Alþýðublaðið - 21.04.1990, Side 5

Alþýðublaðið - 21.04.1990, Side 5
5 Laugardagur 21. apríl 1990 Eldsvodirm á Scandinavian Star Norska þjóðin i sárum „Ég þarf gröf til að syrgja við," segir Inger Brönnum sem sér nú á eftir manni og þrem börnum. Missti mcmn eg þrjú börn ið skipið og illa eða lítt þjálfuð áhöfnin hafi verið fljótandi dauðagildra sem aldrei hefði átt að láta úr höfn. „Mér bar að vara son minn við. Nú er það of seint," sagði Hasse Magnusson, sem missti tvo syni sína í ferjubrunanum. Magnusson sigldi sjálfur með óhappafleytunni Scandinavinan Star daginn áður en slysið átti sér stað. „Frá þeirri stundu er ég steig um borð fylltist ég mikili óöryggistil- finningu og það fór ekki fram hjá mér hversu illa þjálfuð áhöfn skipsins var,“ sagði Magnusson. Hjónin Karin og Hasse Magnus- son héldu lengi í þá von að synir þeirra hefðu komist lífs af úr þess- um hildarleik. „Við keyrðum milli sjúkrahúsanna en hvergi könnuð- ust menn við að hafa séð syni okk- ar tvo meðal þeirra sem höfðu komist lífs af.“ Á leið heim keyrðu þau hjón framhjá skipinu sem var ein flakandi brunarúst og þar hét faðirinn því að þeir sem ábyrgð bæru á dauða sona hans og allra hinna skyldu látnir svara til saka. Lýsingar þeirra sem komust lífs af eru ófagrar. Skelfingu lostnir farþegarnir þustu upp á dekk skipsins en allt sem þar blasti við var öngþveiti. Slökkvitæki reynd- ust vera biluð þegar til átti að taka og vélar björgunarbátanna sömu- leiðis, loks þegar tókst að koma þeim á flot. Margir þeirra sem féllu komust aldrei upp á dekk heldur biðu dauða síns lokaðir í klefum ferjunnar. Betina Kol, ein áhafnarmeðlima lokaðist inn í klefa sínum og var að skrifa fjölskyldu sinni kveðjubréf þegar björgunarmenn komu að henni. Hún var ein þeirra heppnu. Þjóðarsorg ríkir í Noregi og þeir skipta hundruðum sem syrgja sina nánustu. Tala látinna vex stöðugt og er nú talið að 193 hafi farist með ferjunni þar af 30 börn. Þegar hafa 123 lík verið flutt úr ferjunni en oft hefur reynst vankvæðum bundið að bera kennsl á þá föllnu því líkamar þeirra eru oft á tíðum mjög illa brenndir. „Ég mun berjast fyrir mál- stað þeirra föllnu. Skipið hefði aldrei átt að láta úr höfn svo vanbúið sem það var. Þá ábyrgu verður að finna og þeim ber að svara til saka.“ Þetta eru orð Inger Brönnum sem missti mann og þrjú börn í eldsvoðanum um borð í Scandinavian Starr. Þrátt fyrir mikinn missi hefur In- ger ekki gefist upp heldur hellt sér út í störf með stuðningshópi við þá sem nú syrgja sína nánustu og er hún einn af forsvarsmönnum hópsins. „Einhver innri styrkur hefur haldið mér uppi, styrkur sem ég vissi ekki að ég ætti til. Ég veit að það að hafa nóg fyrir stafni mun hjálpa mér. Það er manns míns og barnanna vegna sem mér ber að sýna kjark og þor og vinna að því að slysið verði upplýst." „Það verður erfitt að þurfa að lifa lífinu áfram og horfast i augu við framtíðina án þeirra. Mér er mjög mikilvægt að fá einhverjar líkamsleifar til baka, einhverja staðfestingu á dauða þeirra. Oft er stutt í drauminn um að þau hafi einhvern veginn komist lífs af en ekki enn gefið sig fram. Ég þarf gröf til að syrgja við.“ „Það er gott að vita til þess að norska þjóðin öll stendur að baki okkur og tekur þátt í sorg okkar. En við sem höfum misst svo mikið megum ekki gleymast. Þetta er slys sem aldrei hefði þurft að verða og má aldrei gleymast. Það verður að tryggja að svona nokkuð komi aldrei fyrir aftur.“ sagði Inger. Sorg þeirra sem nú sjá á eftir sínum nánustu er mikil. Hér má sjá tvö ung- menni veita hvort ööru stuðning. Hjónin Karin og Hasse Magnusson eftir að Ijóst var að þau höfðu misst syni sína tvo Lars og Lennart Magnusson, (sjá innfelldarmyndir) Syrgjendur ganga út úr dómkirkjunni i Oslo að lokinni minningarathöfn um þá sem féllu í brunanum um borð í „Scandinavian Star". Norska þjóðin er í sárum eft- inn þungbær þeim sem nú sjá á ir að eldur um borð í ferjunni eftir sínum nánustu. Lítið er „Scandinavian Star“ grandaði enn sem komið er vitað um hátt í tvö hundruð manns. hver upptök eldsins voru en Sorgin er mikil og söknuður- menn virðast þóálítaað vanbú- DIETER ROTH myndlistarmaður verður sextugur í dag laugardag. Börn hans og tengdabörn biðja þá sem vilja senda honum kveðju að vera með á afmæliskveðju- hópmynd. Smellt verður af stundvíslega kl. 17.00 við Listasafn Einars Jóns- sonar á Skólavörðuholti.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.