Alþýðublaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 3
Laugardagur 21. apríl 1990 3 Popparínn í slökkviliðinu Þórdur Bogason slökkvilidsmadur lagdi fyrstur til atlögu við eldinn í A burðarverksmiðj- unni sem ógnaði íbúum Reykjavíkur að kvöldi páska- dags. A-mynd: E.Ól. Þórður Bogason vinnur milli vakta sem afgreiöslumaður i Hljóðfærahúsi Reykjavíkur. Hann hefur reyndar rekið eigin búð með hljóðfæri og fleira fyrir rokkara en hætti því um síðustu áramót. Segir það ekki hafa farið saman við slökkviliðsstarfið. Hann er hinsvegar nauðbeygður til að vinna víðar en hjá slökkviliðinu. Annars myndu menn ekki framfleyta sér og sínum. Hver er hann eiginlega ? Fátt hefur veriö meira um rætt á undanförnum dögum en bruninn í Áburðarverksmiðju ríkisins í Gufunesi. Stjórn- málamenn hlupu upp til handa og fóta og vilja láta leggja verksmiðjuna niður þegar í stað sumir. Hættan er gífurleg ef eitthvað gerist og í Ijós hefur komið að nýi geymirinn fyr- ir ammoníakið er fastur einhversstaður í vinnslu hjá verk- takanum sem tók að sér að smíða tankinn. Sá slökkviliðs- maður sem fremstur var í flokki við að slökkva eldinn ofan á ammoníaksgeyminum á páskadag var Þórður Bogason, en hann fór fyrstur upp á geyminn með slönguna eina að vopni og slökkti eldinn upp á tanknum. EFTIR: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON Þórður er 30 ára Reykvíkingur, hann hefur starfað sem slökkvi- liðsmaður meira og minna frá ár- inu 1981, reyndar sem afleysingar- maður fyrstu þrjú árin og þá að- eins á sumrin. Eftir það sem fastur starfsmaður slökkviliðsins í Reykjavík. Þórður lýsir því hvað vakti áhuga hans á að gerast slökkviliðsmaður í upphafi: „Ég var i bændaskólanum á Hvann- eyri þegar þangað komu tveir slökkviliðsmenn og kenndu skyndihjálp. Ég fór að spjalla við þá yfir matnum og þeir sögðu mér ýmislegt um starfið og sögðu að verið væri að auglýsa eftir afleys- ingarmönnum. Eg dreif mig í þvi að sækja um þegar í stað og hef verið þar síðan." Þórður nefnir einnig við nánari umhugsun að hugsanlega hafi það haft einhver áhrif að hann hafi í æsku búið í Eskihlíðinni í Reykjavík i nágrenni við höfuðstöðvar slökkviliðsins. Hann hafi eins og allir strákar helst getað hugsað sér að verða lögga, eða þá slökkviliðsmaður. „Sem ég reyndar varð og þá kannski meira fyrir tilviljun," bæt- ir hann við. Slökkviliðsmaður og poppari Þórður segir að honum hafi i upphafi einnig litist vel á vakta- vinnufyrirkomulagið, fundist það fýsilegt að geta átt frí þegar aðrir eru í vinnunni. Það hefur reyndar ekki orðið. Á milli vakta afgreiðir hann hljóðfæri í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur. Og er reyndar i popp- inu eitthvað sjálfur. Syngur með hljómsveit sem kallast DBD og hefur aðallega komið fram á smærri stöðum, krám og þesshátt- ar auk þess sem hún hefur farið víða um land. „Við höfum verið á ferðinni," segir Þórður. „Það er alltaf hægt að skjóta sér einhvers- staðar inn,“ segir hann aðspurður um hvort hljómsveitin hafi mikið að gera. í tvö ár átti Þórður og rak verslun í rokkbransanum, Rokk- búðina sem m.a. annaðist inn- flutning á vörum fyrir rokktónlist- armenn. Hann hætti í því um ára- mótin. Segir að það hafi ekki gengið upp að standa sjálfur í rekstri fyrirtækis og starfa jafn- framt í slökkviliðinu. Hljóðfæra- hús Reykjavíkur keypti Rokkbúð- ina og Þórður hóf að vinna hjá þeim í staðinn. Helgi Scheving, varðstjóri Þórðar, segir við Al- þýðublaðið að það sé algengt í slökkviliðinu að menn vinni aðra vinnu. Nefnir þar sérstaklega til iðnaðarmenn. En fer þetta saman? Að vera poppari annarsvegar og svo í dauðans alvarlegu starfi slökkvi- liðsmannsins hinsvegar? Varö- stjórinn segist ekkert sjá þessu til fyrirstöðu. Sjálfur segir Þórður þetta tvennt ganga vel upp saman: „Þetta er mjög góð blanda, þarna er mikill munur á og maður nær mjög vel að losna frá og hvílast á einu starfinu meðan maður sinnir hinu." Launakjörin ekki sæmandi Þórður er ómyrkur í máli þegar hann ræðir launakjör slökkviliðs- manna, hann segist hafa 54.000 kr. á mánuði í fastalaun, að við- bættu vaktaálagi fái hann oftast nær útborgað á milli 60 og 70.000 krónur. „Það eru svo sannarlega ekki launin sem halda manni í þessu starfi, það er lítið um auka- vinnu, ekkert á hana að treysta og ef ekki væri fyrir vaktaálagið væri þetta ekki bjóðandi nokkrum manni.“ í þessu sambandi ræðir Þórður þær auknu kröfur sem gerðar hafa verið til slökkviliðsmanna á und- angengnum árum: „Starfið hefur tekið miklum breytingum og menntun slökkviliðsmanna hefur mjög aukist, bæði hvað varðar reykköfun og keyrsluna á neyðar- biínum." Að keyra neyðarbíl og al- menna sjúkrabifreið er hluti af starfi slökkviliðsmanns. Þórður segir keyrslu neyðarbílsins vera versta hluta starfsins. Hann vill ekki ræða það frekar. Hver og einn getur hinsvegar ímyndað sér hvernig starf það er að keyra fólki, meira og minna slösuðu af slyss- stað á sjúkrahús. Þórður segir að slökkviliðs- menn þurfi nú að fara á 1000 tíma námskeið til að verða svokallaðir brunaverðir 3, en þeir fá réttindi til að kafa reyk og aka neyðarbíl. Starfa þar t.d. við hlið lækna og Þórður segir slökkviliðsmenn hafa nú miklu meiri menntun í að fást við slasaða á slysstað en áður var. „En launin hafa alls ekki fylgt þessum kröfum um aukna mennt- un.“ Áburðarverksmiðjan og hættan Víkjum að hættunni. Þórður segir að hann hafi alls ekki gert sér grein fyrir því hversu hættu- legt starf slökkviliðsmanns er í raun og veru, þegar hann hóf þar störf. Segir að hann hafi ef til vill séð starfið fyrir sér i einhverjum ljóma en annað hafi komið á dag- inn. „Við höfum reyndar verið heppnir hér á íslandi með slys og dauðsföll í liðinu. Við höfum góð tæki og þjálfað lið og það er mjög brýnt fyrir mönnum að fara var- lega.“ Bruninn í Áburðarversmiðjunni var þó nokkuð sérstæður. Hvernig skyldi honum hafa liðið þegar hann skreiddist upp ammoníaks- tankinn vitandi það að hann gæti ef til vill sprungið í loft upp? „Auð- vitað er það alltaf þannig þegar maður skreiðist hægt í áttina að eldi þá gefst tími til að hugsa um hvað maður er raunverulega að fara útí. Mér leið ekki vel þegar ég var á leiðinni upp á tankinn, vissi ekki hvað olli eldinum né heldur neitt um það sem við var að etja. Ég fann hinsvegar enga ammon- íakslykt og taldi þvi að mér væri óhætt að fara stöðugt nær til a.m.k. að skoða aðstæður nánar. En auðvitað er það þannig að starf slökkviliðsmannsins er alltaf hættulegt. Það er okkar hlutverk að slökkva elda sem eru varhuga- verðir — það geta allir hlutir gerst t.d. við reykköfun, göt komið í gólfin eða við iokast inni,“ segir Þórður og ítrekar mikilvægi þess að fara varlega. Að vega og meta áhættuna Þegar slökkviliðið kom að eldin- um í Áburðarverksmiðjunni voru aðstæður ekki hinar ákjósanleg- ustu, dúndrandi eldfimur tankur, ónógur búnaður að einhverju leyti, menn tæplega nógu vel gall- aðir og óvissa í loftinu. Eldur log- aði uppi á tanki sem geymir amm- oníak og Þórður greip slöngu og óð upp stiga með aðstoð tveggja slökkviliðsmanna verksmiðjunn- ar. Og réði niðurlögum eldsins. Helgi Scheving varðstjóri: „Það var óvissa í lofti hjá okkur um að gríðarleg hætta væri á ferðum. Þessvegna varð að vaða strax í eldinn og slökkva hann. Þórður mat það þannig að hann yrði að hlaupa strax upp með slöngu og kæla tankinn og slökkva eldinn." Og Helgi segir aðspurður: „Vissu- lega má segja að hann hafi með þessu sýnt verulegt hugrekki." Sjálfur vill Þórður ekki gera mikið úr eigin hugrekki, segir aðeins að hann hafi gert það sem óhjá- kvæmilcgt hafi verið að gera. Helgi Scheving segir hinsvegar: „Hann fær prýðileg meðmæli fyr- ir þetta hjá okkur." Reyndar gefur Helgi Þórði hin prýðilegustu með- mæli í bað heila tekið, segir hann duglegan slökkviliðsmann og skemmtilegan náunga sem auð- velt sé að lynda við. Starf slökkviliðsmanns er erfitt, illa launað og hættulegt. Á milli út- kalla getur það vafalítið verið hálf-leiðinlegt, menn eru þá að dútla, þrífa bílana, yfirfara búnað- inn og fara í skoðunarferðir um það svæði sem er á þeirra ábyrgð. Þórður segir að nokkuð sé gert af þvi að fara í skoðunarferðir, — en reyndar alls ekki nóg. „Það hefði t.d. verið ágætt ef maður hefði verið búinn að skoða tankinn í Áburðarverksmiðjunni áður en að brunanum kom.“ Starf sem er hættulegt, illa laun- að, erfitt. Hverjar eru ástæður fyr- ir því að menn haldast í því? Þórð- ur svarar því á þann veg að það sé fyrst og fremst félagsskapurinn og svo starfið sjálft sem sé í raun skemmtilegt, ekki síst þegar vel gengur. Hann hefur í hyggju að starfa áfram í slökkviliðinu:

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.