Alþýðublaðið - 28.04.1990, Page 19
Laugardagur 28. apríl 1990
19
Alþingi í vikulokin
íi ífl ífi
tt É i
ffi íh cb
Fiskveiðimálin:
Úthlulun færi mönnum ekki eignnrrétt
eðn ónfturkræft forræði sióvaraflans
— segir Jón Sigurðsson um þá málamiðlun sem unnið er að í þinginu
Ekki náðist að afgreiða kvótafrumvarpiö og frumvarpið
um úreldingarsjóð úr nefnd í efri deild í gær eins og stefnt
hafði verið að. Reinknað er með að það komi þaðan á mánu-
dag og fáist þá væntanleg rætt og afgreitt til neðri deildar.
Það voru fulltrúar sjórnarandstöðunnar og Karvel Pálma-
son sem voru ekki tiibúnir að afgreiða málið úr nefnd að svo
stöddu.
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra hefur farið með þessi samn-
ingamál á vettvangi ríkisstjórnar-
innar fyrir hönd Alþýðuflokksins.
Af þvi tilefni átti blaðið viðtal við
Jón um stöðu og efni kvótafrum-
varpsins.
— Er kvótafrumvarpið á leið
■ gejgnum þingið?
,,Eg ætla ekki að fara út í þing-
skaparhlið málsins enda er það
sérgrein Sjálfstæðisflokksins. Það
hefur á elleftu stundu tekist sam-
komulag um nokkur meginatriði
málsins sem ég tel að við Alþýðu-
flokksmenn megum vel við una.
Við fáum þarna viðurkenningu á
okkar áherslumálum. Ég tel þar
fyrst, að það er hert á því ákvæði
í fiskveiðistjórnarlögunum sem
við fengum sett inn í lögin þegar
þau voru síðast til meðferðar. í
fyrstu grein þeirra segir að nytja-
stofnar séu sameign þjóðarinnar.
Nú er því bætt þar við að úthlutun
veiðiheimilda samkvæmt lögun-
um færi mönnum ekki eignarrétt
eða óafturkallanlegt forræði yfir
auðlindinni.
Rofin tengslin milli___________
kvóta og skips
Annað átriði sem við höfum lagt
mikla áherslu á er að rjúfa tengslin
á milli kvóta og skips. í þessum
breytingartillögum felst að árlega
verði úthlutað 12.000 þorskígildis-
tonnum sem er 1 1 '/2—2% af heild-
arafla á íslandsmiðum. Þetta fer
að hálfu til sölu, og andvirðið nýt-
ist til þess að auðvelda úreldingu
fiskiskipaflotans, hinn helmingur-
inn fer til að greiða fyrir byggðum
sem hafa lent í vanda vegna þess
að frá þeim hefur horfið kvóti eða
veiðiskip. Þetta tel ég mjög mikil-
vægt ákvæði og líka aðferðin,
vegna þess að það á gefa sveitarfé-
lögunum sem þannig er ástatt um,
ef þau hafa lent í atvinnuvanda
vegna þess að útgerð eða kvóti
hefur horfið frá þeim, tækifæri til
að kaupa þennan ráðstöfunarrétt
á gangverði. Ef þeim tekst ekki að
fá skip til að veiða á þessu gang-
verði þá verður hugsanlega að
veita afslátt frá því. Afskekkt
byggðalög með erfiða hafnarað-
stöðu og fámenni fá sjálfkrafa
lækkun á endurgjaldinu fyrir ráð-
stöfunarréttinn. Þannig gæti það
þó borgað sig fyrir veiðiskip í ná-
lægri stórveiðistöð að leggja upp
slatta og slatta hjá smærri veiði-
stöð þó svo að þeir rýrðu eitthvað
sinn hlut miðað við hvað hann er
að meðaltali. Þarna er kominn vís-
ir að þessari byggðalausn sem
menn hafa lengi beðið eftir.
Jafna afla milli byggðarlaga
Þarna höldum við að við höfum
fundið vísi að svari í samstarfi við
stjórnarflokkana og að sjálfsögðu
er framlag sjávarútvegsráðherra
og hans samstarfsmanna í ráðu-
neytinu mikilsvert í þessu máli.
Þeir hafa lagt sig fram um það að
sætta sjónarmiðin og þarna er í
senn kominn aðskilnaður milli
kvóta og skips fyrir allstóran
skammt af veiðiheimildum sem
annars vegar munu aðstoða við að
draga úr óhóflegum sóknarkostn-
aði og hins vegar að jafna afla milli
byggðarlaga sem þörf getur verið
á oft og einatt.
Málamiðlunin milli sjónarmiða
liggur bæði í breytingu á fiskveiði-
lagafrumvarpinu sjálfu og á því
sem áður hét Úreldingarsjóður
fiskiskipa en heitir nú, eftir að
hlutverk hans hefur verið víkkað
og fært inn í það nýjar heimildir,
Hagræðingarsjóður sjávarútvegs-
ins. Hann hefur það tvíþætta hlut-
verk að auka hagkvæmni i veið-
unum og jafna afla milli byggða-
laga þegar brýna þörf ber til. Hag-
kvæmni í veiðunum er ætlað að
auka með því að kaupa upp skip
og þá eignast sjóðurinn varanleg-
ar veiðiheimildir þeirra, eins með
því að ráðstafa þessum heimildum
og öðrum sem sjóðurinn fær út-
hlutað í hendur þeirra sem best
kunna með að fara og borga fyrir
þær. Þetta er framfaraskref.
Málamiðlun markaðshyggju
og byggðastefnu______________
Ég tel lika að í frumvarpinu eins
SAMVINNU
TRYGGINGAR
Adalfundir
Samvimiutryggiiiga g.t. og Liftryggiuga-
félagsius Andvöku verða haldnir í
Árinúla 3, Reykjavík, föstudaginn
18. maínk. ogliefjastkl. 13:30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnir félagaima.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra.
og það fyrir liggur séu ákvæði um
frjálsara framsal veiðiheimilda,
sem í fyllingu tímans hljóta að
stuðla að betri nýtingu fram-
leiðslukraftanna sem beint er i sjó-
sókn, og líka þar erum við á réttri
leið með þetta mál. Ég held að það
sé erfitt að finna þá menn sem
ætla að vera andsnúnir þessum
breytingartillögum á fiskveiði-
stjórnarkerfinu ef menn eru sjálf-
um sér samkvæmir. Ég ætla t.d. að
benda á það að þessi vísir að
byggðaúrræðum innan fiskveiði-
stjórnarkerfisins er áreiðanlega al-
veg sérstakleg vel til þess fallinn
að leysa vanda staða eins og Kópa-
skers. Mér hefur skilist að einn
þingmaður Norðurlands-eystra,
hinn sjötti þeirra, hafi lýst sig and-
snúinn þessum tillögum. Þá hljóta
menn að spyrja, eru þeir menn
andsnúnir því að vandi Kópaskers
verði leystur á skynsamlegan hátt.
Þetta er kjarni málsins í þessum
byggðaþætti þess og þess vegna
hefur tekist málamiðlun um þenn-
an byggðaþátt.
Hér er um að ræða málamiðlun
milli markaðshyggju og byggða-
stefnu og þetta er vísir að því, að
fyrir aðgang að hinni sameigin-
legu auðlind okkar, komi gjald.
Því fögnum við Alþýðuflokks-
menn þvi að þessi breyting hafi
orðið á frumvarpinu og þess ber
að geta að þarna er líka að finna
endurskoðunarákvæði og vænt-
anlega kemur inn i þetta líka
ákvæði um forkaupsrétt útgerðar-
aðila í hverju sveitarfélagi á skip-
um sem til stendur að selja út úr
þeim.
Tæpur þingmeirihluti___________
Hins vegar er þingmeirihluti fyr-
ir þessum tillögum knappur, mjög
knappur. Ég minni á það að fisk-
veiðistjórnarfrumvörp hafa aldrei
farið í gegnum þingið án þess að
menn hafi verið í vafa með þing-
meirihlutann í hvert sinn. Ég held
nú að þetta sé nú ekki óvissara en
verið hefur.
Ef að þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins sem talað hafa af skyn-
samlegu viti um fiskveiðistjórn á
undanförnum árum og misserum
eru sjálfum sér samkvæmir þá
ættu þeir auðvitað að geta stutt
þetta því þetta hefur yfirleitt ekki
verið flokksmál. Ég minni á það
að þeir stóðu að samþykkt fisk-
veiðistjórnarlagan þegar þau voru
síðast afgreidd.
tryggvi
HARDARSON
LEIÐRÉTTTNG
Vegna mistaka er þessi auglýsing sem birtist í dagblöðum í gær endurbirt.
Vinsamlegast athugið að innlausnarverð miðast við kr. 10.000,-
- tíu þúsund krónur - en ekki kr. 100,-. Beðist er velvirðingar á þessari misritun.
HVÍTA HUSIO / SIA
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓEIS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 10.000,00
1983- 2. fl. 1984- 3. fl. 01.05.90-01.11.90 12.05.90-12.11.90 kr. 45.613,34 kr. 46.769,59
*lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðsferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin..
Reykjavík, apríl 1990
SEÐLAB ANKIÍSLANDS