Alþýðublaðið - 05.10.1990, Síða 5

Alþýðublaðið - 05.10.1990, Síða 5
Föstudagur 5. okt. 1990 5 UMRÆDA Árni Gunnarsson þingmaður vill nýja viðreisnarstjórn: Myndin sýnir fyrstu viðreisnarstjórnina, ríkisstjórn Sjalf- stæðisflokks og Alþýðuflokks sem skipuð var 20. nóvember 1959. Frá vinstri: Ingólfur Jónsson, landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra, Bjarni Benediktsson, dóms- og kirkjumálaráðherra, Ólafur Thors, forsætisráðherra, Ás- geir Asgeirsson foreti íslands, Emil Jónsson, sjávarútvegs- og félagsmálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason mennta- mála- og viðskiptaráðherra, Gunnar Thoroddsen, fjármáiaráðherra. A myndina vantar Guðmund í. Guðmundsson utanríkisráðherra. Önnur viðreisnarstjórn tók við 14. nóvember 1963 undir forsæti Bjarna Benediktssonar og var við lýði til 10. október 1970 er síðasta viðreisnarstjórnin tók við undir forsæti Jóhanns Hafsteins og gengdi störf- um til 14. júlí 1971. 4 ÞRÖSKULDI NÝRRAR ALDAR Árni Gunnarsson þing- maður er þeirrar skoðunar, að Alþýðuflokkurinn eigi að slefna að stjórnarsam- slarfi með Sjólfstæðis- flokknum eftir næstu þing- kosningar. „Þjóðin stendur nú ó þröskuldi nýrrar aldar og þarf að taka mikilvægar ókvarðanir varðandi Efna- hagsbandalagið, ó vett- vangi alþjóðlegra peninga- og markaðsmóla. Við þó ókvarðanatöku er bæði óæskilegt og beinlinis hættulegt, að við völd verði rikisstjórn sem ekki er sant- stiga i ókvarðanatöku," segir Árni i eftirfarandi grein. Mig langar fyrst að fara nokkr- um orðum um stöðu ríkisstjórnar- innar og stöðu efnahagsmála. Eg hef lengi verið þeirrar skoðunar, að Steingrímur Hermannsson hafi sýnt umtalsverða stjórnunarhæfi- leika í því verki sínu, að halda þessari ríkisstjórn saman. Það hef- ur þó hjálpað honum verulega hve samstarf formanna stjórnarflokk- anna hefur verð gott. Þannig hef- ur tekist að leysa býsna bitur ágreiningsmál, sem stefndu stjórnarsamstarfinu í verulega hættu. En umtalsverður ágrein- ingur er ennþá fyrir hendi, og hann er hvað mestur á milli ráð- herra Alþýðuflokksins og tveggja ráðherra Alþýðubandalagsins, þeirra Svavars Gestssonar og Steingríms J. Sigfússonár. Nú er það álmálið sem heitast brennur og gæti hæglega komið ríkisstjórninni á kné fyrr en varir. Ágreiningur Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags kristallar þann reginmun, sem er á þessum tveim- ur flokkum, a.m.k. ef litið er á arm þeirra Svavars og Steingríms J. Þar endurspeglast sú afturhaldssemi og neikvæða íhaldssemi, sem allt- af hefur komið í veg fyrir samstarf þessara tveggja flokka og mun gera það áfram á meðan sjónar- mið þeirra tvímenninga og fylgis- manna þeirra fá að ráða ferðinni. Hvort Olafur Ragnar hefur styrk til að leiða flokkinn út úr vítahring gamalla kreddusjónarmiða verð- ur ekki ljóst í bráð. Takist honum það ekki, á hann engan annan kost en að yfirgefa Alþýðubanda- lagið með sínum stuðningsmönn- um, og það kæmi mér ekki á óvart þótt á það reyndi fyrir næstu kosn- ingar. Þá getur orðið fjörugt í framboðsmálum Alþýðuflokksins. Viöreisn besti kosturinn Þótt núverandi ríkisstjórn hafi tekist vel á mörgum sviðum, eink- um í baráttunni við verðbólguna, með dyggum stuðningi verkalýðs- hreyfingarinnar og vinnuveit- enda, þá ítreka ég þá skoðun mína að fjölflokka samsteypustjórnir eru ekki vænlegur kostur við stjórn þjóðmála. Það kæmi mér ekki á óvart þótt Steingrímur Her- mannsson vildi endurnýja núver- andi ríkisstjórn eftir næstu kosn- ingar. Mín skoðun er hins vegar sú, að Alþýðuflokkurinn eigi að stefna að stjórnarsamstarfi með Sjálf- stæðisflokki eftir næstu kosning- ar. Þjóðin stendur nú á þröskuldi nýrrar aldar og þarf að taka mikil- vægar ákvarðanir varðandi efna- hagsbandalagið, á vettvangi al- þjóðlegra peninga- og markaðs- mála. Við þá ákvarðanatöku er bæði óæskilegt og beinlínis hættu- legt, að við völd verði ríkisstjórn, sem ekki verður samstíga í ákvarðanatöku. Ég tel að sam- stjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæð- isflokks yrði hæfust til að marka skynsamlega stefnu á þessu sviði. Þessa skoðun mína vil ég láta koma skýrt fram. Með þessu er ég ekki að gera lítið úr öðrum stjórn- málaflokkum eða einstaklingum innan þeirra, heldur að draga ályktanir af afstöðu flokka til þeirra málefna, sem miklu munu ráða um framtíðarþróun þjóðmál- anna. Stefna og afstaða Sjálfstæðis- flokksins til velferðarkerfisins, heilbrigðiskerfis, almannatrygg- inga og skólamála og félagsmála almennt hefur tekið miklum breytingum í áranna rás og er ekki svo ólík stefnu Alþýðuflokksins að ekki ætti að vera unnt að ná sam- komulagi um veigamestu þætti þessara grundvallarþátta í stefnu Alþýðuflokksins. Eg er einnig þeirrar skoðunar, að í samstarfi þessara flokka væri unnt að ná fram heilsteyptri pen- ingamálastefnu og hrinda í fram- kvæmd nýjungum í atvinnumál- um, sem erfitt myndi reynast í rík- isstjórn á borð við þá, sem nú situr. Eg er einnig þeirrar skoðunar, að það eigi að leyfa þjóðinni að kjósa um slíka tveggja flokka ríkis- stjórn. Þjóðin veit sjaldnast hvaða ríkisstjórn hún kýs yfir sig, þegar hún gengur til kosninga. Stjórn- málamenn lýsa því sjaldnast yfir fyrir kosningar hvaða ríkisstjórn þeir vilji mynda eftir kosningar. Þessir tveir stjórnmálaflokkar ættu því að lýsa því yfir fyrir kosn- ingar, að þeir hyggi á samstarf eftir kosningar, fái þeir til þess meiri- hluta. En svo að koma megi á sam- starfi þessara flokka verða for- menn þeirra að leiða til lykta al- varlegan persónulegan ágreining og græða ýmis sár, sem eru afleið- ingar síðustu stjórnarslita. Tilvistarvandi_________________ Íafnaðarma nnatlokka Nú kann einhverjum að þykja ég taka full djúpt í árinni. En þessa skoðun mína byggi ég á þeim póli- tíska veruleika, sem framundan er — ekki vegna andúðar á flokkum eða. einstaklingum. Við skulum hafa hugfast, að í næstu kosning- um verður kosið um eitt mikilvæg- asta utanríkismál þjóðarinnar fyrr og síðar; afstöðuna til Efnahags- bandalagsins og stöðu þjóðarinn- ar í nýjum heimi. En lítum nú aðeins á Alþýðu- flokkinn og stöðu hans. Jafnaðar- mannaflokkar á Vesturlöndum eiga nú við nokkurn tilvistar- vanda að stríða. Sama gildir um Alþýðuflokkinn. Ástæðurnar eru þessar: Gömlu baráttumálin eru ýmist orðin úrelt, eða að þau eru orðin að veruleika, viðurkennd af flestum pólitískum öflum. Alþýðu- flokkurinn berst ekki lengur fyrir þjóðnýtingu, fyrir rekstri bæjarút- gerða eða atvinnurekstri alþýðu- samtaka. Sjónarmiðin hafa breyst og ný áhersluatriði eru tekin við að þeim gömlu. Velferðarkerfið, stærsta baráttumál jafnaðar- manna fyrr og síðar, er orðið að veruleika. Endalaust má sníða af því galla og betrumbæta, en allir stjórnmálaflokkar viðurkenna nauðsyn þess, þótt lítilsháttar ágreiningur sé um framkvæmd- ina. Jafnaðarmenn geta unað glaðir við árangurinn. En velferðarkerfið er ekki leng- ur eiginlegt baráttumál, þótt átök kunni að verða um einstaka þætti þess. Markmið jafnaðarmanna á þessum vettvangi verður að við- halda, og það gefur augaleið, að varðveisla velferðarkerfisins verð- ur ávallt snar þáttur í störfum jafn- aðarmannaflokks. En eftir stendur sú staðreynd, að baráttumál, sem vakið geta eldmóð og eflt baráttu- þrek, eru af skornum skammti. Þá er ég að ræða um heilstæða póli- tíska stefnu og markmið. Hagvaxtarstelna er helstelna_____________________ Alþýðuflokkurinn verður að móta stefnu nútíma jafnaðar- mannaflokks, sem tekst á við þau vandamál, sem heitast brenna á einstaklingum á líðandi stund. Þar erum við aftarlega á merinni. Ég hef hvatt mjög til þess, að flokkur- inn hefði forgöngu í umhverfis- og þróunarmálum, sem nú eru mál málanna. Staða þeirra kallar á nýtt gildismat, fráhvarf frá þeirri stefnu síðustu áratuga, sem kalla má hag- vaxtarstefnuna. Krafan um lát- lausa aukningu hagvaxtar á kostn- að náttúru og umhverfis, er hel- stefna. Hún er að kalla fram slík umhverfisslys, að vaxandi líkur eru á því, að skemmdirnar verði ekki lagfærðar. Lítum á eyðileggingu regn- skóga, hækkun hitastigs, eyðingu ósonlagsins, súrt regn, uppblástur og stækkandi eyðimerkur. Ástæð- una fyrir því hvernig komið er má rekja til þeirrar svokölluðu fram- fara- og framleiðnistefnu, sem fylgt hefur verið. Efnahagslegur vöxtur hefur verið meginmark- miðið, stöðugur hagvöxtur er sagður nauðsynlegur, hagvöxtur er framfarir segja menn og hann er skilyrði aukinnar velferðar. En þessi óhefti hagvöxtur hefur ekki tekið tillit til afleiðinganna af hag- vaxtar-kröfunni. Og hagvöxturinn hef ur aðeins orð ið hjá hluta mann- kyns, eða um 20%, sem ráða yfir 80 af hundraði heimsauðsins. Þró- unarlöndin verða stöðugt fátækari en iðnríkin auðugri. Hér ræður engin jafnaðarstefna. Og það er einmitt hér, sem hin nýja jafnaðar- stefna á miklu hlutverki að gegna. Við verðum að endurskoða hug- myndir okkar um stöðugt aukinn hagvöxt. Ég er t.d. ekki í nokkrum vafa um það, að hin íslenska hag- vaxtarstefna stefnir í hættu grund- velli lífsafkomu okkar, fiskistofn- unum. Jafnaðarmenn verða að leggja fram nýtt gildismat og gera sér grein fyrir því, að stefna þeirra er alþjóðleg. Hún snýst ekki aðeins um jöfnuð heima fyrir, heldur jöfn- uð í mun víðari skilningi þess orðs. Þýskir jafnaðarmenn og sænskir hafa rætt þessi mál mikið undan- farin misseri, enda hafa þeir gert sér fulla grein fyrir þeirri tilvistar- kreppu, sem jafnaðarstefnan er í. Alþýðuflokkurinn verður að gera ungu fólki grein fyrir því, að fram- tíð þess veltur á nýju gildismati og að umhverfismálin eru mál fram- tíðarinnar. Gilurleg vonbrlgði_____________ En nú langar mig að víkja að kjördæmismálum. Þar ber auðvit- að hæst álmálið og baráttuna um álverið. Ég lýsi þeirri skoðun minni, að barátta Eyfirðinga fyrir álveri er töpuð. Ég hygg að fyrir allnokkru hafi það legið fyrir, að álverið færi á Reykjanes. Þetta kemur m.a. fram í gögnum, sem ég hef undir höndum, þar sem ál- viðræðunefnd hefur gert að skoð- un sinni niðurstöðu erlends ráð- gjafafyrirtækis um að heppilegast verði að reisa álver á Keilisnesi. Ég hygg að staðan hafi verið einfald- lega sú, að valið hafi staðið á milli Keilisness, eða að ekkert álver yrði reist. Þetta eru mér gífurleg vonbrigði og lítt ásættanleg niður- staða, miðað við stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar, miðað við allar yfirlýsingarnar um nauðsyn á jafnvægi í byggð landsins og miðað við það atvinnuástand, sem hér ríkir og framtíðarhorfur í at- vinnumálum. En mín vonbrigði eru auðvitað léttvæg samanborið við afleiðingarnar, sem þessi nið- urstaða hefur. Ég leyfi mér að full- yrða, að álver á Keilisnesi hefur í för með sér meiri byggðaröskun í þessu kjördæmi en menn hafa orðið vitni að um áratugaskeið. Kreppan í byggðariðnaðinum um árið verður léttvæg miðað við þessa röskun. Ég sá fyrir mér atvinnu- og byggðaþróun, sem hefði í raun gert Eyjafjarðarsvæðið að mikil- vægu mótvægi við Stór-Reykja- vikursvæðið. Með jarðgöngum um Ólafsfjarðarmúla verður Eyja- fjörður eitt atvinnusvæði, sveitar- félögum mun fækka og unnt verð- ur að samræma margvíslega þjón- ustu á heilbrigðissviðinu og félags- lega sviðinu. Atvinnufyrirtæki á borð við álver hefði ýtt undir þessa þróun, eflt Akureyri sem kjarna fjölmennrar og öflugrar byggðar. Þetta var því nauðsynlegra, þeg- ar þess er gætt, að á undanförnum árum hafa mörg hundruð atvinnu- tækifæri glatast, stór fyrirtæki hætt rekstri og atvinnuleysi orðið viðvarandi, ekki bara tímabundið. — Fjölmargir bundu miklar vonir við álver og tengdu það framtíð sinni hér á svæðinu. Þetta á bæði við um fyrirtæki og einstaklinga, sem nú sjá þessar vonir bresta og taka ákvarðanir samkvæmt því. Ég óttast að fyrirtæki muni leggja upp laupana og fjölskyldur hverfa á brott. — Mér finnst mikið á það skorta, að menn ræði þensluáhrif- in af álveri á Keilisnesi. Fjöldlfólks mun flytja inn á Stór-Reykjavíkur- svæðið, eftirspurn eftir húsnæði eykst og verð hækkar. Auka verð- ur alla félagslega þjónustu og svo mætti lengi telja. Það er þó lang al- varlegast, að ákvörðun um Keilis- nes brýtur í bága við yfirlýsta stefnu allra stjórnmálaflokka um meira jafnvægi í byggð landsins. En niðurstaða þessa máls leiðir huga okkar að því hvað til bjargar megi verða til að bæta atvinnu- ástandið. Á þessari stundu kem ég ekki auga á marga valkosti, þótt rómantískir menn og konur, sem í hóflausri bjartsýni telja.að vand- inn verði leystur með litlum og snotrum handavinnufyrirtækjum. Oftast kemur þó í hugann full- nýting sjávarafla með stóriðju- sniði. Og ég er sannfærður um, að það er aðeins tímaspursmál hve- nær íslendingar verða stórtækir í vatnsútfiutningi. Eins er ég sann- færður um, að ekki líður á löngu þar til eftirspurn eftir hreinum og ómenguðum landbúnaðarafurð- um mun kalla á aukna landbúnað- arframleiðslu og úrvinnslu á land- búnaðarvörum. En þetta er í fram- tíðinni. Vandinn stendur hins veg- ar við dyrnar og hann verður að leysa. Að öðrum kosti verða íslenskir stjórnmálamenn að svara spurn- ingunni um það hvar í landinu þeir vilja hafa byggð. Hvort hún eigi eingöngu að vera á suð-vestur- horninu. Alþýðuflokkurinn fer með iðn- aðarmálin. Ég veit að Jón Sigurðs- son ráðherra haf ði mikinn áhuga á því að álverið risi við Eyjafjörð. Um það þarf ekki að deila. En ég hef áhyggjur af því, að Alþýðu- flokkurinn verði talinn eiga nokkra sök á því, að álver rís ekki við Eyjafjörð. Hvort honum verð- ur hegnt fyrir það í næstu kosning- um, skal ég ekki segja, en niðurstaðan bætir ekki vígstöðu hans í kjördæminu. Aml Gunnarsson þingmaður skritar

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.