Alþýðublaðið - 28.04.1990, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 28. apríl 1990
VEGAFRAMKVÆMDIR
Á VESTURLANDI
Hér fer á eftir yfirlit um helstu vegaframkvæmdir í Vestur-
landskjördæmi í sumar. Stuöst er við greinargerð frá Birgi
Guömundssyni umdæmisverkfræðingi Vegagerðar ríkisins í
Borgarnesi
ÞJÓÐBRAUTIR
ALMENN
VERKEFNI:
asta ári en ólokið er við frágang ut-
an vegar á nokkrum stöðum sem
fresta varð vegna tíðarfars. Einnig
er eftir að Ijúka gerð reiðvegar. Efra
burðarlagi og klæðingu var lokiö á
siðasta ári. Skuld á verkinu frá 1989
er 11.9 m.kr og er gert ráð fyrir að
fjárveiting fáist til að greiða skuld-
ina. Kostnaður við eftirstöðvar
verks verður færður á verkið ef
tækifæri fæst í sumar til að Ijúka
verkinu og sótt verður um þá fjár-
veitingu 1991.
Ólafsvíkurvegur:_________
Tenging Álftár,__________
Hestlækur —______________
Álftárstekkur
Gerð hefur verið áætlun fyrir
tengingu brúar á Álftá, 1,6 km
ásamt bráðabirgðastyrkingu á 4 km
kafla frá Álftá að Fornaselsás vegna
efnisflutninga, en þar er gert ráð
fyrir 30 cm styrkingu núverandi
vegar. Sigspá liggur ekki fyrir og er
sig því áætlað. Ekki er gert ráð fyrir
að fjárveiting fáist til þessa verks, en
rætt hefur verið um að taka að láni
fjárveitingu frá öðru verkefni. Brúin
yrði þá byggð seint á þessu ári.
Vesturlandsvegur:_________
Bláskeggsá — Brekka
Hér er um að ræða tvo kafla, ann-
ars vegar frá Bláskeggsá að Hval-
stöð og hins vegar um brekku frá 01-
íustöð að Önundarhóli. Á fyrri kafl-
anum verður sett nýtt ræsi í Blá-
skeggsásana, vegur breikkaður og
settur leiðari, skarðið við Hvalstöð-
ina lækkað og breikkað. Á seinni
kaflanum verður brekkan breikkuð
og beygjan mýkt og kaflinn vestur
hækkaður. Lagt verður bundið slit-
lag á báða kaflana. Kostnaðaráætl-
un hefur verið endurskoðuð með til-
liti til tilboðs lægstbjóðanda.
Verktaki er Borgarverk hf. og gert
er ráð fyrir að verklok verði 25. júlí.
Kaflarnir eru samtals um 2 km.
Vesturlandsvegur:
Eskiholtslækur —
Gljúfurá
Lokið var við gerð vegarins á síð-
Fátt skiptir meira máli fyrir landsbyggðarfólk en góðar samgöngur. Vegaframkvæmdir á Vesturlandi eru til umfjöllunar í þessari grein.
Úrslit 1986
B-Framsóknarflokkur
75 atkv. 33,2% 2 fulltr.
D-Sjálfstæðisflokkur
100 atkv. 44,2% 2 fulltr.
G-Alþýðubandalag
51 atkv. 22,6% 1 fulltr.
Kjörnir
í sveitarstjórn 1986
Af B-lista: Benedikt Ket-
ilbjarnarson og Svavar
Jensson
Af D-Iista: Sigurður R.
Friðjónsson og Melkorka
Benediktsdóttir.
Af G-lista: Sigurjóna
Valdimarsdóttir.
Ekkert formlegt meiri-
hlutasamstarf er í Búðar-
dal.
Búöardalur:
Kosningabaráttan
að hluta til gamans
Enginn formlegur meiri-
hluti er starfandi í sveitar-
stjórn Laxárdalshrepps og
hefur raunar ekki verið
frá því listakosningar hóf-
ust þar fyrir 12 árum. Þrír
listar voru í framboði fyrir
síðustu kosningar en
verða aðeins tveir að
þessu sinni.
Einn viðmælenda okkar
orðaði það svo að kosninga-
baráttan væri a.m.k. að hálfu
gerð beinlínis til að hafa gam-
|an af henni og skapa svolitla
spennu. Að kosningunum
loknum settust menn hins
vegar niður og störfuðu sam-
an að þjóðþrifamálum sveit-
arfélagsins í mesta bróðerni.
Á því kjörtímabili sem nú
tekur enda hefur mikið verið
lagt af bundnu slitlagi í Búð-
ardal. Lokið hefur verið við
byggingu skóla og stjórn-
sýsluhúss. Fjárhagur sveitar-
félagsins telst því fremur bág-
borinn þótt ekki telji menn
það vera neitt óyfirstíganlegt
vandamái.
Engu að síður reikna sveit-
arstjórnarmenn í Laxárdals-
hreppi með að þurfa að draga
úr framkvæmdahraða á
næsta kjörtímabili og áætlun
þeirra um sparnað gerir ráð
fyrir að skuldastaðan verði
komin niður í þriðjung af
tekjum sveitarfélagsins árið
1995.
Atkvæðagreiðsla um sam-
einingu allra sveitarfélaga í
Dalasýslu fór fram fyrir
tveimur árum en var ekki
samþykkt allsstaðar. Víðast
hvar var þó mjótt á munum.
I Laxárdalshreppi voru menn
fylgjandi sameiningu. Þótt
ekkert yrði af sameiningu að
því sinni er talið ólíklegt að
málið sé að fullu úr sögunni
og vel gæti svo farið að um-
ræða um einhvers konar
sameiningu skyti aftur upp
kollinum á næsta kjörtíma-
bili.
D-listi Sjálfstæðisflokkur
1. Sigurður Rúnar Friðjónsson
2. Ársæll Þórðarson
3. Þrúður Kriðstjánsdóttir
4. Jónas Guðmundsson
5. Jófríður Anna Eyjólfsdóttir
K-listi Samtíðar
1. Kristinn Jónsson
2. Guðrún Konný Pálmadóttir
3. Kristján Jóhannsson
4. Guðbrandur Ólafsson
5. Guðmundur Eyþórsson
Sá orðrómur var í kreiki í gær bjóða fram sérlista eins og í
að þriðji listinn yrði lagður síðustu kosningum þegar
fram í gærkveldi. Alþýðu- þeir fengu kjörinn einn full-
bandalagsmenn munu hafa trúa í hreppsnefnd. Ekki náð-
talið sig fara illa út úr niður- ist þó í neinn sem treysti sér
röðun á lista Samtíðar og því til að staðfesta þetta.
velt því fyrir sér í gær að