Alþýðublaðið - 14.12.1990, Side 8

Alþýðublaðið - 14.12.1990, Side 8
Láftrygt^ngar lll /7/nv\ VAVIIJJ ALÞJÓÐA UFTRYGGINGARFELAGIÐ HF. LÁGMULI5 - RFYKJAVtK sínti G81G44 GEVALIA t>að er kaffið 687510 • ••• •••• • • • • ••• •••• • • • • • • • • • • • • • • • MOTMÆLII ALBANJU: Lögregla og herlið skárust í leikinn eftir að hópur mótmælenda réðst á stjórnarbygg- ingar og flokksstöðvar Kommúnistaflokksins í borginni Shkoder í norðurhluta Albaníu í gær. Útvarpið í Albaníu tilkynnti að mótmælendurnir hefðu verið vopnaðir járn- kylfum og grjóti. Þessar fregnir berast degi eftir að Ramiz Alia, forseti Albaníu, hvatti til friðar á meðan umbótum í átt til lýðræðis yrði komið á í landinu. KOHL VER RAÐ- HERRA SINN: Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, hefur tekið upp hanskann fyrir einn ráðherra sinna, Lothar de Maiziere, fyrrum forsætisráðherra A-Þýska- lands, en háværar raddir eru nú uppi um það í þýsk- um blöðum að hann hafi verið á mála hjá hinni ill- ræmdu a-þýsku leynilög- reglu, Stasi, og að hann hafi veitt þeim mikilvægar upp- lýsingar. Kohl sagði blaða- mönnum í gær að hann hefði enga ástæðu til að ætla annað en að de Maiziere væri saklaus. MAJOR TIL RÓMAR: Utanríkisráðherra Frakk- lands, Roland Dumas, seg- ist ekki búast við neinni óvæntri stefnubreytingu af hálfu forsætisráðherra Breta, John Majors, á fundi EB sem haldinn verður í Róm um helgina. Þetta verður fyrsti EB fundur Majors í hinu nýja embætti og bíða menn í eftirvænt- ingu eftir því hvort hann muni koma fram með nýja stefnu í Evrópumálum. Dumas er ekki á því en telur að Bretar muni að lokum sameinast meirihlutanum sem stefnir að sameiningu ríkja V-Evrópu. OEIRÐIR I ISRAEL: Heimildir úr ísraelska hernum herma að herinn hafi nýlega komið á laggirnar sérstakri sveit leyniskyttna sem skjóta eigi á palestínska grjótkast- ara á hernumdu svæðunum. Slíkar skyttur skutu og særðu þrjá palestínumenn á vestur bakkanum í gær og fjórir aðr- ir hafa orðið fyrir skotum þeirra undanfarna þrjá daga. Pal- estínumennirnir sem skotið var á voru að henda grjóti á ísraelsk ökutæki. Skytturnar hafa þau fyrirmæli að skjóta aðeins á Palestínumenn þegar iífi þeirra er ógnað. BÆTT SAMSKIPTI ÍSRELS OG HEIMSVELD- ANNA Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, tókst að bæta samskipti þjóðar sinnar við bæði heimsveldin eftir fundi sína í vikunni. Bandaríkjamenn hafa fullvissað hann um að þeir muni aldrei samþykkja að tengja lausn Persa- flóadeilunnar málefnum Israels. Shamir átti einnig fund með Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, og eftir þann fund lýsti Shevardnadze því yfir að Sovétmenn hyggðust koma aftur á stjórnmálasambandi við ísraela og að ekki væri lengur gerð krafa um að efnt yrði til alþjóð- legrar ráðstefnu um frið í Mið-Austurlöndum. ORLITILL ARANGURIVIÐRÆÐUNUM UM EES: Talsmenn Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA, skýrðu frá því í gær eftir samningalotu EFTA og EB í Brussel að örlítill árangur hefði náðst í samningunum um hið sameiginlega evrópska efnahagssvæði, EES. EFTA-menn sögðu að EB hefði fallist á að EFTA fengi að taka þátt í nefndarstarfi sem leggja eiga drög að stofnun EES. Hins vegar var bent á það að markmið EFTA um að fá fullan rétt til ákvarðanatöku í hinu sameiginlega efnahagssvæði væri enn fjarlægt. TÍGRISDÝR RÆÐST Á BARN: Tigrisdýr særði alvar- lega fjögurra ára gamla telpu á sérstakri jólasýningu fjöl- leikahúss í Toulouse í Frakklandi á miðvikudaginn. Tígris- dýrið, sem vó 180 kg, stökk inn í áhorfendaskarann þegar búr þess var opnað, það sló í andlit telpunnar með hröm- munum og tókst að hremma haus barnsins með kjaftinum áður en það var dregið í burt af starfsmönnum fjölleika- hússins. ERLENDAR FRÉTTIR Svend Auken, formaður danska Alþýðuflokksins, sigurvegari kosninganna ásamt Ritt Bjerregárd, utanríkisráðherraefni jafn- aðarmanna. Paul Schlúter ætlar sér að verða áfram forsætisráðherra þrátt fyrir tapið. Þorlákur Helgason skrifar frá Kaupmannahöfn um dönsku kosningarnar: Lifdagar næstu stjórnar þegar taldir „Ég ætla að segja þeim að bíða eftir endanleg- um niðurstöðum," sagði Jessica litla, 11 ára, við mig í gær þegar ég spurði hana hvað hún ætlaði að segja bekkjar- félögum sínum í dag. Pabbi hennar er sigur- vegari dönsku kosning- anna. Hann heitir Svend Auken. Það er hætt við að Jess- ica verði að bíða einhverja stund, því að þó að jafnað- armenn séu augljósir sigur- vegarar í kosningunum, mun meirihlutastjórn borg- araflokkanna líklega sitja einhverja mánuði. Jafnað- armannaflokkurinn bætti 7,6% við sig og er það mesta aukning í nokkrum kosningum eftir seinni heimsstyrjöld. Ríkisstjórn- in situr áfram að hluta. Schlúter mun gera allt til þess að fá að hlýja sér í stóli forsætisráðherra, en einn af stjórnarflokkunum, Radikale Venstre, missti mikið fylgi og hefur ákveð- ið að yfirgefa stjórnarheim- ilið. Þó að húsbóndinn muni áfram heita Schlúter, munu það verða jafnaðar- menn sem eiga síðasta orð- ið. Líklegast er að Venstre, sem unnu á, og íhaldsflokk- ur Schluters myndi minni- hlutastjórn. Fréttaskýrendur hér eru sammála um að stjórnin verði ótrúlega veik. Jafnað- armenn bættu við sig 15 þingmönnum við kosning- arnar nú. Þrátt fyrir stærsta sigur þeirra frá stríðslokum verður Svend Auken, for- manni Jafnaðarmanna- flokksins, þó ekki falin stjórnarmyndun, að minnsta kosti ekki í bráð. Kjósendur vita enn ekki hvers vegna þing var rofið og kosið. Alls kusu 82,8% en í skoðanakönnunum kom í ljós að aðeins 1% kjósenda taldi kosninga- málið sjálft skipta ein- hverju. Ekki ein einasta kona nefndi skattadeiluna, sem kosningunum olli, sem mikilvægasta verkefni danskra stjórnmála. Flestir voru á því að atvinnuleysi væri erfiðast viðureignar, en í gær birtu „hinir vísu menn“ spár um 300 þús- undir sem verða atvinnu- lausar á næsta ári. Af göml- um vana telja Danir að jafn- aðarmenn geti betur en borgaraflokkarnir glímt við atvinnuleysið, og það hafi fært þeim nokkurt viðbót- arfylgi. Alls kyns furðusögur fóru af geðheilsu Svends Auk- ens. Honum mun hafa tek- ist að snúa þeim sér í hag með því að benda á þann rnikla fjölda sem leitar á hverju ári til sálfræðinga. Auken var að sjálfsögðu í fararbroddi í kosningabar- áttunni, en utanríkisráð- herraefni jafnaðcU'manna, Ritt Bjerregárd, var líka í fremstu víglínu. Hún ítrek- aði í samtali við blaðamann Alþýðublaðsins að jafnað- armenn krefðust meiri- hlutastjórnar. Hve biðin verður löng fyrir Bjerregárd veit enginn sem stendur. Svend Auken krafðist þess í gær að Schlúter segði af sér tafar- laust, en það ætlar hann ekki að gera. Schluter lang- ar mest að mynda „fjög- urra blaða smára." Sú leið er þó ekki greiðfær. Síðdeg- is i gær hóf hann viðræður við forystumenn borgara- flokka. Mimi Jakobsen, for- maður miðdemókrata, krefst þess að skattar verði lækkaðir. Bilið milli hennar og Svends Aukens hefur styst pólitískt séð, þó að litl- ar líkur séu á því að þau nái saman í þetta sinn. Venstre og jafnaðarmenn unnu mest á í kosningun- um, en margir urðu undir. Glistrup yfirgaf sem kunn- ugt er gamla flokkinn sinn — en hann náði ekki lág- marksfjölda atkvæða til þess að komast á þing. Kommúnistaflokkurinn gamli bauð fram undir nafni „mannvina" en fékk aðeins 791 atkvæði sam- tals. í sumum kjördæmum komust þeir ekki á blað. Kosningunum lauk með pomp og prakt. Kosninga- vökur voru dæmalaust skemmtilegar. Allir eru sammála um að stutt sé í þær næstu — og að eftir þær kosningar muni for- sætisráðherrann heita Auk- en. Tyminski kominn til Kanada Stanisiaw Tyminski, sem beið lægri hlut fyrir Lech Walesa í forsetakosning- unum í Póllandi, kom heim til Kanada í fyrradag. Við heimkomuna gaf hann það í skyn að hann mundi snúa aftur til Póllands og þá hugsanlega til að taka þátt í stjórnmálum þar. Tyminski, sem er 42 ára gamall kaupsýslumaður, sagði blaðamönnum að hann sæi ekki eftir að hafa tekið þátt í forsetakosningunum, sem lauk sl. sunnudag með yfirburðasigri Lechs Walesa. Það voru ekki eingöngu blaðamenn sem tóku á móti Tyminski í Kanada heldur fjöldi kanadískra stuðnings- manna hans en Tyminski er formaður smáflokks þar i landi sem þykir mjög langt til hægri. Tyminski var gert að greiða 100 þúsunda dollara í trygg- ingu til þess að fá að fara frá Póllandi vegna þeirra ásak- ana sem hann lét falla í kosn- ingabaráttunni. Hann sakaði m.a. Tadeusz Mazowiecki for- sætisráðherra um landráð vegna sölu á pólskum ríkis- fyrirtækjum á gjafverði. Yfir- völd í Póllandi eru æf vegna þessa og hafa ákært Tyminski fyrir aerumeiðingar. Tyminski óttast ekki að snúa aftur til Póllands og að- spurður um réttarhöldin sagðist hann hafa næg sönn- unargögn máli sínu til stuðn- ings, þ.á.m. gögn sem sanni að Walesa sé á mála hjá kommúnistum. Verði Tyminski fundinn sekur á hann yfir höfði sér fangelsisdóm í allt að átta ár.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.