Alþýðublaðið - 28.04.1990, Blaðsíða 24
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
PRESSAN
FAX 82019
t IWHIIIÍILBUI
Laugardagur 28. apríl 1990
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRN
D
681866-83320
Eftir 16 ára niðurlœgingu og vamœkslu af hálfu borgaryfirvalda er:
Kvosin i gjörgæslu
— segir Ketill kaupmadur í London í Austurstrœti
Eins og kunnugt er eru
borgaryfirvöld ásökuð
um láta hina gömlu mið-
borg Reykjavíkur danka
og drabbast árum sam-
an. Nú er svo komið að
kaupmenn á svæðinu
segja miðborgina á gjör-
gæslu, það sé verið að
leggja dýrasta hverfi
landsins í auðn.
Ketill Axelsson kaup-
maður í London er ómyrk-
ur í máli í Verzlunartíð-
indum, blaði Kaupmanna-
samtaka Islands, sem kom
út í gær. Hann segir þar:
,,Lóðamat hér í Kovsinni
er sennilega eitt hið hæsta
i heiminum. Lóðin Austur-
stræti 14 er t.d. metin á yfir
50 milljónir króna og af
þessu vilja yfirvöld að sjálf-
sögðu fá greidd gjöld og
engar refjar. Gjöldin höfum
við greitt árlega eins og
okkur ber en lítið fengið í
staðinn annað en lokun
götunnar, 60 stöðumæla-
verði sem virðast hafa það
hlutverk eitt að hanka bif-
reiðaeigendur og kranabíla
sem aka hér um á 30 mín-
útna fresti og fjarlægja bif-
reiðar þeirra fáu sem hing-
að leggja leið sína nú orð-
ið."
Segir kaupmaðurinn að
hann hafi mótmælt og sent
mörg bréf til Fasteigna-
matsins með óyggjandi rök-
um. Rök hans séu viður-
kennd, en ekkert gert í mál-
unum.
„Það er verið að fram-
kvæma skipulagða eigna-
upptöku á verðmætasta
hluta Reykjavíkur og er
hætt við að margir muni
missa eignir sínar því þær
standa engan veginn undir
þessari miklu gjaldtöku,"
segir Ketill og bætir við að
niðurlæging miðbæjarins
hafi nú staðið í 16 ár, Kvosin
sé í raun á gjörgæslu.
Félagslega íbúöakerfiö:
Vilji umsækenda endur-
speglasl ekki i út-
hlutun stiórnarinnar
— segir Jóhanna Siguröardóttir
„Eg er þess nokkuð full-
viss að frumvarpið um fé-
lagslega húsnæðiskerfið
verði afgreitt á þessu þingi
og býst fastlega við því.
Það hefur myndast nokk-
uð breið samstaða um mál-
ið hér á Alþingi,“ sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra við Al-
þýðublaðið í gær.
„Að vísu hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn haft ákveðna fyr-
irvara um ýmis atriði í frum-
varpinu en ég tel að þetta mál
náist í gegn. Eg minni á það
að það var mikil samstaða í
nefndinni sem samdi það en
þar áttu sæti bæði fulltrúar
sveitarfélaganna og verka-
lýðshreyfingarinnar, sagði
Jóhanna ennfremur. Nokkur
óvissa er um það hvenær
þingi lýkur og hvaða mál
verða afgreidd þaðan fyrir
þinglok.
Gagnrýni hefur komið
fram hjá vinnuveitendasam-
bandinu um hversu stór hluti
fjármagns frá húsnæðiskerf-
inu fari til félagslegra íbúða-
bygginga eða um 55%. Jó-
hanna kvaðst hins vegar
mjög ánægð með hversu góð-
.ur hlutur félagslega íbúðar-
kerfisins er orðinn miðað við
hvað áður var. Jóhanna sagði
að með þeirri úthlutun sem
nú hefur átt sér stað „hefur
orðið um verulega aukningu
á félagslegum íbúðum að
ræða og það eru auðvitað
skiptar skoðanir eins og ger-
ist og gengur á því hvernig
þessi úthlutun skiptist. Það
sem ég hef helst við þessa út-
hlutun að athuga er það, að
vilji umsækjenda kom, mjög
greinilega fram í þá veru að
þeir lögðu áherslu á kaup-
leiguíbúðir, en endurspeglast
ekki í úthlutuninni. Umsókn-
irnar um kaupleiguíbúðirnar
voru 972 en það var ekki út-
hlutað nema til rúmlega 300
eða um 30%. Aftur á móti
varðandi verkamannabú-
staði voru umsóknirnar 570
en úthlutun var 351 íbúð
þannig að þarna var úthlutað.
um 65% af því sem um var
beðið. Ég tel að þessi úthlut-
un endurspegli ekki vilja um-
sækjenda um félagslegar
íbúðir."
Að lokum sagði Jóhanna
að það verið sé að skoða það
í ráðuneytinu hvort ástæða sé
til að breyta lögum um stjórn
húsnæðisstofnunar.
Draumafarartækið
Krakkarnir á myndinni áttu leið um lögreglustööina við Hlemmtorg og sáu þetta líka
draumafarartæki — löggumótorhjól — sem þar er stillt upp eins og hverjum öðrum sýning-
argrip — eða þarf lögreglan kannski að geyma hjólin sín inni við vegna gripdeilda óvandaöra
manna? Hvað um það, þarna fengu börnin að setjast á hinn mikla Harley Davidson-fák vél-
hjóladeildarinnar, en Arnþór Ingólfsson lögregluforingi fylgdist með að farið væri að settum
reglum. A-mynd: E.Ól.
Fólk
Efstu menn á lista Fram-
sóknarflokksins, þau Sig-
rún Magnúsdóttir og Al-
freð Þorsteinsson, hafa
boðað til fundar með
fréttamönnum í dag. Þau
hyggjast segja blaða-
mönnum frá kæru, sem
þau munu leggja fram til
félagsmálaráðherra
vegna staðsetningar
sorpverksmiöju í Gufu-
nesi.
★
Bjarni Fel og félagar á
íþróttadeild Sjónvarpsins
eru að undirbúa það sem
heitir á fínu íþróttamáli
„knattspyrnuveisla".
Veisla þessi hefst föstu-
daginn 8. júní þegar
Heimsmeistaramótið í
knattspyrnu verður opn-
að á ltalíu og siðan leik
Argentínumanna og
Kamerúnsveina. Síðan
rekur hver leikurinn ann-
an, líklega einir þrjátíu
leikir, hver leikur i það
minnsta hálfur annar
tími. Svo nákvæmt er
fylgst með að á þriðju-
degi klukkan rétt fyrir
þrjú má sjá þjóðir eins og
Belga og Kóreumenn etja
kappi saman. Sagt er að
vinnuveitendur mæni nú
til íngólfs Hannessonar
yfirmanns íþróttamála
RÚV og segi: Ekki meir!
Ekki meir!
★
Grænt framboð var
ákveðið fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar 27.
maí eins og segir í frétt frá
samtökunum. Kosning-
arnar eru reyndar degi
fyrr. Efstur á lista er Kjart-
an Jónsson, verslunar-
maður, annar Óskar D.
Ólafsson, verkamaður og
Gunnar Vilhelmsson,
ljósmyndari. Fjórða sæti
er skipað konu, Sigrúnu
M. Kristinsdóttur.