Alþýðublaðið - 28.04.1990, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 28.04.1990, Qupperneq 1
 STOFNAÐ 1919 Laugardagur 28. apríl 1990 63. tbl. 71. árg. Kvosin á gjörgæslu — Sjá baksídu Fyrsta maí hátídarhöldin: Yfirvöld i Moskvu leyfa almenningi að taka þátt (MOSKVA, Reuter) Stjórnvöld í Moskvu hafa tekið ákvörðun um að al- menningi skuli nú í fyrsta sinn heimiluð þátttaka í 1 maí hátíðahöldunum. Til þessa hafa aðeins háttsett- ir ínenn innan Kommún- istaflokksins fengið að vera viðstaddir þessi ár- legu hátíðahöld á Rauða- torginu í Moskvu. Sérstaklega var þó tekið fram í tilkynningu stjórn- valda að spjöld með and- kommúnískum áróðri yrðu ekki heimiluð. Til þessa hafa hátíðahöldin í tilefni alþjóðlegs baráttu- dags verkalýðsins verið skipulögð í þaula af stjórn- völdum. Þúsundir verka- manna hafa verið látnir ganga í skrúðgöngum um Rauðatorgið með spjöld á lofti þar sem á eru rituð lofs- yrði um sovésk stjórnvöld. Talið er að meðal annars megi rekja þessa stefnubreyt- ingu sovéskra stjórnvalda til hræðslu um að sagan frá bylt- ingarafmælinu síðast í nóv- ember kunni að endurtaka sig. Þá efndu andstæðingar stjórnvalda tii fjölmennrar göngu annars staðar í Moskvu til að mótmæla ein- ræði Kommúnistaflokksins. Voríð hlýtur þó að koma . . . Sannast sagna hefur fátt bent til að vorið sé i nánd, — helst smáútgerðarmennirnir i Grimsstaðavörinni við Ægissiðu, sem eru þrátt fyrir hryssinginn farnir að hyggja að hrogn- kelsum. Og þrátt fyrir allar hrakspár sem heyrast, allt frá is- lenskum spákonum til hámenntaðra bandariskra langtima- veðurspámanna — þá hlýtur vorið að hafa það af og birtast okkur einn morguninn. A-mynd: E.ÓI. Vestur- land —um hvaö er kosiö í vor — allt um þaö í MIÐJU blaösins Konan sem bjargaði Bernhöfts- torfunni — sjá bls. 5—6 Tap Stöðvar 2 um 100 miljónir i fyrra Tap Stöðvar 2 nam um 100 milljónum á síðasta ári. Þetta kom fram í máli Jóhanns J. Ólafs- sonar á fundi um málefni stöðvarinnar í gær. Á fundinum mótmæltu þeir Haraldur Haralds- son, Guðjón Oddsson og Jóhann fréttum af því að nýir meirihlutaeigendur Stöðvar 2 hefðu ekki greitt hlutafé sitt. Stað- reynd málsins væri sú að alltþettafé, 150miljónir, hefði þegar verið greitt og myndu þeir leggja fram kvittanir því til sönnunar á stjórnar- fundi í sjónvarpsstöð- inni í dag. í sambandi við kauptil- boð í hlut Eignarhaldfélags Verslunarbankans segir meirihlutinn að það hefði verið í hæsta máta óeðli- legt að Eignahaldsfélagið seldi hlut sinn til þriðja að- ila því tveir samningar hefðu verið gerðir um að sala á öllum hlutabréfum væri ekki leyfileg fyrr en 1. maí 1992. „Þetta er spurn- ing um viðskiptasiðferði og meirihluti stjórnar Eignar- haldsfélags Verslunarbank- ans hafði það greinilega að leiðarljósi," sagði Jóhann. Ekki kváðust þremenn- ingarnir kannast við drög að samkomulagi milli Stöðvar 2 og Sýnar um sjónvarpsrekstur en Jón Óttar Ragnarsson, fyrrver- andi sjónvarpsstjóri, hefur lýst því yfir að það hafi leg- ið fyrir skömmu fyrir ára- mót. „Ef slíkt samkomulag var fyrir hendi þá var okk- ur a.m.k. ekki sýnt það. Hins vegar værum til í að ræða málin við Sýnar- menn," sagði Haraldur í yfirlýsingu frá þeim Jó- hanni J. Ólafssyni, Haraldi Haraldssyni og Guðjóni Oddssyni segir að dylgjum Gísla V. Einarssonar um tengsl þessara mála við að- alfund Eignarhaldsfélags- ins sé vísað til föðurhús- anna. Það sé miklu fremur meðhöndlun Gísla á tilboð- inu sem tengist kosninga- baráttu hans fyrir aðalfund- inn.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.