Alþýðublaðið - 17.03.1990, Side 12
12
Laugardagur 17. mars 1990
Alþingi í vikulokin
Ólafí Ragnarí nauðgað í eina
sæng með konunum eg íhaldi
Þingmál vikunnar
Viöfangsefni Alþingis þessa vikuna endurspegla öðru
fremur afstööu þingflokka til ríkisafskipta af rekstri fyrir-
tækja og einstaklinga. „Flokkur einkaframtaksins" ,Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur sýnt sig í því aö vera framarlega i
flokki þeirra sem vilja aö ríkið, skattgreiðendur, ábyrgist
rekstur einstaklinga.
Afar serkennileg staða kom upp
á Alþingi þegar stjórnarfrumvarp
um ábyrgðir ríkissjóðs á fiskeldis-
lánum komu til afgreiðslu neðri
deildar. Olafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra hafði lagt fram
frumvarp sem fól í sér að ábyrgð-
ardeild fiskeldislána gæti veitt
sjálfskuldarábyrgð að lánum að
hámarki 37,5% af verðmæti eldis-
stofns fiskeldisfyrirtækja. Tillagan
fór til meðferðar í fjárhags- og við-
skiptanefnd og myndaðist þar
meirihluti um að breyta frumvarp-
inu þannig að ábyrgðin gæti num-
ið 50% auk fleiri breytinga. Fram-
sóknarþingmaðurinn, Guömund-
ur G. Þórarinsson, sem sjálfur
stundar fiskeldi og er hluthafi í
fiskeldisfyrirtækinu ísþóri í Þor-
lákshöfn, myndaði meirihluta
með stjórnarandstöðunni um
þessar breytingar. Þá lá fyrir að
Stefán Valgeirsson, sem ásamt fjöl-
skyldu sinni á hlut í fiskeldisfyrir-
tækinu Silfurstjörnunni, styddi
einnig umrædda hækkunartillögu
ábyrgða ríkisins á fiskeldislánum.
Því var kominn upp sú staða í
neöri deild Alþingis að óvíst var
um að frumvarp fjármálaráðherra
næði fram að ganga óbreytt.
Ólafur Ragnar og íhaldið
Nýr meirihluti
á Alþingi um
ríkisábyrgöir
á fiskeldi
kvæmdasjóðs féllu niður. Með
þessu féll meirihluti fjárhags- og
viðskiptadeildar frá frekari breyt-
ingum.
Þegar til atkvæðagreiðslu kom
ræða því bændur voru á sínum
tíma hvattir til að leggja af hefð-
bundinn búskap og snúa sér að
loðdýrarækt. Nú þegar allt er
komið út í óefni verður þingheim-
ur að gera það upp við sig hvort
hann vill vinda ofan af þessum bú-
skap eða halda uppi ef til vill von-
lausum taprekstri.
Þá hafa sölumál á sjávarafurð-
um verið mjög í sviðsljósinu og
margir þeir sem tala fjálglega um
viðskiptafrelsi og gegn hömlum
ríkisvaldsins hafa sýnt sig í því að
vera hörðustu málsvarar einokun-
ar í skjóli ríkisvalds. Alþýðuflokk-
urinn og ráðherrar hans hafa stað-
iö fremstir í ílokki við að afnema
slík höft og takmarkanir á frelsi
markaðarins oft gegn svokölluð-
um ,,talsmönnum einstaklings-
frelsisins."
náðu saman
Eftir að Olafur Ragnar hafði hót-
að aö draga frumvarp sitt til baka
yröi fallist á þær breytingartillög-
ur sem meirihluti haföi myndast
um í fjárhags- og viðskiptanefnd
náði hann samkomulagi við Guö-
mund G. og stjórnarandstööuna.
Samkomulagiö fólst í því að sjálf-
skuldarábyrgö fiskeldislána gæti
numið allt að 50% en það væri
engu aö síður einungis heimild. Þá
næði ábyrgðin til fjögurra ára í
stað þriggja og ábyrgðir fram-
um breytingarnar greiddi stjórnar-
andstaðan atkvæði með breyting-
unum og þorri þingmanna Fram-
sóknarflokksins, Páll Pétursson,
formaður þingflokks þeirra, sat þó
hjá ásamt þingmönnum Alþýðu-
flokksins og Alþýðubandalagsins.
Þingmenn Frjálslynda hægri
flokksins greiddi atkvæði gegn
breytingunum. Ólafur Ragnar fjár-
málaráðherra, sem situr ekki sjálf-
ur á þingi, lenti því í þeirri sér-
kennilegu aöstöðu að njóta full-
tingis Sjálfstæðisflokksins og
Kvennalista til að ná lendingu í
málinu. Varlega verður þó að fara
í það að álykta að nýr meirihluti
hafi myndast á Alþingi.
Sjalfstæðisflokkur
— flokkur forsjárhyggju
Flvernig og hvers vegna staða sú
sem hér ræðir kemur upp á Al-
þingi er erfitt að segja til um.
Hvort það er forsjárhyggja og um-
hyggja Sjálfstæðisflokksins um
velferð einkaframtaksins sem
veldur því að þeir vilja hámarka
ábyrgð ríkisins á rekstri einkaaðila
eða hvort hér er um ábyrgðarlaust
pólitískt sjónarspil til að skapa úl-
fúð í herbúðum stjórnarsinna skal
ósagt látið. Hvoru tveggja er ekki
til þess fallið að auka tiltrú al-
menning á Sjálfstæðisflokknum
og raunar ýtir undir það sem oft er
haldið fram að Sjálfstæðisflokkur-
inn sé í fararbroddi forsjárhyggju
og ríkisafskipta á íslandi.
Annað mál sem snýr að ríkisaf-
skiptum og hefur verið til með-
ferðar hjá Alþingi er t.d. stuðning-
ur við loðdýrabændur. Þar er um
snúið og vandmeðfarið mál að
Ólafur Ragnar fjármálaráðherra samdi við þingmenn Sjálfstæðisflokksins um ríkisábyrgðir í fiskeldi.
Frumvörp
Frumvarp um breytingu á lög-
um um aðbúnaö, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum. Tekur til
vinnu barna og unglinga. Tilgang-
urinn er aö auka vernd gegn slys-
um og samræming á aldursmörk-
um meðal annara við vinnu á vél-
um og við hættulegar aðstæður.
Flm: Guðrún Agnarsdóttir og
Danfríður Skarphéðinsdóttir
Frumvarp um lögfræðiráögjöf
og aðstoð í hjúskapar-, sambúöar-
og sifjaréttarmálum fyrir þá sem
eru undir ákveðnum tekjumörk-
um.
Flm: Málmfríður Sigurðardóttir
og fleiri
Frumvarp um fjárfestingu er-
lendra aðila á íslandi m.a. vegna
þörf fyrir endurskoðun og sam-
ræmingar vegna aukinnar alþjóð-
legrar efnahagssamvinnu.
Flm: Þorsteinn Pálsson og fleiri
Frumvarp til laga um breyting-
ar á félagslega húsnæðiskerfinu
m.a. til að auka framboð leiguhús-
næðis og breytingar á stjórnun og
úthlutun félagslegs íbúöarhús-
næðis.
Stjórnarfrumvarp
Frumvarp um ársreikninga og
endurskoðun lífeyrissjóða.
Flm: Guðmundur H. Garðarsson
Frumvarp um breytingar á lög-
um um hlutafélög þannig að eig-
endur 1/10 hlutafjár í staö 1/5
hlutar geti krafist hlutfalls- eða
margfeldiskosninga þar sem hlut-
hafar eru fleiri en 200.
Flm: Eyjólfur Konráð Jónsson
Frumvarp um breytingar á lög-
um um Háskóla íslands sem eiga
að miða að auknu sjálfræði ein-
inga skólans, auk þess sem þátt-
taka háskólaþegna verði virkari.
Stjórnarfrumvarp
Frumvarp um breytingar á
læknalögum sem tekur til mats og
réttindaleyfa lækna menntaða er-
lendis.
Stjórnarfrumvarp
Þingsályktanir
Tillaga um heillaóskir Alþingis
til litáisku þjóðarinnar í tilefni
sjálfstæðisyfirlýsingar hennar.
Frá utanríkismálanefnd
Tillaga um aö fela mennta-
málaráðherra að beita sér fyrir
ráðningu sjúkraþjálfara í öll
fræösluumdæmi.
Flm: Anna Ólafsdóttir Björns-
son og fleiri
Tillaga um aö fela ríkisstjórn-
inni að undirbúa lagafrumvarp
um fríhafnarsvæði við Keflavikur-
flugvöll undir vörugeymslur og frí-
iðnað.
Flm: Ásgeir Hannes Eiríksson
Fyrirspurnlr
Til samgöngurádherra uin
jeppaferðir skipulagðar af erlend-
um aöilum um hálendi íslands og
hvernig hann hyggst bregðast við.
Frá Danfríði Skarphéðinsdóttur
Til félagsmáiaráðherra um
atvinnumál fatlaðra, hversu marg-
ir þeir eru og hvernig félagsmála-
ráðherra hyggist vinna aö jafnrétti
með fötluðum og ófötluöum á
vinnumarkaöi.
Frá Danfriöi Skarphéöinsdóttur
Til félagsmálaráðherra um
jafnréttisáætlanir og hversu marg-
ar slíkar henni hafi borist.
Frá Danfríði Skarphéðinsdóttur
tryggja stöðu íslensks ullariönaö-
ar?
Frá Jóhannesi Geir Sigurgeirs-
syni
Til félagsmálaráðherra um
fjárfestingu í íbúðabyggingum og
lánveitingar til þeirra síðast liðin
10 ár.
Frá Þorvaldi Garöari Kristjáns-
syni
Til heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra um þátttöku al-
mannatrygginga í bifreiðakaup-
um fatlaðra.
Frá Margréti P’rímannsdóttur
Til dómsmálaráðherra um
fyrirhugaöa ferö varðskipsins Týs
til Norfolk og um kostnað vegna
þessa.
Frá Þórhildi Þorleifsdóttur
Til félagsmálaráðherra um
stöðu jafnréttismála í ráðuneytum
Stjórnarráðsins, hvernig störf
skiptast og hvernig þau dreifast i
launaflokka milli kynja.
Frá Danfríði Skarphéðinsdóttur
Til utanríkisráðherra um
leyfisveitingar til útflutnings sjáv-
arafurða árið 1989.
Frá Guðmundi H. Garðarssyni
Til iðnaðarráðherra um hvað
rikisstjórnin hyggst gera til þess aö