. Margir fatlaðir nota listræna
tjáningu s.s. í máli, á mynd eöa á annan hátt
til þess aö tjá persónuleikann sem aö baki
þeim býr. Og þaö er von þeirra sem standa
aö þessari sýningu, aö meö henni og þeim
verkum sem þar veröa sýnd, takist aö brjóta
viður einhverja þá múra sem enn umlykja
fatlaöa og aö opna þeim greiöari aögang aö
mannlegu samfélagi. Sýningin er opin til 25.
mars og aðgangur er ókeypis.
í Listasafni Islands er veriö aö sýna mynd
mánaðarins, þar á bæ. Mynd mánaðarins er
MATATLANDSLAG (Foodscape) eftir Erró.
Hér er um aö ræöa olíumálverk frá árinu
1964. Myndin er í eigu Nútímalistasafnsins
í Stokkhólmi.
Nú um helgina sýnir Ásgeir Smári í Galleri
Borg, Pósthússtræti 9, vatnslita og oliu-
myndir. Þetta er seinni sýningarhelgin en
sýningunni lýkur þriðjudaginn 20. mars. Um
helgina er opið frá 14.00—18.00. I Galleri
Borg Austurstræti 3 og Síðumúla 32 eru til
sýnis og sölu grafík, vatnslita, pastel og
minni olíumyndir auk keramikverka og mód-
elskartgripa. Opiö laugardaga frá kl.
10.00—14.00.
Á Kjarvalsstööum standa yfir þrjár athygl-
isveröar sýningar. í vestursal er sýning á
formleysiverkum úr safni Riis, sem er eitt
stærsta einkasafn í Noregi. Verkin eru eftir
ýmsa heimsþekkta listamenn og eru verkin
frá árunum 1950—1970. i vestur forsal eru
verk eftir Svavar Guðnason sem eru í eign
Reykjavíkurborgar. í austursal og ausjurfor-
sal er sýning Guöjóns Bjarnasonar á mál-
verkum og skúlptúr. Kjarvalsstaðir eru opnir
daglega frá kl. 11.00—18.00 og veitingabúð-
in er opin á sama tíma.
Nú stendur yfir sýning á verkum Daniel
Morgenstern i sýningarsal FÍM, Garðastræti
6. Sýningin er opin alla daga frá kl.
14.00—18.00 til 27. mars.
í dag 17. mars kl. 14.00 opnar Margrét
Zóphóniasdóttir málverkasýningu i Ás-
mundasal viö Freyjugötu. Margrét er fædd
1953 og stundaði nám viö Myndlista og
handiðaskóla íslands 1975—1977 og viö
Skolen for Brugskunst í Kaupmannahöfn
1977—1981. Þetta er fyrsta einkasýning
Margrétar og eru öll verkin máluö i akril.
Sýningin stendur yfir til 25. mars og er opin
frá kl. 14.00 til kl. 19.00 alla daga.
Tónleikar
Karlakór Reykjavíkur heldur sina árlegu
tónleika fyrir styrktarfélaga og velunnara
sína í Langholtskirkju dagana 19, 10, 21. og
24. mars næstkomandi. Tónleikarnir hefjast
kl. 20.30 nema þann 24. Aðalstjórnandi er
Páll P. Ðálsson. Einsöngvarar aö þessu sinni
veröa Inga Backmann og Friörik Kristinsson.
Á tónleikunum veröa flutt íslensk og erlend
lög m.a. nýtt tónverk eftir Pál P. Pálsson
„Glymrur" viö Ijóö Ragnars Ingólfssonar. Af
erlendum lögum má nefna syrpur eftir
Stephen Foster, Rodger, Hammerstein og
fleiri.
Þann 19. mars heldur Valgerður Andrés-
dóttir píanótónleika í Hafnarborg, Hafnar-
firöi, og hefjast þeir kl. 20.30. Valgeröur hóf
píanónám í Tónlistarskóla Hafnarfjaröar áriö
1971 hjá Elínu Guömundsdóttur. Áriö 1975
var hún í einkatímum þar til hún hóf nám í
Tónlistarskólanum i Reykjavík áriö 1977 og
lauk þaöan einleikaraprófi voriö 1985. Síöan
hefur hún stundað nám viö Hochschule der
Kunste í Berlín. Hún hyggst Ijúka kennara-
prófi þar nú í sumar og hefja nám í einleik-
aradeild skólans í haust. Á tónleikunum leik-
ur Valgerður svítu i g-moll eftir J.S.Bach,
sónötu í As-dúr op. 110 eftir Beethoven og
sónötu í fís-moll op. 11 eftir Schumann.
í tilefni af 50 ára afmæli Félags íslenskra
tonlistarmanna veröa haldnir tónleikar í ís-
lensku óperunni laugardaginn 17. mars kl.
16.15. Efnisskrá tónleikanna er mjög fjöl-
breytt og flytjendur eru allir meöal fremstu
tónlistarmanna þjóöarinnar. Meöal annars
koma fram: Kór Öldutúnsskóla, Hamrahlíö-
arkórinn, Kammersveit Reykjavíkur og
Blásarakvintett ReyRjavíkur.
Hótel Þingvellir í
Borgarleikhúsinu
HÓTEL ÞINGVELLIR er nýtt leikrit eftir
Sigurð Pálsson og gerist á einum haustdegi
á Þingvöllum undir lok níunda áratugarins.
Verkiö er óvenjuleg fjölskyldudrama aö
stofni til, en margar persónur koma viö
sögu. Einkamál þcssa fólks og stormasamt
samband er í forgrunni, en i baksýn er ís-
landssagan og einkum árdagar íslenska lýö-
veldisins eins og þeir rifjast upp á þessum
sögufræga staö. Þetta er dramatiskt og
spennandi verk, en samt er hlýleg kímni
aldrei langt undan. Leikstjóri er Hgllmar Sig-
urösson. Aðalleikarar eru meöal annars:
Guörún Ásmundsdóttir, Valdimar Örn Flyg-
enring og Sigríöur Hagalín. Leikmynd og
búninga gerir Hlín Gunnarsdóttir og tónlist
er í höndum Lárusar H. Grímssonar. Frum-
sýningin veröur i kvöld 17. mars kl. 20.00 og
næsta sýning verður sunnudaginn 18. mars
kl. 20.00.
Útivist
Sunnudaginn 18. mars veröur farin létt
ganga á Reykjanesskaga. Gengið veröu frá
Vogavík til Snorrastaðatjarna. Einnig veröur
gönguskíöaferö og gengin veröur Bláfjalla-
leiö. Brottför i báöar dagsferðirnar frá Um-
ferðamiðstöð— bensínsölu kl. 13.00 og miö-
ar seldir viö rútu.
Fyrsta ferð Hellarannsóknafélagsins
veröur sunnudaginn 18. mars. Farið veröur
frá Bensínsölu B.S.Í. kl. 10.00. Áætlað er aö
ferðin taki um sjö klukkustundir og eru þátt-
takendur beðnir um aö hafa meö sér nesti.
Haldiö veröur i Þingvallasveit og skoöaöir
hellar í nágrenni vegarins milli Gjábakka og
Laugarvatns. Á þessu svæöi er mikið af hell-
um og stefnt veröur aö því aö heimsækja;
Gljábakkahelli, Tvíbotna, Vöröuhelli, Veg-
kantshelli og Tintron. Eitthvaö af þessum
hellum gætu þó veriö lokaðir af snjó. Fariö
veröur í rútu ef þátttaka leyfir annars á
einkabílum. Þeir sem hafa áhuga á ferö
þessari eru vinsamlegast beönir aö skrá sig
í síma 689874 og 621875. Öllum félögum er
velkomiö aö taka meö sér gesti. Og allir aörir
hellaáhugamenn geta aö sjálfsögöu gengið
i félagiö, sem er öllum opiö og þá er bara aö
skrá sig.
HALLA
BERGÞÓRA
BJÖRNSDÓTTIR
FLUGLEIÐIR
Aðalfundur Flugleiða «.
Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn
22. mars 1990 í Höfða, Hótel Loftleiðum og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf skv. 10 gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa og breyting á 4. gr. sam-
þykkta því til samræmis.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi skulu vera
komnar í hendur stjórnarinnar eigi síöar en 7 dögum fyrir aöal-
fund.
Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiöar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
aðalskrifstofu félagsins Reykjavíkurflugvelli, hlutabréfadeild á 2.
hæð, frá og með 15. mars nk. frá kl. 09.00 til 17.00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna
fyrir kl. 12.00 á fundardegi.
Stjórn Flugleiða hf.