Alþýðublaðið - 28.04.1990, Síða 6

Alþýðublaðið - 28.04.1990, Síða 6
6 Laugardagur 28. apríl 1990 Hver er hún eiginlega? GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, — hún vill sjá miklar breytingar í hugmyndum Reykjavíkurborgar um skipulag. Hún vill að gamli miðbærinn verði skipulagður út frá eigin forsendum og segir að margar nybyggingar í miöbænum séu hreinlega til skammar. Rödd fólksins fellir meirihlutann segir Guörún Jónsdóttir arkitekt „Mér líst ágætlega á meðframbjóðendur mína á lista Nýs vettvangs, ég hefði sjálf ekki getað boðið mig fram á f lokks- pólitískum lista og það hentar mér vel að fara í svona fram- boð þar sem ég get mætt sem óháður aðili. Mér sýnist mik- ill þróttur í starfinu öllu og ég hef trú á því að þessi listi verði til þess, ásamt öðrum, að fella meirihluta borgarstjórnar í kosningunum í vor. Mín skoðun er ekki sú að borginni sé vel stjórnað, þvert á móti. Hér hefur verið stjórnað án þess að hlusta á rödd fólksins og ég hef þá trú, að ef hún heyrist, þá falli meirihlutinn," sagði Guðrún Jónsdóttir arkitekt í við- tali við Alþýðublaðið. Guðrún skipar fjórða sæti á lista Nýs Vettvangs fyrir borgarstjórnarkosningarnar en hún hefur fram til þessa einkum verið þekkt sem einn ötulasti bar- áttumaðurinn fyrir friðun Torfunnar og áhuga sinn á skipu- lagsmálum borgarinnar, en hún var forstöðumaður Borgar- skipulags á öndverðum 9da áratugnum. EFTIR: TRYGGVA HARÐARSON „Foreldrar mínir eru Hulda Ár- dís Stefánsdóttir og Jón Sigurður Pálmason sem eru bæði látin. Ég fæddist á Blönduósi en móðir mín var skólastjóri Kvennaskólans þar. Min fyrstu æviár var ég á Þingeyr- um í Húnavatnssýslu og fluttist síð- an með móður minni til Reykja- víkur þegar ég komst á skóla- skyldualdur, en þá tók hún við stjórn Húsmæðraskóla Reykjavík- ur. Ég var síðan á Þingeyrum á sumrin fram að fermingaraldri. Síðan stundaði ég nám eins og krakkar gerðu þá og fór síðan í Menntaskóla Reykjavíkur og út- skrifaðist úr honum árið 1955. Á sumrin vann ég yfirleitt við land- búnaðarstörf. Eftir stúdentspróf hélt ég til náms til Kaupmanna- hafnar og hóf þar nám í jarðfræði. Síðan fór ég í arkitektúr við Lista- háskólann í Kaupmannahöfn." — Hvers vegna fórst þú í arki- tektúr? „Ég veit það ekki alveg. Það var náttúrlega ýmislegt sem ég hafði áhuga á á þessum árum. En ég kynntist arkitekt sem hér starfaði þá og mér fannst það sem hann sagði mér vera áhugavert og mig langaði þá einkum að bæta húsa- kost í sveitum á þeim tíma og var búin að ímynda mér að ég gæti það með einhverjum hætti þegar ég yrði búin að læra þetta. Það má segja að það hafi ekki síður verið þessi tengsl við arkitektastéttina sem ég átti í gegnum mína ætt- ingja hér í Reykjavík sem gerði það að verkum að ég endanlega festist í því að ég vildi verða arki- tekt." Óvenjulegt að sjá konu í skipulagsmálunum — Þú hefur þá væntanlega starfað sem arkitekt, eða við arkitektúr frá því að þú laukst námi? „Já, fyrst vann ég í þrjú ár í Kaupmannahöfn eftir að ég lauk námi en ég hafði verið við nám frá 1958—63. Þar vann ég á teikni- stofum og var stundakennari við arkitektaskóla í tvígang á þessu tímabili. Þegar þar var komið sögu var ísland farið að kalla á mig. Boð bárust til útlanda um að hér væri nóg að starfa og þörf fyrir fólk. Mér þótti freistandi að sjá hvað hægt væri að gera á íslandi, flutti heim árið 1967 og gerðist fljótlega aðili að teiknistofunni Höfða og rak hana ásamt tveimur öðrum arkitektum, Stefáni Jóns- syni og Knúti Jeppesen." — Voru viðhorf til skipulags- mála þegar þú komst frá námi ólík því sem þau eru nú? „Þá voru framkvæmdir að hefj- ast í Breiðholti og þangað fóru ungir arkitektar mikið og tengdust þeim framkvæmdum. Þetta voru þá stærstu framkvæmdirnar og mikið um ýmsar tækninýjungar. Heldur var það fátítt að konur væru í þessu og mátti telja okkur á fingrum annarrar handar. Enda fannst mörgum þegar ég byrjaði í mínu námi í arkitektúr, það ákaf- lega furðulegt val. Teiknistofan Höfði vann hins vegar töluvert mikið að skipulagsmálum fyrir borgina þá og fyrsta verkefnið sem ég vann var skipulag Selás- hverfis og lok Árbæjarhverfis. Síð- an hélt Breiðholtið áfram og þá Seljahverfið sem var síðasti áfangi Breiðholtshverfanna." — Vannstu þá hjá Borgar- skipulaginu? „Nei, þá var þetta öðruvísi. Þá var til skipulagsstjóri Reykjvíkur- borgar sem var Aðalsteinn Richt- er. Sjálfstæðar teiknistofur höfðu með höndum skipulag hverfanna og mótuðu þau. Þá var mjög lítið um forsagnir þannig að t.d. for- sögnin fyrir Breiðholt 2 var ein- ungis sú að þar skyldu rísa smærri blokkir sem hentuðu til úthlutun- ar fyrir smærri verktaka. Þannig byggðum við skipulagið á okkar eigin hugmyndafræði og þeim tíma þegar sú greinargerð kom út frá okkar hendi, þá var hún kölluð mjög róttæk, mjög rauð reyndar." Bernhöftstorfan og____________ húsfriðun Þú lést mjög til þín taka frið- un Bernhöftstorfunnar á þess- um árum. „Já, á árunum í kringum 1970. Þá var eiginlega talið að ég gengi I

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.