Alþýðublaðið - 21.04.1990, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 21.04.1990, Qupperneq 4
4 Laugardagur 21. apríl 1990 ÍÞRÓTTAVIÐBURÐIR FYRRITÍMA Ólafur Sveinsson vinnur víöavangshlaupiö 1918. Víöavangshlaupiö sumardaginn fyrsta. Eins og sjá má eru áhorfendur margir. í tilefni 75. Vídavangshlaups ÍR: ffFrekar fæ ég verkamenn á kaupi en að hætta við hlaupið“ Ein af tiltölulega fáum heföum í íþróttasögu okkar er Víðavangshlaup ÍR, sem háö var í fyrsta skipti á sumardag- inn fyrsta 1916. Hlaupið hefur aldrei fallið niður, en í örfá skipti hefur því verið frestað og þá vegna óhagstæðra veð- urskilyrða. Víðavangshlaup ÍR fór því fram í 75. sinn á sum- ardaginn fyrsta í fyrradag. Kristján Jóhannsson ÍR sigraði fjór- um sinnum í Víöavangshlaupinu. Engin þátttaka fékks 1915 Það var í febrúarmánuði 1915, að stjórn ír ákvað á fundi að halda Víðavangshlaup og samþykkti jafnframt, að hlaupið skyldi háð á sumardaginn fyrsta ár hvert. 1 gerðarbók félagsins er talað um sveitahlaup, enda hefur ávallt far- ið fram keppni í 3ja, fimm og/eða tíu manna sveitum, þó svo að bar- áttan um sigurinn í einstaklings- keppninni hafi oftast vakið mesta athygli. — Ekkert varð þó úr hlaupinu 1915, þar sem enginn þátttaka fékkst. Frekar fæ ég verkamenn á kaupi en að gefast upp! Vorið 1916 var næg þátttaka og hlaupið fór fram fyrsta sumardag. Einn helsti hvatamaður að hlaup- inu var Helgi Jónasson frá Brennu. Sú saga er sögð af Helga, hvort sem hún er sönn eður ei, að þegar hvað verst leit út með þátttöku, hafi hann hótað því að fá verka- menn á kaupi til að hlaupa, frekar en að gefast upp og hætta við Víðavangshlaupið! Fyrsti íþróttasigur Kaldals Á sumardaginn fyrsta 1916 var keppt í tveimur flokkum og varð Jón Jónsson (Kaldal) hlutskarpast- ur. Segja má, að með þessum sigri hefjist glæsilegur íþróttaferill Kal- dals, bæði hér heima og þó sér- staklega í Danmörku. Mikill fjöldi fólks var samankominn til að horfa á hlaupið, og varð það þá þegar mjög vinsælt hjá Reykvíkingum. Svo sterk ítök hefur Víðavangshlaup ÍR í hugum margra, að hugtakið sumar tengist sálartetrinu, þegar farið er að tala um þetta ágæta hlaup. Aðeins ÍR-ingar í fyrstu fjögur skiptin_______________ Árin 1916 til 1919 tóku aðeins fé- Ágúst Ásgeirsson ÍR hefur oftast allra sigraö i Víöavangshlaupinu, eða sjö sinnum. Örn Eiösson skrifar lagar úr ÍR þátt í Víðavangshlaup- inu. Vorið 1919 gaf Einar Péturs- son silfurbikar, sem það félag átti að fá, sem hlutskarpast yrði. Það var þó ekki keppt um bikarinn fyrr en 1920, en þá mættu sveitir frá UMF, Aftureldingu og Dreng sam- einaðar og Ármanni. Ungmenna- félagar sigruðu og sönuleiðis 1921 og 1922 og unnu þvi áðurnefndan hikar til eignar. — Síðan hefur ver- ið keppt um fjölmarga bikara og verðlaunagripi, sem of langt yrði upp að telja í þessari stuttu frá- sögn. Þátttakan hefur verið misjöfn I sögu Víðavangshlaupsins hef- ur gengið á ýmsu, hlaupið hefur átt sín blómaskeið og á stundum var þátttakan sáralítil, svo lítil að sumir töldu jafnvel, að saga þess væri öll. Forráðamenn ÍR vísuðu slíkum skoðunum á bug og síðustu árin hefur þátttaka í hlaupinu auk- ist til muna og með aukinni fjöl- breytni virðist vegur þess fara vaxandi. Með auknu framboði af- þreyinga eru áhorfendur aftur á móti færri en áður var. Ekki er vit- að með vissu, hve margir hafa þreytt hlaupið frá upphafi til þessa dags, en flestir kunnugir telja, að þeir séu eitthvað á þriðja þúsund- ið. Ágúst Ásgeirsson hefur oftast sigrað Sigur í Víðavangshlaupi ÍR hefur ávallt þótt eftirsóknarverður, en oftast hefur ÍR-ingurinn Ágúst Ás- geirsson sigrað eða sjö sinnum. Kristleifur Guðbjörnsson KR, sigr- aði fimm sinnum, en fjórumsinn- um hafa eftirtaldir hlauparar borið sigur úr býtum: Geir K. Gígja KR, Sverrir Jóhannesson KR, Stefán Gunnarsson Á, Halldór Guð- björnsson KR og Kristján Jóhanns- son ÍR. Margir hlauparar hafa oft tekið þátt í Víðavangshlaupinu, en nú á sumardaginn fyrsta hljóp Jón Guð- laugsson HSK í 30. skiptið og eng- inn hefur verið með í hlaupinu eins oft. Næst kemur Oddgeir Sveinsson KR, en hann hljóp 25 sinnum. Þökk sé Guðmundir Þórarinssyni Margir ágætir ÍR-ingar hafa unn- ið vel að framgangi hlaupsins, sem of langt mál yrði að telja upp hér. — Síðustu áratugina er þó hægt að fullyrða, að einn ágætur maður hafi beinlínis haldið merki Víða- vangshlaupsins uppi, en það er. Guðmundur Þórarinsson, þjálfari frjálsíþróttadeildar félagsins. Þökk sér honum fyrir það og fórnfúst starf í þágu íþróttanna hér á landi. Óskar Jónsson IR besti millivega- lengdahlaupari okkar um árabil sigraði aldrei i Viöavangshlaupinu, en hann var nálægt því 1945. Hann haföi forystu nær allt hlaupiö, en á síöustu metrunum skaust Haraldur Björnsson KR fram úr og sigraöi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.