Alþýðublaðið - 21.04.1990, Síða 10

Alþýðublaðið - 21.04.1990, Síða 10
10 Laugardagur 21. apríl 1990 Sólin skein á hestvagnalest kóngafólksins — hér eru drottningin og eiginmaður hennar Hinrík prins á ferð á Strik- inu. Skömmu áður hafði hestur fælst og valdið einhverjum usla i kring um hestvagn drottningar. Danska þjódarsálin hrífst af drottningu sinni á 50 ára afmæli hennar Veifaði alþýðunni í 25 minútur Friðrik krónprins og litli bróðir, Jóakim, sem er aðeins prins að tign, myndarlegir piltar í hvívetna og klæðnaður- inn ekkert líkur því sem jafnaldrar þeirra bera dagsdaglega. Frá Gudbjörgu Arnardóttur, Kaupmannuhöfn Þjóðarsál Dana, eöa „Familien Danmark" eins og menn nefna það títt hér um slóðir, hefur verið ákaflega upptekin af merkisaf- mæli drottningar sinnar síðustu dagana. Drottningin og fjölskylda hennar hafa verið til umfjöllunar í öllum fjölmiðlum landsins og á vörum allra að heita má. Danir virðast ánægðir með drottningu sína fimmtuga og telja hana verð- ugan fulltrúa þjóðarinnar. Troðfullur Tívolígarður Hinn eiginlegi afmælisdagur hófst með flugeldasýningu í Tívolí á miðnætti, þegar 16. apríl gekk í garð. Drottningin, Henrik prins, Friðrik krónprins og Jóakim prins veifuðu til alþýðunnar af svölum konsertsalar Tívolí. Tívolí og næsta umhverfi var troðfullt af fólki, sem vildi fá að sjá þjóðhöfð- ingja sína. Fyrr um kvöldið hafði farið fram „galá'-skemmtun í konsertsaln- um í Tívolí fyrir drottningu og hennar fólk. Var kvöld þetta af- mælisgjöf danska útvarpsins. Þarna tróðu upp listamenn í ýms- um greinum. Má þar nefna leikar- ann Sören Pilgaard sem söng hug- ljúft lag um Daisy, en það er gælu- nafn Margrétar drottningar innan fjölskyldunnar. Hann söng lagið ansi pent en spaugilegt var þetta að því leyti að hann hefur síðustu ár nær eingöngu skipað sér í röð grínara í dönsku leikhúsi. Lesin voru ævintýri og sögur og rokk- hljómsveitin Gnags, nýlega kosin vinsælasta hljómsveit Danmerk- ur, flutti hið vinsæla lag ,, Naar jeg blir gammel", sem prinsarnir ungu virtust nokkuð ánægðir með. Afmælisdagurinn rennur upp Þar sem drottningin er flutt til Fredensborgarhallar var hún vak- in þar af stúdentum sem sungu af- mælissönginn fyrir neðan glugga hennar á afmælisdaginn. Upp úr hádegi var drottning og fjölskylda hennar komin til vetrarhallarinn- ar, Amalíenborgar í Kaupmanna- höfn. Þar var samankomið slíkt mannhaf að slíkt hefur vart sést fyrr. Veðrið gekk á með skúrum og sól til skiptis, — svo vildi ævin- lega til að sólin skein, þegar Henn- ar Hátign kom út undir frískt loft. Þegar lífverðirnir hinsvegar gengu léttar skrúðgöngur með undirspili kom úrfelli mikið, sem Danir létu þó lítið á sig fá, drógu upp regnhlífar sínar og létu sem ekkert væri. En viti menn, þegar þeir í lífvarðasveitinni voru um það bil að ljúka við að spila afmæl- issönginn alþjóðlega, byrjaði sólin að skína og í sömu andrá steig sól- drottningin Margrét út á svalirnar og veifaði til alþýðunnar í allt að 25 mínútur. Hlýtur það að teljast langur tími til slíkra verka. Drottn- ingin veifar á sinn sérstaka hátt og hef ég heyrt því fleygt að ástæðan fyrir því að hún veifar eins og hún gerir, sé sú að eitt af skylduverk- um hennar í höllinni sé að skipta um ljósaperur. Já, Danir eru gam- ansamir menn! En meira um veðrið. Ekki virtust veðurguðirnir bera eins mikla virðingu fyrir hinni dönsku þjóð- arsál, því skömmu eftir að svala- hurðinni var lokað og lífverðir hófu vaktaskiptin, dundi á geysi- mikið haglél, en lífverðirnir létu þó engan bilbug á sér finna og breyttu ekki um svip fremur venju. Varð mér hugsað til 17. júní heima á lslandi. Frúkostur fyrir hestvagnaferð Næsti liður á dagskránni var að fylgjast með ferð konungsfjöl- skyldunnar í opnum hestvögnum frá Amalienborg niður Strikið til móttöku í Ráðhúsinu. Áður en sú skrúðfylking fór af stað snæddi konungsfjölskyldan einn danskan frúkost og mannfjöldinn notaði tímann til að dreifa sér niður allt Strikið og á Ráðhústorgi. Auðvitað byrjaði sólin að skína, jafnskjótt og drottningin sté upp í hestvagninn — og hætti síðan að skína, þegar hún korn á áfanga- staðinn, Ráðhúsið. Ótrúlegt en satt! Prinsarnir Friðrik og Jóakim fffggfgg

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.